Pressan - 09.01.1992, Síða 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. JANÚAR 1992
11
ann 30. desember voru opnuð
tilboð vegna hafnarframkvæmda í
Keflavík og Njarðvík. Vita- og hafn-
armálastofnun stóð
að útboðinu en
kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á
68.299.000 krónur.
Öll stærstu fyrirtæk-
in skiluðu inn tilboð-
um en hæsta tilboð-
ið kom frá Hauki Guðmundssyni í
Njarðvík, 104 milljónir. Jóhann
Bergþórsson og fyrirtæki hans,
Hagvirki, áttu aftur á móti lægsta til-
boðið eða 39.700.000 krónur, sem
er ekki nema 58 prósent af kostnað-
aráætlun .. .
LAUSN A KROSSQÁTU Á BLS. 40
BlBlEiHBEI EEIi3EHa
EEiHI
SENDUM FRITT HEIM
ALLA DAGA VIKUNNAR
Heimsending
Frá sunnudegi til fimmtudags
11.00 til 23.30
föstudaga og laugardaga
frá 11.00 til 06.00
Pöntunarsimi 679333
Skútuvogi 10a - Sími 686700
F
JL rjals verslun valdi þá feðga
Þorvald Guðmundsson í Síld og
fisk og Skúla Þorvaldsson á Hótel
Holti menn við-
skiptalífsins árið
1991. Ástæðulaust
er að ætla að deilur
standi um valið. Það
ber hins vegar þess
merki að menn vilji
fara varlega í sakirn-
ar og láta ekki söguna þegar Jón
Óttar Ragnarsson var valinn
markaðsmaður Norðurlanda end-
urtaka sig. Jón Óttar var valinn í
nóvember og hann hafði misst fyrir-
tækið frá sér rúmum mánuði síð-
ar...
T
JL vær af fjórum rækjuverksmiðj-
um á ísafirði eiga nú í miklum erfið-
leikum. Niðursuðuverksmiðjan er
með greiðslustöðvun og ísver er
gjaldþrota. Rækjustöðin á í erfið-
leikum án þess að vera í „meðferð".
Bakki í Hnífsdal stendur hins vegar
sæmilega. ísafjörður er helsti rækju-
vinnslubær iandsins og þessar
vinnslur skipta verulega miklu máli
í atvinnulífi bæjarins ...
✓
I PRESSUNNI fyrir nokkru var
grein undir heitinu Nútímasjóræn-
ingi, þar sem birtist viðtal við Ólaf
Ólafsson sem smíð-
ar sjóræningjaaf-
ruglara fyrir Stöð 2. í
greininni var Ólafur
titlaður rafeinda-
virki. Vegna þessar-
ar greinar hefur
stjórn Meistarafé-
lags rafeindavirkja haft samband
við blaðið og vill taka fram að Ólaf-
ur hefur ekki heimild til að nota
starfsheitið rafeindavirki. . .
MT á hefur fvar Hauksson verið
kærður enn eina ferðina. Hann mun
hafa ráðist að þremur ungum mönn-
um á skemmtistaðn-
um Paradís á nýárs-
nótt og veitt þeim
áverka. Ungu menn-
irnir þrír voru fluttir
á slysadejld og fvar í
tukthús. í fyrstu ætl-
uðu ungu mennirnir
ekki að kæra fvar en eftir að lög-
regla lagði hart að þeim að kæra
skiptu þeir um skoðun og kærðu
hann. Deilt er um upptök slagsmál-
anna. ívar heldur því fram að ungu
mennirnir hafi byrjað ...
✓
^^^lafsvík er einn þeirra bæja
sem hafa orðið hvað verst úti hvað
varðar atvinnulíf að undanförnu.
Ekki eru allir heimamenn á því að
best sé að snúa bökum saman og
taka sameiginlega á vandanum.
Þetta sést kannski best á því að í Öl-
afsvík eru nú tveir fiskmarkaðir. Sá
fyrri var opnaður nokkru fyrir ára-
mót og síðari markaðurinn var sett-
ur í gang í gær, miðvikudag. Að
eldri markaðinum standa nokkrir
einstaklingar og félög í Ólafsvík. Að
hinum standa Héraðsnefnd Snæ-
fellsness, Ólafsvíkurkaupstaður,
Verkalýðsfélagið Jökull í Olafsvík
og fleiri. Þátttaka bæjarins og
verkalýðsfélagsins í nýrri markaðin-
um hefur farið fyrir brjóstið á bæjar-
búum, ekki síst þeim sem standa að
eldri markaðinum ...
Stóri kosturinn við að greiða a.m.k. helming ferðakostnaðar með VISA eða VISA-raðgreiðslum fyrir
brottför er sá að þú og fjölskylda þín nýtur FERÐATRYGGINGAR VISA á öllum ferðalögum - jafnt
innanlands sem utan:
A FERÐASLYSATRYGGING
alltað USD 100.000
A SJÚKRATRYGGING
allt að USD 25.000
A ENDURGREIÐSLA ORLOFSFERÐAR
ef stytta þarf ferð áður en hún er hálfnuð,
vegna slyss eða veikinda
A HEIMSÓKN AÐ HEIMAN eða
HEIMFLUTNINGUR
ef alvarleg veikindi steðja að
A VIÐLAGAÞJÓNUSTA OG NEYÐARHJÁLP
allan sólarhringinn - árið um kring
EUROP ASSISTANCE
Með einu símtali átt þú kost á aðstoð og ráðgjöf 200
umboðsmanna í 160 löndum. Ef eitthvað bjátar á eru
þeir sannir vinir í raun.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐINHE
VISA-VIÐAUKATRYGGING fæst með einu símtali:
A Farangurstrygging
A Ferðarofstrygging
A Ábyrgðartrygglng
A „Heilt-heim"-trygging
A Sfysadagpeningar
Einstakt tilboðsverð.
Nánari upplýsingar og skilmálar fást hjá TRYGGINGAMIÐSTÖÐINNI HF. (sími 91-26466) og
Vaktþjónustu VISA (sími 671769). Einnig á hinum 175 afgreiðslustöðum VISA-banka/sparisjóða og á
ferðaskrifstofunum.
9
cv
s
*
3
<