Pressan - 05.11.1992, Page 26

Pressan - 05.11.1992, Page 26
26 FIMMTUDAGUR PRCSSAN 5. NÓVEMBER 1992 a Spurt var A. Hver er heisti kosturinn við ReykjavTk? B. Nefndu þrennt sem mundi gera hana að betri borg. Hallveig Thorlacius brúðu- leikari A. Hversu mátulega stór hún er, lítil heimsborg, og hvað mikið er að gerast þrátt fyrir stærð hennar. B. 1. Gera hana mennskari fyrir börn og byrja á að bjóða þau velkomin á viðeigandi hátt með sómasamlegri fæð- ingaraðstöðu þannig að kon- an hafi val. 2. Viðhalda sköpunargleði barna með því að koma upp aðstöðu til brúðuleikhúss og fjölbreyttrar starfsemi þar sem þau gætu búið til brúður og tjáð sig með listsköpun, til dæmis við Fríkirkjuveg 11. Klukka úti f garði með brúð- um sem gægðust út gæti lífg- að upp á miðbæinn. 3. Þaó þyrfti að gera stórátak til að leiða saman börn og gamalt fólk í leik og starfi. tónlistarmaður A. Mannlífið í miðbænum. B. 1. Lækka verð á mat og drykk á veitingastöðunum. 2. Auka tillitssemi í garð ná- ungans á flestum sviðum. 3. Auka frítíma fólks almennt til að það geti notið þess sem borgin hefur upp á að bjóða. A. Þar býr gott og skemmtilegt fólk. B. I.Tryggjaatvinnu. 2. Að þess verði gætt að byggð verði ekki of þétt og haldið verði í útivistarsvæði, græn svæði, og gamla bæn- um sýnd virðing. 3. Að auka umferðaröryggi. Sigurður Gröndal tónlistarmaður A. Öflun aðfanga er þægileg og vöruúrval gott. B. I. Lækka fasteignaverðið 2. Gera skemmtanalífið frjáls- ara. Rýmka reglur um opnun skemmtistaða og leyfa fólki að skemmta sér eins lengi og það vill og hefur úthald til. 3. Fjölga íbúunum um tíu til fimmtán þúsund, þá væri þetta orðin þægileg stærð. Það vantar fleira fólk í menn- ingarlífið og annað, það er of fátt eins og er. María Pálsdóttir lögregluþjónn A. Maður er í nálægð við allt og það er stutt að fara til að afla þess sem maður þarf. B. 1. Efla löggæsluna. 2. Hugsa betur um börn og unglinga, fólk þarf að gefa sér tíma til að sinna þeim. 3. Fólk taki meira tillit hvað til annars f umferðinni og á öll- um stöðum þar sem fólk kem- ur saman. Sigurþór Hallbjörnsson „Spessi" Ijósmyndari A. Borgin stendur við sjó. B. 1. Ég mundi brjóta niður allt Breiðholtið með krönum — eða jafnvel ameríska hern- um, hann gæti æft sig á þvf — og það yrði látið vera þannig; skúlptúr. Aldrei mætti byggja slíkt aftur. 2. Það þarf að gera meira af því að byggja hús þannig að fólk búi við götur en ekki bíla- stæði. Byggja þannig að fólk sé við götu og við götuna sé pöbb, bakarí og kaupmaður- inn á horninu. Ef það yrði byggð svona lengja við Miklu- brautina yrði hún til dæmis strax miklu hlýlegri. En húsin þyrftu samt ekki öll að vera eins; ekki eins í laginu og eins á litinn. Það er svolítið of mik- ið skipulag hérna; allt svo ríg- neglt niður. 3. Jafna Morgunblaðshöllina við jörðu með Scud-eldflaug, og jafnvel Kringluna líka. Bjarki Pétursson menntaskólanemi A. Það sem mér finnst best við Reykjavík er hvað hún er heimilisleg og rómantísk. B. 1. Laga gatnakerfið og bíla- menninguna. 2. Á sumrin fái götutónlistar- menn að leika í Austurstræti eins og gerist í stórborgum er- lendis. 3. Mála Ijótu gráu skelja- sandshúsin í fallegri litum. framkvæmdastjóri A. Smæð borgarinnar er hennar helsti kostur sem og nálægðin við fólk. B. 1. Dregið verði úr bílaum- ferð í miðbænum og almenn- ingssamgöngur bættar til muna. 2. Haldinn verði „hafnardag- ur" a.m.k. einu sinni í mánuði og helst í hverri viku. Hann var svo sérstaklega skemmti- legur. 3. Borgarbúar brosi meira hver til annars og séu jákvæð- ari í hugsun og viðmóti. Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson myndlistarmaður A. Ég sé ekki nokkurn einasta kost við Reykjavíkurborg. B. 1. Loka ætti fyrir alla um- ferð einkabíla um miðbæinn. 2. Menn ættu að hætta að byggja einbýlishús f borginni og reisa eingöngu fjölbýiishús, með sameiginlegu mötuneyti fyrir íbúana. 3. Allir ættu að hafa sömu skoðun á hlutunum. A. Hvað henni tekst lygilega vel að þykjast vera meiri heimsborg, menningarlegri og fallegri en hún er. B. 1. Vantar miklu meira af lit- ríku og skemmtilegu fólki sem hefur tíma til að gefa af sér. Einnig helling af fólki til að njóta þessa... það má vera sama fólkið. 2. Miðjarðarhafsloftslag. 3. Stór og smá, fjölnota, vel útbúin listhús (art centers) án dyravarða, þar sem leika má lausum ha Július Agnarsson „nemi" A. Hvað borgin er fámenn. B. 1. Fá betra veður. 2. Vegalengdir eru svo miklar að það þyrfti að þjappa borg- inni betur saman. 3. Byggja svo yfir hana stóra Perlu. Heloa Bjarnadóttir framkvæmdastjöri A. Hún hefur allt til alls, fjöl- breytt vöruúrval og margþætta þjónustu. Borgin er hreinleg og enn erum við svo heppin að búa við tiltölulega lága glæpatíðni. B. 1. Halda áfram að ganga snyrtilega um. 2. Minnka umferðarþunga á götum borgarinnar. 3. Eftil vill vantar vetrarleik- svæði fyrir krakka, skautasvell eða eitthvað í þá veruna. Jönas Tryggtfason íþróttafræöingur og flugumferöar- stjóri A. Hversu borgin er fjölbreytt, lítið eitt af öllu; alls kyns fólki, atvinnuvegum, möguleikum til íþróttaiðkunarog lista. Svo ekki sé talað um leguna, því borgin er stórkostlega vel stað- sett, með sjó og fjöll allt um kring. B. 1. Almenningssamgöngur eru glataðar og þær mætti bæta stórlega svo fólk hefði valkost. Einkabílaflóðið mundi minnka og það drægi úr mengun. 2. Djörf atlaga hefur verið gerð að grænum svæðum og víða risið stórar byggingar og eldrimannakastalar. Það ætti að láta byggðina teygja sig og láta vera að þrengja að þeim útivistarsvæðum sem til staðar eru. 3. Leggja gönguleiðir, skokk- og hjólabrautir.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.