Pressan - 15.11.1990, Síða 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. NÓVEMBER
13
HEins og menn muna var haldin
íslensk bókasýning í Stuttgart í síð-
asta mánuði, þar sem meðal ann-
arra lásu úr verkum
sínum Thor Vil-
hjálmsson, Einar
Már Guðmunds-
son, Svava Jakobs-
dóttir og Guðberg-
ur Bergsson. í kjöl-
farið var rækilega
auglýst bókmenntakvöld í Freiburg
og tilkynnt að þar myndi Thor Vil-
hjálmsson mæta til að lesa upp úr
verðlaunabók sinni „Grámosinn
glóir", en bókin var að koma út á
þýsku. Móttökunefnd mætti á braut-
arstöðina, en ekki mætti Thor. Of
seint var að aflýsa fundinum og
þurfti formaður Islendingafélagsins '
að tilkynna fjölmörgum fundargest-
um þessi tíðindi. Las hann síðan
sjálfur upp úr bókinni, en áður
höfðu margir gestanna horfið á
braut. íslendingar í Freiburg hafa
enn ekkert heyrt frá Thor.. .
C
C^jálfstæðismenn hafa fórnað
mörgum þingmönnum í þeim próf-
kjörum sem þeir hafa viðhaft að
undanförnu. í Reykjavík var frekari
þingmennska af
hálfu Guðmundar
H. Garðarssonar
afþökkuð með öllu.
Þorvaldur Garðar
Kristjánsson fékk
reisupassann á Vest-
fjörðum. Kristinn
Pétursson fær ekki endurráðningu
á Austurlandi. Eggert Haukdal
verður að berjast fyrir að halda at-
vinnunni. Árni Johnsen tók sætið
af Eggert. Þrátt fyrir að þessir þing-
menn eigi allir um sárt að binda
komast kvalir þeirra ekki nálægt því
sem Hreggviður Jónsson þarf að
þola. Aðra eins útreið mun enginn
þingmaður hafa fengið...
að þykir ekki fínt að vera
nefndur „pabbapólitíkus", en þeim
fer fjölgandi sem eiga á hættu að
vera kallaðir það.
Árni M. Mathie-
sen, sonur Matthí-
asar Á. Mathiesen,
er á leið á þing og
virðist hafa fengið
þingsæti föður síns í
arf. Ingi Björn Al-
bertsson fór í pólitík fyrir pabba
sinn, Albert Guðmundsson. Atli
Alexandersson er forseti bæjar-
stjórnar í Ólafsvík og er þar með að
feta í fótspor föður síns, Alexand-
ers Stefánssonar, alþingismanns
UMFERÐARÞING
verður haldið í Borgartúni 6, Reykjavík, dagana 22. og 23. nóvember nk.
Á dagskrá verða mörg erindi um hin ýmsu svið umferðarmála. Munu
þátttakendur m.a. starfa í umræðuhópum þar sem lögð verða drög að
ályktunum þingsins.
Fyrirhugaður „Landsfundur um slysavarnir" á vegum landlæknisemb-
ættisins og fleiri aðila fellur inn í dagskrá umferðarþings, enda áttu um-
ferðarmál að vera meginefni landsfundarins. Dagskrá umferðarþings er
því unnin m.a. í samstarfi við landlækni og slysadeild Borgarspítalans.
Þátttökugjald verður 2.500 krónur og erinnifalinn kaffikostnaðurog léttur
málsverður. Þeir sem óska eftir að fá heimsenda dagskrá og eyðublað til
að tilkynna þátttöku láti vita í síma (91)27666 sem fyrst. Tilkynningar um
þátttöku þurfa að þerast til skrifstofu Umferðarráðs fyrir 19. nóvember.
Á umferðarþingi verður aðstaða til kynningar á prentuðu máli og öðrum
smávarningi tengdum umferðaröryggismálum. Þeir sem hafa áhuga á
þessari aðstöðu hafi samband við skrifstofu Umferðarráðs fyrir 19. nóv-
ember. Síminn er (91)27666 og bréfsími (91)627500.
UMFERÐAR
RÁÐ
Leið íslands til markaðsbúskapar
500 daga áætlun ÞJóðlffs
Birtina boðar til opins stjórnmálafundar fimmtudaginn 15. nóvem-
ber I Ársal Hótel Sögu og hefst hann kl. 20.30.
Forystumenn I Islenskum stjórnmálaflokkum, þau Friðrik Sop-
husson, Kristln Einarsdóttir, Jón Sigurðsson, Ólafur Ragnar
Grlmsson og Steingrlmur Hermannsson ræða um áætlunina og
segja álit sitt á henni.
Eftir framsöguræðurnar verða pallborðsumræður með fyrirspum-
um úr sal, sem höfundar áætlunarinnar, þeir Guðmundur Olafs-
son hagfræðingur og Jóhann Antonsson viðskiptafræðingur taka
þátt I.
Fundarstjóri verður Svanfrfður Jónasdóttir.
og fyrrverandi ráðherra. Alexander
var til margra ára frammámaður í
sveitarstjórnarmálum í Ólafsvík,
það er áður en hann söðlaði um og
fór í landsmálapólitíkina...
I* rakkinn Patrick Gervasoni
mun hafa farið til Danmerkur og
þegar Mitterrand komst til valda
fór hann til Frakk-
lands vegna yfirlýs-
inga sósíalista um
náðun manna sem
neituðu að gegna
herþjónustu. Gerva-
soni mun þó hafa
þurft að sitja inni í
tvo mánuði, en var þá sleppt. í átök-
unum um örlög hans hér á landi var
í fararbroddi Gervasoni-sinna sér-
stök nefnd sem í sátu þeir Torfi Tul-
inius, Pétur Gunnarsson, Björn
Jónasson og Örnólfur Thorsson.
Þótt þessir menn berðust hart í
þágu Frakkans, hópur manna hafi
yfirtekið dómsmálaráðuneytið og
Guðrún Helgadóttir hafi nær fellt
heila ríkisstjórn er það staðreynd að
ekkert af þessu fólki hefur nú hug-
mynd um hvar Gervasoni er eða
hvað hann hefur verið að gera síð-
ustu átta árin...
Biiyfsalar eru greinilega ekki sátt-
ir við Helga Magnússon, ritstjóra
Frjálsrar verslunar, og áhöfn hans.
Eftir að Frjáls versl-
un birti lista yfir
tekjuhæstu lyfsal-
ana á árinu 1989
hafa lyfsalar, lyfja-
fræðingar og fleiri
skrifað margar og
langar greinar um
umfjöllun Frjálsrar verlsunar. Sam-
kvæmt samantekt blaðsins var að-
eins einn íslendingur með hærri
tekjur en hæstu lyfsalarnir, en það
var Þorvaldur Guðmundsson í
Síld og fisk...
Buesa má út úr niðurstöðum
skoðanakönnunar Félagsvísinda-
stofnunar að í Reykjaneskjördæmi
verði um algert ein-
vígi milli Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðu-
flokksins að ræða.
Yrðu sömu niður-
stöðurnar í væntan-
legum þingkosning-
um kæmust inn sjö
sjálfstæðismenn, þrír kratar og svo
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins. Ellefti
og síðasti þingmaðurinn inni er
Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag-
fræðingur í Sjálfstæðisflokknum, en
næstur því að fella hann er Guð-
mundur Árni Stefánsson, bæjar-
stjóri og fjórði maður krata.. .
lEkki er enn séð fyrir endann á
stríði alþýðubandalagsmanna á
Austurlandi. Eins og kunnugt er
berjast Einar Már
Sigurðsson í Nes-
kaupstað, formaður
Samtaka sveitarfé-
laga á Austurlandi,
og Björn Grétar
Sveinsson, verka-
lýðsformaður á
Höfn, fyrir því að Hjörieifur Gutt-
ormsson hverfi af lista flokksins.
Slíkt mun hins vegar ekki ganga
þegjandi og hljóðalaust fyrir sig, og
raunar tvísýnt um árangurinn. Hjör-
leifur hefur stappað stálinu í félaga
vítt og breitt um kjördæmið og víst
þykir að hann taki ekki sæti á lista
verði hann neðar en í fyrsta sæti og
jafnliklegt þykir að Einar Már og
Björn Grétar taki ekki sæti verði
Hjörleifur í efsta sæti...
Helgartilboð
Matseðill
Óvœntur lystauki
Rjómalögud humarsúpa
eða
Hvítlauksristaðar úthafsrœkjur
Ávaxtakrap
Pönnusteiktur skötuselur m/hvítvínssósu, kartöflum og grœnmeti
eða
Léttsteiktur Camembert-fylltur lambavöðvi
m/hunangsperu, kartöflum og grœnmeti
eða
Hreindýramedalíur m/Waldorfsalati, kartöflum,
grœnmeti og rjómalagaðri sósu
Rjómaostakaka Hansen
eða
Ferskur ananas m/hindberjarjóma
A.HANSÉN
Vesturgötu 4 (gegnt Strandgötu) s. 651130
• NOTALEGT UMHVERFI • A.HANSEN • ALHLIÐA VEITINGAHÚS •