Pressan - 05.11.1992, Síða 31

Pressan - 05.11.1992, Síða 31
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. NÓVEMBER 1992 31 ÍÞRÓTTIR Skagamenn selt heilt lið Ekkert íslenskt lið hefur selt X jafnmarga leikmenn til út- landa og Skagamenn. Þetta sannar auðvitað hve sementsblandað- ur jarðvegurinn er heppilegur við upp- vöxt knattspymumanna en hefur lítið gert til að bæta gjaldeyrisstöðuna á Akranesi að sögn Gunnars Sigurðs- sonar, formanns knattspyrnudeildar- innar. Gunnar sagði að engin niðurstaða væri komin í viðræðumar við Feyeno- ord vegna sölunnar á tvíburunum Bjarka og Arnari Gunnlaugssonum. Vegna Evrópuleiks hollenska liðsins í gær hefðu viðræður legið niðri það sem af er þessari viku. En hvað œtla þeir aðfá fyrir tvíbur- ana? „Viðræðurnar em nú ekki komnar á það stig, en við höfum nú yfirleitt reynt að hugsa fbekar um leikmennina en okkur,“ sagði Gunnar og hann taldi einnig af og frá að Feyenoord-menn fengju magnafslátt þótt þeir keyptu tvo í einu. - En hvor er dýrari? „Það er engin leið að segja, en eru „senterarnir" ekki dýrastir," sagði Gunnar. Matthías Hallgríms- son: Fórtll Halmia í Svíþjóð. Sveinbjörn Hákon- arson: Spilaði í Sví- Þjóð. TeiturÞórðarson: Seldur Jönköping og þaðan til Öster í Svíþjóð og síðan til Lens og Cannes f Frakklandi og í lokin brá hann sértil Sviss. Bjarki Gunnlaugs- son: Á leið til Fey- enoord. Karl Þórðarson: Fór til Belgíu, þaðan til Laval í Frakklandi. Sigurður Jónsson: Seldurtil Sheffield Wednesday og fór þaðan til Arsenal. Bjarni Sigurðsson: Seldurtil Brann. Pétur Pétursson: Fór til Feyenoord í Hol- landi og þaðan til Antwerpen í Belgíu og Herkules á Spáni. Ólafur Þórðarson: Fórtil Brann og svo Lyn. Stefiti á HM 1995 „Þetta er það mesta sem ég hef skorað á ferlinum,“ segir Páll Þór- ólfsson, hornamaður í Fram, en hann skoraði hvorki meira né minna en íjór- tán mörk í leik gegn KA á dögunum. Fimm afþessum mörkum skoraði hann úr víti, en það dregur ekki úr af- reki Páls því „það þarf að koma þeim inn llka“, eins og hann bendir réttilega á sjálfur. Frömmurum hefur ekki gengið sem skyldi í deildinni það sem af er vetri. Liðið er geysilega efnilegt — um það deil- ir enginn — en einhvern veginn hefur herslumuninn alltaf vantað í leikjunum. Nú virðist liðið vera farið að sýna sitt rétta andlit og hefur unnið tvo síðustu leiki — annan í deildinni og hinn í bikamum — mjög örugglega. „Það er vonandi að þetta sé að koma, þarna fengum við tvö dýrmæt stig, og ég held að þetta sé allt á uppleið hjá okkur,“ segir Páll. Fjarvera Gunnars Andréssonar, leikstjóra Framliðs- ins, sem er meiddur, hefur sett strik í reikninginn hjá liðinu en flest bendir til þess að hann geti ekki byrj- að að spila á ný fyrr en eftir jóL En maður kemur í manns stað. En hvað stefnir Páll á í framtíðinni, at- vinnumennsku? „Það erkannski draumurinn, maður lætur sig auð- vitað dreyma um það. En það sem er efst á blaði er að vinna sér sæti í A-landsliðinu fyrir árið 1995, er heimsmeistarakeppnin verður hér á landi,“ svarar Páll. Meðtvo mark- menn fremst _ aðstoðarþjálfara á miðjunn Keegan ætlar að gera Newcastle að stórveldi Páll Þórólfsson skoraði fjórtán 1 mörkgegnKAá dögunum. Hann er tvftugurog hefur feiklð meðöllum yngri ndsliðum íslands Stefnir nú á rWdsliðið fyrir hímsmeistara- eppnina árið 1995. Kevin Keegan er dáðasti maður í Newcastle þessa dagana. Liðið hefur ‘eikið frábærlega undir hans stjórn og drðist geta komið í veg fyrir að það úrvalsdeildina eftir þetta abil. f upphafi tímabilsins íð hvern leikinn á fætur öðrum og nrtist ósigrandi, nú hefur það fengið aðeins bakslag í segiin og tapað tveim- ur síðustu leikjum í deiklinni. Engu að síður er liðið óárehrtilegt og»án efa það besta í fýrstu deildinni. ‘ - Keegan segir að bestu framkvæmda stjórarnir í enska boltanum í dag, 18 sér sjálfum undanskildum, séu Bryan Clough og Terry Venables, en sá besti frá upphafi sé Bill Shankley sem var einmitt stjóri Liverpool er Keegan kom til liðsins. Keegan nefhir einnig Shankl- ey sem manninn sem mest áhrif hefur haft á hann sem framkvæmdastjóra. „Shankley gerði mig að því sem ég er í dag. Hann kenndi mér þúsund hluti en það mikilvægasta sem hann kenndi mér er hvemig á að örva fólk til dáða og hvemig á að koma fram við ólíka leik- menn með ólíka skapgerð,“ segir Keeg- an. Þegar Keegan er spurður hvaða félag hann vildi helst þjálfa, að Newcastle- liðinu undanskildu, svarar hann: „Ekk- ert, og ég meina það.“ Hann segist telja að Newcastle sé stærsta félagið á Eng- landi sem ekki hefur náð viðunandi ár- Newcastle er eina liðið sem Kevin Ke- egan hefur áhuga á að stjórna, en hann hefur hug á að taka við lands- llðinu í fyllingu tímans. angri og hann ætli sér því að verða maðurinn sem leiðir þetta stóra félag til mikilla sigra. „Ég býst við að það yrði líka gaman að gera lítið félag að stóra. Félag eins og Doncaster Rovers, liðið í heimabæ mínum,“ segir Keegan. Og enska landsliðiðinu gæti hann hugsað sér að stjórna. „Ég veit að það væri mjög gaman að stjórna enska landslið- inu einhvern tíma. En ég þarf að læra margt áður en af því gæti orðið; náms- ár mín standa enn yfir,“ segir Keegan og haldi hann áfram á sömu braut tekst honum sjálfsagt að gera Newcastle að stórveldi í enska boltanum. Það er það sem hann stefnir að. Afrísk knattspyrna er á stöð- ugri uppleið. Margir knattspymu- menn þaðan leika í Evrópu og hafa yfirleitt staðið sig með mikl- um ágætum. í Afríku eiga félagslið og landslið hins vegar í miklum erfiðleikum; peningaskortur og stríðsrekstur eiga þar ekki minnsta sök. Afríkuliðin hafa einnig átt í mesta basli við að komast í útileikina með sín sterk- ustu lið. Landslið Eþíópíu lenti fyrir skemmstu í miklum erfiðleikum í útiieik gegn Marokkó í undan- keppni fyrir heimsmeistara- keppnina í Bandaríkjunum árið 1994. Liðið komst að vísu til leiks- ins í tæka tíð; það tímanlega að sex leikmönnum þess gafst tæki- færi til að stinga af til Ítalíu — og hafa ekki sést síðan. Eþíópíu- mönnum tókst ekki að kalla til varamenn og máttu því byrja leik- inn gegn Marokkómönnum með tvo markmenn í fremstu víglínu og fertugan aðstoðarþjálfara sem leikstjórnanda. Með þessum að- gerðum tókst þeim að stilla upp ellefu manna liði. í hálfleik var staðan orðin fjögur-núll, Marokkó í hag að sjálfsögðu, en þá var svo af sumum Eþíópíumönnunum dregið að þeir gátu ekki haldið áfram og einungis níu leikmenn hófu síðari hálfleikinn. Þeir níu týndu þó fljótt tölunni því þrír leikmenn urðu að fara út af vegna meiðsla og þreytu. Þá var alsírska dómaranum nauðugur einn kost- ur að flauta leikinn af, því sam- kvæmt alþjóðlegum knattspyrnu- reglum verða leikmenn á velltnum að vera að minnsta kosti sjö. Þeg- ar flautað var af var staðan orðin fímm-núll. KR-ingar fengu rúmar fimm milljónir í kassann í sumar komu 60.812 áhorfendur samtals á'leiki í fyrstu deild ís- landsmótsins í knattspyrnu, það er að segja þetta margir áhorfendur borguðu sig inn. I sumar kostaði 600 krónur á völlinn fyrir fullorðna en 200 krónur fyrir börn. Yfirleitt er talið að 25 prósent þeirra sem borga sig inn séu böm og miðað við það hafa áhorfendur greitt rúmar 30 milljónir og 400 þúsund í aðgangseyri í ár. Verðið var það sama í fyrra, en þá greiddu áhorfendur tæpar 34 milljónir í aðgangseyri. Frammarar hafa yfirleitt fengið flesta áhorfendur allra liða á heima- leiki, en nú bregður svo við að þeir Ienda í þriðja sæti á eftir ÍA og KR. Á heimaleiki KR í sumar kom 10.031 áhorfandi eða 1.115 að meðaltali. Þetta þýðir að KR-ingar hafa fengið rétt rúmlega 5 milljónir greiddar í aðgangseyri. Akumesingar fengu næstflesta áhorfendur; 8.223 eða 914 að meðal- tali. Skagamenn hafa því innheimt rúmlega 4 milljónir og 100 þúsund krónur í aðgangseyri. Frammarar eru í þriðja sæti með 7.367 áhorfendur eða 819 að með- . altali á leik. Það gerir tæpar 3 milljónir og 700 þúsund í aðgangseyri. , 'm9ar voru þa i sem estir Mest fækkun áhorfenda varð hjá Fram. f fýrra komu 13.326 á heima- foru að sjá sPlla 1 ^tboltanum i leiki Fram eða 1.481 að meðaltali á leik. Jafnmikið kostaði á völlinn í sumar- fýrra og þá tóku Frammarar inn ríflega 6 milljónir og 600 þúsund. Þetta er mismunur upp á tæpar 3 milljónir. Fæsta áhorfendur í sumar fékk Hafnarfjarðarliðið FH, einungis 4.095, sem gerir 455 á hvern leik. FH-ingar fengu því einungis rétt ríflega 2 milljónir í kassann. ArnarGunnlaugs- son: Á leið til Fey- enoord. Um helgina KÖRFUBOLTIÚRVALSDEILD Haukar - Snæfell kl. 20.00. Haukarnir unnu Skallagrím naum- lega í síðasta leik oq Hólmarar unnu Tindastól. (var Ásgrímsson, þjálfari Snæfells, var áður hjá Haukum. Keflavík - Grindavík kl. 20.00. Grindvíkingar hafa engan veginn náð sér á strlk f deildinni í vetur og eiga þarna erflðan leik gegn né- grönnum sínum, KÖRFUBOLTI l.DEILD KVENNA Keflavik - KR kl. 18.00. Keflavík- urstúlkur eiga að vera sterkari, ekki síst á heimavelli. KÖRFUBOLTIÚRVALSDEILD Breiðablik - Skallagrímur kl. 20.00. Blikum hefur gengið bölv- anlega I vetur. Eftir góða byrjun hafa Borgnesingar verið óheppnir I undanfornum leikjum og tapað þremur leikjum I röð naumlega. Njarðvík - KR kl. 20.00. Fyrirfram ættu Njarðvíkingar að vera sterk- ari en Friðrik Rúnarsson, sem þjálf- aði Njarðvíkinqa áður, er nú kom- inn tii KR og hann kann kannski ráð sem duga gegn fyrrum læri- sveinum hans. KÖRFUBOLTI 1. DEILD KVENNA unrauKur vinna sennuegast stt inur. HANDBOLTI 1. DEILD KVENNA Víkingur - (BV kl, 16.30. Víkings- stúlkur hafa verið öðrum stúlkum snjallari í handbolta undanfarið. Fram - KR kl. 16.30. Framstelpurn- ar hafa verið sterkar í vetur. Stjarnan - FH kl. 16.30. Né- grannaslagur í Garðabænum. Valur - Haukar kl. 16.30. Haukar eru með ungt lið og hefur ekki gengið vel. Fylkir - Armann kl. 16.30. Ár- mennlngar eru með snjalla er- lenda stúlku. Grótta - Selfoss kl. 16.30. Stúlk- urnar frá Selfossi kunna ýmislegt fyrir sér eíns og karlalíð bæjarins. FRJÁLSAR ÍÞRÖTTIR Torfæruhlaup Heklu kl. 13.00. Ungmennafélagið Hekla með tor- færuhlaup. Mæting er við sund- laugina á Hellu, þeir sem vilja skrá sig setji sig I samband við Frið- semd Hafsteinsdóttur hjá Heklu. IMB11 «~MT'Wcf IM :M KÖRFUBOLTIÚRVALSDEILD Skallagrimur - Keflavík kl. 16.00. Borgnesingar eru feikisterk- ir á heimavelli. Hér mætast bræð- urnir Skúli Borgnesingur og Guð- jón Keflvikingur Skúlasynir. Grindavfk - Njarðvík kl. 20.00. Suðurnesjaslaqur mikill og vænt- anlega ekki geíin tomma eftir. Valur - Haukar kl. 20.00. Bæði þessi lið hafa frábæra útlendinga innanborðs og aörir leikmenn þeirra eru svo sem engir aukvisar. KR - Tindastóll kl. 20.00. Valur Ingimundarson er í miklu formi þesa dagana og verður Vesturbæ- ingum án efa erfiður. Snæfell - Keflavík kl. 20.00. Hólmarar eru erfiöir heim að sækja en Keflvikingar eru hins vegar sagðir með sterkasta lið landsins nú um stundir.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.