Pressan - 05.11.1992, Síða 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. NÓVEMBER 1992
13
Gamla Kaupfélagshúsið í Hafnarfirði boðið upp
BRASKARARNIR HÖFBII
20 MILLJÖNIR AF
LANDSBANKANUM
Nú er lokið ríflega tveggja ára braski með gömlu kaupfélagshúsin á Strandgötu 26 í Hafnarfirði. Ljóst er að ýmsar lánastofnanir
verða að afskrifa verulegar upphæðir vegna viðskipta með húsið. Þar er tap Landsbankans tilfinnanlegast.
Fyrir skömmu var Kaupfélags-
húsið við Strandgötu í Hafnarfirði
boðið upp. Mikil og flókin við-
skipti hafa farið fram með húsið
síðan KRON seldi það árið 1990.
Hvert pappírsfyrirtækið á fætur
öðru hefur átt húsið, sem hefur
verið veðsett upp í topp. Komið
hefur í ljós að brunabótamat húss-
ins var allt of hátt og veðsetningar
í engu samræmi við verðmæti
þess.
Uppboðið fór fram 21. október
og var Lífeyrissjóði Hlífar og
Framtíðarinnar slegin eignin fyrir
16 milljónir króna en sjóðurinn
átti um 12 milljónir á hverri hæð
húsins, sem er þrjár hæðir. Sam-
tals gerir þetta um 36 milljónir
króna og miðað við ástand húss-
ins er óvíst hvort lífeyrissjóðurinn
fær fyrir kröfum sínum.
Strax eftir uppboðið var farið
fram á nýtt brunabótamat sem
kom 30. október og er upp á 46,3
milljónir. Það er verulega lægra en
fyrra brunabótamat sem var upp á
76 milljónir frá árinu 1984.
Ástand eignarinnar hefur
versnað mjög síðustu árin og ljóst
að verulegar upphæðir mun kosta
að koma henni í þokkalegt horf.
Það mun þó vera ætlun lífeyris-
sjóðsins.
LANDSBANKINN HLEYPTI
VEÐIFRAM FYRIR
Árið 1990 keypti fyrirtækið fst-
an hf. húsið og fékk afsal fyrir því
25. nóvember 1990. Áður, nánar
tiltekið 12. nóvember, hafði
Landsbankinn veitt veðleyfi og
hleypt 27.960.000 krónum á und-
an sér á fyrsta veðrétt. f kjölfarið
voru gefin út sex veðskuldabréf,
hvert að upphæð 4.660.000 krón-
ur. Kröfuhafi var Kaupfélagið en
útgefandi fstan. Þessi bréf eru í
eigu lífeyrissjóðsins, sem nú hefur
leyst þau til sín vegna skuldar.
Landsbankinn gaf eftir fyrsta
veðrétt og hefur sjálfsagt talið
tryggingar sínar nægar. Þessi
krafa Landsbankans var
19.339.540 krónur við uppboðið
og er að öllum líkindum töpuð nú.
Engin svör fengust ffá starfs-
mönnum bankans um þetta tap.
Samkvæmt veðbókarvottorði
hvíldu 67.483.936 krónur á eign-
inni við uppboð. Við uppboðið
fengust 16 milljónir sem ganga
upp í þetta en dekka vitaskuld að-
eins kröfu lífeyrissjóðsins.
Á aftari veðréttum var meðal
annars krafa ffá Fjárfestingarfélagi
Islands upp á 5,9 milljónir, sem
einnig verður að teljast töpuð. Þá
Kaupfélagshúsið við Strand-
götu: Ríflega tveggja ára brask-
sögu lauk þegar húsið var sleg-
ið Lífeyrissjóði Hlífar og Fram-
tíðarinnar á 16 milljónir, en
sjóðurinn átti hátt í 36 milljóna
króna kröfur í húsið. Húsið er
illa farið og óvíst hvaða verð líf-
eyrissjóðurinn færfyrir það.
Bakhlið hússins er ekki glæsileg
en í bakhúsunum var ýmis starf-
semi sem kallaði á athygli lög-
reglunnar.
voru nokkur handveðsbréf og
einnig skuldabréfaröð upp á fimm
milljónir þar sem kröfuhafi er
Hafnarströnd hf.
ÞRJÚ NAFNBREYTT FYRIR-
TÆKIEIGNAST HÚSIÐ
Viðskiptin með Kaupfélagshús-
in síðustu tvö ár verða líklega ekki
kölluð annað en brask. ístan var á
sínum tíma í eigu Sigurðar Óla-
sonar veitingamanns, en fyrirtæk-
inu var nafnbreytt rétt áður en til
viðskiptanna kom. Það hét áður
Smur-, bón- og dekkjaþjónustan
hf. Fyrirtækið er nú skráð í Aust-
urstræti og í eigu annarra aðila.
Nokkrum mánuðum seinna
kom annað nafnbreytt fyrirtæki,
Stórhýsi hf., og keypti eignina.
Stórhýsi fengu afsal fyrir eigninni
22. maí 1991. Stórhýsi hétu áður
Skírteinamyndir hf. og höfðu þá
alls óskyldan rekstur með hönd-
um. Núverandi stjórn Stórhýsa
skipa Guðmundur Þórðarson
lögmaður og Arnar Sölvason.
Guðmundur mætti á uppboðið og
gerði athugasemdir við fram-
kvæmd þess.
Þriðja nafnbreytta fyrirtækið
kom síðan á þessu ári og keypti
eignina. Það var GIB Hafnartorg
hf., sem áður hét
Guðmundur I.
Bjarnason hf. og
var heildsala
stofnuð árið 1971,
m.ö.o. virðulegt
fyrirtæki með
gamla kennitölu.
PRESSAN hefur
heimildir fyrir því
að Ólafur Thór-
oddsen héraðs-
dómslögmaður
hafi komið þess-
um viðskiptum á,
en hann hefur
lengi stundað verslunarrekstur í
húsunum við Strandgötu.
MEÐ GJALDÞROTA MENN í
STJÓRN
Við kaupin var stjórn GIB
Hafnartorgs hf. skipuð þeim
Magnúsi Garðarssyni, sem var
stjórnarformaður, og Jóhannesi
Jökli Jóhannessyni. Þeir hafa víða
starfað saman, eins og áður hefur
komið fram hér í blaðinu. Báðir
eru þeir gjaldþrota þannig að
stjórnarseta þeirra með tilheyr-
Fjármálaráðuneytið berst við íjárlagahallann
Byggir gufubaðsaðstöðu
fyrir 3 milljónir
Fjármálaráðuneytið stendur nú
í framkvæmdum við gufubaðs-
og/eða heitapottsaðstöðu fyrir
starfsfólk stjómarráðsins. Verja á
2,5 til 3 milljónum króna í að
breyta húshluta í SÍS—húsinu
gamla við Sölvhólsgötu í þessum
tilgangi.
Haraldur Sverrisson, rekstrar-
stjóri fjármálaráðuneytisins, stað-
festi þetta í samtali við PRESS-
UNA. „Þama er laust pláss og æd-
unin að koma þarna upp bún-
ingsklefa, sturtum og vonandi
heitum potti eða gufubaðsklefa.
Plássið er takmarkað eða aðeins
um 60 fermetrar. Það verður að
hafa í huga að þetta er ætlað til af-
nota fyrir 400 til 500 manns, sem
ffam að þessu hafa ekki haft nein
tök á því að fara í bað í vinnunni.
Kostnaðurjnn er áædaður á bilinu
2,5 til 3 milljónir, en það er
aður sem yrði að leggja út í
sem er, því öllu húsnæðinu
verið illa við haldið,“ sagði
aldur.
Friðrik Sophusson fjármálar
herra vill hresst fólk í stríðið
gegn fjárlagahallanum og
því heitan pott og/eða
i gamla S(S-húsinu.
andi ábyrgðum hlýtur að orka tví-
mælis. Skiptalok í þrotabúi Jó-
hannesar voru 6. mars 1991 og
fundust engar eignir en kröfur
voru upp á tæpar 9 milljónir að
þávirði. Skiptalok í þrotabúi
Magnúsar vom 13. ágúst 1990 og
fundust heldur engar eignir þar
en kröfur vom upp á tæpar þtjár
milljónir að þávirði. PRESSUNNI
er reyndar kunnugt um að síðar
hafi komið nýjar gjaldþrotakröfur
á hendur Magnúsi en þar sem
heimilisfang hans fannst ekki hafi
ekki verið unnt að stefna honum.
1. júlí sendi síðan Magnús til
Hlutafélagaskrár tilkynningu um
að hann væri genginn úr stjórn og
afsalaði sér prókúruumboði. f
staðinn kemur Jón Þórðarson inn
í félagið. Nú 30. október kemur
síðan enn ein tilkynningin sem
segir að Jóhannes sé einn eftir í fé-
laginu.
ÞINGLÝSTILEIGUSAMN-
INGITIL ÁRSINS 2000
19. október, tveimur dögum
fyrir uppboðið, mætti síðan ðlaf-
ur Thóroddsen með leigusamning
til þinglýsingarskrifara í Hafnar-
firði og vildi þinglýsa honum.
Samningurinn er skráður til 1.
janúar árið 2000. Þar sem upp-
boðið á eigninni var tveimur dög-
um síðar var skrifað
upp á þinglýsinguna
með fyrirvara.
Þessi eignar-
leigusamn-
ingur var fyrir 104 fermetra á
fyrstu hæð auk húsnæðis á ann-
arri hæð, en þar hefur Ólafur verið
með verslunarrekstur. Samning-
urinn var skráður í gildi frá 10.
apríl sfðastíiðnum og átti að hafa
verið greiddur með skuldabréfi
upp á 1,9 milljónir króna með
fyrsta gjalddaga 10. apríl. Ólíklegt
er talið að þessi samningur haldi,
en réttarfarsbreytingin ffá 1. júlí á
einmitt að torvelda slíka geminga.
Á þessuni rúmlega tveimur ár-
um sem húsið hefur gengið kaup-
um og sölum hefur það óspart
verið notað í pappírsviðskiptum.
Eftir því sem komist verður næst
hafa fæst þeirra fyrirtækja sem
hlut eiga að máli haft neina reglu-
lega starfsemi og því lítið til af
bókhaldsgögnum.
Nýlega vom rifnar byggingar á
baklóð hússins sem hafa nokkuð
komið við sögu lögreglunnar í
Hafnarfirði. I ágúst var komið upp
um braggara sem þar var að störf-
um og þegar húsin voru rifin fanst
þar bíll sem skotið hafði verið
undan uppboði. Hjá bílnum var
kerra sem hafði nýlega verið stol-
ið. Skráður eigandi bílsins hefur
átt töluverð viðskipti við ffaman-
greinda aðila.___________________
Siguröur Már Jónsson