Pressan - 19.07.1990, Blaðsíða 17
17
Fimmtudagur 19. júlí 1990
FOTBOLTIFÆKKAR
SJÁLFSMORÐUM
Þeir, sem ekki eru sérlega
áhugasamir um íþróttir, bölva oft
fótbolta í sand og ösku. Nýjustu
rannsóknir sýna hins vegar aö
maöur skyldi hugsa sig um tvisvar
áöur en agnúast er út í blessaða
knattspyrnuna. Sálfræöingar í
Skotlandi hafa nefnilega komist
aö því, aö þar í landi fremja mun
færri sjálfsmorð á meðan heims-
meistarakeppnin í fótbolta stend-
ur yfir en á öörum tímum.
Rannsóknir voru geröar síðustu
fjögur skipti sem heimsmeistara-
keppni stóö yfir og áhrifin eru
óumdeilanleg. Sjálfsmoröstíönin
minnkar um hvorki meira né
minna en tuttugu prósent og að
auki fækkar gífurlega bráöatilfell-
um á geðsjúkrahúsum. Karlmönn-
um, sem gert höföu sjálfsmorðs-
tilraun, fækkaöi t.d. um 24% og
konum, sem reynt höfðu aö fyrir-
fara sér, fækkaöi um 17%.
Einni tegund sjúklinga fækkaöi
þó ekki yfir þessi tímabil. Þaö voru
áfengissjúklingar. Um 20% fleiri
alkóhólistar voru lagðir inn á geð-
deildir, en fótbolti og bjórdrykkja
hafa löngum átt samleiö á Bret-
landseyjum.
Vísindamenn velta því auðvitað
fyrir sér hvers vegna fótboltinn
hefur þessi áhrif á sálarástand
Skota. Ein kenningin er sú, aö
heimsmeistarakeppnin þjappi
þjóöinni saman og efli þannig
þjóöerniskennd. Svipað gerist á
stríöstímum og þá fækkar líka
sjálfsmoröum.
ÁSTARBRÉF
ERROLLS FLYNN Á
UPPBOÐI
Fundist hafa sex ástarbréf, sem
kvikmyndaleikarinn og hjarta-
knúsarinn Errol Flynn skrifaöi
breskri stúlku þegar hann var ein-
ungis 13 ára gamall. Bréfin voru
seld á uppboði í London fyrir
nokkru, en Flynn lést fyrir 30 ár-
um.
A þeim tíma, þegar bréfin voru
skrifuö, var Flynn afar óhamingju-
samur. Foreldrar hans áttu nóg af
peningum, en minna af ást í garö
sonarins, sem þau skiptu sér lítið
af. Þau „geymdu" hann á heima-
vistarskóla, þar sem afar strangur
skólastjóri réö ríkjum og nemend-
umir fengu oft ekki einu sinni
nægan mat.
Stúlkan, sem fékk ástarbréfin,
v.ar eldri systir eins af bekkjarfé-
lögum Flynns og hét Mary White.
Enginn veit hver örlög hennar
uröu, en hún er um áttrætt ef hún
er enn á lífi. Maður nokkur fann
bréfin hins vegar fyrir tilviljun í
gamalli kommóöu, sem hann
haföi keypt, og þaö er barnabarn
hans, sem ákvaö aö selja þau.
Flynn undirritar bréfin meö
mörgum X-um, sem tákn um
kossa til sinnar heittelskuðu, en
bekkjarfélaginn viröist hafa komið
þeim til skila fyrir hann. í einu
þeirra fjallar hinn ástfangni skóla-
piltur um kossa og segir meöal
annars: „Þaö er rétt, sem þú sagðir
um kossana. Þeir eru lítið spenn-
andi svona í bréfum, en ég veit aö
þeir eru sko þeim mun betri í raun-
veruleíkanum. Ég er viss um aö þú
veist þaö líka."
Flynn var rekinn úr skólanum
tveimur árum eftir aö umrædd
bréf voru skrifuð Hann var einnig
rekinn úr næsta skóla, sem for-
eldrar hans komu honum fyrir á.
Þá var hann sendur til Ástralíu, en
hann var um 25 ára gamall þegar
ferill hans í kvikmyndum hófst í
Hollywood. Hann gekk þrisvar í
hjónaband og átti í fjölda ástaræv-
intýra, en þeir sem til þekkja telja
aö hann hafi aldrei veriö sérlega
hamingjusamur.
Sumarferö
Alþýöuflokksins veröur
farin í Breiðafjarðar-
eyjar laugardaginn 11.
ágúst.
Ávarp flytur Jón
Baldvin Hannibalsson,
formaður
Alþýöuflokksins.
Pantiö tímanlega
Alþýðuflokkurinn,
s. 29244.
NÚ ER HANN ÞREFALDUR!
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
M *