Pressan - 09.01.1992, Page 10

Pressan - 09.01.1992, Page 10
10 FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. JANÚAR 1992 * Aburðarverksmiðjan í Gufunesi KRAFIN UM 20 MILLJÚNIR KRÚNA VEGNA MENBUNAR M E N N Hjalti Úrsus Árnason Genískur lyfja- prófsfallkandídat Það á ekki af Hjalta Úrsusi Árnasyni að ganga. Það hef- ur verið sorglegt að fylgjast með því hvernig óheppnin hefur elt Hjalta allan hans fer- il. Það er eins og hann sé dæmdur til að vera númer tvö — í skugganum af sigur- vegaranum. Það var því ánægjulegt að sjá hann loks- ins ná gullinu og ekki skemmdi það fyrir að hann varð heimsmeistari um leið. Eina von Hjalta er að einhver taki sig til og haldi heims- meistaramót manna með óeðlilegan hormónabúskap í líkamanum En það leið ekki á löngu áður en kom í ljós að þarna var óheppnin bara að henda gaman að Hjalta. Og ti! þess hafði hún beitt ótrúlegum brögðum. Óheppnin hafði smeygt sér inn í genin á Hjalta. Hún er orðin honum eðlislæg. Það er ekki hægt að skilja niðurstöður lyfjaprófsins, sem framkvæmt var eftir heimsmeistaramótið í kraft- lyftingum, á annan hátt. Þeg- ar vísindamenn höfðu rýnt í þvagsýnið úr Hjalta kom í ljós að það var einn hormóna- grautur. Hjalti hefur hins veg- ar aldrei tekið inn hormóna. Óheppnin hafði bara leikið Hjalta þannig að hann fram- leiðir þá; Og það í miklu magni. Á meðan kirtlar í venjulegum manni framleiða slettu og slettu ganga hor- mónarnir í bunum niður úr Hjalta. Það væri ef til vill sök sér ef Hjalti hefði ekki áhuga á íþróttum. Hormónar eru dýr- ir og sjálfsagt gæti Hjalti orð- ið stórríkur á að láta vinna þá úr þvaginu. En þar sem Hjalti er íþróttaáhugamaður eru þetta slæm tíðindi fyrir hann. Allt þetta hormónamagn í þvaginu gerir hann óhæfan til þátttöku á stórmótum. Eina von Hjalta er að einhver taki sig til og haldi heims- meistaramót manna með óeðlilegan hormónabúskap í líkamanum. Þangað til getur Hjalti ekk- ert gert nema haldið um gull- ið sem hann vann og reynt að hindra það að alþjóðlega kraftlyftingasambandið taki það af honum. Og það ætlar hann að gera. Sá sem lenti í öðru sæti þarf því að safna liði ef hann ætlar að ná gull- inu af Hjalta. Við sem höfum fylgst með Hjalta Úrsusi undanfarin ár skiljum hann vel. Hann var alltaf í skugganum af Jóni Páli, allt þar til Jón slasaðist og gat ekki lengur keppt í kraftakeppni. Þá ætluðu flest- ir að Hjalti hreppti hnossið. En þá kom Magnús Ver og enn þurfti Hjalti að sætta sig við annað sætið og skugg- ann. Og þótt Hjalti sætti sig við að bæði Jón og Magnús hefðu hann undir er skiljan- legt að hann spyrni við fótum þegar hann á orðið í baráttu við sinn eigin líkama og líf- ræna uppbyggingu hans. ÁS Eigendur Haflax hf. krefja Áburðarverksmiðju ríkisins um 20 milljónir króna í skaðabætur vegna seiða- dauða í sjókvíum fyrirtækis- ins. Dauðinn er rakinn til ammoníaksmengunar sem forráðamenn Haflax telja Áburðarverksmiðjuna bera ábyrgð á. Það var árið 1988 að megnið af fiski fyrirtækis- ins drapst í kvíum þess, sem eru skammt frá Áburðarverk- smiðjunni. Málið er rekið í Bæjarþingi Reykjavíkur. Mál þetta er í raun prófmál því aldrei áður hefur verið höfðað hér á landi mál gegn fyrirtæki vegna mengunar- slyss. Vátryggingarfélag ís- lands, sem er tryggingarfélag Áburðarverksmiðjunnar, rekur málið fyrir hennar hönd en Skarphédinn Þóris- son hæstaréttarlögmaöur fyrir Haflax. Rannsókn leiddi í ljós að fiskurinn drapst af ammon- íaksmengun. Forráðamenn Haflax telja yfirgnæfandi lík- ur á að mengunin hafi komið frá Áburðarverksmiðjunni. Verksmiðjan telur það ekki rétt og verst af hörku. Mál þetta hefur verið nokkuð lengi að veltast í kerfinu, sem mun af nokkru stafa af því hversu ítarlegar rannsóknir hafa farið fram vegna þess. Fasteignin Smiðjuvegur 14d í Kópavogi, í eigu barna Hreidars Svavarssonar í Smiðjukaffi, var sl. þriðjudag slegin á uppboði fyrir samtals 31 milljón króna. Hæstbjóð- andi var Hátorg hf„ en stofn- endur þess eru Grétar Har- aldsson lögfræðingur, Jó- hannes Jónsson, kaupmaður í Bónus, og sonur hans, Jón Ásgeir. Kaupverðið er langt yfir fasteignamati, sem er samtals 24 milljónir króna. Á uppboðinu atti Grétar kappi við Fjárfestingarfélagið. Það bauð fyrst samtals 22,5 millj- ónir og síðan 29,5 milljónir eftir móttilboð Grétars, sem síðan bauð betur og fékk eignina fyrir verð sem er 8,5 milljónum króna yfir fyrsta tilboði. Grétar er lögfræðing- ur Hreiðars Svavarssonar. Fasteignin var í eigu Sverr- is, Smára og Arndísar Hreid- arsbarna. Fjárfestingarfélag- ið er handhafi bréfa á nafni Grétars og Hreiðarsbarna. Uppreiknaður höfuðstóll þeirra bréfa er alls um 27 milljónir króna. Hreiðars- börn eignuðust fasteignirnar í febrúar 1988, en Hreiðar var skráður eigandi austurhlut- TELJA ÁBURÐAR- VERKSMIÐJUNA ÁBYRGA „Við teljum yfirgnæfandi líkur á því að mengunin hafi komið frá Áburðarverksmiðj- unni. Hún fer með, notar og framleiðir ammoníak," sagði Skarphéðinn Þórisson í sam- tali við PRESSUNA. Málið er rekið sem skaðabótamál og þykir mjög snúið, bæði lög- fræðilega og tæknilega. Ekki er hægt að benda ákveðið á skaðvaldinn og orsakatengsl verður að sanna. Eins og áð- ur segir þykir Haflaxmönn- um allar líkur benda á Áburð- arverksmiðjuna. Menn þar á bæ benda aftur á móti á sorp- haugana í Gufunesi og þann möguleika að eiturefnum hafi verið hent þar og einnig geti verið að ammoníakið hafi komið í gegnum skolp- ieiðslur. Þá segja þeir hugsan- ans fyrir þann tíma, en Sveinn Jónsson að vestur- hlutanum. JÓHANNES í BÓNUS STJÓRNARFORMAÐUR - KOM AF FJÖLLUM Hátorg hét áður Vonar- neisti og var stofnað í mars 1990. Hlutafé var við stofnun skráð 900 þúsund og vekur athygli að Jón Ásgeir var skráður fyrir 800 þúsundum, en Grétar og Jóhannes 50 þúsundum hvor. Þótt feðg- arnir ættu nær allt hlutaféð kom Jóhannes af fjöllum þeg- ar hann var spurður um þessi mál og vildi ekkert tjá sig ut- an að þeir feðgar ættu 33 pró- sent í Hátorgi. Jóhannes er þó enn skráður stjórnarfor- maður Hátorgs hf„ en Grétar framkvæmdastjóri. Það er því ljóst að stjórnarformaður- inn vissi ekki að félagið hefði efnt til 31 milljónar króna fasteignakaupa. 9. september sl. var per- sónulegt bú Hreiðars Svav- arssonar tekið til gjaldþrota- skipta og lauk skiptum 17. desember síðastliðinn. Búið reyndist eignalaust. Fyrir Hæstarétti er ennfremur legt að skip hafi losað á þessu svæði einhver efni sem vald- ið hafi skaðanum og benda líka á að ammoníak myndast fljótt í fiski þegar hann drepst. Haflaxmönnum finnst þessar skýringar ekki líkleg- ar og telja sig hafa hrakið þær að mestu. ENGIN SÝNI TEKIN ÚR SJÓ Itarlegar rannsóknir hafa farið fram vegna þessa máls. Á Keldum varð niðurstaðap sú að fiskurinn hefði drepist vegna ammoníakseitrunar, en mikið magn ammoníaks fannst í fiskinum. Það var Haflax sem lét gera þá könn- un, en niðurstöður hennar voru sendar til Noregs og Skotiands til frekari athugun- áfrýjað uppboð frá 1988 á einbýlishúsinu Háholti 3 í Garðabæ í eigu Hreiðars. Höfuðstóll veðskulda sem hvíla á því húsi er 58 milljónir króna að núvirði, þar af 42 milljónir vegna bréfa á nafni Grétars. Málflutningur í máli þessu fer fram 17. janúar. Málið er talið gjörtapað fyrir Hreiðar. TAPA SMIÐJUKAFFI EN KAUPA GERÐUBERG 1 FYRIR 105 MILUÓNIR Á sama tíma og uppboðs- málið vegna einbýlishúss Hreiðars er fyrir Hæstarétti, hann sjálfur í gjaldþrotaskipt- um og fasteign barna hans slegin á uppboði er fyrirtæk- ið Borgarfoss hf„ í eigu fyrir- tækja og barna Hreiðars, að kaupa verslunarhúsið Gerðu- berg 1 af Fjárfestingarfélag- inu á 104 milljónir að núvirði. Samkvæmt upplýsingum frá Fjárfestingarfélaginu hef- ur Borgarfoss hf. staðið í skil- um. „Tilboð félagsins vegna Smiðjuvegar 14 var til að gæta hagsmuna félagsins og það gekk eftir. Það tengist á engan hátt sölunni á Gerðu- bergi 1, þar sem kaupendur ar. VÍS lét gera könnun í Há- skólanum, en niðurstöður hennar munu ekki hafa verið jafnafgerandi. Eingöngu voru tekin seiða- sýni, engin sýni tekin úr sjó. Ástæða þess mun einfaldlega sú að mönnum datt ekki mengun í hug heldur var ástæðan fyrst talin einhvers konar sýking í fiskinum. Það, að ekki voru tekin sýni úr sjó, gerir allt málið og málarekst- urinn erfiðari og flóknari. Sönnunarbyrði í málum sem þessum er mikil og hvílir nú á stefnendum. Það mun þó vera von þeirra að þeim takist að snúa sönnunarbyrð- inni við; að þeir geti leitt það miklar líkur að því að Áburð- arverksmiðjan beri ábyrgð- ina að henni verði gert að sanna að svo sé ekki. í ljósi þess hversu snúið málið er, og þar sem ljóst þyk- ir að enginn finnist sem hægt er að sanna á sök, verður að telja liklegt að málið verði dæmt á líkum. Dómur ætti að falla um miðjan febrúar, en hver svo sem niðurstaðan verður í Bæjarþingi þykir ljóst að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. Ekki náðist í neinn hjá VÍS eða Áburðarverksmiðjunni sem hefur með þetta mál að gera. Hátorg hf„ í eigu Jóhannesar Jónssonar í Bónus, Grétars Haraldssonar, lögmanns Hreiðars, og fleiri, yfirbauð Fjárfestingafélagið og keypti húseignina að Smiðjuvegi 14 á 31 milljón. Fasteignamatið er 24 milljónir. Smiðjuvegur 14 var í eigu Hreiðars Svavarssonar. hafa staðið í skilum," sagði Fridrik Jóhannsson, forstjóri félagsins. Miðað við full skil hefur Borgarfoss því greitt um 20 milljónir vegna Gerðu- bergsins á sama tíma og Smiðjuvegareignin hefur ver- ið til uppboðsmeðferðar og nú slegin á 31 milljón króna. Friðrik Þór Guðmundsson Jðhannes í Bónus elgnast Smiðjukaffi ð uppboði Eigendur Haflax krefjast bóta frá Áburðarverksmiðjunni vegna dauða laxa af völdum ammoníaksmengunar.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.