Pressan - 05.11.1992, Síða 28

Pressan - 05.11.1992, Síða 28
28 FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. NÓVEMBER 1992 skaplega lítils virði hér og nú. Þar sem þetta hefúr aftur á móti verið rannsakað með dáleiðslu og farið aftur fyrir núll kemur í ljós að við höfum átt forveru og hún hefur verið mjög hversdagsleg. Við höf- um verið venjulegir Jónar og Gunnur hér og þar í tilverunni.“ Hvemigýtir þú undir skilning fólks á eigin manngerð? „Með tilliti til þess að það er að- eins til eitt eintak af hveijum væri alger synd ef við hefðum ekki staðgóða þekkingu á þessu ein- taki. Þegar ég skoða manngerðina geri ég það framhjá ytri aðstæðum og uppeldi. Ég fer beint inn að upplaginu og þá kemur ýmislegt í ljós. Þá tíni ég ekki aðeins til kosti fólks heldur veikleika líka, sem já- kvætt er að skoða þótt ekki sé alið á þeim eða yfirleitt lögð nokkur ræktvið þá. Ég hef eitthvað sem heitir sjötta skilningarvit, sem gerir mig að sálrænni manneskju þó að öðru leyti sé ég hversdagsleg, og gerir að verkum að ég hef skilning á manneskjunni á dulfræðilegan máta, sem er öðruvísi og ekki hefðbundinn. fslenska þjóðin elskar fólk eins og mig og hefur sterkar taugar til sjáenda og miðla. Það þarf ekki að útskýra frekar.“ Miðill& — ein a moti straumnum PRESSAN/JIM SMART „Miðillinn ogsjá- andinn hefur eng- an áhuga á dul- rænum hlutumfyr- irutan það aðýta undir tiltrúfólks á eigið gildi og eiga mögulega þátt í að auka skilningþess á sjálfu sér, því ekk- ert okkar erfull- komið og án veik- leika. “ Telma L. Tómasson Jóna Rúna Kvaran, miðill og sjáandi — sérfræðingur í mann- gerðum, skoðar allar hliðar mannlegrar tilveru. Þær björtu, þær dökku... og finnst gaman að kveikja ljós. Ljós sem skýrir tilver- una. Skært eða dauft, en ljós samt. Hún er túlkandi og bendir á leiðir, ekki lausnir. Viðfangsefni hennar er fólk. Hún er sérstök fýrir hæfileika sína, en ekki síður fýrir hugmynd- ir sínar um tilveru mannsins. í tuttugu ár hefúr hún verið að þróa kærleikshvetjandi heimspeki sem byggð er á kristilegum grunni og blönduð dulrænu innsæi. f dag stendur hún á fertugu, þrír ára- tugir eru síðan hún ákvað að þjálfa upp mjög sérkennilega og fjölþætta dulræna gáfú og fimm- tán ár eru síðan hún tók þá ákvörðun að koma sér fýrir í ró- legheitum í samfélaginu án tillits til þess hvað öðrum fýndist um það. Tímamót. ANDÚÐ Á NIÐUR- RIFSÖFLUMOG VANDRÆÐASMIÐUM Fólk skrifar henni og ber henni fréttir af aðstæðum, atburðarás og einstaklingum þar sem tekist er á við hvers kyns sammannlega reynsluþætti og ekki síst leyndar- mál. Þessu reynir hún að vinna úr en þrátt fyrir að vera fyrst og fremst sjáandi og miðill ber hún starfsheiti blaðamanns. Á þennan hátt hittir þú mik- inn fjölda fólks. Hvernig slœr hjarta þjóðarinnar? „í ljós hefur komið að stærstur hluti fólks þráir frið og jafnvægi og andúð á niðurrifsöflum og svo- kölluðum vandræðasmiðum er alger. Fólk viU styrkja sjálft sig og innra líf sitt og þar með stuðla að bættu samfélagi, þar sem það hvetur hvað annað til ábyrgðar á sjálfu sér og gerir sér jafnframt grein fyrir því að til er eitthvað sem heitir val. Mér hefur þótt vænst um að þama hafa unglingar verið langmest áberandi en í þeim býr mikil þrá eftir kærleikríku lífi.“ Sjá þau sjálfleið til að vinna í málum sínum? „Þau vilja hafna kerfi dauðra hluta og tUgangslausra, þegar þeir eiga að koma í stað eðlilegra, djúpra og nærfærinna sam- skipta.“ Finnurðufyrir samfélagsmein- um? „í öllum samfélögum eru til staðar ákveðnir annmarkar og ákveðin afskræming á mannlegu eðli sem á sér stoð í veruleikanum. Ofbeldi, sifjaspell og áfengis- og eiturlyfjaneysla ganga gróflega á rétt barna og friðhelgi og með þeim upplýsingum sem ég hef fengið, til dæmis í gegnum bréfa- skriftirnar, er ástæða til að ætla að í þeim gögnum komi aðeins topp- urinn á ísjakanum fram.“ VILJUM SJÁINN Er munur á hugarfari einstak- linga eftir því hvaða kynslóð þeir tilheyra eða kyni? „Unga fólkið er víðsýnna, sveigjanlegra og ekki haldið affur- haldi eða fordómum. Þegar ég fór fyrst að svara bréfum voru það helst stúlkur og konur sem not- uðu sér þjónustuna. Þróunin hef- ur orðið sú að nú eru strákar og karlar stöðugt meira áberandi. Það er að renna upp fyrir þeim að þeim stendur stuggur af svoköll- uðu hetjuuppeldi, þar sem ofúrtrú á styrk einstaklingsins kemur harðast niður á möguleikunum til að takast eðlilega á við sterkar til- finningar. Styrkur verður aldrei kyngreindur eða stéttskiptur og við verðum öll fýrr eða síðar að takast á við sammannlega reynsluþætti og rækta okkur upp á jákvæðan máta til að vera færari um að takast á við hvers kyns höfnun, missi, vonbrigði, órétt- mætar fyrirstöður og annað sem tímabundið má fella undir mót- læti.“ Fólk leitar mikið í andlegt skjól; trúarsöfnuði, íhugun og aðra andlega ástundun. Kem- urðu auga á ástœðu? „Andleg ásókn íslendinga er engin nýjung, við höfum alltaf haft þessa þrá, og mannkynið yfir- höfuð. Það er því alger misskiln- ingur að við séum að gera þetta í meira mæli en áður þótt ef til vill sé það meira áberandi nú þar sem við kærum okkur ekki um samfé- lag sem byggist á fólki sem sér bara það sem er utan á öðrum. Við viljum sjá inn.“ HÆGT AÐ VERA LIFANDI DAUÐUR Jóna Rúna segist gera sér grern fýrir því að hún eigi aldrei eftir að breyta neinu en telur dulfræðilega þætti tilverunnar, það leyndar- dómsfulla, eiga fúllkominn rétt á sér... svo lengi sem það er jarð- tengt og kærleikskvetjandi en ekki skylt flugi ofar skýjum. Geturðu skýrt þetta nánar? „Ég tel að það sé ekki gagn í dulfræðilegum þáttum tilverunn- ar ef þeir ýta undir hégóma og græðgi. Ef þeir aftur á móti ýta undir ábyrgð einstaklingsins á at- höfnum sínum og lífi eiga þeir fullkomlega rétt á sér. Hollara er að við reiknum með meira lífi, og eilífú h'fi, vegna þess að þá förum við öðruvísi gegnum þetta jarðlíf okkar og öxlum markvissar ábyrgð, því þá vitum við að sjálf þurfum við að taka afleiðingum gerða okkar. Kristur fullvissaði okkur um að sá sem trúir á hann muni aldrei að eilífu deyja og ég trúi því.“ Erum við með þeirri trú ekki aðfirra okkurábyrgð? „Sá sem leggur sig eftir því að breyta eins og kristin hugmynda- fræði segir til um heldur lífi í sjálf- um sér á réttan hátt. Það er hægt að deyja hér og annars staðar. Það er hægt að fara í gegnum lífið lif- andi dauður og telja sjálfum sér trú um að maður lifi. Lífið er þá ekkert annað en draumsýn — sem getur ekki orðið neitt raun- verulegt líf.“ Hvernigfer saman trú þín á Krist og dulrcent upplag þitt? „Síðustu tuttugu ár hef ég þró- að kærleikshvetjandi heimspeki sem byggist á siðfræði Krists, tveimur köflum úr Nýja testa- mentinu. Ég hef ekki búið til neitt nýtt en aðeins stílfært ákveðna þætti sem til voru andlega í tilver- unni. Þetta samræmist fýllilega hugmyndafræði frelsarans, því mikil var til dæmis dulúðin í kringum fæðingu hans; urmull tákna, drauma, fyrirboða ásamt öðru tengdu því óræða. Þessi heimspeki á rétt á sér sem ein af- mörkuð leið án þess að ögra ann- arri. Við eigum að sameinast í því að einstaklingurinn geti valið sér þá leið sem augljóslega er honum notadrýgst við að auka tiltrú sína á betra mannlífi. Ég get ekki hafnað sjálfri mér og þeim eðlisþáttum sem ég bý yf- ir, sem tengjast þessu sjötta skiln- ingarviti, bara vegna þess að það fer fýrir brjóstið á öðrum. Ég get ekki séð að ég sé fötluð þrátt fyrir þetta og þetta virðist samræmast ágætlega þeim viðhorfum sem rflctu áður en ég fæddist.“ HEF EITTHVAÐ SEM HEITIR SJÖTTA SKILNINGARVIHÐ „Miðillinn og sjáandinn hefur engan áhuga á dulrænum hlutum fyrir utan það að ýta undir tiltrú fólks á eigið gildi og eiga mögu- lega þátt í að auka skilning þess á sjáHú sér, því ekkert okkar er full- komið og án veikleika.11 Flestir mundu tengja hæfileika þína dulrœnu innsæi fremur en kristilegum málefnum? „Hér er komin fram þversögn, því ég tengist hvorki nýaldarsam- tökunum né sálarrannsóknarfé- lögunum og hef staðið ein á móti straumnum með aðstoð kirkjunn- ar. öll andleg uppbygging er til staðar í kristilegu hugmyndakerfi og ástæða þess að ég er heilluð af myrkrinu er sú að mér finnst gaman að kveikja ljós.“ Þú trúir á eilíft líf. Hvað með önnurlíf? „Ég er ekkert á þeim buxunum að taka endilega undir þá umfjöll- un sem hefur verið hvað mest áberandi og ef til vill ýtt frekar undir misskilning á mögulegri forveru fólks. Ef við gefúm okkur að við séum eilíf hljótum við að hafa lifað áður. Hvar er kannski ekki aðalatriði, heldur hvemig, og ég er mun hall- ari undir úttekt vísindanna í þessu en hinna svokölluðu forverusjá- anda. Það er tilkomið vegna þess að mér hefur fundist gæta mis- skilnings í sambandi við kenning- una um fýrri líf og hef á tilfinning- unni að í dulfræðilegum útskýr- ingum sé lögð meiri áhersla á að við höfúm verið eitthvað sérstakt einhvern tíma áður. Það er af-

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.