Pressan - 15.08.1991, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15.ÁGÚST199I__________________
★ ÍSLANDSMEISTARAR 1968
23
sem á annað borð kæmist á
sigurbraut héldi oft áfram að
vinna og vinna. Og lið sem
lenda í mótbyr geta tapað
leik eftir leik. „En þessu get-
urðu breytt með einum leik:
þú verður bara að hafa
heppnina með þér. Og ég
held að ég geti sagt að til
þessa höfum við ekki haft
heppnina með okkur."
OF MIKLAR VÆNTINGAR
- KRÓNÍSKT VANDAMÁL
Ellert B. Schram, ritstjóri og
stjarna KR-inga á velmektar-
árum sjöunda áratugarins,
sagði: „Þetta er þyngra en
Sveinn: KR er og verður stór-
veldi. Þvi fær ekkert breytt.
tárum taki. Það hefur verið
krónískt vandamál hjá KR í
mörg ár að of miklar vænt-
ingar hafa verið gerðar. Um
leið og einn leikur tapast er
eins og öllu sé lokið. Önnur
lið geta tapað leik en ná sér á
skrið aftur. Ég hélt ekki að
þetta gæti gerst núna, við
höfum svo leikreynt lið."
Já, KR-ingar eru svo sann-
arlega leikreyndir: Pétur og
Atli Eðvaldsson eru hertir í
eldi atvinnumennskunnar,
Sigurður Björgvinsson er
einn sá leikjahæsti í 1. deild
og Ragnar Margeirsson hefur
spilað með liðum hér heima
og í útlöndum. Ólafur Gott-
skálksson landsliðsmark-
vörður er líka í herbúðum KR
auk blöndu af yngri og eldri
leikmönnum.
„KEFLVIKINGAR I
REYKJAVÍK“
Og hér komum við að einu
atriði sem andstæðingar KR
(á áhorfendpöllunum) gera
sér mikinn mat úr: KR-liðið er
eiginlega úr ölium áttum.
Ragnar, Sigurður Björgvins-
son, Ólafur Gottskálksson og
Gunnar Oddsson eru Suður-
nesjamenn og hafa allir leikið
með ÍBK, bræðurnir Pétur og
Bjarki eru vitanlega Skaga-
menn og Atli kom frá Val.
Gárungarnir svonefndu hafa
kallað Vesturbæjarliðið
ÍBKR. Aðrir segja að KR
standi fyrir „Keflvíkingar í
Reykjavík".
'69-ÁRGANGURINN
Og af hverju 1991? Jú, Stef-
án segir að þá yrði svokallað-
ur ’69-árgangur kominn með
næga leikreynslu í 1. deild —
og áfram yrði haldið að
„laða“ til félagsins sterka leik-
menn á borð við Pétur, Atla
og Sigurð.
’69-árgangurinn, já. Það er
skemmtileg tilviljun að marg-
ir efnilegustu knattspyrnu-
menn KR fæddust árið eftir
að liðið vann titilinn síðast.
Þar er Rúnar Kristinsson auð-
vitað fremstur í flokki. Varn-
armennirnir Þormóður Egils-
son og Þorsteinn Guöjónsson
og Heimir Guðjónsson fædd-
ust sama ár, auk fleiri leik-
manna í KR-hópnum sem
ekki hafa látið jafn mikið að
sér kveða.
OF MARGAR STJÖRNUR
En auðvitað ber mest á
„stjörnunum” — og eru þær
kannski of margar? „KR hef-
ur góða leikmenn en þegar
eitt lið hefur of margar stjörn-
ur er hætta á ferðum,” segir
Magnús Jónatansson, einn
reyndasti þjálfari landsins.
„Stjörnuleikmenn hugsa oft
fyrst um að spila fyrir sjálfa
sig — svo fyrir klúbbinn sinn.”
Magnús sagði sína reynslu þá,
að þegar á móti blési legðu
leikmenn sem eru aldir upp
hjá félaginu sig enn meira
fram en þeir sem koma frá
öðrum liðum. „Leikmaður
sem kemur frá öðru félagi
getur hugsað: Ef illa gengur
núna fer ég einfaldlega eitt-
hvað annað. Ég held að
KR-ingar hafi sýnt of litla þol-
inmæði við að byggja upp
eigið lið. Þeir hafa tjaídað til
einnar nætur í stað þess að
búa til langtímaáætlun.”
MISLAGÐIR FÆTUR
Það er alveg rétt sem Pétur
Pétursson sagði: Heppnin
hefur ekki beinlínis verið
KR-ingum hliðholl. Ekki færri
en fjórar vítaspyrnur hafa far-
ið í súginn, liðið hefur upp á
síðkastið fengið á sig klaufa-
mörk um leið og framherjun-
um hafa verið mislagðir fæt-
ur. Markahæstu menn KR
hafa skorað fjögur mörk eftir
13 umferðir og tæpur helm-
ingur marka liðsins var skor-
aður í leikjunum tveimur
gegn Víði. En svona tölur
segja auðvitað ekki alla sög-
una. Eftir 13 umferðir var
Hrafn Jökulsson
MIKILLI VELGENGNI
SPÁÐ
í árlegri spá þjálfara, fyrir-
liða og forráðamanna lið-
anna í 1. deild urðu KR-ingar
langefstir en Frammarar
komu í humátt á eftir. (Til
upprifjunar: KR 268 stig,
Fram 249, Valur 243, Víking-
ur 174, ÍBV 156,FH 139,
Stjarnan 133, UBK97.KA88,
Víðir 48.)
Og leikskrá KR bar þess
merki að mörgum leikmönn-
um og forráðamönnum
knattspyrnudeildarinnar
fyndist aðeins formsatriði að
renna sér í gegnum íslands-
mótið. í fyrra tapaði KR titlin-
um til Fram á markatölu.
Ekkert slíkt átti að henda nú.
KR-ingar fengu nýjan þjálf-
ara, Guðna Kjartansson, sem
leysti lan Ross af hólmi.
Guðni hefur mikla menntun
og reynslu sem þjálfari og frá
upphafi var morgunljóst
hvert markmio hans var: Að
koma bikarnum aftur í Vest-
urbæinn.
SVO KOM
KJAFTSHÖGGIÐ
Og þetta byrjaði vel: KR
varð Reykjavíkurmeistari
(fjórða árið í röð) og byrjaði
Islandsmótið með látum. I
fyrstu fimm umferðunum
Pétur: Baráttan stendur nú
milli Fram og Víkings.
unnust sigrar á Víði, Vikingi,
Val og Eyjamönnum. Aðeins
eitt jafntefli var leyft, gegn
FH í 2. umferð. KR trónaði á
toppnum meðan erkifjend-
urnir í Fram áttu erfiða daga
í hópi botnliðanna.
En svo fór KR-vélin að
hiksta. Fyrst komu tvö jafn-
tefli, gegn Blikum og Stjörn-
unni, og svo tap gegn Fram.
KR-ingar virtust ætla að
hrista af sér slenið: unnu KA
og rúlluðu svo yfir Víði í
Frostaskjólinu, 7—1. Gæfan
virtist aftur gengin í herbúðir
KR.
„En svo kom kjaftshöggið,”
segir Víðir Sigurðsson
íþróttafréttamaður. „Það var
tapið gegn Þór í bikarnum.”
Og mikið rétt. KR var í efsta
sæti í deildinni og hafði feng-
ið á sig fæst mörk allra liða.
Þór var hins vegar í harðri
baráttu í 2. deild. En leikar
fóru svo að Davíð vann Golíat
sem löngum fyrr: Litli Þór
burstaði Reykjavíkurstór-
veldið, 4—2.
RÚNARS SÁRT SAKNAÐ
Eftir það stóð ekki steinn
yfir steini og KR hefur tapað
þremur leikjum í röð í 1.
deild: fyrir FH, Víkingi og
Val. Efsta sætið er rækilega
gengið KR úr greipum til
Fram og Víkingar hafa verið
á miklum skrið að undan-
förnu. „Eins og staðan er
núna þá eru Fram og Víking-
ur að keppa um íslandsmeist-
aratitilinn,” sagði Pétur Pét-
ursson, fyrirliði KR og einn
leikreyndasti knattspyrnu-
maður landsins. „En þetta
getur nú breyst, fótboltinn er
þannig.”
En hvað er að hjá KR?
Það vegur þungt að Rúnar
Kristinsson hefur ekkert get-
að leikið upp á síðkastið
vegna meiðsla. „Það segir sig
sjálft að þegar besti leikmað-
ur liðsins — og þar með einn
sá besti á landinu — getur
ekki leikið, þá hlýtur það að
bitna á liðinu,” segir Pétur.
„Og það er ekki eins og við
höfum bara misst einn leik-
mann, allt skipulag liðsins
riðlast.” Víðir Sigurðsson tók
í sama streng en hann nefndi
fleiri ástæður: „KR-ingum
hefur ekki tekist að raða sam-
an rétta sóknarparinu í sum-
ar. Enginn leikmaður þeirra
hefur skorað reglulega.”
SKUGGAR FORTÍÐAR-
INNAR
En það er ekki eins og KR
vanti markahróka: Pétur Pét-
ursson og Ragnar Margeirs-
son eru gamalreyndir og
marksæknir leikmenn og
Björn Rafnsson hefur löngum
átt góðar rispur. Heimir Guö-
jónsson hefur líka spreytt sig
í framlínunni, svo og Bjarki
Pétursson (bróðir Péturs) og
Rafn Rafnsson (bróðir
Björns).
Svo er það sálfræðilega
hliðin. „Um leið og KR fer að
ganga illa kemur upp þessi
saga: 23 ár án titils,” segir Víð-
ir. „Menn hafa verið að gera
KR-inga að meisturum í allt
sumar. Þetta er álag sem hvíl-
ir þungt á leikmönnum.”
Pétur Pétursson sagði að lið
bláklæddu (Fram) hafi þetta,”
sagði Víðir Sigurðsson. Ellert
var ekki mjög bjartsýnn — og
>ó: „Auðvitað er sennilegast
,ð Fram vinni núna en allt
getur gerst. Og svo kemur ár
eftir þetta ár. Menn verða að
kunna að bíða.”
Bíða, já. Það kunna KR-ing-
ar. Líklega er enginn hópur
manna á íslandi jafn þraut-
þjálfaður í listinni að bíða.
En KR er náttúrlega stór-
veldi — sama hver úrslitin
verða.
Þeir hafa stjörnurnar,
harðsnúið lið stuðnings-
manna og glæsilega sögu.
Aðstaðan er eins og hún
gerist best hérlendis og
þjálfarinn hefur náð frá-
bærum árangri. Þeir voru
á toppnum og virtust
óstöðvandi. Eftir 23 löng
ár bjuggu þeir sig nú undir
að lyfta hinum skínandi ís-
landsmeistarabikar. En þá
kom babb í bátinn. Þeir
Eilert: Þyngra en tárum taki.
fóru að tapa. Og tapa. Allt
í einu var eins og tennurn-
ar hefðu verið dregnar úr
Vesturbæjarljónunum. Og
menn spyrja: Hvað er eig-
inlega að hjá KR-ingum?
Sveinn Jónsson, formaður
KR, hefur komist svo að orði
að KR sé á svipuðum stalli á
íslandi og lið eins og Liverpo-
ol og Arsenal á Englandi,
Rangers á Skotlandi og Ju-
ventus- og Mílanó-liðin á ítal--
íu. „Þetta er stórveldi og
verður stórveldi og því verð-
ur aldrei breytt,” sagði Sveinn
í viðtali við Leikskrá KR í vor.
Óneitanlega stór orð. En
KR hefur 20 sinnum orðið ís-
landsmeistari og sjö sinnum
bikarmeistari. Það er bara
orðið svo langt síðan. KR
varð síðast íslandsmeistari
1968 og bikarmeistari 1967.
Síðan tóku við mörg, mörg
mögur ár. En sjaldan hefur
nokkru liði verið fylgt úr
hlaði með jafn stórum áform-
um og í vor.
Uppbyggingin hefur verið
markviss hjá KR síðustu ár.
Samningar hafa verið gerðir
við rúmlega 20 leikmenn
sem tryggir þeim ákveðna
umbun í samræmi við árang-
ur. Mjög öflugir leikmenn
hafa verið „keyptir”: Pétur
Pétursson, Atli Eðvaldsson,
Sigurður Björgvinsson og Ól-
afur Gottskálksson.
Það var ekkert til sparað og
metnaðurinn var mikill af
hálfu stjórnenda. Það var ein-
faldlega búin til uppskrift að
sigursælu liði.
Öll þessi árl Heilar
kynslóðir KR-inga
hafa hrópað sig hás-
ar — árangurslaust.
Fram bara búið að skora 17
mörk. En nýtingin á þeim bæ
hefur verið til mikillar fyrir-
myndar.
AÐ BÍÐA OG BÍÐA
Ekkert lið á eins þrautseiga
stuðningsmenn og KR. Þeir
hafa aldrei gefist upp og í
sumar hefur flestir áhorfend-
ur lagt leið sína í Frostaskjól-
ið. Gamli KR-kjarninn hefur
hlaðið utan á sig. Og KR-ing-
ar bera sig alltaf mannalega.
„Það er afrek að halda uppi
jafn öflugu félagi í öll þessi ár
án þess að titlar hafi unnist,”
sagði Ellert.
Arin milli 1970 og ’80 voru
erfið. KR var lengst af í fall-
baráttu og mátti þola þá auð-
mýkingu að leika eitt sumar í
2. deild. En stuðningsmenn
KR hafa aldrei látið neinn bil-
bug á sér finna. KR er stór-
veldi, eins og formaðurinn
sagði.
En er titillinn genginn þeim
úr greipum — 23. árið í röð?
ÁRANGUR KR. í 7. DEILD
SÍÐAN 1968
1968 íslandsmeistarar
1969 3. sæti af sjö
1970 4. sæti af átta
1971 7. sæti af átta
1972 7. sæti af átta
1973 7. sæti af átta
1974 5. sæti af átta
1975 7. sæti af átta
1976 6. sæti af níu
1977 9. sæti af tíu:
Fall í aðra deild
(1978 Sigur í 2. deild)
1979 5. sæti af tiu
1980 7. sæti af tíu
1981 8. sæti af tíu
1982 3. sæti af tiu
1983 2. sæti af tiu
1984 4. sæti af tíu
1985 6. sæti af tíu
1986 4. sæti af tíu
1987 5. sæti af tíu
1988 5. sæti af tíu
1989 4. sæti af tíu
1990 2. sæti af tiu
Hvaoer
eiginlega
aö hjá litla
risanum?
Vesturbæjarstórveldi
í öldudal í 23 ár