Pressan - 09.01.1992, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. JANÚAR 1992
15
Kaupleiguíbúðir á Siglufirði
í nærri heilt ár hafa einu kaupleiguíbuðirnar sem byggðar hafa verið á Siglufirði staðið ónotaðar.
Húsnæðisstofnun hefur lánað til þeirra tæplega 60 milljónir króna þótt engin þörf virðist vera fyrir þær.
Að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra afhjúpar þetta misnotkun á félagslega kerfinu. Hún
telur að kaupleigukerfið snúist oft á tíðum meira um verklegar framkvæmdir en húsnæðisskort.
Jóhanna Siguröardóttir
„Menn hafa þá veriö aö nota þetta sem atvinnuskapandi fram-
kvæmd frekar en húsnæðislausn."
Frá því í vor hafa sex par-
húsaíbúðir staðið ónotaðar á
Siglufirði þrátt fyrir að þær
séu tilbúnar til íbúðar. Þær
eru byggðar í almenna kaup-
leigukerfinu og hefur Hús-
næðisstofnun greitt út 57
milljónir króna vegna bygg-
ingar þeirra. íbúðirnar virð-
ast óseljanlegar, enda orðnar
mun dýrari en markaðsverð
íbúða á Siglufirði segir til um.
Eina ráðið virðist vera að
koma þeim inn í félagslega
kerfið þrátt fyrir að þær séu
mun stærri en staðlar þar
segja til um.
Bygging parhúsanna
þriggja hófst 1988. Var þá
stofnað byggingarfélagið
Grásteinn hf. í þeim tilgangi
að byggja og reka almennar
kaupleiguíbúðir. Til að fá út-
hlutað úr kaupleigukerfinu
þurfti félagið að sýna fram á
að kaupendur væru að íbúð-
unum og sala þeirra væri
tryggð. Húsnæðisstofnun var
sendur ákveðinn listi og voru
meðal annars á honum Krist-
ján L. Möller, núverandi for-
seti bæjarstjórnar og fyrrver-
andi formaður Grásteins,
verkalýðsfélagið Vaka og
Þormóður rammi hf. Allir
þessir aðilar hafa nú hætt við.
í samtali við PRESSUNA
sagði Kristján að ekki hefði
verið sendur kaupendalisti í
upphafi heldur hefði aðeins
legið fyrir viljayfirlýsing
nokkurra aðila um að þeir
hygðust kaupa. Um eigin um-
sókn hafði hann þetta að
segja: „Ég sótti um íbúð síð-
asta sumar en síðan hefur
ýmislegt breyst í högum mín-
um þannig að ég kaupi ekki
íbúð í bráð.“
Samkvæmt útboði átti að
skila íbúðunum haustið 1990
en verktakinn, Berg hf., gat
ekki staðið við tímamörkin
og voru íbúðirnar ekki tilbún-
ar fyrr en vorið 1991. Síðan
hafa húsin staðið auð og
óseld og allir skráðir kaup-
endur fallið frá kaupunum.
Kristján sagðist þess reyndar
fullviss að íbúðirnar mundu
seljast, það sem hefði hins
vegar gerst væri að aðstæður
allar á Siglufirði hefðu breyst
þannig að nú væri ekki eftir-
sókn eftir húsnæði.
ÓSELJANLEGAR ÍBÚÐIR
Þar sem verð íbúðanna er
þetta hátt, 10 til 11 milljónir
króna, ef tekið er mið af
byggingarkostnaði, er ljóst
að þær verða ekki seldar á al-
mennum markaði. Hver íbúð
er 130 fermetrar. Heima-
menn telja einnig víst að þær
verði ekki seldar í kaupleigu-
kerfi og því mun nú vera unn-
ið að því að flytja þær inn í fé-
lagslega kerfið — annaðhvort
félagslega kaupleigukerfið
eða verkamannabústaða-
kerfið.
Byggingarframkvæmdirn-
ar hafa vakið upp spurningar
um tilgang þessara fram-
kvæmda, en til þeirra hefur
nú verið varið 57 milljónum
króna frá Húsnæðisstofnun,
sem lánar 90 prósent af bygg-
ingarverðinu.
„Þetta snerist fyrst og
fremst um að útvega verk-
taka vinnu, enda engin þörf
fyrir þessi hús. Mörgum þykir
óeðlilega staðið að þessu.
Framkvæmdunum var þrýst
af stað án þess að til væru
kaupendur," sagði Axel Ax-
elsson, varabæjarstjórnarfull-
trúi á Siglufirði, einn þeirra
sem gagnrýna bygginguna.
Undir þetta tekur Baldur
Fjölnisson, sem hefur skrifað
um málið í Siglfirðing. Hann
sagði í samtali við PRESS-
UNA að þetta snerist bara um
að spila á félagslega kerfið.
Axel benti einnig á að eng-
inn skortur væri á húsnæði í
bænum og þessar fram-
kvæmdir hefðu í raun orðið
til þess að lækka fasteigna-
verð. Þetta eru einu kaup-
leiguíbúðirnar sem byggðar
hafa verið á Siglufirði.
„Það hefur verið farið út í
að byggja þó að það væru til
íbúðir á stöðunum til kaups.
Menn hafa þá verið að nota
þetta sem atvinnuskapandi
framkvæmd frekar en hús-
næðislausn,“ sagði Jóhanna
Siguröardóttir félagsmála-
ráðherra. „Það er þá á stöð-
um þar sem hefur verið at-
vinnuleysi eða atvinnuskort-
ur og þá hafa menn freistast
til að fara út í þetta. Það er
auðvitað mjög slæmt ef það
er verið að koma óorði á fé-
lagslega kerfið með þessum
hætti. Við höfum haft af
þessu áhyggjur og vinnum að
því að breyta þessu. Við
næstu úthlutun verða sett
mjög ströng skilyrði og þá
sérstaklega varðandi þetta,
þannig að þeir geti ekki verið
að byggja ef það er nóg fram-
boð af íbúðum á stöðunum,“
sagði félagsmálaráðherra.
Aðsögn Yngva ArnarKrist-
inssonar, formanns húsnæð-
isstjórnar, er ljóst að ráðist
hefur verið í alltof stórtækar
íbúðarbyggingar á Siglufirði.
Hann sagði að nú væri verið
að kanna möguleika á að
selja íbúðirnar með öðrum
hætti — jafnvel í gegnum
verkamannabústaðakerfið
eða félagsiega kaupleigukerf-
ið. Eftir því sem PRESSAN
kemst næst er rætt um að
væntanlegir kaupendur geti
fengið að setja eldri íbúðir
upp í kaupin.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR hefur þetta
fyrirkomulag verið gagnrýnt
innan Húsnæðisstofnunar.
Sérstaklega sá þáttur sem lýt-
ur að byggingarfélögunum
sjálfum. „Þetta eru bara
pappírsfyrirtæki og þó að
þau hafi starfsleyfi frá félags-
málaráðuneytinu hefur það
ekkert að segja. Þeirra
ábyrgð er engin,“ sagði starfs-
maður Húsnæðisstofnunar.
70 MILLJÓNA BLOKK Á
ÍSAFIRÐI ÓNOTTUÐ
En þetta tilfelli á Siglufirði
er síður en svo eina dæmið
um framkvæmdagleði í
tengslum við kaupleigukerf-
ið.
Á ísafirði hefur Byggingar-
félag ísafjarðar hf. byggt 27
íbúðir í þremur blokkum á
undanförnum árum. Allt var
þetta byggt í almenna kaup-
leigukerfinu. 17 íbúðum hef-
ur verið ráðstafað, en reyndar
þurfti að selja nokkrar þeirra
samkvæmt verkamannabú-
staðakerfinu til að þær
gengju út.
Ein blokkin er við Polla-
götu og hefur hún staðið
ónotuð í um það bil ár. í henni
eru 10 íbúðir og hefur Hús-
næðisstofnun lánað 70 millj-
ónir til framkvæmdarinnar.
Frágangi er nánast lokið en
lokahnykkurinn virðist
stranda á deilu á milli verk-
takans, Guðmundar Þórðar-
sonar, og Byggingarfélags
ísafjarðar. Ibúðirnar 10
standa á meðan óseldar og
ónotaðar.
Reyndar virðist hafa verið
ráðist í framkvæmdina fyrir
misskilning á lögum um
kaupleiguíbúðir. Það var
nefnilega skilningur bygging-
araðilans að fyrirtæki mætti
eiga íbúðir en þegar kom í
ljós að það var ekki heimilt
var búið að byggja blokkina!
Sigurður Már Jónsson