Pressan - 15.11.1990, Qupperneq 17
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. NÓVEMBER
17
síðustu viku, því að hvorki skipta-
stjórar né kröfuhafar í bú Lindalax
hf. höfðu hreyft þessu máli við mig
áður. í greinargerðinni er m.a. sýnt
fram á að það lá ætíð ljóst fyrir hvert
væri hlutafé í Lindalaxi hf. og
hvernig staðið hefði verið að
greiðslu á því, svo sem greinilega
sést í ársreikningum félagsins. í
greinargerðinni kemur og fram að
.wnimtö
• .— ,
m iimfmim mmmmi <pnnm&\ "ÐssJ MMIKtllX .
sjálfur og lögmannsstofa mín um-
talsverðum fjárhæðum við gjald-
þrotið.
Reykjavík, 12. nóvember 1990.
Eiríkur Tómasson hrl.
Athugasemd ritstj.
Greinargerðin sem Eiríkur vitnar
til er átta þéttritaðar síður. PRESSS-
AN sér sér ekki fært að birta hana.
Ritstj.
Athugasemd frá
Samtökum fé-
lagsmálastjóra
PRESSUNNI hefur borist athuga-
sem'd frá Mörtu Bergmann, for-
manni Samtaka félagsmálastjóra,
sem hún ritar fyrir hönd samtak-
anna vegna skrifa í blaðinu í síðustu
viku um ráðstefnu um velferðar-
þjóðfélagið. Marta segir að á ráð-
Fclag félagsmálastjóra héll lyrir
skömmu stóra ráðstefnu um velferö-
arþjóðfélagið. Um 230 manns sóttu
ráðstefnuna og hljóðaði gjaldið upp
á sjö þúsund krónur á mann og var
þó aðeins kafíi innifalið. Tekjur fé-
lagsins hafa því numið um 1,6 millj-
ónum króna. Fyrirlesurum var boð-
ið upp á tíu þúsund krónur fyrir við-
iUtt
stefnunni hafi verið flutt 21 fram-
söguerindi, aðallega um ný lög og
lagafrumvörp er varða félagsleg
málefni. Hún bendir á að rangt hafi
verjð farið með nafn samtakanna í
blaðinu og segir blaðið byggja á
röngum upplýsingum um fjölda ráð-
stefnugesta, áætlaðan kostnað,
...kjörin leið til sparnaðar
er Kj örbók Landsbankans
Athugasemd
frá Eiríki
Tómassyni
Á forsíðu Pressunnar í síðustu
viku erum við Þorvaldur Guð-
mundsson nafngreindir og fullyrt að
við, reyndar ásamt öðrum, höfum
safnað 1100 milljóna skuldum án
þess að leggja fram krónu. Hér er
um grófar ásakanir að ræða í okkar
garð og látið í veðri vaka, svo að
ekki fer á milli mála, að við, tveir
nafngreindir einstaklingar, höfum
beitt blekkingum og/eða hlaupið
frá fjárskuldbindingum okkar.
Af þessu tilefni hef ég ákveðið að
senda blaðinu til birtingar greinar-
gerð sem ég hef tekið saman um
þetta mál — mál sem ég hafði ekki
leitt hugann að lengi þegar blaða-
maður Pressunnar hringdi í mig í
hlutafé það, sem ég var skráður fyrir
í félaginu og var lítið brot af heildar-
hlutafé þess, var greitt að fullu í
reiðufé, enda kom aldrei til tals að
það væri greitt með öðrum hætti.
Fullyrðingar blaðsins um annað,
hafðar eftir ónafngreindum heim-
ildarmönnum, eru því ekki á rökum
reistar.
Rétt er að vekja athygli á að öllum
var það ljóst, sem á annað borð
leiddu hugann að því, að bygging og
rekstur fiskeldisstöðvar væri
áhættusamt fyrirtæki. Þess vegna
var stofnað um reksturinn hlutafé-
lag samkvæmt þeim lagareglum
sem um slík félög gilda. Því miður
fór það svo, af ástæðum sem ekki er
rúm til að rekja hér, að þetta félag
varð gjaldþrota eins og svo mörg
önnur hlutafélög sem stofnuð voru í
sama tilgangi. Ef það gæti orðið ein-
hverjum huggun get ég upplýst það
hér, að eins og ýmsir aðrir tapaði ég
Betri, einfaldari og öruggari leiö til ávöxtunar sparifjár er vand-
fundin. Háir grunnvextir og verðtryggingarákvæði tryggjagóða
ávöxtun. Að auki koma afturvirkar vaxtahækkanir eftir 1 6 og 24
mánuði. Samt er innstæða
Kjörbókar alltaf laus.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
hugsanlegan ágóða og ráðstöfun
hans. „Samtök félagsmálastjóra
hafa í hvert sinn leitast við að fá til
sín sem hæfasta fyrirlesara og með
því reynt að vanda umræðurnar
sem mest. Undirritaðri þykir það
miður, fyrir hönd samtakanna, að
blaðið skyldi ekki í „frétt“ sinni leita
eftir áreiðanlegum upplýsingum um
ramma og umfjöllunarefni ráðstefn-
unnar, heldur láta að því liggja að
óeðlileg gróðasjónarmið hafi ráðið
ferðinni," segir Marta m.a. í athuga-
semd sinni til blaðsins.
ALDRAÐIR
þurfa að
ferðast elns
og aðrir.
Sýnum þeim
tillitssemi.