Pressan - 15.08.1991, Síða 24

Pressan - 15.08.1991, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR PRESSAN 15.ÁGÚST1991 en hann hefur fram vilja sinn; fær sáðlát, hysjar upp um sig buxurnar og hverfur út úr tjaldinu og lífi stúlk- unnar og heldur áfram að skemmta sér. Eftir liggur hún með alla sektina og ótal sjálfsásakanir. Henni finnst þetta vera sér að kenna og hún þorir ekki að tala um þetta við neinn en byrgir með sjálfri sér harminn og skömmina. Því miður eru þetta fyrstu kynni margra stúlkna af kynlífi og þessi óhugnanlega reynsla getur sett mark sitt á samskipti þeirra við hitt kynið um langt skeið. AÐGERÐIR Á síðustu árum hefur ver- ið lögð áhersla á rétt hverrar konu til að segja nei. Hverj- um karlmanni er skylt að virða það. Annað er glæpur gagnvart þeim sjálfsagða rétti hverrar manneskju að ráða yfir eigin líkama. Erfitt hefur þó reynst að breyta viðhorfum og ýmsum sög- um sem í gangi eru meðal fólks. Margir telja að kona sem nauðgað er bjóði upp á það, hún klæði sig á eggj- andi hátt, daðri við karl- menn og stofni þannig eigin öryggi í hættu. Áðrir telja að konur njóti nauðgunarinnar og vilji láta neyða sig til sam- ræðis. Þetta stenst ekki og ofbeldi vekur viðbjóð og andstyggð langflestra. Sam- kvæmt einni kenningunni er ekki möguiegt að nauðga konu: „Það er ekki hægt að þræða nál sem er öll á iði.“ Þetta er líka bull. Þessar kenningar eru allar mjög skaðlegar. Þær stappa stál- inu í ofbeldismenn og firra þá ábyrgð á athæfi sínu en draga kjark úr fórnarlömb- um nauðgara og fylla þau sektarkennd og skömm. Fyrir þessa verslunar- mannahelgi vöktu samtökin Stígamót athygli fólks á þessum staðreyndum og auglýstu víða að nei þýddi nei, nauðgun væri alltaf glæpur eins og hún er. Ég var mjög hrifinn af þessu framtaki þeirra og vísaði litlu stúlkunni sem til mín kom til samtakanna. Þar taldi ég hana geta fengið þá hjálp sem hún þyrfti á að halda til að vinna sig í gegn- um þennan óhugnað. Eg vil hvetja allar stúlkur sem orð- ið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi að snúa sér til sam- takanna í síma 626868. Þar geta þær fengið þá hjálp sem þær þurfa á að halda. SJÚKDÓMAR OG FÓLK Unglingsstúlku nauðgað Egill Jóhannesson, sem lengi var skipstjóri á sild- veiðiskipinu Snæfelli EA 740 frá Akureyri, var þekkt- ur fyrir að geta ekki leynt tilfinningum sínum þegar vel gekk á síldveiðunum. Það reyndi oft á þessa sér- stööu Egils, því hægt er að segja að honum hafi geng- ið vet allan sinn skipstjóra- feril. Ef mikill afli var i nót- inni átti Egill til að láta öll- um illum látum í brú Snæ- fellsins. Hann hljóp öskr- andi og gargandi og barði í tæki, tól og innréttingar. Eins og áður sagði var Egill fiskinn vel. Þó bar einu sinni svo til að óvenjumikið af síld var í nót Snæfellsins þegar híft var. Veður var ágætt en undiralda talsverð þessa nótt. Þegar sýnt var að aflinn var góður heyrðu skipverjar að kallinn, það er Egill, byrjaði með sín venju- bundnu læti. Þó fannst þeim eins og nú léti hann verr en oftast áður. Þar sem þeir voru öllu vanir létu þeir þetta ekki á sig fá og héldu áfram vinnu sinni, það er að1 taka nótina. Þegarþeirvoru búnir að hífa það mikið að komið var að því að fara að háfa heyrðu þeir mikil ösk- ur og læti úr stýrishúsinu. Öskrin og lætin ágerðust sí- fellt. Þar kom að hásetarnir hættu vinnu sinni og störðu allir upp í brú. Þar sáu þeir Egil skipstjóra hlaupa um öskrandi, berj- andi og lemjandi. Öllum að óvörum opnaði hann stjórnborðshurð stýris- hússins með miklum lát- um. Og ekki bara það, held- ur eins og þrautþjálfaður íþróttamaður tók hann undir sig stökk eitt mikið og sveif yfir borðstokkinn og lenti í nótinni og sökk þar í síld og sjó. Skipverjarnir máttu sýna viðbrögð góð og örugg handtök til að ná Agli skipstjóra upp úr nót- inni og bjarga þar með lífi hans. (úr sjómannasögum) Hún sagði ekkert en grúfði andlitið í höndum sér. Hárið var ljóst og sítt, hún var 15 ára. „Viltu segja mér, hvað er að?“ sagði ég og lagði aðra höndina létt á öxl hennar. Henni brá og hún stjakaöi hranalega við mér. Hún leit upp og sagði síðan: „Mér var nauðgað í Húna- veri um verslunarmanna- helgina." Augun fylltust af tárum og óumræðilegri sorg. „Ég vil ekki tala um þetta," sagði hún, „kannski get ég þá gleymt þessu." „Nei,“ sagði ég, „reyndu heldur að tala." Allt í einu virtist hún taka ákvörðun og sagði. „Við fórum í Húnaver nokkrir krakkar. Fyrra kvöldið var meiri háttar og ég skemmti mér ofsalega vel. Seinna kvöldið fórum við að dansa og hlusta á hljómsveitirnar. Við vorum búin að drekka eitthvað all- an daginn og ég var blind- full. Kvöldið er eins og í þoku. Allt í einu stóð ég ein og var búin að týna vinkon- um mínum. Þá kom einhver dökkhærður strákur til mín og bauð mér sjúss. Ég fékk mérsopa. Hann spurði hvort ég vildi koma með sér að ganga og drekka meira. Ég var svo mikið bölvað fifl að fara. Svo man ég eiginlega ekkert fyrr en við lágum inni og fór. Mér fannst allt hafa breyst. Þetta var svo ofsa- lega ógeðslegt. Hún þagnaði og strauk hárið frá enninu. Augun voru ennþá tárvot og full af sorg. „Hvernig líður þér núna?“ spurði ég var- færnislega. „Alveg hrylli- lega,“ sagði hún, „mér finnst þetta allt hafa verið mér að kenna. Ég varð alltof full og kannski hef ég gert eða sagt eitthvað sem leiddi athygli hans að mér.“ Hún hélt áfram að gráta. „Mér finnst ég vera svo skítug og ógeðs- leg og^ svo gæti ég verið ólétt. Ég get ekki talað um þetta við neinn. En ég hlýt að gleyma þessu. Segðu að ég gleymi þessu og allt verði eins og áður! Þetta var ekki ég!“ NAUÐGUN Á ÚTIHÁTÍÐ Nauðgun er fólgin í því að þröngva annarri manneskju til holdlegs samræðis með ofbeldi eða hótunum. Nauðgun er skilgreind sem kynferðislegt ofbeldi, en er næsta lítið kynferðisleg, heldur fyrst og fremst ofbeldi og valdníðsla. Þessi stúlka lýsir dæmigerðri nauðgun á útihátíð. Piltur- inn ber enga virðingu fyrir neii stúlkunnar og hefur við hana samfarir gegn vilja hennar. Hún streitist á móti 'Jííljnr íSIett^kar jijóðdötjur Magnús Óskarsson borgarlögmaður: í einhverju tjaldi. Hann var að kyssa mig og káfa á mér en ég sagði alltaf nei! „Ekki gera neitt!" sagði ég, „ég vil það ekki.“ Svo fór hann að klæða mig úr buxunum. Ég varð ofsalega hrædd og bað hann að hætta þessu. En hann bara hélt áfram og sagði mér að þegja. „Þið vilj- ið þetta allar en segið bara nei.“ Svo lagðist hann ofan á mig og setti hann inn í mig. Ég man hvað þetta var ofsa- lega sárt og fór að gráta og bað hann í guðanna bænum að hætta. Allt í einu kipptist hann til og fékk fullnæg- ingu. Ég varð öll blaut í klof- inu. Hann stóð upp og renndi upp buxnaklaufinni. Ég velti mér á magann og hélt áfram að gráta. Ég skammaðist mín ofsalega mikið og leið hryllilega illa. „Komdu þér út," sagði hann, „ég á ekki þetta tjald." Hann skreið út og ée, hef ekki séð hann síðan. Eg klæddi mig ÓTTAR GUDMUNDSSON SAFNAR FYNDNUM FYRIRSÖGNUM Alma | Þórarinsson nu sma' ra siéHö Magnús Óskarsson borgar- lögmadur hefur í mörg ár fengist uid ad klippa út úr dagblöðunum ýmislegt skondiö, sem á ekki að vera neitt fyndið. Oft eru þetta fyr- irsagnir meö tvírœða merk- ingu, en stundum fréttabútar eöa hluti af síöu sem hefur verið skringilega brotin um. Fyrir fimm árum gafMagnús út bók meö úrvali af því sem hann hafði þá safnað saman, og hét hún Alíslensk fyndni, hollur hlátur lengir lífið, en það er einmitt skoðun Magn- úsar að það geti varla skaðað nokkurn mann aö hlœja. „Sumum hefur fundist að þetta væri fyrir neðan virð- ingu háttsetts manns, en ég vil þá vitna í Tómas Guð- mundsson sem sagði að húm- or táknaði ekki afsal neinnar alvöru," segir Magnús. Hvers vegna byrjaöir þú að safna fyrirsögnum úr blöð- um? „Ég hef aldrei safnað skipu- lega. Hins vegar hef ég auga fyrir annarri hlið á því sem maður sér í blöðum en höf- undurinn var með. Ég sé fyndna hlið á fyrirsögn eða lesefni, sem alls ekki á að vera fyndið og er venjulega óviljandi sett þannig fram af blaðamanni eða greinarhöf- undi.“ Hvenœr byrjaðir þú á þessu? „Það gerðist þannig að ég sá þetta útundan mér og fór gjarnan að hlæja. Ég hafði gaman af að segja öðrum frá þessu og skemmta fólki, en rak mig svo á það að menn trúðu mér ekki. Þá fór ég, eins og góður lögfræðingur verður að gera, að hafa sönn- unargögn við höndina til að sanna mál mitt. Þess vegna fór ég að klippa þetta út og það verður að gera strax. Þú finnur aldrei setningu eða fyrirsögn eftir viku, hvað þá lengri tíma, ef þú grípur hana ekki á augabragði. Þetta var kveikjan að því að ég fór að taka þetta til handargagns. Síðan rak ég mig á það að ég var kominn með nokkurt hrafl og fór að líma það inn.“ Hann dregur fram möppu með úrklippum og sýnir blaðamanni. „Fólki fannst þetta skemmtilegt, svo ég fór að taka þetta með mér á staupaþing og hvert sem var, þar sem það sló í gegn.“ A hverju flaska blaðamenn þegar þeir búa til suona skrýtnar fyrirsagnir og skrifa skrýtinn texta? „Þeir sjá ekki aðra hlið á málinu. Eins og í frétt í Mogg- anum í morgun (13.8. innsk. blm.), þar sem verið er að skrifa um árekstra á höfuð- borgarsvæðinu." Magnús er búinn að klippa fréttina út og strika undir: ,,Hin einfalda skýring er að það er miklu minna ekið (á Seltjarnarnesi) á hvern íbúa en í borginni." „Það er þessi tvöfalda merking sem ég hef áhuga á og höfundur sér ekki. Eins og í fyrirsögninni Réttindalaus maður lœrbraut stúlku. Það er varla hægt að koma með betra dæmi. Það þarf varla réttindi til að lærbrjóta ein- hvern. Auðvitað á blaðamað- urinn við að maðurinn hafi ekki haft réttindi til að aka bíl.“ Magnús segir að eftir að bókin Alíslensk fyndni kom út hafi hann heitiö því að leggja ekki aftur út í slíkt. Hann hefur þó brotið bind- indið, eins og hann segir sjálf- ur, og í haust kemur út ný bók, Gastu ekki hœtt? „Þeir héldu áfram að vera óviljandi skemmtilegir á blöðunum. Ég komst ekki hjá því að reka augun í það,“ segir Magnús.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.