Pressan - 05.11.1992, Side 38

Pressan - 05.11.1992, Side 38
LÍÚ birtir aftökulista sinn HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUOMAR 44. tbl 3. árgangur GULA PRESSAN Fimmtudagur 5. nóvember Yfirheyrslur í stóra kókaínmálinu f T ALBEITAN SEGIST HAFA VERIfl DREGIN Á TÁLAR Einn lögreglumanna í fíkniefnadeildinni var notaðursem tálbeita til að fá starfsbróður sinn til að vera tálbeita á tálbeituna. Ég er löngu hætturað botna íþessu máli, - segir dómarinn, sem hyggst ekki einvörðungu loka réttarhaldinu fyrir fjölmiðlum heldur loka því endanlega. Komið hefur (Ijós að Steinn Ármann, aðalsakborningurinn í kókafnmálinu, er sá eini sem tengist því sem hefur tiltölu- lega hreinan skjöld. Allir aðrir málsaðilar — og þá einkum lögreglan — léku ýmist tveimur eða þremur skjöldum. Efnahagstillögur verða til úti í bæ ÉG VEIT EKKIHVER BJÚ ÞÆR TIL EN MÉR LIST VEL A ÞÆR segir Davið Oddsson forsætisráðherra, sem segist hafa fengið sent mikið úrval tillagna að undanförnu. „Það er ánægjulegt hvað þjóðin hefur tekið við sér," - segir forsætisráð- herra, „og miðað við undirtektirnar bendir allt til þess að við i rikisstjórninni þurfum ekki einu sinniað velta þessum málum fyrir okkur." Áfengisvarnaráð og ungtemplarar GERBU SAMEIGIN- LEGT TILBOfl í Meðal nýjunga sem ungtemplararog áfengis- varnaráð hyggjast brydda á efríkið gengur að til- boði þeirra er að hækka aldurstakmark íáfengis- búðirnarí35 ár, hækka verðið á víni um helming og raða einungis í efstu hillurnar svo fólk minna en 170 sentimetrar á hæð nái ekki í þær. Stefnum að því að hafa búðirnar opnar milli klukkan átta og hálfníu á mánudags- og þriðjudagsmorgnum, - segir Hjalti Baldursson ungtemplar. f Eftirað Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra birti aftökulista sinn yfir sjávarútvegsþorp þau sem legðust íeyði efgjaldþrotaleiðin yrði farin hefur LÍÚ birt sinn aftökulista til að koma í veg fyrir að þessi umrædda leið verði farin. Reykjavík, 5. nóvember. „Eins og sjávarútvegsráð- herra hefur sett þetta fram bendir allt til þess að gjald- þrotaleiðin muni leggja fjöld- ann allan af sjávarþorpum í eyði. Hann hefur sjálfur lesið upp aftökulistann. Þetta mál er því farið að snúast um líf og dauða og við teljum ekkert at- hugavert þótt við svörum í sömu mynt,“ segir Kristján Ragnarsson, framkvæmda- stjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, en sam- tökin hafa birt aftökulista með nöfnum þeirra sem stutt hafa gjaldþrotaleiðina svokölluðu á einn eða annan máta. LÍÚ hefur látið prenta plakat með myndum og nöfnum 32 manna. Yfirskrift þess er: „ANN- AÐHVORT DEYJA ÞESSIR MENN EÐA JAFNMÖRG ÞORP LEGGJAST í EYÐI“. f texta á plak- atinu er íbúum sjávarþorpa bent á að málið sé upp á líf eða dauða; „annaðhvort drepstu eða snýst til varnar“ eru hvatningarorð LÍÚ til útvegsmanna og annarra íbúa þorpanna. „Ég skil þetta ekld,“ sagði Davíð Scheving Thorsteinsson í samtali við GP, en hann er eitt nafrianna á plakatinu. „Ég hef ekkert skipt mér af sjávarútveginum utan hvað Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson eru meðal þeirra 32 manna sem eru á aftökulista LlÚ. Yfirskrift listans er „ANNAÐHVORT DEYJA ÞESSIR MENN EÐA JAFNMÖRG ÞORP LEGGJAST (EYÐI". ég sagðist meðmæltur veiðileyfa- gjaldi í útvarpsþætti fyrir mörgum árum. Nú á að stilla mér upp fyrir framan aftökusveit sökum þess. Mér finnst það fulllangt gengið.“ „Ég er feginn að ég er ekki á listanum," sagði Ögmundur Jón- asson, formaður BSRB. „Mér finnst hugmyndin góð og við hjá BSRB erum að undirbúa svipað plakat, þar sem því fólki, sem hef- ur lýst sig fýlgjandi samdrætti í ríkisumsvifum, verður stillt upp. Það er á þriðja tug þúsunda opin- berra starfsmanna og ég trúi því ekki að þeir láti einhvern fámenn- an hóp manna vaða yfir sig.“ „Ég styð útgerðarmennina,“ segir Haukur Halldórsson, for- maður Stéttarsambands bænda. „Það er löngu kominn tími til að þessir kjaftaskar, sem þykjast hafa vit á öllu og öllu vilja breyta og umsnúa, fái til tevatnsins." Þjóðhagsstofnun gerir út- tekt á sjávarútveginum BÍLAEIGN SJÁVARÚT- VEGSFYRIRTÆKJA KEFUR VAXIB HRAÐAR EN SKIPASTBLLINN Mesta aukningin varð þegar jepparnir komust í tísku en þeir eru að meðaltali um 25 prósentum dýrari en forstjóra- bílarnir voru á árum áður. Svo virðist sem sjávarútvegurinn kaupi um átta nýja forstjórabíla á móti hverjum frystitogara. Auk þess má benda á að mun betur er séð um viðhald á bílunum en skipunum, - segir Þórður Frið- jónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar. Ólympíuleikar stjórn- málamanna ÍSLENSKIR RÁÐHERRAR VINNA GULL- VERBLAUN Beittum íslenskum aðferðum á þrautir í efnahagsmála- pakkanum og þær vöktu lukku, - segir Friðrik Sophus- son fjármálaráðherra, sem fór fyrir íslensku sveitinni. Fjölskyldutilboð: Hádegishlaðborð: Hausttilboð: pi^ca « Þú færð einn og hálfan Heitar pizzusneiðar Heit Hawaianpizza | lítra af Pepsí og og hrásalat eins og þú getur fyrir tvo ásamt skammti -Hut. brauðstangir frítt með í þig látið fyrir aðeins 590 kr. af brauðstöngum stórri fjölskyldupizzu. alla virka daga frá kl. 12-13. á aðeins1.090 kr. Hótel Esju, sími 680809 Mjódd,sími682208

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.