Pressan - 09.01.1992, Síða 33
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. JANÚAR 1992
33
TÓMSTUNDIR &
N Á M S K E I Ð
HcbREskA, bíUviðqERðÍR,
FIaMENCO, hRAðlESTUR
oq öll hÍN NÁMskEÍðÍN SEM
STANÖA FóLki TÍL boðA
Hvert námskeiðið af öðru
er að fara af stað þessa dag-
ana og sjálfsagt fer stór hluti
þjóðarinnar á einhverskonar
námskeið sér til gagns og
gamans. Úrval námskeið-
anna er gríðarlegt og erfitt að
finna eitthvað sem vantar
upp á. Allir ættu því að geta
ítölsku, tónlist, stafsetningu,
leiklist, tölvukennslu, keram-
ík, skíðanámskeið, ungbarna-
nudd, heimspeki, markaðs-
fræði, bókfærslu, listdans á
skautum, flugukast, mat-
reiðslu, ræðumennsku, köku-
skreytingar, framkomu, lit-
greiningu, reiki, dáleiðsiu,
kínversku, myndbandagerð,
grafík, postulínsmálun,
skrautskrift, karate, skylm-
ingar og fleira og fleira.
Það er erfitt að ímynda sér
á hverju sá hefur áhuga sem
ekki finnur hér eitthvað við
sitt hæfi. Það er helst að vanti
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Það skiptir litlu hverju
menn hafa áhuga á að kynn-
ast — það er næsta örugglega
boðið upp á það. Að minnsta
kosti ef menn búa á höfuð-
borgarsvæðinu. Fólk á lands-
byggðinni lendir kannski í
vandræðum með að finna ná-
kvæmlega það sem hugur
þess stóð til, en þó er boðið
upp á mörg mismunandi
námskeið út um allt land.
í námskeiðaflórunni má
finna dans, hebresku, fata-
saum, bílaviðgerðir, líkams-
rækt, myndlist, bókmenntir,
brids, vélritun, ættfræði,
flugeldagerð og bruggun. En
ef svo heldur fram sem horfir
verður þess sjálfsagt ekki
langt að bíða að einhver
framtakssamur taki sig til og
fylli upp í þessar eyður og
þegar það gerist þá fer ég sko
á námskeið.
ALÞINGI MIÐSTÖÐ
ÞJÓÐLÍFS í
ÞÚSUND ÁR
Uppi í Háskóla verður Sig-
urdur Líndal prófessor með
kvöldnámskeið sem hann
nefnir „Alþingi, miðstöð
þjóðlífs í þúsund ár". Sigurður
ætlar að fræða fólk um hið
háa Alþingi, þróun þess, rétt-
arsögu, stjórnskipulag og
fleira.
Þetta ætti ýmsum að þykja
forvitnilegt námskeið því við
íslendingar eigum elsta þjóð-
þing sem um getur, en saga
þess er kannski ekki öllum
kunn í smáatriðum.
BRIDSNÁM í NÁMS-
FLOKKUNUM
Áhugi íslendinga á brids
hefur aukist gífurlega í kjöl-
far sigurs bridslandsliðsins á
heimsmeistaramótinu í Jap-
an. Nú þykir ekki lengur
hæfa að dunda sér í óisen ói-
sen eða manna, nei brids skal
það vera.
í Námsflokkum Reykjavík-
ur er hægt að læra listina að
spila brids. Mörgum virðist
brids erfitt spil og flókið. Skal
aftur á móti fullyrt hér að afar
auðvelt er að læra brids
þannig að gaman megi hafa
af.
NAUÐSYN AÐ KUNNA
Á TÖLVU
Tölvur gegna orðið gletti-
lega miklu hlutverki í samfé-
laginu. þær eru alls staðar og
út um allt og gera líf okkar
allra mun auðveldara og sjálf-
sagt verður þess ekki langt að
bíða að menn komist upp
með að hætta að hugsa, þökk
sé tölvunni.
En það eru ekki allir sáttir
við tölvurnar og þeir eru til
sem eru dauðhræddir við
þessi tækniundur. Það eru
þeir sem kunna ekki á tölvur.
En á þær má læra og mönn-
um líður mun betur þegar
þeir fara að ráða yfir tölvunni
og hún hættir að ráða yfir
þeim.
Tölvuskóli Stjórnunarfé-
lags íslands og IBM kennir,
ótrúlegt en satt, fólki að nota
tölvur. Skólinn býður upp á
þjálfun fyrir alla notendur
PC-einmenningstölva. Und-
anfarið ár var aðsóknin mest
á námskeið um hugbúnað í
hinu svokallaða myndræna
kerfi eða Windows og OS/2
(ef þú skilur þetta ekki og
veist ekki um hvað verið er
að tala ættirðu hiklaust að
drífa þig á námskeið).