Pressan - 29.08.1991, Side 9

Pressan - 29.08.1991, Side 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. ÁGÚST 1991 9 hætti var fyrst og fremst sú að ég fékk ekki þá aðstöðu sem ég óskaði eftir, en það var skrifstofa á Borgar- spítalanum. Þegar ég hafði beðið, án árangurs, í fjóra mánuði hætti ég. Eg sakna þessarar stöðu og vildi óska að ég gegndi henni enn í dag. Þörfin er enn umtalsverð og þýðing- armikil. Ég hef heyrt því fleygt að búið sé að ráða manneskju í þessa „Eg var búinn að hringja á alla mögu- lega staði vegna vinar míns, sem var orðinn mjög veikur og var einn að staulast blindur og á hækjum niðri í kjallarakompu, en talaði allsstaðar fyrir daufum eyrum,“ segir Reynir Már Einarsson. stöðu frá og með haustinu, en verk- svið hennar verður ekki það sama. Mitt óskaskipulag var að reka mál smitaðra, innan og utan sjúkrahúss- ins, og það væri hægðarleikur að koma því þannig fyrir ef vilji væri fyrir hendi,“ sagði Auður Matthías- dóttir. NÝR FÉLAGSRÁÐGJAFI Nú hefur verið ráðinn félagsráð- gjafi á Borgarspítalann sem hefur sérhæft sig í umönnun fólks sem greinst hefur með smit af völdum al- næmisveirunnar. Hennar starf mun bæði eiga að nýtast þeim sem eru rúmliggjandi svo og á göngudeild. Ekki náðist í Steinunni Ásgeirsdótt- ur en PRESSAN spurði Unni Unn- steinsdóttur, félagsráðgjafa á Borg- arspítalanum, um væntanlegt starf Steinunnar: ,,Þetta verður í fyrsta skipti sem það verður hér félagsráðgjafi í fullu starfi til að sinna þessum málum," sagði Unnur. „Staða Auðar Matthí- asdóttur var öðruvísi uppbyggð og undir annarri yfirstjórn." LÍTIÐ SEM EKKERT GERT í FORVARNARMÁLUM Fram til 31. mars 1991 hafði greinst á íslandi alls 61 einstaklingur með smit af völdum alnæmisveir- unnar. Af þessum hópi hafa 16 feng- ið alnæmi og tíu þeirra eru látnir. Af öllum hópnum eru fjörutíu hommar og níu til tíu fíkniefnaneytendur, blóðþegar eru fjórir og smituðust allir áður en sérstakt eftirlit varð með blóðgjöfum hér á landi. Alls er talið að sex hafi smitast við kynmök gagnkynhneigðra. Talið er að stunguefnaneytendur séu um eitthundrað hérlendis. Margir læknar hafa af því þungar áhyggjur að útbreiðsla smits af völd- um lifrarbólguveiru B á síðasta ári var mjög hröð, en sú veira smitast með blóðblöndun líkt og alnæmis- veiran. Það er því líklegt að kæmist alnæmisveiran fyrir alvöru inn í hóp . stunguefnaneytenda mundi smitið breiðast hratt út meðal þessara ein- staklinga. í þessu sambandi má einnig bénda á að reynslan hefur kennt nágrannalöndunum að fjöldi stunguefnaneytenda sé alltaf of var- lega áætlaður. „Þegar ákveðið var að dreifa ókeypis sprautum til fíkniefnaneyt- enda í Lundi í Svíþjóð tvöfaldaðist áætlaður neytendahópur," sagði Guðrún Gísladóttir. LITLU FÉ VARIÐ TIL FORVARNA í upplýsingariti Landlæknisemb- ættisins fyrir árið 1991 er að finna grein eftir Harald Briem lækni, þar sem segir meðal annars: „Reynslan sýnirá hinn bóginn að ótrúlega erfitt er að fá menn til að skilja hina brýnu nauðsyn þess að halda vöku sinni. Þeir sem ráða fjár- veitingum voru fljótir að draga úr stuðningi sínum þegar fjölmiðlafár- ið vegna alnæmis dvínaði" í þessum orðum felst sú bitra stað- reynd að litlu fjármagni er varið til að hefta útbreiðslu alnæmis og stjórnmálamenn sýna þessu máli af- ar takmarkaðan áhuga. Landsnefnd um alnæmisvarnir fékk á fjárlögum tæplega níu og hálfa milljón króna. „Það er dýrt að sinna fjölmiðla- „í Ijósi þess hversu dýrt er að stunda alnæmissjúkling er áhugaleysi stjórnvalda óskiljanlegt," segir Guð- rún Gísladóttir. áróðri og fjölmiðlar hafa ekki sýnt þessu máli neinn skilning," sagði Guðrún Gisladóttir. „Þessir pening- ar hafa átt að duga til, en þeir gera það ekki. Það eru um það bil fjögur þúsund unglingar sem byrja að lifa kynlífi á ári hverju og áróður, sem endurnýjar sig ekki, virkar sem olía á eld. Á Norðurlöndum hefur reynslan kennt að kynsjúkdóma- smit hefur dvínað mjög meðal homma, þar sem forvarnaáróður hefur verið hvað mestur. Núna breiðist smitið örast út meða! gagn- kynhneigðra. í Ijósi þess hversu dýrt er að stunda alnæmissjúkling er áhugaleysi yfirvalda hérlendis óskiljanlegt," sagði Guðrún. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir „Sú óregla og vanliðan sem smitaðir einstaklingar búa við er ekki komin til af engu," segir Reynir Már Einarsson. Folk rekur sig á vegg í kerfinu segir Reynir Már Einarsson, fyrsti íslendingurinn sem greindist með smit af völdum alnæmisveirunnar hérlendis ,,Margt afþví fólkisem hœst ber í þessari eyöniumrœdu eru hrein- lega félagsmálafrík sem aldrei mundu láta svo lítið að dýfa fingri í þann raunveruleika sem smitadir einstaklingar báa við,“ sagdi Reyn- ir Már Einarsson, en hann mun vera sá fyrsti sem greindist með al- nœmissmit hérlendis. „Fólk getur komið manni í hryllilegt ójafnvægi þó að það meini vel. í flestum tilfellum stafar framkoma þess hreinlega af fá- fræði. Staðreyndin er sú að við höfum ekki fengið lágmarksað- stoð, — hvorki frá einstaklingum né yfirvöldum. Sú aðstoð sem við gátum fengið hjá Félagsmálastofn- un hefur verið skorin að mestu leyti niður og Samtök áhuga- manna um alnæmisvandann hafa ekki fengið nein viðbrögð við beiðnum um fjárhagsstyrk. Það þarf að vera starfsmaður eða starfsmenn sem sinna þessum málum eingöngu, því að þaö hefur staðið okkur fyrir þrifum að þeir sem vilja leggja málinu lið eru al- mennt of flæktir persónulega inn í málin til að hægt hafi verið að vinna á einhverjum faglegum nót- um. Það sem okkur vantar tilfinn- anlega er einhverskonar félags- legt kerfi, sem mundi veita fólki aðstoð til að vinna úr persónuleg- um vandamálum svo að það geti nýtt sér það sem stendur því til boða. Eftir að starf Auðar Matthí- asdóttur var lagt niður höfum við, sem erum smituð, ekki haft neinn til að reka erindi okkar í kerfinu. Við höfum myndað með okkur stuðningshóp sem heitir HlV-já- kvæði hópurinn og við hittumst reglulega til að ræða málin og styðja hvert annað. Við höfum átt í erfiðleikum með að taka við sprautusjúklingum sem hafa greinst með smit vegna þess að þeirra persónulegu vandamál eru svo yfirþyrmandi að hæpið er að þeir geti nýtt sér félagsstarfsem- ina. Það eru þó að sjálfsögðu allir velkomnir og við reynum að gera okkar besta þó að okkur vanti sér- fræðilega aðstoð í þessum efnum sem öðrum. Við vitum að um það bil tuttugu manns úti í bæ eru smitaðir en nýta sér ekki þessa fundi og vilja ekki gera það fyrr en þeir veikjast. Þá heldur fólk að allt standi því til boða, en rekur sig á vegg í kerfinu. Eg hef undanfarið ekki getað stundað vinnu vegna slappleika og er því á örorkubótum, sem, eins og flestir vita, eru ekki upp á marga fiska. Ungt fólk, sem veikist og getur ekki stundað eðlilega vinnu, á ekki upp á neitt annað að hlaupa. Ég þurfti að skipuleggja líf mitt algerlega upp á nýtt og fyrir- myndirnar eru engar. Sú óregla og vanlíðan sem smitaðir einstakling- ar búa við er ekki komin til af engu og í mörgum tilfellum er þetta aðeins spurning um skilning og vilja hjá yfirvöldum og öðrum sem hafa með þessi mál að gera. Ég var búinn að hringja á alla mögulega staði vegna vinar míns, sem var orðinn mjög veikur og var einn að staulast blindur og á hækj- um niðri í kjallarakompu, en talaði alls staðar fyrir daufum eyrum. Það fer að koma sá tími að maður fer að kveðja marga vini sína á nokkurra mánaða fresti, og það er ekki laust við að ég finni til tóm- leika þfcgar ég horfi fram í tímann. Ég held líka að aðstandendur al- næmissjúklinga ættu að reyna að mynda einhverskonar sjálfshjálp- arhóp, vegna þess að í mörgum tii- fellum er um að ræða einstaklinga sem fjölskyldan hefur haft lítið samband við og verið ósátt við og þá fer sektarkenndin oft fram úr allri skynsemi. Það er ekki hægt að álasa fólki fyrir fordóma eða fá- fræði. Þeir eiga yfirleitt ekki upp- tök sín hjá fólkinu sjálfu," sagði Reynir Már Einarsson. * x Xm.standið í rikisfjármalunum verður æ svartara eftir því sem fleiri upplýsingar koma fram. Samkvæmt síðustu fjárlögum Olafs Ragnars Grímssonar var gert ráð fyrir um fjögurra milljarða króna halla á ríkis- sjóði á þessu ári, en nú heyrist að hann verði líklega ekki undir átta millj- örðum. . . 1—lins og sagt hefur verið frá í PRESSUNNI er líklegt er að miö- stjórn Sjálfstæðisflokksins fjalli um ólöglegar athafnir stuðningsmanna Sveins Andra Sveinssonar borg- arfulltrúa á þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna á ísafirði dögunum, en þeir eru sakaðir um að hafa smal- að á þingið fólki sem hafði ekki setu- rétt. Ef miðstjórn tekur málið fyrir gæti það í versta falli þýtt að þingið yrði lýst ólöglegt og ályktanir þess þar með ógildar. Það eru ekki bara Sveinn og hans menn sem þykja hafa beðið álitshnekki vegna þessa máls, heldur líka Davíð Stefáns- son, formaður SUS, sem sætir nú vaxandi gagnrýni fyrir lágt ris á samtökunum. Þannig heyrist að innan forystu flokksins hafi menn miklar efasemdir um dómgreind forystu SUS. . . * x xm. þingi SUS kom upp krafa um að talið yrði upp úr peningakassan- um og gengið úr skugga um að allir hefðu greitt 3.000 króna þátttöku- gjald. Þetta var gert og kom í ljós að það var meira í kassanum en kjör- bréf sögðu til um. Meðal óánægðra þingfulltrúa heyrist, aö líkleg skýr- ing sé sú að sumir hafi fleygt mála- myndaávísunum í kassann sem þeir áttu síðan að fá endurgreiddar um kvöldið. . . F M. yrirtækið Vaktþjónustan, sem nokkrir rannsóknarlögreglumenn hugðust setja á laggirnar, hefur enn ekki fengið grænt ljós hjá dómsmála- ráðuneytinu og breytir þar engu þótt Þorsteinn Pálsson hafi tekiö við af Óla Þ. Guð- bjartssyni. Lög- reglumennirnir munu hafa átt stutt- an fund með ráðherranum fyrir skömmu þar sem hann flutti þeim afdráttarlaust „nei" á innan við fimm mínútum. . . F * ormaðurbæjarráðsíKópavogi, Gunnar I. Birgisson, á undir högg að sækja. Þannig er að Ólafur Ax- ^ elsson lögmaður hefur óskaö þess að | hús Gunnars veröi selt á nauðungar- uppboði. Ólafur krefst uppboðs vegna rúmlega fjög- J urra milljóna króna skuldar, sem er í vanskílum.. .

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.