Pressan - 19.07.1990, Side 10

Pressan - 19.07.1990, Side 10
10 Fimmtudagur 19. júlí 1990 HVERJIR VERÐA ÍSLANDSMEISTARAR? Islandsmótið í knattspyrnu rúmlega hálfnað Fyrstudeildarkeppnin á Islandsmótinu í knattspyrnu er nú rúmlega hálfnuð og margt óvænt hefur gerst. En þrátt fyrir að nokkur lið hafi komið á óvart eru flestir knattspyrnuáhugamenn þeirrar skoðunar að Reykjavíkurfélögin Valur, Fram og KR eigi eftirað berjast um íslandsmeistaratit- ilinn í lokaumferðum mótsins í haust. eftir ágúst borgþór sverrisson Nýliðar IBV eru engu að síður á fullu í toppbaráttunni og komust í þriðja sæti með glæsilegum sigri gegn Fram á mánudagskvöld en bæði KR og Fram hafa valdið nokkr- um vonbrigðum, KR-ingar hafa ekki átt marga góða leiki þrátt fyrir aö vera í öðru sæti og hefur þeim verið brigslað um heppni. Bjartsýni fyrir hönd fyrrgreindra liða er reist á því að langþekktustu knattspyrnumenn landsins leika með þeim og er það trú margra að þau eigi eftir að skilja önnur lið eftir neðar í deildinni þegar lykilmenn- irnir fara að sýna sitt rétta andlit. Flestir eiga erfitt með að spá fyrir um hvaða lið falla í aðra deild því lítill munur virðist vera á liðum frá miðri fyrstu deild og niður í tvö efstu sætin í annarri deild. Toppsæti þrátt fyrir hrakspár Pressan ræddi stuttlega við talsmenn fjögurra efstu liö- anna í fyrstu deild og virtust þeir mjög einhuga um hvert framhaldið yrði í toppbarátt- unni. Þorgrímur Þráinsson, fyrirliði Vals, sagði að vitan- lega lægi vel á mönnum í sín- um herbúðum: „Auðvitað stefnum við að því að halda toppsætinu. Okkur var ekki spáð mikilli velgengni í vor og það voru svo sem raunsæj- ar hrakspár. Okkur gekk illa í Reykjavikurmótinu og vor- um með marga menn á sjúkralista í upphafi íslands- mótsins. Af einhverjum ástæðum ræddum við það ekkert okkar á milli hvar við gætum lent í deildinni en ég segi fyrir mig að toppsætið núna kemur mér ekkert á óvart. Ég veit ekki út af hverju en ég hafði góða til- finningu fyrir þessu móti i vor. Andinn í liðinu er frábær og ánægja ríkir með Inga Björn Albertsson þjálfara, honum fylgir hæfileg blanda af aga og léttleika. Ég held að Valur, KR og Fram verði i toppsætunum. ÍBV gæti þó hugsanlega kom- ið á óvart og jafnvel náð Evr- ópusæti. Ekkert af þessum liðum er hins vegar líklegra en annað til að vinna titilinn. KR gæti unnið sinn fyrsta meistaratitil í ár og við gæt- um lent í öldudal eins og Fram hefur gert. Það getur margt breyst í botnbaráttunni og ég hef enga trú á því að KA falli þó að liðinu hafi gengið illa. Ég gæti trúað því að fjögur til fimm lið stæðu í fallbaráttu í síðustu umferð- unum.“ Viljum að risinn fari að vakna Jónas Kristinsson, stjórnar- maður hjá Fram, sagði að menn væru ekki með neinar stórar yfirlýsingar í herbúð- um liðsins heldur tækju hvern leik fyrir sig og hugs- uðu ekki um annað. „Það er hins vegar ekkert leyndarmál að KR-ingar vilja að risinn fari að vakna og við stefnum upp á við. Ég vil trúa því að það sé kominn stígandi í leik liðsins en viðurkenni að það hefur ekki náð neinum topp- leikjum ennþá. Þar hefur haft áhrif að ekki var hægt að stilla upp sterkasta liði fyrr en í fimmtu til sjöttu umferð. Það kemur sér hins vegar vel fyrir sjálfstraust liðsins að við höf- um verið að brjóta niður gamla múra í sumar með því að hirða sex stig á Akureyri og vinna Skagamenn sem ekki hefur gerst í mörg ár. Mér sýnist deildin ætla að verða hnífjöfn en Valur, KR og Fram gætu skorið sig úr. Ekkert af þessum þremur lið- um á hins vegar eftir að stinga af eins og margir héldu í vor að yrði tilfellið með Fram." Stöðugleiki Eyjamanna Sigurlás Þorleifsson, þjálf- ari og leikmaður ÍBV, er hóg- værðin uppmáluð þrátt fyrir frábært gengi sinna manna og hefur enga trú á öðru en Valur, KR og Fram raði sér í efstu sætin. „Þetta eru bestu liðin núna. Ég hef enga trú á því að KR detti niður í miðja deild eins og undanfarin ár, liðið er einfaldlega alltof sterkt til þess núna. Takmark- ið hjá okkur í vor var að lialda sér í deildinni og vitan- lega er ég mjög ánægður með árangurinn. Ég sagði að við þyrftum 20 stig til að ná takmarkinu og við erum komnir ansi nálægt því marki. Okkar sterkasta vopn er stöðugleiki og skynsam- legur leikur og það að menn gera sér grein fyrir því að það má ekki gera mistök. Ég held að það sé miklu erfiðara að spá um botnbaráttuna en toppbaráttuna. Liðin sem eru neðst núna gætu rifið sig upp, unnið nokkra leiki í röð og tryggt stöðu sína. Ég hef samt einhvern veginn á tilfinning- unni að Þór verði annað liðið sem fellur í aðra deild. KA virkar þunglamalegt og teflir ekki lengur fram mönnum sem geta gert út um leiki eins og í fyrra. Ég hef samt trú á því að KA haldi sér í deild- inni.“ Einhver lítill púki íokkur Pétur Ormslev, fyrirliði Fram, á erfitt með að skýra út bakslag liðsins eftir frábæra byrjun. Aðspurður um sigur- vissu sagði hann: „Umræðan í vor um að við myndum stinga af getur hafa haft þau áhrif að einhver lítill púki í okkur hafi hvíslað því að við værum búnir að vinna þetta. En við höfum líka orðið fyrir meiðslum og þegar meiðsli verða riðlast taktík og lið- skipan. Kannski höfum við gert einhver mistök hvað þetta varðar. Ég held að þrjú lið verði í toppbaráttunni, Valur, KR og Fram og ég held að bráðum fari að draga i sundur með þeim og öðrum liðum. Flvað botnbaráttuna snertir vil ég engu spá nema því að ég held að KA hrökkvi í gang og nái að halda sér uppi. Stjarnan, Víkingur og IBV hafa komið mér á óvart. Ég gæti trúað því að Stjarnan yröi einhvern tíma stórliö því að þar er mikiö byggt á mönnum sem eru aldir upp hjá liðinu." x x____ * ISLANDSMOTIÐ I KNATTSPYRNU Leikir í 11. umferð: Möguleikar liðanna: Athyglisverðir leikmenn: ÍA FRAM AKRANESI sunnudaginn 22. júlí kl. 16 Það er eitthvað að hjá Fram- liðinu en erfitt er að segja til um hvort vandamálin eru sálræn eða taktísk. Þegar Framarar eru í sínum rétta ham standast fá íslensk lið þeim snúning. Skagamenn eru orðnir fall- kandídatar en stóðu sig þokka- lega í tapleik gegn Val um síð- ustu helgi. Jón Erling Ragnarsson var varamaður hjá Fram-liðinu í átta fyrstu umferðunum. Hann hefur verið í byrjunarliðinu í síðustu tveimur leikjum og skorað i þeim báðum. Skaga- menn hljóta að binda vonir við reynslumestu leikmenn liðsins í fallbaráttunni sem er fram- undan, þá Karl Þórðarson og Guðbjörn Tryggvason. FH VÍKINGUR HAFNARFIRÐI sunnudaginn 22. júlí kl. 17 Víkingar hafa spilað betur én FH í sumar og eru jafnvel óheppnir að hafa ekki blandað sér í toppbaráttuna, sérstak- lega þegar hafðir eru í huga leikir liðsins gegn KR þar sem fjögur stig hafa tapast ódýrt. FH hefur valdið vonbrigðum og er ekki svipur hjá sjón frá því sem var i fyrra. í síðustu um- ferð tapaði liðið með fjögurra marka mun gegn KA. Júgóslavinn Goran Micic hefur staðið sig best af þeim fjórum Júgóslövum sem spila í fyrstu deildinni. Atli Einarsson er vís með að skora gegn FH en Trausti Ómarsson og Aðal- steinn Aðalsteinsson hafa einnig staðið sig vel og átt jafna og góða leiki. Halldór Halldórsson markvörður FH hefur staðið sig mjög vel i sumar og Hörður Magnússon er næstmarkahæstur í deild- inni. KA VALUR AKUREYRI sunnudaginn 22. júlí kl. 20 íslandsmeistarar KA áttu stórleik gegn FH um síðustu helgi og ef liðið leikur eins vel í þessum leik gæti það gert Val skráveifu. Topplið Valsmanna hlýtur samt að vera sigur- stranglegra þegar haft er í huga gengi liðanna í sumar. Þórður Guðjónsson er efni- legasti leikmaður KA-liðsins en aðrir hafa sjaldan náð sér á strik í sumar. Framlínumaðurinn Kjartan Einarsson skoraði samt þrennu í síðasta leik og þvi verður spennandi að fylgjast með honum gegn Val. Anth- ony Karl Gregory hefur leikið vel með Valsmönnum í allt sumar og í síðasta leik skoraði hann tvö mörk. Vörnin með þá Þorgrím Þráinsson og Sævar Jónsson fremsta meðal jafn- ingja er hornsteinninn að vel- gengni Valsmanna svo og markvarsla Bjarna Sigurðsson- ar. ÞÓR ÍBV AKUREYRI múnudaginn 23. júlí kl. 20 Engin spurning að Vest- mannaeyingar eru sigur- stranglegir en það er einmitt í svona leikjum sem óvænt úrslit verða. Leikur Eyjamanna er alls ekki í sérflokki þrátt fyrir góða stöðu og Þórsarar á heimavelli í örvæntingarfullri fallbaráttu. Jafntefli alls ekki útilokað þó að gestirnir séu sigurstranglegri. Vörn Vestmannaeyinga hef- ur staðið sig mjög vel í sumar og þar munar mikið um Jón Braga Árnason. Hlynur Stef- ánsson hefur verið einna jafn- bestur, spilað góða knatt- spyrnu og skorað nokkur mörk. Eftirað Júgóslavinn Lúka Kost- ic meiddist skara fáir fram úr í liði Þórsara. KR STJARNAN KR-VELLI múnudaginn 23. júlí kl. 20 Ef KR ætlar að leika eins og gegn Víkingi um daginn geta Stjörnumenn vel farið með sig- ur af hólmi. Stjarnan hefur lagt bæði Fram og Val að velli í sumar og því ætti sigur gegn KR ekki að koma á óvart. KR- liðið á hins vegar að vera sterk- ara nái það sér á strik eins og í fyrri leik liðanna þegar KR vann 3-1. Undir lok síðasta leiks (gegn Víkingi) var Ragnari Margeirs- syni skipt inná hjá KR og Atli Eðvaldsson færður framar í sóknina. Virtust þeir félagar úr landsliðinu ná vel saman á lokamínútum. Spurning hvort framhald verður á þessu gegn Stjörnunni. Af yngri mönnum Garðbæinga hefur mikið kveð- ið að Ingólfi Ingólfssyni en gömlu stjörnurnar Lárus Guð- mundsson og Sveinbjörn Há- konarson hafa skinið undanfar- ið. STAÐAN: leikir u j t mörk stig Valur 10 7 1 2 18:10 22 KR 10 6 1 3 15:10 19 ÍBV 10 5 3 2 16:17 18 Fram 10 5 1 4 20:11 16 Víkingur 10 3 5 2 11:10 14 Stjarnan 10 4 2 4 14:15 14 FH 10 4 0 6 14:17 12 KA 10 3 1 6 12:14 10 ÍA 10 2 2 6 12:19 8 Þór 10 2 2 6 6:15 8 BIKARKEPPNIN - 8-LIÐA ÚRSLIT: KR-ÍA KR-velli í kvöld kl. 20 Valur-Breiðablik Valsvelli í kvöld kl. 20 ÍBK-Selfoss Keflavík í kvöld kl. 20 Vikingur-Stjarnan Víkingsvelli í kvöld kl. 20

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.