Pressan - 05.11.1992, Síða 36
36
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. NÓVEMBER 1992
LÍFIÐ EFTIR VINNU
Klassíkin
’• Sinfóníuhljómsveitin
ileikur Reflections, tónverk
eftir Árna Egilsson, íslenska
'kontrabassaleikarann sem
býr í Kaliforníu, Píanókonsert op. 54
eftir Robert Schumann og Sinfóníu nr.
9 eftir Dmitri Sjostakovitsj. Einleikari er
Krystyna Cortes, en hljómsveitarstjóri
ungur Finni, Hannu Koivula. Háskóla-
bíó kl. 20.
• Gísli Magnússon & Gunnar
Kvaran eru gamlir félagar og þaul-
vanir að spila saman á píanóið og sel-
lóið. Þeir halda tónleika í Útskálakirkju
í Görðum. Utskálakirkja kl. 20.30
• Kórtónleikar verða haldnir í
Kristskirkju undir yfirskrift Tónlistar-
daga Dómkirkjunnar. Þar syngur ein-
söng Margrét Bóasdóttir sópransöng-
kona. Kristskirkja, Landakoti, kl.
20.30.
LAUGARDAGUR
• Einar Kristján
Einarsson gltarleik-
ari heldur fyrstu sjálf-
stæðu einleikstón-
leika sína á höfuð-
borgarsvæðinu. Á
efnisskránni eru verk
eftir J.S. Bach, Lennos Berkeley, Aug-
ustin Barrios, Luis Milan, Luys de Nar-
vaez, Fernando Sor og Hector Villa-Lo-
bos. Seltjarnarneskirkja kl. 17.
• Caput & Voces Tulis. Félagar úr
þessum tveimur tónlistarhópum
leggja land undir fót norður á Akur-
eyri og flytja meðal annars nútíma-
tónlist eftir Arvo Part og gamla ís-
lenska kirkjumúsík. Akureyrarkirkja kl.
17.
• Kirkjukór Dalvfkur er kominn
suður yfir heiðar og heldur tónleika
undir stjórn Hlínar Torfadóttur. Dóm-
kirkjan kl. 17.
• Karlakór Akureyrar heldur tón-
leíka í höfuðborginni. Langholtskirkja
kl. 20.
SUNNUDAGUR
Leikhús
FIMMTUDAGUR
'• Hrœðileg hamingja
Leikrit eftir sænska höfund-
inn Lars Norén. Alþýðuleik-
'húsið frumsýnir í gamla
Hafnarhúsinu. Hafnarhúsið, Tryggva-
gata 17, kl. 20.30.
• Uppreisn Þrír bandarískir ballettar
í uppfærslu íslenska dansflokksins sem
er að vakna aftur af værum blundi
undir stjórn Maríu Gísladóttur. Þjóð-
leikhúsiðkl. 14.
• Heima hjá ömmu. Margt er ágætt
um þessa sýningu að segja. Þó er eins
og flest sé þar í einhverju meðallagi,
sem ekki er beint spennandi, skrifar
Lárus Ýmir Óskarsson. Borgarleikhúsið
kl. 20.
• Vanja frændi. Vanja geldur sam-
flotsins við Platanov. Þótt hugmyndin
að nýta sömu leikara og leikmynd sé í
sjálfu sér sniðug ber seinni sýningin
það með sér að leikararnir voru valdir
til að leika í þeirri fyrri, skrifar Lárus
Ýmir Óskarsson. Borgarleikhús kl. 20.
• Stræti. Þessi sýning er gott dæmi
um það hve stílfærður og stór leikur
fer vel á sviði. Leikararnir smyrja vel á,
en ævinlega með sannleika persón-
unnar og atburðarins sem fastan
grunn. Útkoman: grátleg og spreng-
hlægileg blanda," segir Lárus Ýmir
Óskarsson í leikdómi. Þjóðleikhúsið,
smíðaverkstœði, kl. 20.
• Ríta gengur menntaveginn
„Fyrir þá leikhúsgesti sem ekki eru að
eltast við nýjungar, heldur gömlu
góðu leikhússkemmtunina með hæfi-
legu ívafi af umhugsunarefni, þá mæli
ég eindregið með þessari sýningu,"
sagði Lárus Ýmir Óskarsson í leikdómi.
Þjóðleikhúsið, litla svið, kl. 20.30.
• Clara S er leikrit frá Austurríki og er
þar sögð saga af því þegar og ef Clara
Schumann, píanisti og eiginkona Ró-
berts tónskálds, lendir í höllinni hjá
ítalska saurlífisseggnum og skáldinu
Gabriel d'Annunzio. Nemendaleikhús-
ið sýnir. Lindarbcer kl. 20.30.
• Lína langsokkur Hið vinsæla
barnaleikrit með Bryndísi Petru Braga-
dóttur í aðalhlutverki. Leikfélag Akur-
eyrarkl. 18.
■ a'i ii
• Hafið. Það er skemmst frá því að
segja að áhorfandans í leikhúsinu bíða
mikil átök og líka, eins og Ólafi Hauki
er lagið í leikverkum sínum, húmor,
oft af gálgaætt, skrifaði Lárus Ýmir
Óskarsson í leikdómi. Þjóðleikhúsið kl.
20.
• Dunganon. Ef maður gerir kröfu til
að leikverk sé dramatískt í uppbygg-
ingu þá vantar slíkt í leikritið. En öðr-
um skilyrðum er fullnægt; maður
skemmtir sér vel og fær nóg til að
hugsa um eftir að sýningu er lokið,
skrifaði Lárus Ýmir Óskarsson ( leik-
dómi. Borgarleikhús kl. 20.
• Platanov. Sýningin á Platanov er
þétt og vel leikin og skemmtileg, skrif-
aði Lárus Ýmir Óskarsson. Borgarleik-
hús kl. 20.
• Rfta gengur menntaveginn.
Þjóðleikhúsið, litla svið, kl. 20.30.
• Lucia di Lammermoor. Sigrún
Hjálmtýsdóttir er stjarnan sem skín
skært á íslensku óperufestingunni. /s-
lenska óperati kl. 20.
• Stræti. Þjóðleikhúsið, smíðaverk-
stœði, kl. 20.
LAUGARDAGUR
• Heima hjá ömmu. Amerískur
gamanleikur eftir Neil Simon. Borgar-
leikhús kl. 20.
• Platanov. Borgarleikhús kl. 17.
• Vanja frændi. Borgarléikhús. kl.
20.
• Kæra Jelena. Ungu og efnileg-
ustu leikararnir í snjallasta leikritinu
sem var fært upp á síðasta leikári. Það
virðist líka ætla að ganga á stóra svið-
inu. Þjóðleikhúsið. kl. 20.
• Ríta gengur menntaveginn.
Þjóðleikhúsið, litla svið, kl. 20.30.
• Clara S. Lindarbœrkl. 20.30.
• Hræfiileg hamingja Alþýðuleik-
húsið sýnir leikrit eftir Lars Norén.
Hafnarhúsið kl. 20.30.
• Lína langsokkur. Leikfélag Akur-
eyrarkl. 14.
SUNNUDAGUR
• Dýrin í Hálsaskógi. Vinsælasta
og skernmtilegasta barnaleikrit í ís-
lenskri leikhússögu. Fyrsta leikhús-
reynsla ótal íslenskra barna. Frumsýn-
ing. Þjóðleikhús kl. 14.
• Platanov Borgarleikhús kl. 17.
• Vanja frændi. Borgarleikhús kl.
20.
• Kæra Jelena. Þjóðleikhúsið kl. 20.
• Clara S. Nemendaleikhúsið. Lind-
arbcer kl. 20.30.
• Luda di Lammermoor. íslenska
óperan kl. 20.
Ókeypis
Skautasvellið á Tjörn-
I inni var kannski ívið róm-
lantískara og tilkomu-
I meira meðan það var og
hét, svona á stjörnubjört-
um vetrarkvöldum, en skautasvell-
ið í Laugardal má eiga að þar er
traustari og jafnari aðstaða til að
iðka þessa prýðilegu íþrótt. Það er
reyndar ekki alveg ókeypis, en
frekar ódýrt; þeir sem vilja spara
þá smámuni geta fundið sér ein-
hverja polla til að skauta á. Og ef
þeir eiga ekki skauta og tíma ekki
að kaupa þá má benda á gamla
lagið — sauðaleggi.
Myndlist
Guðmunda Andrés-
^PRfldóttir, gamalkunn listakona
^Jj^^sem telst til Septemhóps
^^^^^lhelstu afstraktlistamanna
þjóðarinnar, heldur mál-
verkasýningu í listhúsinu Nýhöfn. Op-
ið kl. 14-18.
• World Press Photo er árleg sýn-
ing á fréttaljósmyndum. Fallegar
myndir, en líka átakanlegar og hræði-
legar. Opnuð á laugardag í Listasafni
Alþýðu. Opið kl. 14-22.
• Steingrímur Eyfjörð opnar sýn-
ingu í Nýlistasafninu á laugardaginn.
Opiðkl. 14-18.
• Daði Guðbjörnsson fer norður til
Akureyrar með myndirnar sínar og
opnar sýningu í Galleríi Allrahanda í
Grófargili. Opið kl. 13-18 virka daga,
laugardaga kl. 10-12.
• Orðlist Guðbergs Bergssonar. í
tilefni af sextugsafmæli Guðbergs set-
ur Gerðuberg upp sýningu á mynd-
verkum eftir Guðberg. Opið kl. 13-16,
lokað á sunnudögum.
• Guðrún Kristjánsdóttir málari
heldur sýningu í Norræna húsinu, en
líka í FÍM-salnum í Garðastræti. Hún
sýnir landslagsmyndir, svolítið óhlut-
rænar þó. Opið kl. 14-19.
• íslenski myndlistarrefillinn
1992 er yfirskriftin á sýningu sem
stendur yfir á Mokkakaffi. Á hverjum
morgni verður það svo viðfangsefni
listamanns að koma einhverju til skila
á þessum refli. Opið kl. 9.30-23.30.
• Þrír myndlistarmenn halda sýn-
ingu á Kjarvalsstöðum. í Austursal er
yfirlitssýning á verkum Hrólfs Sigurðs-
sonar. í Vestursal sýnir Eiríkur Smith,
en í miðsal sýnir Þórir Barðdal, nýja
skúlptúra. Opið kl. 10-18.
• Hannes Lárusson sýnir í Galleríi
11 við Skólavörðustíg. Sýningin ber
yfirskriftina „Aftur Aftur", en henni lýk-
ur á fimmtudag. Opið kl. 14-18.
• Steinunn Þórarinsdóttlr segist
vera búin að taka manninn úr mynd-
unum sem hún sýnir niðri í Hafnar-
húsi. Síðasta helgi. Opið kl. 14-18.
• Finnsk aldamótalist prýðir veggi
Listasafns íslands. Opið kl. 12-18.
• Suður-amerísk er sýnd í Geysis-
húsinu. Opið kl. 9-7 virka daga.
• Jóhann Eyfells í Listasafni íslands.
Síðasta helgi. Opiðkl. 12-18.
„Til að auka ennfrekar
á gamanið er sýning-
unni dreifthingað og
þangað um húsið
þannig að ég er ekki
einu sinni viss um ég
hafi séð alla sýninguna
þótt ég hafi leitað vel.
En það er kannski alveg
í stíl við manninn. “
GUNNAR J. ÁRNASON
Þessi ritröðAB er glœsilegasta
yerk sinnar tegundar sem útgefið
ifur verið hér á landi. Hún er
svo ríkulega myndskreytt að
helst er hœgt aðjafna því við
önduðustu listasögubækur. “
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR
Staðurfyrir
fóstrur ogkarla
sem laðast að
þeim
ELDSMIÐJAN
BRAGAGÖTU
★★
HELSTU KOSTIR: GÓÐAR PIZZUR,
SMÁR OG LÁTLAUS EN HREINT
ÁGÆTUR MATSALUR Á EFRI HÆÐ-
INNI.
HELSTU GALLAR: ÞJÓNARNIR
VIUA GLEYMA GESTUNUM SEM
FARAÁEFRI HÆÐINA.
OEldsmiðjunni á Braga-
götu tekst það sem svo
margir veitingastaðir
hafa reynt en mistekist. Eldsmiðj-
an er látlaus veitingastaður sem
býður upp á fábrejTtan matseðil
og þar er enginn íburður; hvorki
fyrir gesti né starfsfólk. Eftir sem
áður er þetta hreint ágætur stað-
ur. Flestir þeir veitingamenn sem
hafa reynt svipað hafa setið uppi
með hráslagalega staði en fáa
gesti. Og þeir sem fá ekki gesti
sitja líka uppi með ónýtt hráefni
sem aftur kallar á lítinn hagnað og
fljótlega hærra verð. Eldsmiðjan
hefiir ratað ffamhjá þessum pytt-
um.
Það er varla fýrir aðra en inn-
fædda Reykvíkinga að finna Eld-
smiðjuna þar sem hún er falin
einhvers staðar djúpt inni í Þing-
holtunum. f ofanálag er hún í
kjallara sem er í fljótu bragði lík-
legri til að hýsa sjoppu eða dún-
hreinsun en veitingastað. Neðri
hæðin, þar sem gengið er inn, er
vart stærri en 20 til 30 fermetrar,
en þar rúmast samt ágætlega
pizzukokkur og fjórir til fimm
gestir. Á efri hæðinni geta síðan
um tuttugu manns til viðbótar
borðað.
Eins og lesa má af lýsingunni á
þessi staður sérstaklega vel við
fóstrur og aðrar konur í uppeldis-
og heilbrigðisstéttunum og þá
karlmenn sem laðast að þessum
konum. Þeim finnst nefiiilega all-
ur atvinnurekstur sætur þegar
hann er smár en óttast hann þegar
honum vex fiskur um hrygg. Þeim
mun því líða betur á Eldsmiðjunni
en til dæmis Hard Rock.
Verðið á pizzunum og drykkj-
arföngunum í Eldsmiðjunni er
líka í samræmi við laun þessara
stétta — að minnsta kosti miðað
við grunnlaun án vaktaálags.
Orðfórnir
ORÐLIST GUÐBERGS BERGSSONAR
GERÐUBERGI
I daglegu tali fara orðin
sínu ffam án þess að láta
mikið yfir sér. Orðið tími
er t.d. þjált í munni og til margra
hluta nytsamlegt, en ef það er
stöðvað á vanabundnu flugi sínu
er eins víst að manni hefnist fýrir.
Orðið verður að heimspekilegri
þráhyggju, hyldjúpri ráðgátu og
hugarþraut, sérstaklega ef orð á
borð við Tími verður fyrir valinu.
— Þannig hljómar viðvörun
franska skáldsins Paul Valéry.
Guðbergur Bergsson grípur hóg-
værari orð á lofti, af sannri um-
hyggju fyrir málstað lítilmagnans í
tungumálinu. Eins og t.d. orðið
nál, eða ffekar lágt skrifað orð eins
og tá. Það er alveg sama hversu
mikið maður rýnir í þessi orð; þau
opna ekki fyrir manni ffumspeki-
leg djúp. Guðbergur hlustar frekar
effir ómi orðanna og rekur sig eff-
ir þeirri slóð sem þau skilja eftir á
blaði. Hér er Guðbergur ekki að
leggja út á víðáttur tungumálsins.
Hann heldur sig við efnið, hljóð
og krot á blaði, sem hann hefur
smíðað sögur sínar úr og þegar
menn byrja að fikta með efni er
aldrei að vita nema úr því verði
myndlist.
Guðbergur er ekki myndlistar-
maður nema í vissum skilningi,
því hann er skáld og rithöfundur
sem bregður sér í gervi myndlist-
armannsins. Það er varla nokkur
leið að skoða sýninguna án þess
að líta á myndirnar sem hliðar-
spor rithöfundarins þjóðkunna.
Margir eiga eftir að gleðjast yfir
því að sjá krukku sem inniheldur
handritið að ljóðfórninni til Flat-
eyjar-Freys, ásamt ljósmynd af
skáldinu að ákalla líkneskið. Utan
á krukkunni stendur áletrað:
„Upphaf orðfómarathafnar“.
Upplýsingar um einstök verk eru
af afar skomum skammti, en ffam
kemur að Guðbergur hafi verið af-
kastamestur á myndlistarsviðinu
á árunum milli ’68 og ’80 og sýnt
víða um heim. Það var einmitt á
þessum árum sem myndlistar-
menn, sem fengust við myndlist af
svipuðum toga, litu á sig sem
myndlistarmenn aðeins í vissum
skilningi, þannig að Guðbergur
hefur fallið inn í hópinn.
Á sýningunni kennir margra
grasa: teikningar og skissur,
teiknimyndasögur og ljósmynda-
seríur sem vel mættu eiga heima í
bók, Ljóðmyndir, hljóðverk sem
hann kallar Ljóðhljóð, og svo
mætti áfram telja, ekki allt jafn-
spennandi, en ávallt gert af ffísk-
legum anda. Til að auka enn ffek-
ar á gamanið er sýningunni dreift
hingað og þangað um húsið
þannig að ég er ekki einu sinni
viss um ég hafi séð alla sýninguna
þótt ég hafi leitað vel. En það er
kannski alveg í stil við manninn.
Gunnar J. Ámason
Tilfinningaríkur
gœðaskáld-
skapur
ROMAIN GARY
LÍFIÐ FRAMUNDAN
FORLAGIÐ 1992
★★★★
Franski rithöfundurinn
Romain Gary sendi frá
sér fjórar bækur undir
dulnefni. Ein þeirra, Lífið fram-
undan, hlaut Goncourt-verðlaun-
in árið 1975 og kemur nú út í ís-
lenskri þýðingu Guðrúnar Finn-
bogadóttur.
Verkið er frásögn drengsins
Mómó sem elst upp hjá uppgjafa-
hórunni Rósu og er eitt fjölmargra
barna sem hún hefur tekið í fóst-
ur. Hann lýsir samskiptum við
fóstru sína, umhverfi og persón-
um sem áhrif hafa á líf hans. Að
vissu leyti má segja að í þessari
bók hafi Stikilsberja-Finnur kosið
að bregða sér til fátækrahverfa
Parísarborgar og segja sögu sína
innan um hórmangara og mellur.
Mómó býr að ferskri barnslegri
sýn á tilveruna sem spillt um-
hverfi hefur vissulega sett mark á
en nær þó aldrei að menga. Sú
rödd sem talar í verkinu er stráks-
leg og kotroskin. Tjáningin er oft-
ast skemmtilega óvænt um leið og
hún er heimspekileg: „Þegar mað-
ur er lítill verður maður að vera
fleiri en einn, annars er maður
ekkert“ og „Lífið er nú ekki fyrir
hvem sem er“.
Mómó litli er heimspekingur
enda þarf hann að vera það til að
geta þraukað en hann er einnig
drengur, vart af barnsaldri og
minnir á það í setningum eins og:
„Besti vinur minn á þessum tíma
var regnhlíf sem hét Arthúr.“
Hann býr einnig að þeim eigin-
leika barna að leggja nokkuð upp
úr nákvæmni og er mikið í mun
að lesandinn fylgi ffásögninni eft-
ir. Hann er því sífellt að útskýra og
skjóta inn í: „Ég segi ykkur þetta
núna strax til þess að ykkur bregði
ekki seinna," segir hann eftir að
hafa tilkynnt um ill örlög eins
melludólgsins.
Romain Gary náði í þessari bók
valdi á frásagnaraðferð sem þegar
best tekst til er skotheld. Meðvitað
og markvisst er henni ætlað það
sem gífurlega miklu máli skiptir í
skáldskap: að skapa trúnaðarsam-
band milli lesenda og sögumanns.
Vitanlega byggist þetta samband á
fullkominni blekkingu sem höf-