Pressan - 09.01.1992, Side 46
Gífurlegar
biðraðir við
verslanir á
Hvolsvelli
-þær mynduðust
bara um leið og
blðraðirnar hurfu í
Moskvu,-segir
Hjörtur Ellertsson
kaupmaður
Korteri eftir aö Hjörtur opnaði höföu húsmæður á Suðurlandi tæml verslun
hans og starfsfólkið þurfti að glíma við þær sem ekkert höfðu fengiö.
Yfirmenn hjá
ÍSAL borða
kransakökur í
morgunmat
-þeir starfsmenn í
kerskálunum sem hafa
kvartað yfir jólakökunum
ættu að prófa það sem
okkur er boðið, -segir
Christian Roth forstjóri
Á sama tíma og áliðnaður á Vesturiöndum skreppur saman tútna
starfsmenn (SAL út vegna baráttunnar um kökurnar.
Forsíðustúlka GULU
PRESSUNNAR
Átti alls
ekki von á að
vinna
-kom mér sérstaklega á
óvart þar sem ég tók ekki
þátt í keppninni, -segir
Bára Grönfeldt.
Petta kom mér þægilega á óvart, -sagði Bára þegar hún tók á móti
sigurlaununum.
1. TÖLUBLAÐ 3. ÁRGANGUR FIMMTUDAGURINN 9. JANÚAR 1992 STOFNAÐ 1990
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR
Jón Hjaltalín segir skauta-
svellið minna á hvar keppnin
er haldin.
Handknattleiks-
sambandið
Heimsmeistara-
keppnin sett á
skautasvellið
-hangir á samþykki
alþjóðahandknattleiks-
sambandsins, -segir
Jón Hjaltalín
Reykjavík, 9. janÚQr
„Þetta er góð og hag-
kvæm lausn,“ sagði Jón
Hjaltalín, formaður Hand-
knattleikssambands ís-
lands, um þá hugmynd að
reisa handboltahöll yfir
skautasvellinu í Laugar-
dal.
„Það eina sem getur komið
í veg fyrir að við höldum mót-
ið er að alþjóðahandknatt-
leikssambandið setji sig upp á
móti því að leikmennirnir
verði á skautum. Ég veit til
þess að sumir hafa haft efa-
semdir og talið að menn
gætu meitt sig ef þeir fengju
skautajárnin í sig. En ég held
það sé fyrst og fremst fyrir-
sláttur," sagði Jón.
Hann sagði fleiri hugmynd-
ir vera uppi á borðum.
„Það kemur til greina að
halda keppnina í frysti-
geymslum Granda þótt þar
kunni að verða dálítið kalt.
En bæði það og eins skauta-
svellið mundi setja skemmti-
legan svip á mótið og minna
fólk á hvar það er haldið,"
sagði Jón.
Halldór Blöndal samgönguráðherra
KEYPTI SOVÉSKA
RÍKISSKIPAFÉLAGIÐ
það er mun minni taprekstur á því en Ríkisskip, -segir ráðherrann
Moskvu, 9. jonúar
„Ég þurfti ekki ánnað
en líta á pappírana til að
sjá að þetta voru góð
kaup,“ sagði Halldór Biön-
dal samgönguráðherra,
sem festi kaup á sovéska
ríkisskipafélaginu í gær.
„Ég kem með það mér til
landsins og læt það taka yfir
rekstur Ríkisskips. Það er
miklu minna tap á sovéska
skipafélaginu og því ætti
þessi ráðstöfun að draga um-
talsvert úr halla ríkissjóðs.
Við munum síðan annað-
hvort leggja Ríkisskip eða
reyna að selja það,“ sagði
Halldór.
Ráðherrann sagði að það
væri margt annað í hinum
fyrrverandi Sovétríkjum sem
íslenskir ráðamenn ættu að
skoða. Hann hefði til dæmis
séð ullarverksmiðjur sem
væru reknar með þolanlegu
tapi — að minnsta kosti í sam-
anburði við Álafoss heitinn.
„Þótt Rússar og aðrir þjóðir
í sambandsveldinu fúlsi við
þessum fyrirtækjum þá gætu
þau gert kraftaverk í íslensku
efnahagslífi. í fljótu bragði tel
ég að það mætti helminga
tap íslenskra ríkisfyrirtækja
með því að skipta þeim út fyr-
ir hin sovésku," sagði Halldór.
Halldór Blöndal keypti sov-
éska ríkisskipafélagið og vill
kaupa fleiri sovésk fyrirtæki.
Bandalag háskólamanna hjá ríkinu
Kristinn Pálsson lysir jólahaldi
háskólamanna fyrir blaða-
Fengum mun lakari jólagjaf-
ir en fólk í einkageiranum
manni GULU PRESSUNNAR.
segir Kristinn Pálsson, formaður
kjararannsóknanefndar háskólamanna
Reykjavík, 8. jonúor
„Auðvitað eru þetta
vonbrigði, það hljóta allir
að skilja,“ sagði Kristinn
Pálsson, formaður kjara-
rannsóknanefndar Banda-
lags háskólamanna hjá
ríkinu, þegar hann kynnti
niðurstöður sínar í saman-
burði á jólagjöfum há-
skólamanna hjá ríkinu
annars vegar og háskóla-
manna í störfum hjá einka-
geiranum hins vegar.
„Sjálfsagt eru einhverjir
sem vilja túlka þessar niður-
stöður svo að okkar nánustu
meti okkur á svipaðan hátt
og fjármálaráðherra, en ég
tei svo ekki vera," sagði Krist-
inn. „Ég vil meina að þetta
skýri almennt viðhorf til
kjara okkar. Fólk veit að við
berum lítið úr býtum og telur
okkur fagna yfir litlu."
Kristinn sagði samninga-
nefnd háskólamanna vera að
meta niðurstöðurnar og taldi
víst að þær yrðu notaðar í
komandi samningum.
„Það er auðvitað sárgræti-
legt og verður ekki þolað ef
láglaunastefna fjármálaráð-
herra er farin að eyðileggja
fyrir manni jólin," sagði Krist-
inn.
Eigendur hundsins Kóps
SKRÁÐU HANN SEM
SKIPSHUND OG FENGU
SJÓMANNAAFSLÁTT
Hvammstanga, 9. janúar
„Ég hlusta ekki á svona
bull. Kópur er einn af
skipshöfninni og það væri
fáránlegt ef hann nyti ekki
sömu fríðinda og aðrir. Ég
var að minnsta kosti ekki
alinn upp við slík viðhorf
gagnvart dýrum,“ sagði
Kári Garðarsson, stýri-
maður á Trausta frá
Hvammstanga, þegar
GULA PRESSAN bar undir
hann fréttir um að fjár-
málaráðuneytið hefði gert
athugasemdir við sjó-
mannaafslátt Kóps, hunds
í eigu Kára.
„Þessir menn fyrir sunnan
virðast vera gersamlega
blindir á líf okkar úti á landi.
Það er ekki bara þetta tilfelli
sem sannar það heldur mörg
önnur. En þetta fyllti mælinn
og ég mun ekki gefast upp,“
sagði Kári.
„Auðvitað verður Kópur af
ýmsu sem hundar í landi fá
að njóta," sagði Stefán Guð-
Stefán Guðmundsson hefur
samiö frumvarp til varnar
Kópi.
mundsson þingmaður, en
hann hefur tekið upp hansk-
ann fyrir Kóp á þingi. „Það er
til dæmis engin tík um borð
og þar er fátt um þau nútíma-
þægindi sem hundar fá að
njóta í dag," bætti Stefán við.
== cordata
IO óro cifmœli/lilboð
80386-16 örgjörvi
1Mb minni
42Mb diskur
1.44Mb 3.5" drif
VGA litaskjár
101 hnappa lyklaborð
Genius mús
Windows 3.0
MS-DOS 4.01
kr. 99.900 staðgreitt
Sumum finnst 10ára afmælistilboðið okkarlyginnilíkust, enda jafn
. ótrúlegt og annað á þessari siðu. Þú getur komist að hinu sanna í
þessu dularfulla tilboðsmáli. Notaðu tækifærið, líttu við eða
hringdu!
MICROTÖLVAN
Suðurlandsbraut 12 - sími 688944 - fax 679976