Pressan - 03.06.1993, Page 11
F R E T T I R
Fimmtudagurínn 3. júní 1993
pressan I1
Talsverður urgur er á meðal
íbúa Eyrarbakka vegna nýlegs
gjaldþrots Bakkafisks og
Stakkavíkur þar í bæ. Fyrir-
tækin hafa verið stopp í eitt og
hálft ár, en á sama tíma hafa
fyrrum eigendur, bræðurnir
Hjörleifúr og Magnús Brynj-
ólfssynir, hafið fiskvinnslu í
Þorlákshöfn með ærnum til-
kostnaði. Meðal annars með
15 milljóna króna kaupum á
fasteign af ríkinu, sem mun
eiga kröfúr í þrotabúin á Eyr-
arbakka.
Hreppurínn gæti fengið
50 milljónir í hausinn
Talið er að gjaldþrot Bakka-
fisks (vinnslan) og Stakkavík-
ur (útgerðin) sé upp á mörg
hundruð milljónir í kröfum,
þar af á bilinu 250 til 300
milljónir hjá Bakkafiski. Mats-
verð eigna er skráð á bilinu
300 til 400 milljónir, en alls er
óljóst hvað fæst fyrir þær. Nú
eru til sölu fjórar fasteignir,
tæki og búnaður, allt mjög
veðsett. Eyrarbakkahreppur
hefúr talsverðra hagsmuna að
gæta vegna um 40 milljóna
króna ábyrgða vegna gamalla
lána sem bræðurnir yfirtóku,
auk þess sem skuldir fyrir-
tækjanna við hreppinn eru í
námunda við 10 milljónir
króna.
Gjaldþrot þessi hafa átt sér
talsverðan aðdraganda. Fyrr á
árum var um bæjarútgerð að
ræða, Hraðfrystistöð Eyrar-
bakka (HE). Arið 1986 keypti
Suðurvör eignir HE og yfirtók
skuldir. Árið 1987 varð upp-
stokkun eigna innan Suður-
varar og komu eignirnar á
Eyrarbakka í hlut bræðranna,
sem stofnuðu Bakkafisk hf. og
Stakkavík hf. Félögin áttu tvö
skip, Frey og Stakkavík, með
um eða yfir 600 tonna kvóta
hvert skip.
Fáeinum árum síðar fór að
halla verulega undan fæti. Ár-
ið 1990 var Freyr seldur með
kvóta út úr bænum og árið
eftir var Stakkavíkin seld með
kvóta, einnig út úr bænum. I
síðara tilfellinu reyndi á for-
kaupsrétt hreppsins, sem
treysti sér ekki til að ganga inn
í söluna. Starfsemi fyrirtækj-
anna stöðvaðist í árslok 1991.
Keyptu fasteign af rík-
inu fyrir 15 milljónir
Bræðurnir voru hins vegar
ekki aðgerðalausir og stofn-
uðu Humarvinnsluna hf. í
Þorlákshöfn. Miklar sögu-
sagnir hafa verið um tilflutn-
ing eigna frá Eyrarbakka yfir
til nýja fyrirtækisins, sem
munu vera tilhæfulausar, að
því undanskildu að þeir áttu
hæsta tilboð á uppboði í ein-
hver tæki og búnað, meðal
annars fjórar bifreiðir. Um
leið náðu þeir kaupsamningi
við ríkið um Unubakka 24 á
Þorlákshöfn og greiða fýrir þá
fasteign 15 milljónir króna.
Fannst ýmsum viðmælendum
blaðsins það nokkuð sér-
kennileg sala hjá ríkinu, sem
mun eiga allnokkrar kröfur í
þrotabúin tvö.
íbúar á Eyrarbakka eru
margir að vonum ekki ýkja
ánægðir ineð þessa þróun
mála og sagði einn þeirra í
samtali við blaðið að bræðr-
unum væri hollast að láta ekki
sjá sig í bænum. Aðrir benda á
að hreppurinn eigi ekki síður
sök á því hvernig farið hafi og
einnig megi skella skuldinni
að hluta á opinberar lána-
stofnanir, svo sem Byggða-
stofnun og Atvinnutrygginga-
sjóð. Þeir bræðurnir Magnús
og Hjörleifur hafa opinberlega
einkum beint spjótum sínum
að lánastofnununum, fýrir að
hafa ekki tekið nægilega vel í
hugmyndir um skuldbreyt-
ingar. Ennffemur benda þeir á
að „fortíðarvandinn11 frá því
reksturinn var í höndum
hreppsins hafi verið mikill.
Hjörleifur: Ómakiegar
ásakanir örfárra aðila
Hjörleifur Brynjólfsson vís-
ar á bug öllum ásökunum um
að þeir hafi stungið af ffá Eyr-
arbakka í rúst á
sama tima og þeir
stæðu í kostnað-
arsömum fjár-
festingum í Þor-
lákshöfn. „Við
höfúm ekki kom-
ist hjá því að
heyra ásakanir í
okkar garð, að
okkar mati
ómaklegar og ffá
munni örfárra
aðila á Eyrar-
bakka. Stað-
reyndin er sú að
við vorum með
umtalsverðan
rekstur á Eyrar-
bakka ffá 1987 til
hausts 1991, er
hann stöðvaðist
vegna erfiðleika. I
kjölfarið reynd-
um við að finna
rekstrinum far-
veg, en það tókst
ekki, vegna þess
að ekki reyndist
hljómgrunnur
fyrir því meðal
lánardrottna að
skuldbreyta lán-
um. Okkur var
full alvara með
rekstrinum, vorum með tölu-
verð umsvif og að jaffiaði um
sjötíu manns í vinnu. Við tók-
um á sínum tíma yfir skuldir,
sem uxu okkur yfir höfuð í
þeirri gjörningahríð sem ríkt
hefúr. Við erurn því þolendur
ekki síður en aðrir. Og ekki
má gleyma því að á móti kröf-
um á félögin á Eyrarbakka
standa miklar eignir, þótt
stefna stjórnvalda hafi orðið
til þess að gera þær verðlitlar.“
Hvað rekstur Humar-
vinnslunnar í Þorlákshöfn
varðar sagði Hjörleifúr hann í
engum tengslum við félögin á
Eyrarbakka. „Það er ekkert
ólöglegt við það að sjá sér far-
borða og öll okkar mál þola
vel sanngjarna skoðun. Ég hélt
að allir vissu að við hefðum
reynt allt sem í okkar valdi
stóð til að halda rekstrinum á
Eyrarbakka gangandi.“
Eyrarbakki: Tekjumissir
og 11 prósent atvinnu-
leysi
Magnús Karel Hannesson
oddviti segir að hreppurinn
hafi gert sitt ýtrasta til að
halda skipunum með kvóta í
•bænum. „Þegar reyndi á for-
kaupsréttinn var tíminn ein-
faldlega hlaupinn frá okkur.
Við treystum okkur ekki til að
nota forkaupsréttinn, það
hefði verið fjárfesting upp á
þriggja ára tekjur hreppsins.
Þá urðum við ekki varir við að
heimamenn sýndu áhuga á
endurkaupum.“
Magnús segir afleiðingarnar
slæmar. „Atvinnuleysi var að
meðaltali 11 prósent í fyrra.
Tekjur fólks hafa skerst,
hreppurinn greiðir talsverðar
atvinnuleysisbætur og vegna
fýrirtækjanna hefúr hreppur-
inn orðið fýrir miklum tekju-
missi. Nefna má að ffá fýrir-
tækinu kom um helmingur
aðstöðugjaldsins,“ segir
Magnús.
Nú er reynt að koma eign-
um þrotabúanna í verð. Mörg
tilboð hafa komið í einstakar
eignir, en tvö tilboð í heildar-
eignir, annað frá Isfold í
Reykjavík, en hitt frá Eyrar-
mjöli á Stokkseyri. Ekki fékkst
uppgefið hversu há tilboðin
væru, en nefna má að tilboð í
heildareignir þarf að fara yfir
100 milljónir til að hreppur-
inn sleppi ábyrgðanna vegna.
Friðrik Þór Guðmundsson
flrnar Nlár Jónsson hefur lengi verið langsöluhæsti blaðasall
PRESSUNNAR og hann verður ð lullu í sumar elns og endranær.
• Krakkar! Þið eigið líka möguleika á að ná árangri við að selja
PRESSUNA í viku hverri í sumar, enda er blaðið útbreitt og nýt-
ur æ meiri vinsœlda.
0 í sumar verður verðlaunapottur í gangi sem allir njóta góðs af.
Til viðbótar við góð sölulaun og aukablöð í viku hverrifá allir
blaðasalar PRESSU-bol og PRESSU-húfu og aukþess Stjörnu-
popp ogPepsí, auk bíómiða ogkeilumiðaþegar tilteknum ár-
angri er tiáð.
0 / hverjum mánuði eru síðan þrír söluhcestu blaðasalarnir um
land allt verðlaunaðir með heimsendri Jóns Bakans-Pizzu af
stœrstu gerð og Pepsí.
0 Rúsínan ípylsuendanum ersvo samkeppni PRESSUNNAR
um blaðasala sumarsins, þar sem þrír söluhœstu blaðasalarnir
samanlagt íjúní,júlí ogágúst eru sérstaklega verðlaunaðir.
1. verðlaun: Vandað fjallahjúl
2. verðlaun: Leikjatölva
3. verðlaun: Körfuboltahringur
0 Krakkar hafið samband í síma 643080 ogpantið blöð
strax. Munið að við sendum ykkur blöðin heim að morgni út-
gáfudags.
0 Blaðasalar úti á latidi vinsatnlega haftð samband við
umboðsmenn.
krakkar seuið PRESsm i sumár
VERBUUINAPOTTUR
IIM LAND AliT