Pressan - 15.08.1991, Blaðsíða 9

Pressan - 15.08.1991, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. ÁGÚST 1991 Gamlir verkamannabústaöir í vesturbæ Reykjavíkur. Ef sami eigandi hefði átt einhverja íbúðina frá upphafi og seldi nú fengi hann lítið í sinn hlut. Þar sem ekki er reiknað með að Húsnæðisstofnun hagnist á viðskiptunum fengi nýr kaupandi íbúðina á mjög lágu verði. í forgrunni er Héðinn Valdimarsson, einn þeirra sem börðust hvað mest fyrir því að hér á landi yrðu byggðar íbúðir til aðstoðar þeim efnaminni. egar Heimir Steinsson Þing- vallaklerkur hverfur til starfa hjá Ríkisútvarpinu losnar eitt feitasta brauð landsins. Öf- ugt við önnur prests- embætti er það for- sætisráðherra, Dav- íð Oddsson, sem skipar í þetta að fengnum tillögum frá Þingvallanefnd og biskupi. Þessu embætti fylgja ýmis hlunnindi umfram önnur brauð, til dæmis bíll í eigu þjóð- garðsins. Þá eru launakjör betri en gengur og gerist hjá prestum enda er sóknarpresturinn á Þingvöllum jafnframt þjóðgarðsvörður og fram- kvæmdastjóri Þingvallanefndar... Peir sem kaupa íbúð í uerkamannabústöðum og selja aftur eftir fimm ár fá minna fyrir íbúðina en þeir greiddu sem útborgun. Auk þess hverfa allar greiðslur sem þeir leggja til á þessum fimm ár- um. Ástœðan liggur fyrst og fremst í lögum um fyrningar, sem eru þrefalt meiri en verðlœkkun eigna á frjálsum mark- aði. kvöð að viðkomandi sveitarstjórnir hafa forkaupsrétt ef íbúðareigand- inn selur áður en hann er búinn að eiga íbúðina í þrjátíu ár. Reyndar er það svo að fram- kvæmdaaðilanum, það er sveitar- stjórninni, er skylt að kaupa íbúð- irnar fyrstu fimmtán árin, ef seljandi vill selja fyrir þann tíma. Þá er mið- að við þann dag sem kaupandi keypti íbúðina, en ekki fyrsta af- hendingardag. Sama er með fyrn- inguna, hún er 1,5 prósent á ári fyrstu tuttugu ár í eigu sama aðila, burtséð frá aldri íbúðarinnar. Ef sveitarstjórn hafnar forkaups- rétti eða þá að sami eigandi hefur átt íbúðina í þrjátíu ár má fyrst selja hana á frjálsum markaði. Þetta get- ur skipt íbúðareigendurna verulegu máli, þar sem fyrningar í verka- mannabústöðum eru það miklu meiri en á almenna markaðinum. Nýlegt dæmi er um íbúð í verka- mannabústað í Hafnarfirði sem bærinn leysti til sín. Seljandinn fékk 2,6 milljónir í sinn hlut. Fasteigna- mat á íbúðinni var hins vegar rúmar fimm milljónir króna og út frá því mati voru til dæmis fasteignagjöld reiknuð. Hitt er einnig alkunna að á frjálsum markaði seljast íbúðir á hærra verði en fasteignamat segir til um. Seljandi þessarar íbúðar hefði hugsanlega fengið þremur milljónum króna meira í vasann ef hann hefði mátt selja íbúðina frjálsri sölu. EKKI ALVONT Það er ekki alvont að eiga íbúðir í verkamannabústöðum, og mis- munandi eftir landsvæðum. I þeim byggðarlögum sem erfitt er með sölu á fasteignum getur komið sér vel að sveitarfélagið hafi kaup- skyldu á íbúðum. I fréttum þessa dagana eru mikil tíðindi af atvinnumálum á Suður- eyri, en eins og kunnugt er hefur stjórn Fiskiðjunnar Freyju ákveðið að selja togarann Elínu Þorbjarnar- dóttur. Þetta þýðir eflaust að at- vinna dregst mikið saman á Suður- eyri. Þar hefur lengi verið mjög erf- itt að selja íbúðir. Ákvörðun stjórnar Freyju verður örugglega til þess að nú verður enn erfiðara en áður að selja íbúðir á Suðureyri. Ef fjöl- skylda sem býr í verkamannabú- SKÝRINGARDÆMI 1: 5 ÁR Útborgun Afborg. láns Vextir 560 þús. kr. 312 þús. kr. 250 þús. kr. Alls greitt 1.122 þús. kr. Þóknun Vextir Fyrning — 28 þús. kr. — 250 þús. kr. — 408 þús. kr. Hl. byggsj. — 686 þús. kr. Hlutur selj. 436 þús. kr. stað, sem sveitarfélagið hefur kaup- skyldu á, vill flytjast burt þá er það minnsta mál. Aðeins þarf ^ð til- kynna söluna til sveitarstjórnár og innan tveggja mánaða á uppgjörið að liggja fyrir. Eins og komið hefur fram hér að ofan yrði greiðslan ekki há. Samt munar miklu á því upp- gjöri og hjá þeim sem einfaldlega verða að skella í lás og yfirgefa hús sín þar sem engir kaupendur fást. Suðureyri er aðeins notuð hér sem dæmi, þar sem atvinnumál þar eru sennilega í meiri tvísýnu en í nokkru öðru byggðarlagi. Vegna þessara laga, þ.e. kaupskyldu sveit- arfélaganna, getur verið kostur qð kaupa í verkamannabústað þar sem erfitt er með íbúðarsölu. Það á hins vegar ekki við þar sem íbúðir seljast eðlilega. HRIKALEG STAÐA BYGGINGARSJÓÐANNA Ríkisendurskoðun hefur gert skýrslu um stöðu Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verka- manna. Niðurstöður sýna að staða SKÝRINGARDÆMI 2: 10 ÁR Útborgun Afborg. láns Vextir 560 þús. kr. 855 þús. kr. 475 þús. kr. Alls greitt 1.890 þús. kr. Þóknun Vextir Fyrning — 28 þús. kr. — 475 þús. kr. — 785 þús. kr. Hl. byggsj. —1.288 þús. kr. Hlutur selj. 600 þús. kr. sjóðanna er með ólíkindum. Hefði gamla húsnæðiskerfinu ekki verið lokað og haldið áfram að lána eins og til stóð mundi sjóðina vanta 400 milljarða króna, sagt og skrifað 400 milljarða króna, til að standa við sitt árið 2028. Það eru fjórfaldar tekjur ríkissjóðs á síðasta ári. Ef Byggingarsjóði verkamanna yrði lokað nú, eins og gert var við Byggingarsjóð ríkisins, yrði eigi að síður að leggja honum til 62 millj- arða króna árið 2028. Ríkisendurskoðun segir að komi ekki til aukin framlög frá ríkinu þurfi að hækka vexti hjá báðum sjóðunum í fimm prósent ef eigið fé þeirra á ekki að rýrna. ÞÁ LÍTUR DÆMIÐ SVONA ÚT Til gamans skulum við skoða hvað gerðist yrðu vextirnir hækk- aðir í fimm prósent. Ef íbúð keypt með þeim vöxtum yrði seld eftir fimm ár fengi seljandinn rúmar 280 þúsund krónur í sinn hlut. Hann hefði hins vegar verið búinn að greiða tæpar tvær milljónir króna. Ef íbúð yrði seld eftir tíu ár fengi seljandinn aðeins 170 þúsund krón- ur í sinn hlut. Hann hefði hins vegar verið búinn að greiða nærri þrjár og hálfa milljón króna. í fimm ára dæminu væru vaxta- greiðslur tólf hundruð þúsund krón- ur, fyrningin rúmar fjögur hundruð þúsund krónur og þóknun til hús- næðisnefndar væri tuttugu og átta þúsund krónur. Eins og áður sagði fengi seljandi aðeins 280 þúsund krónur í sinn hlut. Sem fyrr er reikn- að með að útborgun, það er greiðsla við samningsgerð, hafi verið 560 þúsund krónur. Það er tvöfalt hærra en það sem seljandi fengi við sölu. í tíu ára dæminu hefðu vaxta- greiðslur orðið nærri tveimur og hálfri milljón króna, fyrningin nærri átta hundruð þúsundum og þóknun- in sú sama, eða tuttugu og átta þús- und krónur. í sinn hluta fengi selj- andi eitt hundrað og sjötíu þúsund af nærri þremur og hálfri milljón. Sem fyrr er reiknað með 560 þús- und króna útborgun. Endurgreiðsl- an yrði því innan við einn þriðji af útborguninni. Sigurjón Magnús Egilsson ásamt Gunnarí Smára Egilssyni MT ótt enginn prestur hafi lýst op- inberlega yfir áhuga á embætti Þingvallaprests má telja víst að margir sæki um þeg- ar staðan verður auglýst. Þótt þarna sé um mikla virðing- arstöðu að ræða er ekki víst að til starf- ans verði ráðinn eldri prestur. Ástæð- an er kannski fyrst og fremst sú að í klerkastéttina vantar heilu kyn- slóðirnar. Hún samanstendur^ að mestu af mönnum á aldur við Ólaf Skúlason biskup og síðan mun yngri mönnum og konum. Af þeim sem orðaðir hafa verið við stöðuna má nefna Geir Waage, prest á Reykhólum, en hann vann í þjóð- garðinum þegar sr. Eiríkur Ei- ríksson var þar prestur. Annar prestur sem hefur unnið í garðinum er Kristján Björnsson, prestur á Hvammstanga. Þá má benda á að Ágúst Sigurðsson á Prestbakka í Hrútafirði hefur nokkuð skrifað um Þingvelli. Aðrir sem nefndir hafa verið til starfsins eru Gylfi Jóns- son, safnaðarprestur í Grensás- sókn, Sigurjón Einarsson, prófast- ur á Klaustri, og síðan sonur Heimis Steinssonar, fráfarandi Þingvalla- prests, Þórhallur Heimisson, en hann er helsti sérfræðingur þjóð- kirkjunnar um andkirkjulegar trú- arstefnur. . . F M. orstöðumenn ríkisstofnana eru margir hverjir áhyggjufullir vegna niðurskurðaráforma ríkisstjórnar- innar. Hætta er á að margir þeirra þurfi að segja upp starfs- fólki í haust, því í mörgum ríkisstofn- unum hefur verið ráðið í mun fleiri stöður en heimild er fyrir. Ef til uppsagna kemur er ekki ólíklegt að Sigurður E. Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar, verði að segja upp fólki. Þar starfa fjórtán fleiri en heimildir leyfa. Svipað á við um margar aðrar ríkisstofnanir... C I^Fjávarútvegsráðherra, Þor- steinn Pálsson, hefur enn ekki fundið sér nýjan aðstoðarmann eftir að Arnar Sigur- mundsson hvarf skyndilega úr starfi. Það munu ekki síst vera launamál og lít- ill pólitískur frami þeirra sem gegnt hafa starfi aðstoðar- manna sem valda því að Þorsteinn er enn án aðstoðar. Hann mun með- al annars hafa leitað hófanna meðal starfsmanna Landssambands út- vegsmanna við lítinn fögnuð þeirra sem sakað hafa hann um að vera fullleiðitamur útgerðarmönnum...

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.