Pressan - 09.01.1992, Blaðsíða 20
20
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. JANÚAR 1992
Verður kaupum
á Steindórl ritt?
Niðurstöðu er að vænta í
riftunarmáli vegna kaupa á
strönduðum báti, Steindóri
GK. Steindór fórst við Krísu-
víkurbjarg í febrúar á síðasta
ári. Er riftunarkrafan byggð á
því að eigandinn, Njáll hf.,
hafi vanefnt kaupsamninginn
fyrir strandið, en svo ein-
kennilega vill til að verðmæti
bátsins jókst mjög við strand-
ið vegna kvótans sem á hon-
um var.
Edda aftur til
ríkissaksóknara
Rannsóknarlögreglan hef-
ur sent ríkissaksóknara mál á
hendur Eddu Sigrúnu Ólafs-
dóttur í þriðja sinn.
í fyrstu fékk saksóknari
málið frá RLR sumarið 1990.
Hann sá ekki ástæðu til frek-
ari aðgerða.
Eftir það var Edda Sigrún
kærð til RLR af einum skjól-
stæðinga sinna. Þegar rann-
sókn var lokið var málið sent
til saksóknara á ný.
Nokkru síðar var málið
endursent með beiðni um
frekari rannsókn.
Er þeirri rannsókn nú lok-
id?
„Að okkar dómi,“ sagði
Bogi Nilsson rannsóknarlög-
reglustjóri í samtali við
PRESSUNA.
Örn Steinsen
framkvæmdastjóri Sögu.
Starfsmönnum
Sögu sagt upp
Öllu starfsfólki Ferðaskrif-
stofunnar Sögu hefur verið
sagt upp störfum. Ástæðan er
sögð endurskipulagning hjá
fyrirtækinu. Saga hefur verið
rekin með talsverðu tapi að
undanförnu. Örn Steinsen,
framkvæmdastjóri og hlut-
hafi, fékk uppsagnarbréf eins
og aðrir. Eitt af því sem kem-
ur til greina er að sameina
Sögu og Úrval/Útsýn, en
Flugleiðir eru stór hluthafi í
hvorum tveggja ferðaskrif-
stofunum.
Gagnagrunnur-
inn fannst í
pappakössum
Á næstu dögum verður tek-
in ákvörðun um það hvort
reynt verður að bjóða upp
eigur í þrotabúi íslenska
gagnagrunnsins hf. Aðal-
kröfuhafi er ríkissjóður, en
sem kunnugt er var tekið veð
í eigum grunnsins vegna
söluskattsskulda Svarts á
hvítu hf. Er það álit Ríkisend-
urskoðunar að afskrifa verði
35 milljónir króna vegna
þessa.
Áhöld eru um hvort nokkr-
um tilgangi þjónar að bjóða
upp eigur fyrirtækisins, sem
munu vera í formi tölvudisk-
ettusafns í nokkrum pappa-
kössum.
ÞRDTOBU KRDN
TIL SAKSOKNARA
Þegar rannsókn endur-
skoðenda á þrotabúi KRON
lýkur verður málið sent til
ríkissaksóknara. PRESSAN
hefur heimildir fyrir því að at;
hygli hans verði vakin á
ógreiddum lífeyrissjóðsgjöld-
um og jafnvel einhverjum
fleiri atriðum.
Eins blasir við að þrotabúið
muni höfða riftunarmál, og
það fleiri en eitt.
Meðal mála sem freistað
verður að rifta er skuldajöfn-
un sem Samband íslenskra
samvinnufélaga og KRON
gerðu. Sambandið átti um 35
milljónir króna hjá KRON en
eignarhlutur KRON í Sam-
bandinu og sjóðum þess var
um 45 milljónir króna. Kröfur
Sambandsins á KRON eru
fyrst og fremst tilkomnar
vegna viðskipta KRON og
verslunardeildar Sambands-
ins.
Allt eins er reiknað með að
þrotabúið fari þess á leit að fá
þessari skuldajöfnun rift. Ef
það gengur eftir verður Sam-
bandið að sitja við sama borð
og aðrir almennir kröfuhafar.
Staða þeirra er nánast von-
laus. Eignir þrotabús KRON
eru aðeins metnar á um 10
milljónir króna. Kröfurnar
eru hins vegar fast að hálfum
milljarði króna.
Af þessu sést að ef skulda-
jöfnuninni verður rift þarf
Sambandið að greiða um 45
milljónir króna inn í búið og
fær ekkert til baka.
Stjórnendur KRON seldu
eignir og gerðu fleiri ráðstaf-
anir fyrir gjaldþrotið. Sum
þeirra viðskipta voru við
skylda aðila, þ.e.a.s. Sam-
bandið og fyrirtæki tengd
því, og þá um leið tengd
KRON. Þegar um skylda að-
ila er að ræða eru allir gern-
ingar riftanlegir allt að tveim-
ur árum aftur í tímann.
Fyrirtæki tengd Samband-
inu og Sambandið sjálft gætu
átt á hættu að tapa samtals
allt að eitt hundrað milljón-
um króna, verði farið í riftun-
armál og þrotabúið hefur sitt
fram.
Til að höfða riftunarmál
verður þrotabúið að geta
greitt tryggingar fyrir máls-
kostnaði, en sá kostnaður
gæti orðið svipaður og ailar
eignir þrotabúsins, um tíu
milljónir króna.
Af þessu sést að ef riftunar-
mál verður höfðað geta
kröfuhafar átt á hættu að
tapa allri eign þrotabúsins og
þá á eftir að greiða áfallinn
kostnað vegna skiptanna.
Þannig að í versta falli, þ.e.a.s.
fyrir þrotabúið, getur mála-
rekstur leitt til þess að ekkert
komi til skiptanna en í besta
falli getur málarekstur orðið
til þess að styrkja þrotabúið
um 100 milljónir króna.
Þröstur Ólafsson var
stjórnarformaður og síðar
framkvæmdastjóri á síðustu
starfsárum KRON.
Bryan Adams-tónleikarnir
Enn bíður fólk eftir endurgreiðslum
Nú í upphafi árs hefur verið
mikið um fyrirspurnir hjá
Neytendasamtökunum
vegna rokktónleika Bryans
Adams í Laugardalshöllinni í
desember síðastliðnum. Eru
þar á ferðinni tónleikagestir
sem eru að velta fyrir sér
hvernig þeir geti fengið end-
urgreidda miða sína vegna
tónleikanna fyrri daginn, en
þeir féllu sem kunnugt er nið-
ur vegna rafmagnsbilunar í
höllinni.
Borgarfoss hf. stóð fyrir
tónleikunum og voru fyrstu
viðbrögð fyrirtækisins að til-
kynna að fólk gæti fengið
miðana endurgreidda mánu-
daginn 23. desember, en tón-
leikar kanadísku rokkstjörn-
unnar voru 17. og 18. des-
ember. Þegar til átti að taka
fékk enginn endurgreitt þá.
Að sögn Smára Hreidars-
sonar hjá Borgarfossi hefur
nú verið ákveðið að endur-
greiða miðana dagana frá 15.
janúar til 18. janúar. Sagði
hann að nú væri unnið að því
að taka niður nöfn og heimil-
isföng þeirra sem vildu fá
endurgreitt. Borgarfoss var
tryggður gegn skakkaföllum
hjá erlendu tryggingafélagi
Á skrifstofu Borgarfoss í Gerðubergi 1 er nú unnið að því að taka niður nöfn þeirra sem vilja fá endurgreitt vegna tónleika
Bryans Adams.
og er ætlunin að endur-
greiðslur haldist í hendur við
innborgun tryggingafjár.
Smári sagðist ekki vita hve
margir ættu rétt á endur-
greiðslu. Þá sagði hann að
ómögulegt hefði verið að
endurgreiða miðana strax
um kvöldið þegar tónleikarn-
ir féllu niður. „Það var engin
leið, með 4.000 tónleikagesti
í höllinni," sagði Smári.
Ólafur Davíðsson hagfræðingur, fyrrverandi framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda, hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu.
D E B E T
„Ólafur er með snjöllustu hagfræðingum þessar-
ar þjóðar og hefur yfirburðaþekkingu á hagkerfi
okkar. Mikið ljúfmenni og skemmtilegur félagi,"
sagði Víglundur Þorsteinsson hjá BM Vallá.
„Hann er harðduglegur, vel gerður og áreiðan-
legur maður á allan hátt,“ sagði Björn JFrið-
finnsson ráðuneytisstjóri, sem var með Ólafi í
hvalnum á yngri árum. „Sérstaklega duglegur,
afskaplega góður og skemmtilegur félagi, lífleg-
ur og traustur félagi. Hann er líka mjög fljótur að
hugsa," sagði Garðar Gíslason hæstaréttar-
dómari, skólafélagi og vinur frá barnæsku. „Það
besta sem einkennir Ólaf er einfaldlega heiðar-
leiki, réttsýni og gáfur," sagði Davíð Scheving
Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Smjörlíkis.
„Ég kann vel að meta hans góða, lágværa og
skemmtiiega húmor. Hann er góður bróðir sem
alltaf er gott að leita til," sagði Sigrún Davíðs-
dóttir fréttaritari, systir Ólafs. „Hann er traust-
vekjandi og traustsins verður, hefur góða yfir-
sýn yfir það sem hann tekur sér fyrir hendur,"
sagði Ólafur Gísiason blaðamaður, frændi Ól-
afs.
Ólafur Davíðsson
ráðuneytisstjóri
K R E D I T
„Það er ekki hægt að segja að það sé honum
til lasts ó nokkum hátt, en hann er kannski
of eftirlátssamur við vini sína," sagði Garðar
Gíslason. „Það versta við Ólaf er mjög alvar-
legt. Hann er mikill nautnaseggur og getur
borðað fitandi mat og sælgæti án þess að
fitna. Þetta er alveg óþolandi eiginleiki hjá
manninum," sagði Davíð Scheving. „Er ekki
alltaf hætt við að þeir sem eru alúðlegir hafi
tilhneigingu til að eiga erfitt með að segja
nei? Hann er rúmlega 12 árum eldri og ég
man að hann tók sem eldri bróðir óhikað í
hnakkadrambið á mér ef svo bar undir, en
líka leyfði hann mér að vera með,“ sagði Sig-
rún Davíðsdóttir, systir Ólafs. „Hann er, eins
og margir hagfræðingar, bundinn við hinar
efnahagslegu stærðir í tilvemnni og það
hefur kannski mótað lífsviðhorf hans um
of,“ sagði Ólafur Gíslason, frændi Ólafs.