Pressan - 15.11.1990, Page 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. NÓVEMBER
Skömmu aður en Veitingahöllin uar tekin til gjald-
þrotaskipta samdi Alþingi við eiganda fyrirtœkisins um
áframhaldandi matarkaup, en undir nafni nýs fyrirtœkis.
Með þessu tókst eigandanum, Jóhannesi Stefánssyni,
að bjarga þessum örugga uiðskiptasamningi undan
skiptum á þrotabái Veitingahallarinnar. Eðlilega hefðu
þessi og aðrir samningar Veitingahallarinnar átt að
renna inn í báskiptin. Pá hefðu lánardrottnar fyrirtœkis-
ins, sem standa ná frammi fyrir gífurlegu tapi, hugsan-
lega getað dregið úr tjóni sínu.
Síðustu eitt eða tvö árin fyrir
gjaldþrot Veitingahallarinnar hf.
voru viðskipti Múlakaffis færð í stór-
um stíl yfir á nafn Veitingahallarinn-
ar, þar með taldar launagreiðslur.
Undir það síðasta var Múlakaffi al-
farið rekið af Veitingahöllinni, sem
leigði aðstöðuna og tækin af Veit-
ingum hf. Bæði fyrirtækin voru eign
Jóhannesar Stefánssonar og fjöl-
skyidu.
Nokkrum dögum fyrir gjaidþrot
sagði Jóhannes í Veitingum hins
vegar upp leigunni á Múlakaffi til
Veitingahallarinnar vegna vanskila.
Með öðrum orðum sagði Jóhannes
Stefánsson upp leigusamningi við
sjálfan sig og kallaði sjálfan sig stór-
felldan vanskilamann.
MATVÆLI
VEITINGAHALLARINNAR
FLUTT í MÚLAKAFFI
FYRIR GJALDÞROT
í kjölfar gjaldþrots Veitingahallar-
innar fannst hins vegar 1,6 milljóna
króna virði af matvælum í Múla-
kaffi, sem voru eign Veitingahallar-
innar. Samkvæmt heimildum blaðs-
ins höfðu matvælin verið millifærð
á Veitingar, nýjan rekstraraðila
Múlakaffis, sem húsaleiga.
Þorsteinn Eggertsson, bústjóri
þrotabús Veitingahallarinnar, vildi
hvorki játa þessum atriðum né
neita, en sagði mikið verk óunnið
við að yfirfara bókhald fyrirtækisins
og að í ýmsum atriðum samtvinnað-
ist rekstur þessara tveggja fyrir-
tækja, þannig að erfitt væri að að-
skilja þau.
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR er Alþingi ekki sá eini af
fyrrum viðskiptaaðilum Veitinga-
hallarinnar sem fær nú mat frá Veit-
ingum. í kjöifar þess að Jóhannes
sagði sjálfum sér upp ieigunni á að-
stöðu og tækjum Múlakaffis hefur
nýja fyrirtækið hans, Veitingar hf., í
raun yfirtekið munniega og skrif-
lega matarsamninga við mjög stóra
aðila. Þessi viðskiptavild Veitinga-
haliarinnar hefur því ekki komið til
gjaldþrotaskipta.
„Ég sé ekki í fljótu bragði að ástæða
hafi verið til að forðast viðskipti við
Jóhannes," segir Friðrik Ólafsson,
skrifstofustjóri Alþingis.
FLEIRI RÍKISFYRIRTÆKI FÁ
MAT HJÁ JÓHANNESI
Þessir aðilar eru meðal annars
Innkaupastofnun ríkisins (vegna
fangelsa), Eimskipafélag íslands,
Rafmagnsveitur ríkisins, Hagvirki
og Ármannsfell. Þá hefur Veitinga-
höllin séð um mat í stórar veislur,
meðal annars í Domus Medica og
Hreyfilshúsinu.
Hér er því um að ræða stóra við-
skiptaaðila sem Jóhannes hefur
bjargað frá gjaldþrotinu. Samning-
arnir geta á hinn bóginn ekki talist
verðmæt eign til handa þrotabúinu
þar sem fyrirtækið hefur ekki verið
selt í fullum rekstri. Ef gripið yrði til
þess ráðs er hins vegar ekki að efa
að sú viðskiptavild, sem felst í þess-
um stóru samningum, yrði hátt met-
in.
Um matarsamninginn við Alþingi
sagði Þorsteinn Eggertsson bústjóri
að þar væri ekki hægt að tala um
eign sem þrotabúið ætti tilkall til.
„Öðruvísi hefði þó horft við ef við
„Við höfum átt ágæt samskipti við
Jóhannes Stefánsson og ég harma
hvernig fór hjá honum," segir Guðrún
Helgadóttir, forseti sameinaðs þings.
hefðum kosið að halda rekstrinum
áfram. Fyrst við gerðum það ekki
getum við ekki heft samningsfrelsi
Alþingis. Það er þess mál ef það hef-
ur samið við sama aðila í öðru fyrir-
tæki.“
VÍSAR Á ENDURSKOÐANDANN
- SEM ER í FLÓRÍDA
Jóhannes Stefánsson staðfesti í
samtali við PRESSUNA að Veitingar
hf. hefðu sagt Veitingahöllinni hf.
upp leigu á aðstöðu og tækjum
Múlakaffis, en sagðist ekki klár á því
hvernig það hefði komið til, þar eð
hann hefði ekki séð um þau mál
sjálfur. Hann neitaði því að starfs-
fólk Veitinga hefði verið fært yfir á
launaskrá Veitingahallarinnar.
„Það var ekkert „plott" með það
í gangi milli fyrirtækjanna. Þegar
Veitingar og Múlakaffi sameinuðust
fækkaði starfsfólki eitthvað. Að
öðru leyti vil ég ekkert tjá mig um
þessi mál, endurskoðandi minn veit
mun meira um þau en ég. Ég vísa
því á hann.“
Endurskoðandi Jóhannesar er
Gudjón Eyjólfsson. Hann er nú í fríi
á Flórída og kemur ekki til landsins
fyrr en undir lok mánaðarins.
JÓHANNES
EINFALDLEGA ÓHEPPINN -
SEGIR FRIÐRIK ÓLAFSSON
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR tilkynnti Jóhannes Stefáns-
son Alþingi nokkrum dögum fyrir
gjaldþrotið að hann væri að hætta
með Veitingahöllina og spurði hvort
það vildi ekki eiga við hann við-
skipti áfram, þótt það yrði undir
nýju nafni.
Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri
Alþingis, sagði í samtali við PRESS-
UNA að hann hefði enga annmarka
séð á því að skipta við Veiting-
ar/Múlakaffi þegar Veitingahöllin
var tekin til gjaldþrotameðferðar.
„Þótt sami maðurinn stýri báðum
fyrirtækjum er um algerlega aðskil-
in fyrirtæki að ræða. Auðvitað vildi
ég hafa þessa hluti á hreinu og því
leituðum við til Halldórs Halldórs-
sonar skiptaráðanda, sem tjáði okk-
ur að ekkert væri við þetta að at-
huga. Alþingi hefur einfaldlega leit-
að til aðila sem vitað er að eru góðir
og ódýrir," sagði Friðrik.
Hann sagðist ekki hafa séð
ástæðu til að leita með sérstöku út-
boði til annars aðila, þótt Jóhannes
væri gjaldþrota með Veitingahöll-
ina.
„Ég sé ekki í fljótu bragði að
ástæða hafi verið að forðast við-
skipti við Jóhannes. Þótt menn stýri
nokkrum fyrirtækjum og eitt þeirra
beri sig ekki þýðir það ekki að mað-
urinn sé óaiandi og óferjandi. Hann
var einfaldlega óheppinn með
þetta, eins og gengur og gerist. Við
hugsum fyrst og fremst um að fá
hingað ódýran og góðan mat,“ sagði
Friðrik Ólafsson.
ÁTT ÁGÆT VIÐSKIPTI
VIÐ JÓHANNES
Guörún Helgadóttir, forseti sam-
einaðs þings, sagði í samtali við
PRESSUNA að á forsetafundi
nokkru fyrir gjaldþrotið hefði verið
rætt um útboð vegna mötuneytis-
mála þingsins.
„Áður en að slíkri ákvörðun kom
birtust í fjölmiðlum fréttir af gjald-
þroti þessu. í kjölfarið fólum við fjár-
málastjóra og skrifstofustjóra að
kanna stöðu fyrirtækisins með
mötuneytið í huga og leituðu þeir
meðal annars til skiptaráðanda. Þá
var á forsetafundi tekin sú ákvörðun
að eiga viðskipti áfram við Jóhann-
es í Múlakaffi, fyrst engir meinbugir
þóttu á því. Sú ákvörðun er þó eng-
an veginn endanleg, því enn stend-
ur sú afstaða óhögguð að huga að
útboðsleiðinni. Ég vil hins vegar
bæta því við að við höfum átt ágæt
samskipti við Jóhannes Stefánsson
og ég harma hvernig fór hjá hon-
um.“
Friðrik Þór Guðmundsson