Pressan - 15.08.1991, Blaðsíða 8

Pressan - 15.08.1991, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. ÁGÚST 1991 íbúðir í verkamannabústöðum fyrnast þrisvar sinnum hraðar en nemur verðlækkunum á íbúðum á frjálsum markaði. Meðal annars þess vegna er eignamyndun í verkamannaíbúðum afar hæg og langt frá því sem gerist á frjálsa markaðnum. Auk þess er fyrning verkamanna- bústaða mest á þeim tíma sem verðlækkun er minnst á öðrum íbúðum. Miðað við núverandi lög fær sá sem hefur átt íbúð í verkamannabústað í tíu ár aðeins rúman þriðjung af því sem hann hefur lagt til þegar hann selur. Sá sem selur íbúð í verkamannabústað eftir fimm ár fær eitt hundrað þúsundum króna minna við sölu en hann greiddi við sjálfa samningsgerðina í útborgun. Ef vaxtagreiðslur og fyrning eru lagðar saman lætur nærri að sá sem hefur átt íbúð í verkamannabústað í fimm ár hafi greitt um sjötíu prósent „ársvexti". Skuldabréfin sjálf bera hins vegar aðeins eitt prósent vexti. Að sjálfsögðu eru fyrningarnar ekki 'raunverulegar vaxtagreiðslur, en vegna þess hversu háar þær eru draga þær veruiega úr söluverði og rýra þar með hlut seljanda veru- lega. Annar hluti skýringanna á þess- um háu greiðslum er að um jafn- greiðslulán er að ræða. Á fyrstu tveimur árunum eru aðeins greiddir vextir en ekki afborganir af lánun- um, sem eru til fjörutíu og tveggja ára. FURÐULEGAR FYRNINGAR Fyrning íbúða í verkamannabú- stöðum er eitt og hálft prósent á ári fyrstu tuttugu árin. Á frjálsa mark- aðnum er verðlækkun til muna lægri, eða um 0,3 prósent á ári fyrstu tíu árin. Eftir tuttugu ár lækk- ar fyrning í verkamannabústöðum um helming og verður 0,75 prósent. Á frjálsa markaðnum verður verð- lækkun meiri eftir því sem íbúðir verða eldri. Samkvæmt úttektum, sem gerðar hafa verið, verður verð- lækkun ibúða á frjálsa markaðnum sjaldan meiri en 0,5 prósent á ári. Þeir sem þekkja til segja að eðli- legt sé að íbúðir fari að falla í verði þegar þær eru orðnar um fimmtán ára gamlar. Þá fyrst fer að verða að- kallandi að endurnýja dýrari hluta íbúðanna, svo sem eldhús, baðher- bergi, þök, lagnir, skápa, hurðir og fleira. Til þess tíma hefur, í flestum tilfellum, aðeins þurft að mála, skipta um teppi og annað ámóta. Einmitt þess vegna lækka íbúðir á frjálsa markaðnum meira í verði eft- ir því sem þær verða eldri. Það er öf- ugt við það sem gerist í verka- mannabústöðum. MJÖG HÆG EIGNAMYNDUN Þegar íbúðir í verkamannabú- stöðum eru seldar er upphaflega kaupverðið framreiknað sam- kvæmt lánskjaravísitölu. Seljandinn Verkamannabústaðir i Grandahverfi. Ef íbúðareigendurnir vilja selja fá þeir aöeins hluta af þeim peningum sem þeir hafa greitt til baka. fær endurgreiddar allar afborganir af lánum til Húsnæðismálastofnun- ar að frádreginni fyrningu. Ef gera þarf á íbúðunum einhverjar lagfær- ingar eru þær gerðar á kostnað selj- anda, það er segja ef hægt er að rekja þær til vanrækslu á viðhaldi. Með öðrum orðum; seljandi ræður ekki í hvaða ástandi hann selur eignina. Húsnæðisnefndirnar taka eitt prósent af söluverði fyrir þjón- ustu sína. Sú greiðsla skiptist jafnt milli seljanda og kaupanda. Þar sem um jafngreiðslulán til fjörutíu og tveggja ára er að ræða, og á fyrstu árunum aðeins greiddir vextir, fer lítill hluti greiðslnanna til afborgunar á lánum, mestur hlutinn fer í vaxtagreiðslur, og því eignast kaupendurnir mjög lítinn hluta i íbúðunum. Hér er tekið mið af íbúð sem kost- ar 5,6 milljónir króna. Eftir fimm ár er kaupandinn búinn að greiða sam- tals 1.150 þúsund krónur. Þar af er útborgun tíu prósent, eða 560 þús- und krónur. Fyrningin er síðan eitt og hálft prósent á ári, eða- rúmar fjögur hundruð þúsund krónur eftir fimm ár. Vaxtagreiðslurnar og fyrn- ingin samanlagt eru það há fjárhæð að segja má að seljandinn hafi greitt um sjötíu prósent vexti á hverju þeirra fimm ára sem hann átti íbúð- ina. í júni á siðasta ári breyttust lög um fyrningar. Þá hækkuðu þær úr einu prósenti í eitt og hálft. Þeir útreikn- ingar sem hér eru settir fram gilda því einungis um íbúðir sem afhentar voru eftir lagabreytingarnar, það er í júní 1990. MIKIL AÐSÓKN Þótt hvergi liggi fyrir tölur um hversu margir umsækjendur eru um íbúðir í félagslega kerfinu er vitað að mun færri fá en vilja. Lengstir eru biðlistarnir á höfuðborgarsvæð- inu. í Hafnarfirði verður þrjátíu íbúðum úthlutað á þessu ári. Um- sækjendurnir eru hins vegar 350. Samkvæmt upplýsingum frá Hús- næðisstofnun er álitið að fjórar til fimm umsóknir séu um hverja íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Víða úti á landi tekst hins vegar að afgreiða allar umsóknir og eins hef- ur komið fyrir að engir kaupendur finnist að íbúðunum. Þess vegna er í lögunum grein sem heimilar við- komandi sveitarstjórn að leigja íbúðir sem byggðar voru sem verka- mannabústaðir, fáist engir kaupend- ur. FORKAUPSRÉTTUR Á öilum íbúðum sem byggðar eru sem verkamannabústaðir er sú

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.