Pressan - 15.11.1990, Síða 14
14
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. NÓVEMBER
Blaðamanna-
félagsins
PRESSUNNI barst eltirfarandi
bréf frá Blaðamannafélagi íslands:
„Með bréfi dagsettu 24. ágúst
1990 hefir Ólafur Ólafsson land-
læknir kært vikublaðið Pressuna til
siðanefndar „fyrir að færa sér í nyt
eymd og sjúkleika einstaklings með
grein í blaðinu fimmtudaginn 23.
ágúst 1990 um „alnæmiskonuna““.
Kærandi hefir ekki sinnt því
ákvæði siðareglna að „leita leiðrétt-
ingar hjá viðkomandi fjölmiðli", sbr.
6. gr. siðareglna.
Niðurstaða siðanefndar er því sú,
að hún vísar málinu frá.
Nefndin fjallaði um málið á fund-
um sínum 16., 25. okt. og 6. nóv.
Dráttur hefir orðið á afgreiðslu
málsins, fyrst vegna fjarveru land-
læknis framyfir miðjan september,
seinna vegna annarra forfalla.
Reykjavík, 6. nóv. 1990“
#^ar líniir
5oft
wr au«&
Ekki bara fyrir augað.
Skemmtileg og stilhrein nýj-
ungíloft- ogveggklæðning-
um. Hönnuð með mýkt og
þægindi i huga. Varanleg
lausn, sem gefur umhverf-
inu hlýtt og notalegt yfir-
bragð.
' ■ * .x ' V ./>
Gefðu sjálfum þér undir
fðtinn með ##
Frábær hönnun. Örugggæði.
Mikil ending. Gott að velja.
Einfalt að leggja. Þú átt það
sannarlega skilið undir þína
fætur.
BJÖRNINN
BORGARTÚNI28 S. 6215 66
AMt tréwf'á ófctuuiltúgg
b
eir Guðjón B. Ólafsson, for-
stjóri Sambandsins, og Sigurður
Markússon stjórnarformaður ætla
hinum sex nýju
hlutafélögum, sem
stofnuð verða um
rekstur risans, að
taka við miklum
skuldum. Kaupfé-
lagsstjórarnir eru
ekki hrifnir af þess-
um hugmyndum og meðal þeirra
heyrast þær raddir að allt eins geti
kaupfélögin sjálf stofnað hlutafélög
um sams konar rekstur og þá án
skuldahalans frá Sambandinu. Inn-
an skamms hefjast fundir kaupfé-
lagsstjóra víða að af landinu um
þetta mál. Fundirnir verða í Reykja-
vík á næstu dögum...
A
^^^lþingi er nú að skipta um
tölvukerfi og er verið að skipta úr
Wang-tölvum yfir í nokkurs konar
Unix-netkerfi. Þetta tengist því að
Alþingi ætlar út í eigin útgáfustarf-
semi og hættir þá ríkisprentsmiðjan
Gutenberg að annast útgáfu Alþing-
istíðinda. Þetta mun vera að undir-
lagi hins nýja forstöðumanns tölvu-
sviðs Alþingis, Hauks Arnþórsson-
ar. Eru sumir í tölvuheiminum efins
um að Alþingistíðindin komi áfram
út...
eir þrír þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins sem ekki hafa gefið kost á
sér til endurkjörs hafa allir langa
þingsetu að baki.
Þeir hafa líka allir
gegnt ráðherraemb-
ætti. Ragnhildur
Helgadóttir og
Matthías Á. Mat-
hiesen voru valin til
ráðherradóms af
þingflokki flokksins en það sama
gildir ekki um Friðjón Þórðarson.
Hann var ráðherra í ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsen, en eins og
kunnugt er var sú stjórn mynduð í
andstöðu við meirihluta Sjálfstæðis-
flokksins...
ær eru harðar í samningum
auglýsingastofurnar. Það fékk einn
viðskiptavina Fljótt fljótt að reyna.
Hann hafði samið um birtingu á
þrjátíu auglýsingum í útvarpi og í
kaupbæti áttu að fylgja þrjár fríar
birtingar. Þegar maðurinn ætlaði
síðan að nota sér þessar auglýsinga-
birtingar var honum tjáð að sam-
þykkt væri að birta þrjátíu auglýs-
ingar en hins vegar hefði verið
ákveðið að fella niður þessar fríu
birtingar. Þetta verða að teljast snið-
ug viðskipti; það er fyrir auglýsinga-
stofuna. Hún veitir fyrst afslátt og
tilkynnir kaupandanum síðan að
ákveðið hafi verið að hætta við af-
sláttinn eftir að hann hefur keypt
vöruna...
o
llum starfsmönnum Sund-
laugar Kópavogs hefur verið sagt
upp. Þetta ei; í tengMum við opnun
nýju sundlaugarjnnar sem kosta
mun 400 milljónir króna, en hana á
að opna í desember. Er ætlunin að
þar verði 18 nýir starfsmenn ráðnir
til starfa eða 10 fleiri en nú hefur
verið sagt upp. Það sem vakti at-
hygli við uppsögnina var að starfs-
fólkjpu var ekki boðin endurráðn-
ing. Þetta mun vera hluti af því ráða-
bruggi meirihlutans að losna við
Steinar Lúðvíksson, núverandi
forstöðumann, en hann er Alþýðu-
bandalagsmaður. ..
að er ekki einleikið hversu
embættiskerfið tekur illa á móti
Stefáni Valgeirssyni alþingis-
manni og sérstökum
óskum hans. Ríkis-
saksóknari neitaði
að rannsaka gerðir
Stefáns sem for-
manns bankaráðs
Búnaðarbankans og
stjórnunarstörf hans
fyrir hina ýmsu opinberu sjóði. Stef-
án vildi nýverið að umboðsmaður
Alþingis fjallaði um hvort bráða-
birgðalögin, sem sett voru á BHMR
í sumar, stæðust stjórnarskrána. í
ljós kom að umboðsmaðurinn á
ekkert með að verða við slíkum ósk-
um þingmanna.. .
í* rambjóðendur í prófkjöri sjálf-
stæðismanna á Reykjanesi urðu lítt
eða ekki varir við Hreggvið Jóns-
son eða stuðningsmenn í barátt-
unni fyrir prófkjörið. Ef lítið fór fyrir
þingmanninum fyrir prófkjörið þá
fór enn minna fyrir honum að því
loknu. Hreggviður gerði lítið annað
í baráttunni en skammast út í blað
sjálfstæðismanna í Kópavogi. Ekki
er vitað hvort Hreggviður var svo
sigurviss að hann hafi ekki talið
ástæðu til að berjast um atkvæðin
við aðra frambjóðendur...
Nýjasta heimilistækið
frá (jandij/ er alveg einstakt í
sinni röð.
Hvaða annar heimilistækja
framleiðandi getur boðið upp á
eftirfarandi:
Eldavél, bökunarofn með
grillteini og uppþvottavél,
og það allt í sama tækinu.
(jafldifl TRÍÓ er alveg tilvalið í
lítil eldhús og snilldarlausn
í hinn fullkomna sumarbústað.
Já þetta er snjöll útfærsla,
3 tæki í einu og stærðin er sú sama
og á venjulegri eldavél eða:
HxBxD = 85x60x60.
Og ekki spillir verðið fyrir aðeins
kr. 94.000,- eða
staðgr. kr. 89.300,-
PFAFF
Borgartúni 20 Sími: 626788
Og umboðsmenn okkar um land allt.