Pressan - 19.05.1993, Blaðsíða 31
Gula Pressan
230 krónur
í lausasölu
(\fíkuritið
PRESSAN fylgir
án endurgjaldsj
Össur Skarphéðinsson í nýja fundaherferð í sumar
Ætlar að ná til
ungra kjósenda
Alþingi, 18. maí.__
„Sumarið er tími terskra hug-
mynda og nýrra lausna,“ sagði
Össur Skarphéðinsson á blaða-
mannafundi í gær þegar hann
kynnti fundaherferð sína í sum-
ar. Össur kom blaðamönnum á
óvart með því að birtast í áður
óséðum og sérkennilegum bún-
ingi.
Hvaða skýring er á þessu, Öss-
ur?
„Ja, þetta kemur til af tvennu.
Bæði er að okkur finnst eins og
Alþýðuflokkurinn nái ekki til
ungra kjósenda og fólks sem
kemur til með að kjósa ein-
hvern tímann í framtíðinni. Það
er aðalskýringin. Síðan er bún-
ingurinn einkar þægilegur.
Hann er eins og sniðinn á mig.
Ég vil hins vegar taka fram að
hann er ekki aðalatriðið, heldur
jafnaðarmannahugsjónir Al-
þýðuflokksins.“
„Þessi herferð er alfarið á
ábyrgð Össurar. Áma hefði
aldrei dottið svona vitleysa í
hug,“ sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson, formaður flokksins.
„Off the record“ sagði Jón hins
vegar að búningurinn færi Öss-
uri engan veginn og áköf mót-
mæli á þingflokksfundum hefðu
engan árangur borið. „Þér að
segja finnst mér nóg að formað-
ur flokksins sé kallaður skrípi
opinberlega, þótt formaður
þingflokksins gefi ekki tilefni til
þess líka með þessum hætti.“
Össur í nýja búningnum í þing-
flokksherbergi Alþýðuflokksins.
Hann segir að herferðin eigi að
ýta undir ímynd Alþýðuflokksins
undir kjörorðinu: Flokkur sem
þorir.
Reykjqvík, 18. moi.____________
„Eg sæki að sjálfsögðu fyrir-
myndir minar til þeirra Stymiis
og Ingva Hrafiis sem hafa unnið
þrekvirki í að kynna jákvæðar
fréttir fyrir landsmönnum að
undanförnu. Við viljum elcki
vera minni menn og því segi ég:
Esjan er úr gulli,“ sagði Þjóðólf-
ur Jónsson, nýráðinn ritstjóri
GULU PRESSUNNAR. Á rit-
stjórnarfundi í gær útskýrði
Þjóðólfur þessa nýju frétta-
stefnu við miklar vinsældir.
„Því miður var ósköp lítið til af
góðu fréttunum, svo við urðum
virkilega að leggjast undir feld til
að finna þessa. Aðrar jákvæðar
fréttir sem við höfúm í poka-
horninu er ffétt um að tölvufor-
ritið Síríus hafi slegið í gegn, frétt
um nýja tegund af þorski, frétt
um að fjöllin fyrir austan séu hol
þannig að mun ódýrara sé að
bora jarðgöng og frétt um að
Halldór Blöndal hafi fengið bók-
menntaverðlaun Nóbels fyrir
kviðlinga. Þessi síðasta reynir að
vísu mjög á trúgirni lesenda okk-
ar, en hún er samt ekkert ótrú-
legri en margt af því sem maður
les í Mogganum,“ sagði Þjóðólf-
ur og bætti við: „Ég get ábyrgst
að það verður engin gúrka hjá
okkur í sumar.“
Gróf misnotkun á nýja álfakortinu í Kópavoginum
Þjóðólfur segist ætla aö bíöa i
símanum eftir gööum fréttum.
GULA PRESSAN
ákveðurað
taka upp já-
kvæðar fréttir
eins og aðrir
virtir fjölmiðlar
ESJAN
ER UR
GULLI
- segir í yfirlýs-
ingu frá nýjum
ritstjóra.
Veiddi tvo álfa
og seidi í sirkus
„Ég kem eins og álfur út úr hól," segir Sigurður Geirdal.
Kópavogi, 18. maí.
„Við erum auðvitað dolfallnir
yfir ósvífiii mannsins," sagði Sig-
urður Geirdal, bæjarstjóri Kópa-
vogs, í samtali við GP, en nú hefur
komið í ljós að Skarphéðinn Þór-
ólfsson, kunnur bissnissmaður í
Kópavogi, misnotaði nýútgefið
álfakort gróflega. Skarphéðinn
virðist hafa notað kortið við álfa-
veiðar og náð þannig tveimur álf-
um, öðrum 346 ára og hinum 453
ára. Álfana seldi hann í sirkus er-
lendis.
„Ég skil ekki þetta kjaftæði. Eru
ekki allir að tala um að þjóðin þurfi
að beita öllum ráðum tfl að komast
af? Ég fékk fint verð fyrir þessa álfa
og veit ekki betur en þeir verði
meðhöndlaðir skikkanlega,“ sagði
Skarphéðinn, sem hefúr látið í ljós
áhuga á að ná sér í gaflara úr Hafn-
arfirði.
Samkvæmt heimildum GULU
PRESSUNNAR hefur bæjarstjórn
Kópavogs veri kölluð saman til
fúndar út af atvikinu, en lögffæðileg
úttekt á málinu virðist benda til að
erfitt sé að lögsækja manninn.
„Álfarnir voru fengnir eftir lög-
legum leiðum og það er ekkert í
þessu sem ég þarf að skammast mín
fyrir,“ sagði Skarphéðinn.
Davíð Oddsson keypti sér hraðskreiðan sportbíl
„Var orðinn leiður á kyrrstöðunni"
- segir Davíð sem ætlar að keyra sjálfur.
Davíö viö nýja bílinn sem hann segir aö eyöi ótrúlega litlu.
„Hann var svooo sætur og bíllinn
alveg æðislegur,“ sagði hún, „en
mamma er búin að segja mér svo
mikið um hvað hann Davíð er
vondur maður. Ég þorði ekki annað
en flýja, þótt ég sjái soldið effir því
núna.“
„Ég veit ekki hvort það er rétt að
ég sé að tjá mig mikið um þetta, en
auðvitað læðist að manni sá grunur
að Davíð sé orðinn gaga,“ sagði
Steingrímur Hermannsson, fyrrver-
andi forsætisráðherra og jeppaeig-
andi. „Davíð er smekkmaður á bfla
eins og annað,“ sagði Hannes
Hólmsteinn Gissurarson, vinur og
áhugamaður um hraðskreiða bíla.
„Allar sögur um annað eru runnar
undan rifjum illra innrættra rit-
stjóra og sóðapenna.“
Reykjavík, 18. maí._________
„Satt best að segja gerði ég þetta
upp úr tómum leiðindum. Mér
fannst veturinn hafa verið svo leið-
að ég ætti þetta meira en
íg var einfaldlega orðinn
leiður á kyrrstöðunni,“ sagði Davíð
Oddsson forsætisráðherra, sem
birtist óvænt við stjómarráðið í gær
á nýjum sportbíl. Samkvæmt heim-
ildum GULU PRESSUNNAR er
þetta hraðskreiðasti ráðherrabíll
sögunnar. Óstaðfestar heimildir
herma að sést hafi til Davíðs á rúnt-
inum í Reykjavík með Ijósa hár-
kollu og Ray-Ban-sólgleraugu.
Stúlka sem blaðið ræddi við kvaðst
hafa þegið far hjá Davíð, en stokkið
út úr bflnum þegar hún uppgötvaði
hver var þama á ferð.