Pressan - 09.01.1992, Page 21

Pressan - 09.01.1992, Page 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. JANÚAR 1992 21 Erlendar skuldir orðnar 55 prósent af landsframleiðslu 80 Þúsund króna bakreikningur á fjölskyldu á hverju ári Þjóðin skuldar nær 200 milljarða erlendis. Þar af skulda ríkissjóður og ríkisfyrirtæki um 100 milljarða og sjóðakerfið nær 40 milljarða. Erlendar skuldir lands- manna voru um síðustu ára- mót um 190 milljarðar króna. Þetta er um það bil 730 þús- und á hvern íbúa eða um 3 milljónir króna á hverja fjög- urra manna fjölskyldu. Af þessari upphæð skulda ríkissjóður og ríkisfyrirtæki um 100 milljarða. Greiðslur þessara opinberu aðila í af- borgunum og vöxtum af er- lendum lánum hafa á örfáum árum vaxið úr 12 milljörðum á ári i 17 milljarða. Það sam- svarar um 77 þúsund króna skattahækkun á hverja fjöl- skyldu. Til að mæta þessari hækkun með niðurskurði þyrfti að skerða framlög til allra sjúkrahúsa landsins um þriðjung — eða lækka ellilíf- eyri Tryggingastofnunar úr 12 þúsund krónum í 8 þúsund krónur. Erlendar lántökur þjóðar- búsins — ríkissjóðs, ríkisfyrir- tækja, lánastofnana og einka- aðila — hafa aukist til muna á nokkrum árum. Árið 1986 sló þjóðin 20 milljarða erlendis, en á nýliðnu ári benda bráða- birgðatölur til yfir 30 millj- arða króna lántöku. Á aðeins þremur árum hafa erlendu lánin vaxið úr því að vera 41 prósent upp í 55 prósent af vergri landsframleiðslu — sem er íslandsmet. 17 MILLJARÐAR í AFBORGANIR OG VEXTI í ÁR Af erlendum skuldum þjóð- arbúsins skuldar ríkissjóður um 66 milljarða, ríkisfyrir- tæki um. 35 milljarða (að langmestu leyti Landsvirkj- un) og sveitarfélög um 6 millj- arða, samtals 107 milljarða. Ef aðeins er litið á þessar skuldir kemur í ljós að lang- stærstur hluti á að jjreiðast á næstu 10 árum. I ár á að greiða 8,4 milljarða í afborg- anir og 8,6 milljarða í vexti, en gróft reiknað eiga þessir aðilar að greiða að jafnaði 10 milljarða í afborganir og 6 milljarða í vexti á ári næsta áratuginn af fyrirliggjandi lánum. Og er þá horft fram- hjá áframhaldandi erlendum lántökum, hvers afborganir og vextir næðu til þessá tíma- bils. Er þá ekki meðtalin hugs- anleg yfirtaka ríkissjóðs á lánum vegna opinberra/hálf- opinberra fjárfestingarlána- sjóða á borð við Fram- kvæmdasjóð, Byggðasjóð, Atvinnutryggingadeild, Hlutafjárdeild og Ábyrgða- deild fiskeldis. Ríkisendur- skoðun telur að á afskriftar- reikningum þessara sjóða ættu að liggja um 6 milljarðar króna, sem ríkissjóður yrði að axla og taka á sig sem beint framlag eða yfirtekin lán. BYGGÐASTOFNUN OG FRAMKVÆMDASJÓÐUR SKULDA 23 MILUARÐA En það eru fleiri en opin- berir aðilar sem skulda er- lendis. Bankar og sparisjóðir skulda um 25 milljarða, fjár- festingarlánasjóðir um 38 milljarða, þar af Byggða- stofnun og Framkvæmda- sjóður um 23 milljarða, og einkaaðilar skulda um 22 milljarða til viðbótar, þar af samgöngufyrirtækin um 16 milljarða. Greiðslubyrðin af skuldum þessara aðila er þyngri en hjá ríkisaðilum, þ.e. afborganir eru þyngri fyrstu árin. Lána- stofnanir eiga á næstu 7 árum að greiða að jafnaði rúma 12 milljarða á ári með vöxtum og einkaaðilar yfir 3 millj- arða. Þegar heildin er skoðuð blasir við að þjóðarbúið á næstu 10 árin að borga af fyr- irliggjandi erlendum lánum um 30 milljarða á ári að jafn- aði. Þetta er nálægt þeirri upphæð sem nær yfir ný lán á hverju ári undanfarin 3 til 4 ár. ÍSLANDSMET í ERLEND- UM SKULDUM MIÐAÐ VIÐ LANDSFRAM- LEIÐSLU Hlutfall langra erlendra lána af landsfamleiðslu hefur vaxið ógnvænlega eftir að hafa þó lækkað um skeið. Ár- in 1983—1985 var hlutfallið um 50 prósent, 1987 til 1988 um 40 prósent, 1989 til 1990 um 52 prósent, náði 55 pró- sentum á nýliðnu ári, sem er íslandsmet. Hlutfallið á að haldast svipað í ár miðað við að áætlanir standist. Þetta hlutfall er óvíða hærra í vest- rænum þjóðfélögum. Þó má nefna að það fór yfir 100% á írlandi, en hefur lækkað. Lánstraust íslands er enn nokkuð gott — en blikur á lofti vegna skuldahlutfallsins og svo gjöldum við þess með óbeinum hætti að Norður- löndin hafa almennt verið að falla (sem tengist bankakrís- um í Noregi og Svíþjóð). Kjörin hafa orðið heldur lak- ari og alveg ljóst að ef haldið verður áfram að taka 25 til 30 milljarða í erlendum lánum á ári lendir þjóðin í vandræð- um. * Ríkissjóður skuldar ekki bara um 66 milljarða erlend- is, heldur einnig um 50 millj- arða á innlendum markaði. Skuldir sjálfs ríkissjóðs eru því um 116 milljarðar. Tekjur ríkissjóðs eru um 110 millj- arðar á ári og heildarskuldir ríkissjóðs íslands sem hlutfall af ,,veltu“ því um 105 prósent. GREIÐSLURNAR SAM- SVARA ÚTGJÖLDUM TIL ALLRA SJÚKRAHÚSA Sem fyrr segir þurfa ríkis- sjóður og ríkisfyrirtæki næsta áratuginn að standa ár- lega skil á nálægt 16 milljörð- um í afborgunum og vöxtum vegna fyrirliggjandi langra erlendra lána. Til saman- burðar má geta þess að í fjár- lögum fyrir 1992 er gert ráð fyrir 106 milljarða tekjum (A- hluta). Þetta samsvarar um leið að nálægt 15 prósentum af fjárlögum hvers árs fari í af- borganir og vexti af erlend- um lánum og er þá ekki reiknað með neinum nýjum lánum. Þessir 16 milljarðar eru um leið milljarði hærri upphæð en áætlað er að verja til rekstrar sjúkrahúsa landsins á þessu ári. Þá er þetta svipuð upphæð og fer í allar stofnan- ir menntamálaráðuneytisins; Háskólann, framhaldsskól- ana, grunnskólana, sérskól- ana, LÍN og alla menningar- starfsemi. Til að lesendur geti enn betur áttað sig á upphæðinni má geta þess að afborganir og vextir af erlendum lánum á þessu ári dygðu til rekstrar Alþingis í 20 ár. 77 ÞÚSUND KRÓNA REIKNINGUR Á HVERJA FJÖLSKYLDU Árin 1988 til 1989 námu af- borganir og vextir af erlend- um lánum ríkissjóðs og ríkis- fyrirtækja um 12 milljörðum króna að núvirði, en verða um 17 milljarðar í ár (8,4 milljarða afborganir og 8,6 milljarðar í vexti) og næsta ár. Þessi fimm miiljarða hækkun á greiðslubyrði ríkissjóðs og ríkisfyrirtækja samsvarar skattahækkun upp á 77 þús- und krónur á hverja fjögurra manna fjölskyldu á ári — 6.400 krónur á mánuði. Matthías Bjarnason, formaður stjórnar Byggðastofnunar. Erlendar skuldir Byggðastofnunar og Framkvæmdasjóðs eru álíka miklar og allra einkaaðila. Samanlagt skulda sjóðirnir um 23 milljarða erlendis. Skuld sjálfs ríkissjóðs er 66 milljarðar. Miðað við tvær fyrirvinnur er hækkunin að meðaltali 3.200 krónur á mánuði. Með- allaun eru talin vera í kring- um 100.000 á mánuði og eru skattgreiðslur af þeirri upp- hæð um 40.000 krónur. 3.200 krónur þýddu þá 8 prósenta hreina skattahækkun að jafn- aði og það að skatthlutfall væri 43,2 prósent en ekki 40 prósent eins og nú. Miðað við að stjórnvöld mæti þessari aukningu ekki með skattahækkun blasir við niðurskurður á þjónustu um sömu upphæð. Fimm millj- arða niðurskurður samsvarar því að framlög til allra sjúkra- húsa landsins yrðu skorin niður um þriðjung, eða því að lífeyrisgreiðslur Trygginga- stofnunar yrðu skertar um sama hlutfall. Ellilífeyrir úr ríkissjóði er nú um 12.200 krónur á einstakling en mundi samkvæmt þessu skerðast um 4.000 krónur. Friðrik Þór Guðmundsson Þórður Friöjónsson, formaður stjórnar Framkvæmdasjóðs. Sá sjóður ásamt Byggðastofnun skuldar þriðjung á við ríkissjóð erlendis. 40 milljorÁor-króna- Erlendar skuldir, tekjur & gjöld 30- 20- Afborganir og vextir af erlendum skuldum ríkissjóðs og ríkisfyrir- tækja á einu ári samanborðið við útgjöld ríkisins til nokkurra ____málaflokka og nokkurra gildra j tekjustofna þess. Aíborgfinir ^ króna 6 núvirðr & vextír Til hægri sést þróun afborgana og vaxta síðustu ár hjá ríki, ^ q ríkisfýrirtækjum og fjárfestingalána- 5 sjóðum til erlendra lánadrottna. Hlutfall aff landsfframleiðslu Að neðan sést staða erlendra lána frá 1982 til 1991 sem hlutfall af vergri landsframleiðslu. Ó0 % 50 40 30 20 10 '89 '90

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.