Pressan - 03.06.1993, Page 18

Pressan - 03.06.1993, Page 18
•jr 18 PRESSAN FR ÉTT I R Fimmtudagurinn 3. júní 1993 Hópuppsagnirnar í Landsbankanum Hrofla ekki við „Göngudeildinni“ Ekkert bendir til þess að bankastjórn Landsbankans ætli sér að láta uppsagn- ir ná til stjórnenda bankans, sem eru um 125 talsins. Um leið segja heimilda- menn blaðsins það athyglis- vert, í ljósi nýtilkynntra upp- s^gna á 76 óbreyttum banka- starfsmönnum, að áfram verði á launaskrá hjá bankan- um hópur fyrrum útibús- stjóra og annarra yfirmanna, sem einu nafni kallast „Göngudeildin". Hér er um að ræða að minnsta kosti sex fyrrum úti- bússtjóra og yfirmenn, sem misst hafa mannaforráð sín og verið fluttir til, gjarnan vegna mistaka í starfi. Þessir einstak- lingar eru ekki komnir á ald- ur, en hafa verið settir í mis- jafnlega íþyngjandi „sérverk- efni“, sumir án nokkurrar mætingar- og vinnuskyldu. Ekki fengust óyggjandi upplýsingar um hvaða ein- staklingar það eru sem til- heyra Göngudeildinni, ffemur en um raunverulegan fjölda þeirra. Þó kom ffam staðfest- ing um að minnsta kosti þrjá þeirra, en það eru Bjarni Magnússon, fyrrum útibús- stjóri í Mjóddinni, Jónas Gestsson, fyrrum útibússtjóri í Sandgerði, og Guðbrandur Guðjónsson, fyrrum útibús- stjóri á Hvolsvelli. Þá mun Jón Itíkharðsson, fyrrum útibús- stjóri á Ólafsvík, hafa tilheyrt þessari deild, en mun nú vera hættur. Uppsagnir 76 óbreyttra starfsmanna nú koma starfs- mönnum mjög á óvart. Á síð- ustu þremur árum hafði tekist að skera niður stöðugildi bankans úr 1.189 niður í 1.037 eða um 12,8 prósent. í jólahefti fréttabréfs starfs- manna Landsbanlcans um síð- ustu áramót sagði Sverrir Hermannsson bankastjóri að ákveðið hefði verið að hægja á fækkun starfsmanna. „Okkur hefur áunnist verulega í að draga úr yfirvinnu. Þær tölur eru ótrúlegar. Starfsfólki hefur fækkað um fjörutíu á árinu ípeð því að ráða ekki þegar aldur skilar fólld úr vinnu. Við ætlum að taka okkur lengri tíma til að ná marlcmiðinu vegna ástandsins á vinnu- markaðnum. Það er alveg spauglaust að vísa fólki úr at- vinnu eins og sakir standa í dag, út í atvinnuleysið sem nú gerir vart við sig.“ Fram hefur komið í fféttum að bankastjórn Landsbankans hafi starfslokasamninga yfir- manna „til skoðunar“, en eng- inn viðmælenda blaðsins kannaðist við viðræður um uppsagnir yfirmanna. Æðstu menn bankans eru þrír bankastjórar, sex aðstoðar- bankastjórar, þrír „sviðs“- stjórar, 26 forstöðumenn ein- stakra deilda aðalbankans og 46 svæðis- og útibússtjórar. Þá eru slcrifstofustjórar og for- stöðumenn minni afgreiðslu- staða alls um fjörutíu talsins. Friðrik Þór Guðmundsson BJARNI MAGNÚSSON Þessi fyrrum útibússtjóri Landsbankans í Mjódd var „fluttur til“ og tilheyrir nú svo- kallaðri Göngudeild bankans, ásamt að minnsta kosti fimm öðrum fyrrum yfirmönnum. Bjarni er á iaunaskrá en hefur hvorki mætingar- né vinnu- skyldu. Rangfærslur Pressunnar Óvönduð vinnubrögð eru aðalsmerki slúðurfféttablaðs- ins PRESSUNNAR. í síðasta tölublaði PRESSUNNAR, sem út kom fimmtudaginn 27. maí, er að finna ffásögn á bls. 2 undir fyrirsögninni „Sveitar- stjórnarkratar í fýlu“. Þar er sagt ffá móttöku sem Alþýðu- fjjekkurinn stóð fýrir í tileíni af heimsókn Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, hingað til lands. I þessum stutta texta er að finna margar rangfærslur sem greinilega eru þar settar ffam í þeim tilgangi einum að koma af stað illindum milli fólks. Nauðsynlegt er að leiðrétta uppspuna blaðamannsins Jónasar Sigurgeirssonar. í frásögn PRESSUNNAR segir: „Athygli vekur að ...Guðmundur Árni Stefáns- som, bæjarstjóri í Hafnarfirði, fékk ekki boðskort og sama máli gegnir um Ólínu Þor- varðardóttur.... Að vonum voru þau og fleiri sveitar- stjórnarkratar ekld par hrifin.“ Til að vera nákvæmur skal það tekið fram að ekki voru send út nein boðskort vegna þessarar móttöku, sem einnig var í formi fundar. Forustu- menn Alþýðuflokksins voru boðaðir með bréfi eða símtali. Kjami málsins er hins vegar sá að bæði Guðmundur Árni Stefánsson og Ólína Þorvarð- ardóttir fengu boðsbréf og því er frétt Pressunnar röng — dauð og ómerk. Þeim, ásamt fleiri sveitarstjórnarmönnum flokksins, var boðið, þar á meðal stjórn sveitarstjórnar- ráðs floltksins. Það sem meira er; Guðmundur Árni þáði boðið og var á staðnum ásamt 35 öðrum, en Ólína komst ekJd og tilkynnti undirrituð- um það sama dag og um- ræddur fundur var haldinn. Nauðsynlegt er að bera þetta slúður blaðamannsins Jónasar Sigurgeirssonar til baka. Þegar undirritaður tal- aði við hann í síma til að leita slcýringa á skrifunum og bera rangfærslumar til baka neitaði blaðamaðurinn að taka við þessum staðreyndum og sagði í lok samtalsins „Það er ekkert rangt við mína frétt“. Þetta em greinilega þau vinnubrögð sem blaðamaðurinn ungi hef- ur fengið í vöggugjöf frá „reyndari" mönnum á PRESSUNNI. Það vill þannig til að undir- ritaður hefur frétt af margít- rekuðum hringingum sama blaðamanns til skrifstofu Al- þýðuflokksins í síðustu viku vegna sömu móttöku. Blaða- maðurinn sagðist hafa upplýs- ingar um það að utanríkis- ráðuneytið mundi greiða kostnaðinn vegna móttök- unnar fýrir Alþýðuflokkinn og einnig mundi utanríkisráðu- neytið greiða kostnaðinn vegna móttöku síðar sama dag í Perlunni. Hvort tveggja er að sjálfsögðu rangt, því Al- þýðuflolckurinn borgar fyrir sig og móttakan í Perlunni var í boði norska forsætisráðherr- ans, sem væntanlega greiðir fýrir sig og sína. Blaðamanni PRESSUNNAR var sagt að Al- þýðuflokkurinn borgaði fýrir sig en elcki utanríJdsráðuneyt- ið. Hann mun hafa borið þessi tíðindi undir ritstjóra sinn, Karl Th. Birgisson, sem mun hafa svarað í þrígang: „Víst borgar utanríldsráðu- neytið". Jónas, blaðamaður- inn ungi, mun því hafa hringt fjórum sinnum í AJþýðu- floklcinn til að láta reyna á þær upplýsingar sem ritstjórinn hafði á tilfinningunni. Niðurstaða þessara vönd- uðu blaðamanna hefur líklega orðið sú að úr því að ekld var neitt hneykslanlegt við þessa móttöku Alþýðuflokksins, þá hafi verið best að spinna upp kjaftasögu um það hverjum var boðið og hverjum ekki. í það minnsta var ekki leitað eftir þeim upplýsingum til skrifstofu Alþýðuflokksins. Véfréttastíllinn er allsráðandi. Rangfærslur PRESSUNN- AR liggja því fýrir. Guðmund- ur Ámi og Ólína fengu boðs- bréf vegna móttökunnar á Kornhlöðuloftinu. Guð- mundur Árni mætti, Ólína komst ekki. Hvorki sveitar- stjórnarkratar né aðrir kratar eru í fylu. Það kann hins vegar að vera að Karl Th. Birgisson, ritstjóri PRESSUNNAR, sé í fýlu, því honum var ekki boð- ið, en hann hefur lengi starfað innan Alþýðuflolcksins án þess að hafa talist til forustu- manna. Undirrituðum þætti vænt um að ritstjóri PRESS- UNNAR og blaðamaðurinn ungi, Jónas Sigurgeirsson, bæðust afsökunar á þessum slcrifum og sýndu vandaðri vinnubrögð í ffamtíðinni þar sem þetta er ekki í fýrsta sinn sem rangfærslur af þessu tagi birtast í PRESSUNNI. SigurðurTómas Björgvinsson framkvæmdastjóri Alþýöufíokksins SUZUKI-UMBOÐIÐ HF. SKÚTAHRAUN 15,220 HAFNARFJÖRÐUR, SÍMI: 651725 $ SUZUKI * Innifalið í verði: númer og skráning Fantasíur fram- kvæmdastj órans Þar fóru mörg ómerkileg orð í lítið efni. Þegar þokan í skrifum Sigurðar er skilin frá stendur þetta eftir: Jón Bald- vin Hannibalsson sendi bréf til nokkurra flolcksmanna sinna á bréfsefni utanríkis- ráðuneytisins og bauð til sam- kvæmis með frú Gro. Á út- sendingarlistanum fýrir þetta bréf voru ekld Ólína Þorvarð- ardóttir og Guðmundur Árni Stefánsson. Þetta barst mér til eyrna og ég gaf einföld fýrir- mæli til blaðamanns: Finndu út hverjum var boðið í krataveizlu á Korn- hlöðuloffinu, hvað hún kost- aði og hver borgaði. Spurðu sérstaklega um utanríldsráðu- neytið, því boðsbréfið var sent þaðan. Daglegt brauð hér á PRESSUNNI. Annar hvor okkar hefur ekki hugsað skýrt, því blaða- maðurinn kom til baka með þá niðurstöðu að frú Gro hefði sjálf borgað fýrir veizlu í Perlunni. Það hafði ég aldrei spurt um og bað aftur um upplýsingar um Kornhlöðu- lofísveizluna og ítrekaði að spurt yrði um utanríkisráðu- neytið. Þau svör komu að kratar hefðu sjálfir borgað og eins og sæmir í góðri blaðamennsku fékkst staðfesting embættis- manna ráðuneytis á því, enda óráðlegt að treysta einni krata- heimild um það. Einfalt mál og engin frétt. Líka daglegt brauð hér. Aðrar upplýsingar sem Sig- urður þykist hafa um samtöl hér innan veggja eru einfald- lega rangar og annaðhvort fantasía hans sjálfs eða upp- spuni manns sem er kominn í vond mál vegna lausmælgi. Það er innanhússvandamál Sigurðar, ekki mitt. Eftir stendur að ekkert er rangt í smáffétt PRESSUNN- AR. Ólína og Guðmundur Árni voru elcki á gestalistan- um og frá því skýrðum við, ekki stafkrók umfram það (og minntumst ekki á hverjir mættu og hverjir ekki). Nöfn- um þeirra var bætt á gestalist- ann og boðsbréfið sent í of- boði með faxi, samkvæmt mínum upplýsingum þegar Ólína og fleiri höfðu spurzt fyrir hjá Sigurði hverju þetta sætti — örfáum klukkustund- um áður en veizlan hófst. Sú staðreynd kann að varpa ein- hverju ljósi á ákefðina í at- hugasemd Sigurðar, þar sem hann reynir að draga fjöður yfir eigin mistök með frekar ósmekklegum dylgjum um blaðamenn PRESSUNNAR. Það hefur borið á því áður í samsldptum okkar Sigurðar að honum sámar að Alþýðu- flokkurinn skuli sæta sömu meðferð hjá PRESSUNNI og aðrir stjórnmálaflokkar. Ég hélt að hann væri hættur að væla yfir þessu og kannski er orðið tímabært að ítreka við hann opinberlega að skyldur mínar við lesendur PRESS- UNNAR vikja sízt fýrir hags- munum skrifstofumanna hjá Alþýðufloklcnum. Karl Th. Birgisson i 1 I

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.