Pressan - 27.05.1993, Blaðsíða 28

Pressan - 27.05.1993, Blaðsíða 28
BÍÓ & SJÓNVARP 28 PRESSAN Fimmtudagurinn 27. maí 1993 SJÓNVARP ★★★★ Sjáið • Stórviðburðir aldarinnar ★★★ fimmtudagskvöld í Sjónvarpinu. Franskur þáttur sem kastar ljósi á þau tímabil sög- -^jjnnar sem allir eiga að vita allt um en margir hafa þegar gleymt. • All the President’s Men ★★★★ í Sjónvarpinu á laugardags- kvöld. Myndin íjallar um Watergate-hneykslið sem tveir rann- sóknarblaðamenn komu upp um. Farið að slá í hana en stendur þó fyrir sínu. • The Rape of Richard Beck ★★★ á Stöð 2 laugardagskvöld. Lögreglumanni er nauðgað og fær atburðurinn hann til að hugsa um fleira en sjálfan sig og eigið ágæti. Prýðilegt sósíal- drama. • Bernstein, Kiri og Carreras ★★★ í Sjónvarpinu annan í hvítasunnu. Fyrir unnendur sönglistar. J® Varist • Child’s Play II ® á Stöð 2 fimmtudagskvöld. Fáránleg oíbeld- ismynd um geðsjúka dúkku. Klént efhi sem fer gjörsamlega yfir línuna. • Paul McCartney ® bæði í Sjónvarpinu á föstudag og Stöð 2 á hvítasunnu. Hver veit ekki allt um þennan gamla bítil? Og hverjum er svosum ekki sama? • Midnight Crossing ® á Stöð 2 á laugardagskvöld. Auglýst sem spennumynd en er í rauninni léleg sápuópera. Grátleg sóun á leikhæfileikum Faye Dunaway. *KVIKMYNDIR Algjört möst Feilspor ★★★ Líklega langbesta mynd sem sýnd hefúr verið í Laugarásbíói um langa hríð. Spennandi sakamálamynd með eft- irminnilegum persónum. Laugarásbíói. Mýs og menn O/Mice and Men ★★★ Sæt útgáfa af Steinbeck- sögunni, að mestu laus við væmni. John Malkovich hefúr haldið sig mest í leikhúsinu að undanfömu, en fær þarna aftur alvöm- hlutverk í bíómynd. Hann svíkur ekki. Háskólabíói. -'Slðleysi Damage ★★★ Mynd um þingmann sem ríður sig út af þingi. Jeremy Irons leikur af feilcnakrafti. Kynlífssenurnar em helst til langar — að minnsta kosti fýrir þá sem hafa misst eitt- hvað úr endalausri runu ríðingamynda að undanförnu. Hinir hafa byggt upp þol. Regnboganum. Stuttur Frakld ★★★ Stjörnurnar þrjár segja til um stöðuna í hléi. Effir hlé rennur myndin út í sandinn og tapar einni, ef ekld tveimur af stjörnunum. En það er margt gott og þá sérstaldega Frakkinn stutti. Án hans hefði myndin sjálfsagt orðið venjuleg íslensk ærsla- og aulahúmorsmynd. Sögubíói. í leiðindum v Lifandi Alive ★★ Sagan er svosem nógu átakanleg, um unga menn sem lenda í ógurlegum hrakningum og þurfa á endanum að fara að éta hver annan. Persónusköpun er samt heldur lítil- ijörleg og reynt að gera mannátið eins huggulegt og kostur er. Háskólabíói. Loftskeytamaðurinn Telegrafisten ★★ Loftskeytamaðurinn er skandinavísk þvæla, en þó má hafa gaman af góðum leik og fal- legum konum. Bömmer Ólíldr heimar Close to Eden ® Propaganda- fyrirtæki Siguijóns Sighvatssonar gengur brösulega að búa til bíómyndir. Þetta er mynd til dýrðar Jehóva, guði gamlatestamentisins, en í öllum aðalatriðum er þetta stæling á þeirri ágætu mynd, Vitninu. List- rænt gildi myndarinnar er ekkert og sem áróðursmynd fyrir kabbala, talmúð og gyðingleg sjónarmið er myndin einnig mis- Jjeppnuð. Melanie Griffith er vond leikkona og versnar með hverri mynd. Regnboganum. Leyniskyttan The Sniper ® Vopnuð skátamynd. Hægur vandi hefði verið að gæða myndina einhverjum tilgangi með smá- vægilegri vinnu við ódýrasta þáttinn í kvikmyndagerð, handrits- gerðina. Þess í stað fjallar myndin bara um menn sem skríða um í frumskóginum og skjóta aðra menn af óskiljanlegum ástæð- um. Bíóhöllinni. Banvænt bit Innocent Blood ® Þetta er skelfileg tilraun til að gera hryllingsmynd og grínmynd í einu. Myndin er hvorugt. Ekld einu sinni nógu lítið fýndin til að vera Wægileg. Bíóhöllinni. KVIKMYNDIR Hin hljóðláta bylting Umtalaðasta mynd ársin JV Palli SOMMERSBY ★★★ GUÐMUNDUR ÓLAFSSON Við fýrstu sýn er þessi mynd ósköp venjuleg róm- ansa um meinleg örlög sem margan hrjá. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að miklu meira af hugsun er laumað inn í myndina en maður bjóst við fyrirfram. Undan- farið hafa ýmsir bandarískir leikstjórar snúið sér að gerð kvikmynda sem eru metnað- arfýllri og betur unnar en títt er. Svo virðist sem nú standi yfir hljóðlát bylting í Holly- wood, bylting sem hvorki er farin að hafa teljandi áhrif á hina aldurhnignu sveit sem veitir Óskarinn, né heldur þá sem skrifa um kvikmyndir fýrir blöð. Myndir á borð við Áwakenings, Stanley og Iris og síðast en ekki síst Konu- ilmur eru af þessum toga. Á yfirborðinu eru þessar mynd- ir skemmtilegar dæmisögur sem má hafa gaman af stutta lcvöldstund. Undir niðri er al- varlegri undirtónn sem kem- ur þægilega á óvart. I þeim öllum er heimspekileg vídd þar sem fjallað er um lífsgildi. Á hógværan og kurteislegan hátt erum við spurð að því, hvers konar líf sé þess virði að því sé lifað. Þessar myndir eru fullar af tilvísunum í menn- ingararfleifðina og það eru þessar tilvísanir sem skipta máli, en ekki inntakslaust kjaftæði um ofbeldi eða ekki ofbeldi. Stundum fjalla þessar myndir um sögulegt efiii eins og JFK, Hoffa og Goodfellas, þar sem Bandaríkjamönnum er stillt upp við vegg með erf- iðum spurningum um at- burði úr náinni fortíð. Sommersby er hins vegar einföld dæmisaga eða ævin- týri, þar sem viðfangsefnið er hin lúmska spurning, hvort réttara sé að fórna öllu fýrir það sem maður trúir á og veit að er rétt eða hvort maður á að velja þægilegri leið lífslyg- innar. Sagan er byggð á eld- fornu sagnaminni um mann sem hefúr verið lengi í burtu, talinn af, en kemur síðan aft- ur eða einhver í gervi hans, eins og dæmi eru um í ís- lenskum þjóðsögum. Þetta sagnaminni hefur oft verið tekið fýrir í kvikmyndum, en hér er því stungið niður í fá- tækt hérað í Bandaríkjunum um 1800, þar sem menn taka til við tóbaksrækt fýrir tilstilli hins nýja Sommersby. Þessi útgáfa er ekki síðri en sú ffanska, sem kvikmynduð var fyrir nokkrum árum og byggðist á annálarannsókn- um um svipað mál, þar sem erfðamál voru þó aðalatriðið. Það skemmtilega við kvik- myndina Sommersby er að „...sannleikur tilfinninganna er ekki nauðsynlega sá sami og sannleikur vits- munanna, að hinn félagslegi sannleikur er ekki sá sami og lagalegur sannleikur, að sitt hvað er lygi og lífslygi. “ hugtakið sannleikur er tekið til umfjöllunar í leiðinni. I ljós kemur að sannleikur til- finninganna er ekki nauðsyn- lega sá sami og sannleikur vitsmunanna, að hinn félags- legi sannleikur er ekki sá sami og lagalegur sannleikur, að sitt hvað er lygi og lífslygi. Þessi mynd er í alla staði vel gerð, vel leikin og oft un- aðslega falleg. Stöku sinnum ber á gömlum klisjum, til dæmis í tengslum við kyn- þáttaátök, en þær eru yfirleitt góðrar ættar, leggjast á sveif með mannúð og frjálslyndi. Hin hljóðláta bylting á trú- lega rætur að rekja til þess að kvikmyndaframleiðendur vilja nú gera myndir sem fólk er tilbúið að sjá oftar en einu sinni, ekki síst af myndbönd- um. Þess vegna verður efni þeirra að vera dýpra og end- ingarbetra en verið hefúr. Kvikmyndin Indecent Proposal, sem leikstýrt er af Adrian Lyne, er þrátt fýrir að hafa aðeins verið sýnd undanfarnar fimm vikur í Bandaríkjunum komin í fimmta sæti yfir tekjuhæstu kvikmyndir ársins. Þær myndir sem eru ofar á tekju- listanum hafa allar verið sýndar í minnst fjóra mánuði og má því búast við að hún slái fljótlega aðsóknarmet vestra. Með aðalhlutverk í kvikmyndinni fara þau Demi Moore, gamalstirnið Robert Redford og nýjasta kyntáknið í Bandaríkjunum, Woody Harrelson, sem kunnastur er fýrir túlkun sína á ein- földum barþjóni í þáttaröðinni Staupa- steini, sem nýlega lauk göngu sinni. Leikstjórinn Adrian Lyne hefur lag á að gera kvikmyndir vinsælar, sem dæmi má nefha FatalAttraction, 9 1/2 viku og Jacob’s Ladder, enda leikstjórinn sjálfur mjög hrifinn af sögum sem vekja siðferðisleg- ar og ögrandi spurningar. Og það gerir hann svo um munar í nýjasta afkvæmi sínu, Indecent Proposal, sem er einhver umtal- aðasta kvikmynd árins. Demi Moore og Wöody Harr- elson leika hjón en Robert Redford milljónamæring sem hefur ffam að þessu getað keypt allt fýrir peninga. Milljónamæringinn langar að rekkja með konunni og er tilbúinn að borga væna summu fýrir. Sjálf lifir hún ham- ingjusömu lífi með eiginmanni sínum, en það er ekki þar með sagt að hana langi ekki til að sofa hjá auðkýfingnum, þótt hún reyni að telja sér trú um að hún mundi aðeins gera það peninganna vegna. Það sem gagnrýnendur heillast mest af við þessa umtöluðustu mynd ársins (sérstaklega kvengagnrýnendur) er að persónan sem Demi Moore leikur er ekki fullkomlega sjálffi sér samkvæm. Hún er mannleg og fellur ekki beint undir þær kvenímyndir sem stillt hefur verið upp í hinni vinsælu formúlumynd. Stóra spurningin er: sefur hún hjá honum eða ekki? Sýningar á myndinni hefjast í Háskólabíói snemma í júní. Þríeykiö Woody Harrelson, Demi Moore og Robert Redford. Red- ford leikur auökýfing sem langar til aö samrekkja hamingjusömu eiginkonunni (Demi Moore) fyrir dágóöa fjárupphæö. Hana langar til þess sjálfa — jafnvel þótt peningar væru ekki í boöi. í brennidepli 19:00 Bamaefni: Baiaur Baldur Hermannsson les upp úr þjóðsög- um og hryllingssög- um. 17:411 19:15 Baldur og Konni Úr gömlu filmusafni Sjónvarpsins 19:20 Krókódílar Heimilda- mynd frá BBC 20:00 Tóniistarþáttur Viötöl & myndbönd 20:30 Innlendar fréttirirá fréttastofu 20:50 Vedur 21:00 Fréttir frá BBC frá því fyrr um kvöldiö 21:30 Fréttaskýringar & viö- töl 22:00 Málverkiö í dag Um- ræðuþáttur 23:00 íþróttir 24:00 Kvikmynd: Shadows eftir Annie Sprinkle 01:30 Næturefni: Matarþátt- urinn „Að grilla með Grillrejser" 01:37 Wrestling 03:03 Dagskrárlok

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.