Pressan - 27.05.1993, Blaðsíða 3

Pressan - 27.05.1993, Blaðsíða 3
I ÞANN TIÐ VAR ÍSLAND VIÐI VAXIT Á MILLI FjALLS OK F]ÖRU.“ * Á undanförnum árum hefur íslenska þjóðin vaknað til vitundar um nauðsyn þess að klæða Island skógi að nýju, hefta frekari gróðureyðingu og græða upp örfoka land. Ræktun skóga er einn veigamesti þáttur varanlegrar landgræðslu og besta aðferðin til þess að koma í veg fyrir uppblástur og landeyðingu. En skógrækt tekur langan tíma og kostar mikla fjármuni og er mikilsvert að sem flestir taki þátt í þessu þungvæga verki. Þess vegna hefur Skeljungur hf. ákveðið að leggja sitt af mörkum til Skógræktar ríkisins og gera henni kleift að úthluta enn fleiri trjáplöntum til landsmanna til gróðursetningar vítt um land. Til mikils er að vinna því að skógur gerir umhverfi okkar vistlegra og dregur úr gróðurhúsaáhrifum með því að binda kolefni. Við landnám voru um 60% Islands gróið land og þar af var skóglendi 25 - 30%. Nú eru 75% af íslandi gróðurvana. Skógur þekur aðeins 1% af landinu sem við byggjum. Frá landnámi hafa tapast 3,8 milljónir hektara gróins lands, að meðaltali 3.400 hektarar á ári eða 9 hektarar á degi hverjum. Þetta verður að stöðva. Við getum sameiginlega snúið vörn í sókn. Árlega eru gróðursettar 6 milljónir trjáplantna sem þekja 2.400 hektara lands. Þetta stækkar núverandi skóglendi um 2% á ári hverju sem er hvergi nærri nóg ef vel á að vera. Afstaða almennings til skógræktar hefur aldrei verið jafn jákvæð og einmitt nú. Landsmenn eru flestir sammála um að það verði að rækta skóga til að græða sárin og allir vita að það er hægt. Á landssvæðum, sem henta vel til skógræktar, getum við endurheimt skóg á 1,2 milljónum hektara lands. Af framangreindum ástæðum hefur stjórn og starfsfólk Skeljungs ákveðið að leggja skógrækt lið. Það er von okkar að sem flestir landsmenn bætist í hóp þeirra sem vilja sinna þessu tröllaukna verkefni. Trjáplöntur, sem við gróðursetjum nú, ná meira en mannhæð á einum áratug og mynda fjögurra til fimm metra háa skóga um miðja næstu öld. Slíkir skógar stöðva gróðureyðingu og í skjóli þeirra hefst þróttmikið, náttúrulegt landnám á íslandi, landsmönnum til farsældar og ánægju. Skeljungur hf. hefur þegar hafið þetta verk með því að leggja fram 4 milljónir króna til Skógræktar ríkisins eða jafnvirði 200.000 trjáplantna. Skeljungur hyggst síðan tengja árlegt framlag sitt til skógræktar á næstu árum við sölu félagsins. Þegar þú verslar á bensínafgreiðslustöðvum Skeljungs leggur þú þitt af mörkum til skógræktar á íslandi og þitt framlag vegur þungt á vogarskálum verkefnisins. Saman getum við lyft grettistaki undir faglegri forystu Skógræktar ríkisins og í samvinnu við alla þá sem eiga að hugsjón að græða upp landið. forstjóri Skeljungs hf. Skógrækt með Skeljungi

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.