Pressan - 05.11.1992, Síða 21
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 5. NÓVEMBER 1992
21
E R L E N T
Skrýtnara
nafnið vann
Sigur Bills Clinton á þriðjudaginn stað-
festi eina reglu sem lesa má út úr banda-
rískri stjórnmálasögu. Það er sú stað-
reynd að bandarískir kjósendur eru sér-
staklega elskir að frambjóðendum með
sérkennileg millinöfn.
Þetta sást Paul Tsongas yfir þegar hann
gafst upp í prófkjörsbaráttu í vor. Því Paul
Effhemios Tsongas hljómar einhvem veg-
inn eins og það ætti að vera forsetanafn.
Það er í stfl við nöfn Bandaríkjaforseta á
síðustu öld, þegar það var til siðs að heita
kröftugum og óframberanlegum nöfnum.
Og það er ábyggilega ekki of grískt, ef ein-
hver skyldi ætla það. Síðasti Grikkinn sem
reyndi að verða forseti Bandaríkjanna hét
nefnilega því ofurvenjulega nafni Michael
Stanley Dukakis. Það hjálpaði honum
ekki neitt. Hann átti ekki möguleika gegn
George Herbert Walker Bush, sem saman
nálgast það að vera aristókratískt, þótt
hvert nafn fyrir sig sé ómerkilegt. And-
stæðingar Bush gerðu sér leik að því í vet-
ur að kalla hann alltaf nöfnunum fjórum,
en það dugði hvorki Patrick Joseph Bu-
chanan né hinum millinafnslausa Tom
Harkin.
Bandaríkjaforsetar hafa allir borið
millinafn frá því Herbert Clark Hoover
réð í kreppunni. Og öll em þau óvenjuleg,
ef undan er skilinn Dwight David Eisen-
hower. Honum tókst þó að bjarga sér með
„Ike“.
Á undan Ike ríkti Franklin Delano og á
eftir kom John Fitzgerald. Síðan komu
Lyndon Baines og Richard Milhous, en
Jimmy Carter notaði aldrei millinafn sitt.
Það er ekki óhugsandi að honum hefði
gengið betur gegn Ronald Wilson ef hann
hefði notað James Earl í staðinn fyrir hið
alþýðlega „Jimmy“. En meira að segja
Jimmy“ var skárra en nafnið á forvera
hans, Gerald .. .Rudolph.
Af nýgengnum forsetum á þó Harry S
Truman metið. Hann hét nefnilega það.
Harry S. Það eru til margar skýringar á
þessu, en sú skásta er að foreldrar hans
hafi ekki getað komið sér saman um
hvort hann ætti að heita Shippe eða Sol-
omon, sem voru nöfh afa hans tveggja. S-
ið, eitt og sér, var sumsé málamiðlun.
Fyrr á öldinni var forseti í tvö ár Warr-
en Gamaliei Harding, en á nítjándu öld
sátu til dæmis Rutherford Birchard Hayes
og James Knox Polk. Flestir notuðu bara
skammstöfun á U.S. Grant, sem var yfir-
leitt talið standa fyrir „Unconditional
Surrender" sökum hörkunnar sem hann
beitti sem hershöfðingi í borgarastyrjöld-
inni. En hann hét hvorki meira né minna
en Ulysses Simpson og láir honum enginn
að hafa kosið styttinguna.
Og nú hefur Bill Clinton staðfest kenn-
inguna. Áður en móðir hans giftist bfla-
salanum Roger Clinton hét verðandi
Bandaríkjaforseti nefnilega William Jef-
ferson Blythe IV.
Sigur ársins
Það er óhætt að
gleyma öllum stóryrð-
unum um sigur Clin-
tons og annarra pót-
intáta demókrata í
bandarísku kosning-
unum. Stærsta sigur-
inn áttj nefiiilega eng-
inn annar en fyrrum
borgarstjóri Washing-
ton, Marioti Barry, nýkominn úr fangelsi
og pólitískt ódrepandi. Barry var hand-
tekinn í janúar 1990 fýrir að reykja krakk
fýrir framan myndbandsvélar FBI; hann
hafði komið á hótel til að sofa hjá gömlu
viðhaldi, en reykti kókaínið þegar ljóst
varð að annað gæfist ekki. Barry sat sex
mánuði í fangelsi, en sneri að því búnu
aftur og settist að í einum fátækasta hluta
borgarinnar. Þar gaf hann kost á sér í
borgarstjórn og fékk sjötíu prósent at-
kvæða í prófkjöri demókrata. Repúblik-
anar eru varla til í borginni og Barry var
öruggur með sigur á þriðjudaginn. Það
þyrfti engum að koma á óvart ef þetta
væri aðeins byrjunin á nýjum ferli.
GaiL
Archrtektur-Keramik
FLÍSAR
WÉ
Stórhöföa 17, við Gullinbru
sími 67 48 44
Síðustu sætin til Kanarí
um jólin með
Heimsferðum
Nú er jólaferðin okkar aðseljast upp.
Við höfum nú þegar fengið stærri flugvél til Kanaríeyja
um jólin og seljum nú síðustu viðbótarsætin.
Tryggðu þér sæti
meðan
enn
er laust.
NÝ DÖNSH
FÖSTUDAGSKVÖLD
S/oÓá(‘Jt/)é'J'(/ /’/(j//(J J'/ Jt J/
Ausiurstræti 22
17. desember 3 vikur
Verð frá kr. 55-500j
Verð per mann m.v. hjon með
Tveir í íbúð 74.900,-
7. janúar — 3 vikur
Verð frá kr. 39-70 ^ ^ ^
Verð per mann m.v. hj _
HEIMSFERÐIR hf.
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600
ara
1 927-1 992
Málailrjn
Vbidurþér í
afmælisveislu!
AF OLLUM VORUM
MIKID URVAL APGCðDUM VORIÍJM m.a.
GOLFTEPPI - GÓLFDREGLAR
FILT GÓLFTEPPI 2m-4m
HÖHNS parket
VEGGFÓDUR
VEGiSDUKAR 5lcm á breL
RIML^GARDÍNIÍIR plast-ál
GÓlfFDÚKAR 2m-3m-4m br£i(óir
VILLEROY OG BOCH gólfflfsar
KVERKLISTAR 6 geróir
LOFTRÓSIR 14 geróir
ROWNEY Listmálaravörur
MÁLNINGAVÖRUR
H arpa-Sado I i n-Po I ytex
Mjarabou
02 * livuruirvn k
Grensásveg 11 • Sími 813500