Pressan - 19.07.1990, Qupperneq 7
Fimmtudagur 19. júlí 1990
reiðum höndum, Jón Baldvin
Hannibalsson stingi upp á Arna
Páli Árnasyni úr Birtingu en Jón
Sigurðsson upp á Ragnheiði B.
Guðmundsdóttur, en hún skipaði
3. sætið á lista flokksins fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar 1986. Fleiri
nöfn eru nefnd og má í því sam-
bandi nefna sérstaklega að Jón
Baldur Lorange, fv. framkvæmda-
stjóri flokksins, er genginn í flokk-
inn á ný, en hann sagði sig úr honum
í fússi eftir lélegt gerigi í opna próf-
kjörinu fyrir síðustu borgarstjórnar-
kosningar. Hann mun hugsa sér for-
mennskuna sem sárabót. Meðal
annarra í umræðunni eru Valgerð-
ur Halldórsdóttir þjóðfélagsfræð-
ingur, Steindór Karvelsson sölu-
maður, Ingi Guðjónsson frá Hafn-
arfirði og Runólfur Ágústsson
laganemi og Birtingarmaður. . .
h
Ijónin Svava Gunnarsdóttir
og Björn Kristjánsson hafa nú
haft opið fjós í Ölfusinu í rúmlega
eitt ár og láta vel af því að hafa
mannskepnur í staðinn fyrir kýr i
fjósinu. Þessi búgrein mun þó enn
ekki hafa náð mikilli útbreiðslu hér-
lendis. Fjós hjónanna á Efstalandi í
Ölfusi er leigt út til skemmtanahalds
fyrir hópa og ekki er loku fyrir það
skotið að haldin verði fjósaböll op-
in almenningi einhverntíma í fram-
tíðinni. Bóndinn á Efstalandi ætlaði
sér upphaflega að hafa kýr í fjósinu
en varð að hætta við þá áætlun
vegna ofnæmis og hefur því engin
kýr stigið fæti sínum í Efstalands-
fjósið. Hjónin brugðu þá á það ráð
að fylla flórana og fjarlægja básana
til þess að hafa nægilegt danspláss,
bæði í hlöðu og fjósi, og í stað bása
komu barir. Skemmtistaðurinn ber
nafnið Básinn, þó að básarnir séu
farnir. En tii þess að glata ekki
sveita- og fjósastemmningunni hef-
ur verið komið fyrir ýmsum göml-
um munum, svo sem skilvindu,
strokki, vagnhjóli og klyfbera til
skrauts í fjósinu.. .
Þ
að mun alsiða hjá bandarísk-
um tónlistarmönnum að krefjast
greiðslu fyrir viðvik sín fyrirfram.
Það gerði Bob Dylan líka fyrir tón-
leika sína hér á landi. Þóknunin sem
hann fékk í sinn hlut var 3 millj. kr.
og átti að greiðast í byrjun júní. Þar
sem skotsilfur mun ekki hafa legið á
lausu hjá Listahátíð var leitað á
náðir borgaryfirvalda. Af sínum
góðu efnum lánuðu þau Listahátíð
þá aura sem vantaði, en nú hafa þeir
verið greiddir aftur með skilum.
Þess má kannski geta að borg og ríki
hafa þegar greitt sínar sjö milljón-
irnar hvor aðili til hátíðarinnar, eins
og fjárlög og fjárhagsáætlun gera
ráð fyrir. Verði halli á hátíðinni kem-
ur til kasta borgarstjórnar, fjár-
málaráðuneytis og menntamála-
ráðuneytis að deila honum með
Figandi Tívolís í Hveragerði,
hæstaréttarlögmaðurinn Ragn-
ar Olafsson, hefur verið inntur eft-
ir því í fjölmiðlum hvort sögusagnir
um að tækin í tívolíinu séu að hruni
komin eigi við rök að styðjast. Hing-
að til hefur ekkert tæki hrunið en
hinsvegar eru sum tækin komin vel
til ára sinna og því vandasamt að
sinna nauðsynlegu viðhaldi og sér-
staklega erfitt er að fullnægja kröf-
um um hreinlæti. Vinnueftirlits-
maður ríkisins í Hveragerði,
Sveinn Rúnar Sveinsson mun
ekki hafa fengið neinar kvartanir
um hættuleg tæki frá tívolígestum.
En hinsvegar mun hafa borið á því
að t.d. olíulekar frá tækjunum og
annað slíkt hafi farið í taugarnar á
kúnnunum. Iðntæknistofnun ger-
ir úttekt á hættulegum tækjum svo
oft sem þess er krafist samkvæmt
reglugerðum. . .
rftir um tvo mánuði verður
haldið þing Sambands ungra jafn-
aðarmanna, þ.e. ungliðadeildar Al-
þýðuflokksins. Núverandi formað-
ur, Birgir Árnason, fv. aðstoðar-
maður iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, er mættur til starfa í Evrópu
og því vantar eftirmann í for-
mennskuna. Sagt er Jónarnir í
flokknum hafi sína óskakandídata á
Allt fyrír
kylfingana
• Kylfur* kerrur
• pokar • kúlur
Golffatnaður
í miklu úrvali
■ Lágmúla
Flugstöð
Is
AMSTERDAM
HLIÐIÐ
1
AÐ EVROPU
Raunar má segja að hún sé hliðið að allri heimsbyggðinni. Þaðan er greið leið
með bílaleigubílum (þeim ódýrustu í Evrópu) og/eða lestum suður um alla
álfuna. Þaðan flýgur líka KLM til yfir 130 borga í 80 löndum. Á mörgum
þessara flugleiða getur Arnarflug boðið sérstaklega hagstæð fargjöld.
Hliðið er opið. Gjörið svo vel og gangið inn.
7, slml 91-84477.
Lelfs Elríkssonar, siml 92-50300.