Pressan - 14.03.1991, Blaðsíða 26
Fimmtán strætisvagnar
fundust
Eeimahjá
vagnstjorá
— okkur fannst oröiö grun-
samlega langt á milli ferða,
segir Sveinn Björnsson,
forstjóri Strætisvagna
Reykjavíkur.
„Mér finnst eins og
fólk hafi oröaö þetta
viö mig og ef svo er
þá finnst mér aö þaö
aetti aö treysta minni
dómgreind um hver
rétti tíminn er," segir
Davíö Oddsson.
Davíð Oddsson býður sig fram
...■yi»i|.|i|i"iiM.i » I W' pi I I piMm mmmm pe.. ..■1111
i rektorskjon við Haskolann
— ég hef bara gaman af kosningum og fólk viröist hafa
gaman af að kjósa mig, segir Davíð.
Lyfjafyrirtækið
Pharmaco
kanpir sjálft sig
— ég veit ekki alveg hvaö
þetta þýðir en lögmenn fyrir-
tækisins eru að kanna málið,
segir Werner Rasmunsen.
„Ég bara vissi ekki fyrr en ég var
bæöi búinn að gera tilboð í hlutféð
og kaupa það," segir Werner Ras-
munsen, stjórnarformaður Pharm-
aco. „Ég vona að ég hafi ekki gert
neitt sem ég mátti ekki."
9. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR
FIMMTUDAGURINN 14. MARS 1991
STOFNAÐ 1990
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJÓMAR
Islenskur uppfinningamadur
• •
KREFST LOGBAI
Fær Hrafn hæli á Ítalíu?
Svíar sækja um pólitískt hæli á Ítalín fyrir Hrafn Gunnlangsson
Bryndísi, 14. mars
„Okkur finnst rétt að
íslenskum stjórnvöldum
sé gert viðvart um þetta
mái. Annað vil ég ekki
segja,“ sagði Giovanni
Berta, starfsmaður
ítalska utanríkisráðu-
neytisins, í samtali við
GULU PRESSUNA, en
samkvæmt heimildum
hennar hafa sænsk
stjórnvöld sótt um póli-
tískt hæii fyrir kvik-
myndaleikstjórann
Hrafn Gunnlaugsson.
„Við rákumst á þessa um-
sókn innan um mikinn
fjölda slíkra umsókna frá al-
bönskum flóttamönnum,"
sagði starfsmaður útlend-
ingaeftirlitsins í Bryndísi.
„Starfsfélagi minn hafði
verið með íslenskri konu á
Rimini fyrir nokkrum árum'
og hún hafði alltaf verið að
tala um hvers vegna íslend-
ingar hétu son-eitthvað eða
dóttir-eitthvað. Hann
kveikti því á perunni og sá
að þetta var enginn Alb-
ani.“
„Við viljum ekkert um
þetta mál segja,“ sagði Sven
Nygren, talsmaður sænska
utanríkisráðuneytisins, í
samtali við GULU PRESS-
UNA. „Ég vil þó taka fram
að við höfum haft Hrafn
hérlendis í fjölmörg ár, fyrst
á námsárum hans og síðan
stóran hluta af starfsferli
hans. Það er því kannski
ekki furða þó við teljum
sanngjarnt að einhverjir
aðrir taki við núna.“
FRAMSÓKNAR-
FLOKKURINN í
SAMSTEYPU
STJÓRN í ÍRAK?
Ólafsfirði, 15. mars
„Um leid og ég keyrdi um
Múlagöngin sá ég að göng-
in voru gerð samkvæmt
minni hugmynd. Ég hef því
krafist lögbanns og mun
standa við það ef mér
verða ekki greidd höfund-
arlaun,“ sagði Pétur Run-
ólfsson, uppfinningamað-
ur á Egilsstöðum, í samtali
við GULU PRESSUNA.
„Þetta er allt eins og ég
hafði séð fyrir mér. Maður ek-
ur inn í fjallið öðrum megin
og út um það hinum megin.
Mér blöskrar að menn skuli
láta sér detta í hug að stela
svona einfaldri hugmynd án
þess að reyna að fela þjófnað-
inn einu sinni,“ sagði Pétur.
„Ég veit ekkert hvað þessi
maður er að fara,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon.
„Hann gæti allt eins krafist
höfundarréttar á fjárlagagat-
inu. Fyrir mér, eins og flestu
fólki, eru flest göt eins."
Pétur
Runólfsson
uppfinn-
ingamaður.
Bagdad, 14. mars
Samkvæmt fréttum
bandaríska fréttasjón-
varpsins CNN hefur Sadd-
am Hussein boðið íslenska
Framsóknarflokknum
sæti í samsteypustjórn
sem hann er búinn að
reyna að koma á laggirnar
að undanförnu.
„Það er rétt að Saddam
hringdi og sagði að Arafat
hefði bent á mig,“ sagði Stein-
grímur í samtali við CNN.
„Við framsóknarmenn höf-
um margtekið fram að við
útilokum ekki að starfa með
neinum og ég sagði Saddam
það. Hann tók vel í þetta og
sagðist ætla að hringja aftur.
Ég hef síðan ekkert heyrt frá
honum, er satt að segja orð-
inn hálf hissa á því.“
Samkvæmt heimildum
CNN hefur íraski Bath-flokk-
urinn leitað logandi ljósi að
einhverjum til að starfa með
til að slá á óánægjuna í land-
inu. Meðal annars hefur
flokkurinn leitað hófanna er-
lendis.
„Ég hef skoðað myndir frá
írak og margt á þeim hefur
heillað mig,“ sagði Steingrím-
ur í samtali við GULU PRESS-
UNA. „Ef maður léti verða af
þessu mundi maður einna
helst sakna laxveiðanna en
mér sýnist ekki mikið um
góðar ár á þessum myndnm."
JÚLÍUS SÓLNES SELDI
JAPÖNUM BLÁA LÓNIÐ
Reykjavík, 15. mars_________
„Eg skil satt að segja
ekki hvernig þetta vildi til.
Frá niínum bæjardyrum
séð var þarna alltaf bara
um venjulega __ landkynn-
ingu að ræða. Ég skil ekki
hvernig þeir hafa fengið
það út að ég væri að selja
þeim eitthvað,“ sagði Júlí-
us Sólnes umhverfisráð-
herra í samtali við GULU
PRESSUNA, en japanskir
kaupsýsiumenn komu til
landsins í gær með uppá-
skrifuð afsöl um kaup á
Bláa lóninu, Geysi, Detti-
fossi og nokkrum öðrum
kunnum stöðum á íslandi.
„Ég veit ekki hvað skal
segja," sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráð-
herra. „Ég var búinn að segja
Júlíusi að treysta ekki á þá
japönsku sem hann lærði í
skóla. Ég marg sagði honum
að nota túlk."
„Menn geta svo sem stokk-
ið upp á nef sér en það breytir
engu úr þessu. Þetta er búið
og gert,“ sagði Júlíus. „Og
mér er líka spurn: Hafa menn
ekki alltaf verið að reyna
selja útlendingum landið? Nú
þegar ég hef gert það í eitt
skipti fyrir öll verða hins veg-
ar allir foj.“
Seldi landiö í eitt skipti fyrir
öll.
A MULAGONG
Tölvuir, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfi, umbrotskerfi og alhliða þjónusta
MICROTÖLVAN
Suðurlandsbraut 12 - sími 688944