Pressan - 29.08.1991, Síða 28
28
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. ÁGÚST 1991
Árum saman hafa íslenskir
boltadrengir streymt úr landi til að
leita sér frœgðar og frama með er-
lendum liðum. Á hátíðarstundum
köllum við þá víkingana okkar og
þykjumst eiga í þeim hvert bein.
Stöðugar fregnir berast heim af
frœgðarverkum þeirra í fjölmiðl-
um og ekki eru síðri þœr sögur
'sem ekki berast t gegnum fjöl-
miðla. Þœr eru oftast um
þeir hafa upp úr þessu.
Sú umrœða fer að
sjálfsögðu lágt, enda
launamál íþróttamanna
ekki vinsœlt umrœðuefni
meðal þeirra sjálfra.
PPESSAN fór á stúfana og
reyndi að grafa upp nokkrar tölur,
en þar sem þetta er eitt best
geymda leyndarmál þjóðarinnar
verður að hafa í huga að hér
koma fram óstaðfestar tölur í
flestum tilvikum.
Hér er fyrst og fremst horft til
knattspyrnu- og handknattleiks-
manna, enda atvinnumenn okkar
að stærstum hluta úr þeirra hópi.
Stærsti atvinnumaöurinn í bolta-
íþróttum er reyndar körfuknatt-
leiksmaðurinn Pétur Guðmunds-
son, sem nokkrum sinnum hefur
reynt að hasla sér völl í banda-
ríska körfuknattleiknum. Því er
haldið fram að fyrir eitt tímabil
þar fái hann um 10 til 15 milljónir
króna og þegar hann lék hér á
landi á siðasta tímabili kom fram í
DV að hann var með 350.000
krónur á mánuði, eða 4,2 milljónir
á ári. Þeirri tölu var ekki mót-
mælt. Svo undarlega vill til að þar
er um að ræöa upphæð sem
margir knattspyrnu- og handknatt-
leiksmanna okkar væru full-
ánægðir með.
ÁSGEIR FRÆGASTUR OG
HÆSTUR
Margir — en þó tæpast Asgeir
Sigurvinsson, sem um langt árabil
hefur gert garðinn frægan í Belgíu
og Þýskalandi. Eftir því sem næst
verður komist munu tekjur hans
af knattspyrnunni liafa veriö á
milli 25 og 30 milljónir króna þeg-
ar mest var. Þetta hefur þó líkiega
aöeins veriö á hápunkti ferils
hans, til dæmis þegar hann varö
meistari með Stuttgart. Má sem
dæmi taka að þegar hann flutti sig
yfir til Bayern Múnchen 1981 var
talið að hann hefði 12,5 milljónir
króna í laun fyrir utan auglýsinga-
tekjur. Atvinnumannsferill Ásgeirs
spannaði um 15 ár, hófst 1973, og
hefur hann því væntanlega náð að
safna dágóðum tekjum og er
reyndar einn fárra leikmanna sem
haldið hafa góðu starfi eftir at-
vinnumennskuna.
Þýskaland, áður V-Þýskaland, er
líklega „hæstlaunaða" landið þar
sem Islendingar hafa látið að sér
kveða. Því miður hafa þeir aldrei
komist í sjálfa paradísina á Ítalíu,
þar sem upphæöirnar eru orönar
stjarnfræðilega háar. Má sem
dæmi taka að í fyrra endurnýjaöi
Ruud Gullit samning sinn viö AC
Mílanó, sem talinn er færa honum
85 milljónir á ári til 1993 — og
það þrátt fyrir að hann væri
meiddur!
Þýsk atvinnumannaliö byggjast
mjög upp á bónuskerfi og launabil
á milli leikmanna er mikið. Piltar
sem eru að reyna að komast inn í
liðin þurfa í sjálfu sér ekki að gera
ráð fyrir að hafa meira en um
100.000 krónur í nettótekjur á
mánuði, en þá er búiö að draga
frá skatta og tryggingar. Þeir sem
koma utan að geta þó búist við
meiru og er til dæmis talið að Eyj-
ólfur Sverrisson, eini atvinnumað-
ur okkar í þýsku knattspyrnunni,
hafi um 6 til 8 milljónir í árslaun.
Það fer að sjálfsögðu eftir því hve
mikið hann fær að spila.
Þegar menn hafa skapað sér
nafn geta þeir farið fram á meira
og er til dæmis talið að Klaus
Augenthaler hafi haft um 50.000
þýsk mörk á ári í fyrra hjá Bayern
Múnchen. Það gerir um 21 milljón
króna fyrir utan bónusa, sem
Hvað
höfðu
i tjöl-
gulldrengirnir
uamninoa Qí=»m
upp úr
krqfsinu?
Launagreiðslur atvinnumanna okkar erlendis
eru oft kallaöar best geymda leyndarmál
þjóðarinnar. Þrátt fyrir að þessir kappar séu
í fréttum sí og œ fá fáir að kíkja í
launaumslag þeirra, enda má spyrja;
hverjum kemur það við?
gætu hafa hækkað upphæðina um
10 til 15 milljónir.
Við höfum átt nokkra atvinnu-
menn í Þýskalandi fyrir utan Ás-
geir. Líklega hefur Atli Eðvaldssort
náð þeirra lengst, en tekjur lians
gætu hafa verið á milli 8 og 10
milljónir króna á ári þegar best
lét, en það var á þeim tíma er
hann spilaði með Bayer Uerding-
en. Þar sem hann var um 10 ár í
atvinnumennsku hefur hann vænt-
anlega náð að koma bærilega
undir sig fótunum. Þá hefur loka-
árið í Tyrklandi ekki spillt fyrir, en
öruggt er að hann lækkaði ekki
frá |)ví sem var í Þýskalandi.
LEIKMENN FYRIR EPLI OG
APPELSÍNUR í BELGÍU
Belgía var lengi vel mikið vígi
íslenskra atvinnumanna. Þegar
Ásgeir Sigurvinsson hóf feril sinn
hjá Standard Liege var þar gósen-
tíö. Síðan hefur hallaö undan fæti
vegna offramboðs á knattspyrnu-
mönnum frá Afríku og A-Evrópu.
Er stundum sagt að þessir leik-
menn komi nánast fyrir epli og
appelsínur. Þá dró skattahneyksli,
sem skók belgísk knattspyrnufélög
fyrir nokkrum árum, mjög mátt-
inn úr liðum þar. Kom þá í Ijós að
mikill hluti launagreiðsina liðanna
hafði farið undir boröiö (svartir
peningar) og var liöunum gert að
greiða gífuriegar upphæöir í
skattasektir.
Tveir íslendingar urðu að
nokkru leyti fyrir baröinu á þeirri
uppstokkun sem varð í kjölfar
hneykslisins og mun þaö hafa flýtt
fyrir burtför þeirra Lárusar Gttð-
mundssonar frá Waterschei og
Sævars Jónssonar frá Cl. Brugge.
í dag eru leikmenn í Belgíu ekki
hátt launaðir. Er talið að hæstlaun-
uðu leikmenn stórliðsins And-
erlecht hafi um 7 milljónir franka í
laun eða um 12 milljónir króna.
Skattar í Belgíu eru á bilinu 39 til
44%, þannig að ekki er nema von
að Belgum gangi illa að halda í
fremstu leikmenn sína. Reyndar
hafa skattar í Hollandi verið enn
hærri og var það gefiö upp sem
ein af ástæöum þess að Pétur Pét-
ursson fór frá Feyenoord.
Einn þeirra sem leituðu burtu
var Arrtór Guðjohrtsen, sem leikið
hafði í Belgíu síðan hann var 16
ára eða í um 13 ár. Hann var án
efa kominn í hóp hæstlaunuðu
leikmanna Belgíu áður en hann
fór, en dvölin hjá Bordeaux í
Frakklandi hefur ekki hækkað
laun hans. Bordeaux var dæmt
niður í 2. deild vegna fjárhags-
stöðu liðsins og hefur mjög
þrengst um með launagreiðslur.
Því hefur verið haldið fram að
þessi breyting hafi lækkað laun
hans um ríflega helming frá því
hann var hjá Anderlecht, en á
bestu árum hans þar hafa launin
sjálfsagt verið á bilinu 14 til 18
milljónir.
í Belgíu leikur okkar yngsti at-
vinnumaður, Guðmundur Bene-
diktsson, hjá Ekeren. Guðmundur
var eftirsóttur, sem hefur liðkað
fyrir samningum, en þar sem
hann er ungur að árum hefur
samningur hans frekar verið fé-
lagsmálapakki með liðlegum end-
urskoðunarákvæðum en fastar
greiðslur.
GUÐNI MEÐ BESTA SAMNING-
INN í ENGLANDI
England hefur aldrei verið hátt
skrifað hvaö varðar laun leik-
manna, eins og kemur fram í
grein Kjartans Pálssonar í Sam.úel
í desember 1983. Þar kom fram að
Jóhannes Eðvaldssort var þá
lægstur í launum af þeim atvinnu-
mönnum sem þá voru erlendis, en
hann lék meö Motherwell, sem
var ekki stöndugt félag. Ljóst þyk-
ir þó aö Guðni Bergssort hafi gert
nokkuö góðan samning við lið
sitt, Tottenham, og er hann talinn
hafa betri samning en Sigurður
Jórtsson hjá Arsenal, sem þó hefur
meiri reynslu sem atvinnumaður.
Tottenham er talið borga liða best
í Englandi og er það hald manna
að Guðni hafi um 10 til 12 milljón-
ir á ári upp úr krafsinu, en þá er
væntanlega eftir að greiða skatta.
Sigurður mun vera nokkru lægri
og Þorvaldur Örlygsson, sem var
hjá Nottingham Forest þar til í vor,
hefur trúlega verið enn lægri — ef
til vill á bilinu 4 til 5 milljónir.
Líklegt er þó að Sigurður Grét-
arssort, sem leikur nú með fræg-
asta liði Sviss, sé hæstur þeirra at-
vinnumanna sem nú leika erlend-
is. Hann er einn af launahæstu
leikmönnum Sviss og má gera ráð
fyrir að hann hafi á milli 10 og 15
milljónir á ári. Þess má geta að
hann varð einn dýrasti leikmaður
Sviss eftir að Grasshoppers tapaði
málaferlum vegna kaupanna. í
Sviss hafa leikiö nokkrir aðrir leik-
menn og haft bærileg laun, þótt
þau jafnist ekki á við það sem Sig-
urður hefur. Má ætla að laun
þeirra hafi verið á bilinu 4 til 8
milljónir og er sérstaklega rætt
um að Guðmundur Þorbjörnsson
hafi gert góðan samning, en hann
dvaldi tvö ár hjá Baden.
í gegnum tíðina höfum við átt
marga knattspyrnumenn á Norð-
urlöndum. Flestir hafa verið á
nokkurs konar hálfatvinnu-
manns-samningum þar og vinna
hálfan daginn.
Líklega hafa fæstir
haft meira en góð
mánaðarlaun
fyrir erfiðið.
Nokkrir hafa þó
verið með ágæta
samninga sem jafnast á við lægri
tölur sunnar úr Evrópu, og eru þar
helst tíndir til Teitur Þórðarson
þegar hann var hjá Öster og
reyndar þeir bræður núna hjá Lyn
í Noregi.
KRISTJÁN EINN HÆST
LAUNAÐI HANDBOLTAMAÐUR
í HEIMI
Fram til þessa hafa verið allt
aðrar Iaunatölur hjá handbolta-
mönnum. Þróunin á Spáni síðustu
ár hefur þó verið að breyta þessu,
en þar verja iiðin nú verulegum
fjármunum til að styrkja lið sín og
þurfa um leið að greiða sífellt
hærri laun. Má sem dæmi taka að
Barcelóna keypti júgóslavneska
leikmanninn Vujovic fyrir eina
milljón dollara eða um 60 milljón-
ir króna. Félagi Alfreðs Gíslasonar,
Pólverjinn Bogdan Wenta, hjá Bid-
asoa var keyptur á 30 milljónir
króna og um leið þurfti liðið að
greiða Sigurði Gunnarssyni nokkr-
ar milljónir króna vegna samn-
ingsrofs við hann.
Samkvæmt upplýsingum frá
Spáni er Kristján Arason talinn
einn launahæsti leikmaðurinn þar.
Má ætla að laun hans á síðasta
vetri hafi verið á bilinu 10 til 12
milljónir, en fyrir síðasta tímabil
náði hann að hækka samning
sinn. Reyndar gekk sú saga fjöll-
um hærra hér að hann hefði 19
milljónir fyrir tímabilið en það á
tæpast við rök að styðjast. Alfreð
Gíslason var ekki langt frá Krist-
jáni, en þeir tveir hafa líklega
verið í nokkrum sérfiokki.
Júlíus Jónasson hefur nú tekið
stöðu Alfreðs hjá Bidasoa og er
því haldið fram að hann fái eitt-
hvað svipað, eða í kringum 8 til
10 milljónir, fyrir timabilið. Július
fer frá Frakklandi, en þar er talið
að séu greidd næsthæstu launin i
handknattleiknum. Þá fór línu-
maðurinn Geir Sveinsson til
Valencia og er talinn hafa fengið 6
milljónir fyrir þann samning, sem
er nokkuð gott miðað við að hann
er ekki í skyttuhlutverki.
Þýskaland hefur heldur dregist
aftur úr, en þó er rætt um að
verkfræðingurinn Jón Kristjánsson
hafi gert ágætan samning sem sé
nálægt samningi Geirs. Einnig var
Héðinn Gilsson í aðstöðu til að
semja vel — eitthvað nálægt því
sem Jón hefur. Sigurður Bjarna-
son var nokkru lægri og Konráð
Olavsson enn lægri.
Um handknattleiksmenn á Norð-
urlöndum gildir svipað og með
knattspyrnumenn. Þar eru tölu-
vert lægri upphæðir í boði en þó
hægt að ná fram góðum samning-
um. í Noregi hafa einstaka menn
fengið góða samninga og er Stein-
ar Birgisson gjarnan nefndur í því
sambandi.
VÆNLEGAST
AÐ NÁ SÉR í UMBOÐ
Þegar upp er staðið er að sjálf-
sögðu mjög misjafnt hvað eftir
stendur — það fer í raun eftir því
hve forsjálir menn eru á þeim
stutta tíma sem peningarnir
streyma inn. Albert Guðmundsson
bjó til dæmis ekki við háar launa-
greiðslur á sínum ferli en lagði
grunninn að heildsöluveldi sínu
með þvi að ná sér í umboð. Marg-
ir hafa fetað í fótspor hans. Má
þar nefna sem dæmi Sævar Jóns-
son, sem rekur heildverslun og
hefur nýlega opnað úraverslun,
Atli Eðvaldsson er að fara að opna
teppaverslun í Skipholti og Ásgeir
hefur fjárfest hér heima, en það er
önnur saga.
Sigurður Már Jónsson
Asgeir Sigurvinsson er kóngurinn
meðal atvinnumanna okkar og lík-
lega sá eini sem kallast gulldrengur
meö réttu. í silfurflokknum eru lík-
lega þeir Atli Eðvaldsson (1) og Arnór
Guðjohnsen (2). Sigurður Grétarsson
(3) er talinn launahæsti atvinnumað-
ur okkar i dag. Kristján Arason (4)
náði að setja sig á landakortið yfir
hæstlaunuðu handknattleiksmenn
heims. Alfreö Gíslason (5) var ekki
langt á eftir Kristjáni með um 10
milljónir fyrir síöasta tímabil. Júlíus
Jónasson (6) fer frá næstbesta land-
inu yfir í þaö besta þegar miöað er
viö laun handboltamanna.