Pressan - 03.06.1993, Síða 20

Pressan - 03.06.1993, Síða 20
E R L E N T 20 PRESSAN Fimmtudagurinn 3. Júní 1993 MAÐUR VIKUNNAR David Gergen Fullorðna fólk- ið tekur við „Sá brandari gekk meðal fréttamanna í Hvíta húsinu að Gergen hefði verið rænt í æsku og hann hefði alizt upp meðal gíraffa.“ Það tók Bill Clinton rúma f)óra mánuði í embætti að reka blaðafulltrúann sinn, George Stephanopoulos. Það var ekki seinna vænna. Það var orðið mál að fúll- orðið fólk tæki við þeirri óperasjón. Clinton hefur -íverið að senda þinginu alls kyns mikilvæg umbótamál síðustu vikumar, en Banda- ríkjamenn vita ekki betur en líf forsetans snúist um hluti á borð við hvert hann fer í klippingu og hver stjórnar ferðaskrifstofu Hvíta húss- ins. Þetta er svo sem ekki bein- línis Stephanopoulos að kenna, en hann hefur ekki bætt úr því heldur. Nú hefúr einhver skynsamur maður sagt forsetanum að losa sig við hann og láta starfið í 'uendurnar á einhverjum sem ræður við það. Sá mað- ur er David Gergen, aðstoð- arritstjóri U.S. News & World Report og vel kunnur Hvíta húsinu allt frá því hann var ræðuritari fyrir Ri- chard Nixon. Það má segja að Gergen hafi nú fengið starfið sem hann sóttist eftir fyrir tólf ár- um, þegar hann var náinn samstarfsmaður Jims Baker, þá starfsmannastjóra Hvíta hússins. Báðir voru þeir menn hófsemdar og raunsæ- Ts og stjórnuðust ekki af kreddum eins og margt af Kaliforníu-liðinu sem fylgdi Reagan til Washington. Þeg- ar blaðafúlltrúi Reagans, Jim Brady, var skotinn, barðist Gergen við Larry Speakes um starfið í næstum tvö ár. Gergen stjórnaði almenn- ingstengslum, en Speakes var blaðafulltrúi og þeir skiptust á að halda blaða- mannafundi. Þannig gekk þetta þar til í desember 1983 að Gergen gafst upp og tók við ritstjórastarfinu. Það voru ekki alveg verð- skulduð örlög, en Speakes gaf Gergen heldur engin grið, sakaði hann um að leka upplýsingum (sem allir höfðu að hobbýi í Hvíta hús- inu), gerði grín að líkams- vexti hans (Gergen er 1,93 metrar á hæð) og uppnefndi hann fyrir framan blaða- menn. Sá brandari gekk meðal fféttamanna að Gerg- en hefði verið rænt í æsku og hann hefði alizt upp meðal gíraffa. Gergen er vel kynntur í Bandaríkjunum. Hann er vikulegur gestur ásamt blaðamanninum Mark Shi- elds í virtasta sjónvarps- fréttaþætti landsins, The McNeil-Lehrer Newshour, og ber með sér blæ hófsemdar og skynsemi. Það er eflaust af þeim ástæðum sem Clin- ton hefúr valið hann; Gergen hefur reynslu af fjölmiðla- tengslum Hvíta hússins beggja vegna borðsins, þekk- ir fféttamenn flesta persónu- lega og nýtur sjálfúr virðing- ar sem Stephanopoulos var ekki búinn að afla sér. Og víst má telja að repú- blikanar fagna ekki skipan hans; það var eitt að berjast í fréttatímum sjónvarps við einhvern grískan strákling með nafn sem enginn gat borið fram, allt annað að fást við reyndan, miðaldra flokksbróður sem kann öll brögðin í bókinni og fer ekki á taugum þegar unglingamir í starfsliði forsetans taka upp á næstu dellu. Ethe UROPEAN Skömm Evrópu Allur fagurgali diplómata fær ekki dulið þann einfalda, skammarlega sannleik að Evrópa hefúr nú yfirgefið Bosníu. Svo virtist um tíma, að Clinton forseti gæti neytt Evrópubúa til að horfast í augu við skyldur sínar, en það var vanmat á því afli og kaldlyndi sem evrópskir stjómarerindrekar beittu til að komast hjá þvi að grípa til aðgerða. „Friðarsamkomulagið“ er svik og á rætur í effirgjöf og heig- ulshætti. Það er fátt sem við getum nú gert fyrir Bosníumenn annað en að syrgja dauða þúsunda sem við berum svo mikla ábyrgð á. En afleiðingarnar em víðtækari. Hversu margir árásar- aðilar í Mið- og Austur-Evrópu munu nú telja sig umkomna þess að gefa samfélagi þjóðanna langt nef og komast upp með það? Hún stendur í hatrammri baráttu við heróínsala frá Asíu Drekakonan „Hún heitir Cat- herine Palmer, en asísku heróínsal- arnir hafa gefið henni viðurnefnið Drekakonan. Hún er saksóknari í New York og hefur ein- beitt sér að því að koma heróínsölum frá Suðaustur-Asíu undir lás og slá. “ Hún heitir Catherine Palmer, en asísku heróínsal- arnir hafa gefið henni viður- nefnið Drekakonan. Hún er saksóknari í New York og hef- ur einbeitt sér að því að koma heróínsölum frá Suðaustur- Asíu undir lás og slá. Starfs- vettvangur hennar er ekki sá hluti New York-borgar sem ferðamenn sjá, heldur skugga- hverfin í Brooklyn, Bronx og Queens, en þar virðist vera óseðjandi markaður fýrir ólögleg athæfi. Catherine Palmer er ekki ókunnug mönnum eins og Johnny Kon, en hann er einn umsvifanresti heróínsali í New York. Um síðustu jól sendi hann henni smáglaðning. í fyrstu hélt hún að um værí að ræða jólagjöf frá foreldrum sínum. I pakkanum var skjalataska en rétt í þá mund sem hún ædaði að opna tösk- una komu sérfræðingar frá fíkniefna- og rannsóknarlög- reglunni og stoppuðu hana. Þeir opnuðu rifú á töskunni og þá blasti við hlaupið á af- sagaðri haglabyssu. Gikkurinn var tengdur við músagildru sem var svo haganlega fyrir komið að ef taskan hefði verið opnuð á venjulegan hátt hefði skot riðið af og móttakandinn ekki þurft að kemba hærumar eftir það. Catherine hefur skorið upp herör gegn asísku heróínsöl- unum og orðið töluvert ágengt, en fáa hefði grunað að hún ætti effir að verða helsta ógn glæpaforingja New York- borgar. Hún ólst upp í mið- stéttarfjölskyldu í Massachu- setts, gekk í kaþólskan barna- skóla og tók próf í stjómmála- fræði við Boston College. Þeg- ar því var lokið var framtíð hennar algjörlega óráðin. Það var fyrir orð eins kennara hennar að hún innritaði sig í lögfræði og lauk prófi frá Catholic University Law School í Washington. Venju- lega vinna efnilegir nemendur í nokkur ár sem aðstoðarsak- sóknarar og öðlast þar dýr- mæta reynslu. Þaðan liggur leiðin oftast í virðulegar lög- fræðistofur þar sem þeirra bíða miklu hærri laun. En fyr- ir Catherine Palmer átti annað að liggja. Hún fékk strax stöðu hjá lögffæðistofu og framtíðin virtist björt. En henni fannst eitthvað vanta og þráði meiri spennu. Auk þess langaði hana að gera eitthvað sem engin hafði áður gert. Hún CATHERINE PALMER Af mörgum talin besti sak- sóknari í New York, enda hefur hún aldrei tapað máli. tggr • ’f- sagði upp stöðu sinni og fór að vinna hjá saksóknara þó svo að launin væru miklu lægri. Ekki leið á löngu þar til nafn hennar var á allra vör- um. Hún fann köllun sína. Þrátt fyrir að henni hafi oft verið hótað lífláti heldur hún ótrauð áfram að klekkja á her- óínsölunum. Hún hefur aldrei tapað máli og með tímanum hefur hún áunnið sér aðdáun samstarfsmanna sinna og jafnvel glæpamannanna sjálfra. Einn samstarfsmanna hennar orðaði það svo að hún væri að vinna fýrir Guð sjálf- an. Það veitir hennir sjálfs- traust og öryggistilfinningu. Oft hefur hún þó verið hætt komin. Engu að síður er hún lítið fýrir alla þá öryggisgæslu sem fólk í hennar stöðu nýtur. Eitt sinn fór hún til Hong Kong til að yfirheyra vitni. Hong Kong er fyrir eiturlyfja- sala eins og New York er fjrir verðbréfasala. Uppljóstrari kom upplýsingum til New York um að reynt yrði að ráða Palmer af dögum í Hong Kong. Hún fór samt, um- kringd lífvörðum. Þegar þangað kom fannst henni ör- yggisgæslan vera sér til trafala og krafðist þess að þeir létu sig hverfa þrátt fyrir að morðhót- un hefði borist. Það er talið að alls séu milli 400 og 700 þúsund heróín- sjúklingar í Bandaríkjunum. Catherine Palmer segir þessar tölur út í hött og bendir á að ekki alls fyrir löngu lagði lög- reglan í Bangkok hald á rúmt tonn af hreinu heróíni sem átti að senda til New York. Slíkt magn nægir til að halda 400 þúsund heróínneytend- um í vímu allt lífið. Gang- verðið á götum New York hefði numið tæpum einum og hálfum milljarði dala. Eiturlyfjasmyglararnir sjálf- ir eru oftast lítils metnir smá- glæpamenn sem fá hlutfalls- lega lítið fyrir sinn snúð. Christine Palmer reynir aftur á móti að hafa hendur í hári stórlaxanna. Aðferð hennar byggist á að byija neðst í virð- ingarstiganum. Fyrst nær hún tangarhaldi á einhverjum lágt settum glæpon og fær hann til að segja frá öðrum, hærra settum. Þannig gengur þetta koll af kolli þar til höfúðpaur- inn er fastur í neti hennar. Á síðastliðnu ári náði hún að sakfella leiðtoga Grænu drek- anna, einhverrar hættulegustu glæpaklíku í Kínahverfi New York. Hún treysti á að íbúar Kínahverfisins vitnuðu gegn klíkunni og það tókst en með herkjum þó. Fólk var skiljan- lega hrætt við að vitna en Cat- herine Palmer heppnaðist að telja í það kjarkinn. Hún hef- ur fengið að reyna það sjálf hvernig það er að vera hótað barsmíðum og lífláti. Meðan á þessum réttarhöldum stóð var verið að rétta í máli mafíósans Johns Gottis á hæðinni fyrir ofan og þau réttarhöld fengu alla athygli fjölmiðla. Catherine Palmer hefur einnig lagt fram ákæru á hendur Khun Sa, en hann er talinn ábyrgur fýrir um 60% af öllu heróíni sem selt er í Bandaríkjunum. Þó svo að ákæran hafi verið lögð ffam er hægar sagt en gert að ná í kauða. Hann hefur 4.000 manna her sem gætir öryggis hans lengst inni í skógum Burma. Palmer hefur þó ekki gefið upp alla von um að ná honum og bendir á að hugs- anlega sé hægt að ræna hon- um. Khun Sa hefur einnig góðar gætur á Catherine Palmer. Þegar hún fékk hagla- byssuna í skjalatöskunni skrif- aði hann henni persónulegt bréf þar sem hann fullvissaði hana um að hann ætti engan þátt í tilræðinu. Nýverið náði hún að sak- fella Johnny Kon og flesta samstarfsmenn hans. Ekki gekk eins vel að fá spilltan lög- reglumann að nafríi John Ru- otolo, betur þekktur sem Feiti-Johnny, dæmdan. Hann hafði lengi starfað með Johnny Kon og hafði mörg mannslíf á samviskunni. Ein- hverra hluta vegna var Palmer meinilla við Ruotolo, jafrível svo illa að samstarfsmenn hennar undruðust heiftina. Feiti-Johnny hafði svikið Johnny Kon, stolið af honum heróíni. í réttarhöldunum yfir Ruotolo staðhæfðu fylgis- sveinar Kons að Ruotolo hefði sést taka heróínsendingu úr bíl og setja í skottið á Lincoln Continental-biffeið og notið við það aðstoðar einhverrar dularfullrar konu. Ruotolo hafði aftur á móti sagt Kon að bílnum hefði verið stolið. Kon trúði tæplega þeirri sögu og vildi hefría. Palmer reyndi allt sem hún gat til að tengja Feita-Johnny við glæpaklík- una en hafði lítið í höndunum til að sanna tengslin og allt leit út fýrir að Ruotolo yrði dæmdur saklaus. Allt í einu fann hún lausn- ina. Hún vissi að Ruotolo þurfti að sanna mál sitt á ein- hvern hátt fyrir Kon og því hafði hann að sjálfsögðu kom- ið því þannig fýrir að skrifúð var lögregluskýrsla um bíla- þjófnaðinn. Nú leitaði hún uppi þessa lögregluskýrslu og auðvitað var þar hvergi minnst á þriggja milljóna dollara farm af hreinu heróíni. Aftur á móti var þar minnst á dularfullu konuna og Lincoln Continental-biffeiðina. Allt passaði. Palmer kallaði því- næst Richard Chartrand í vitnastúkuna, en hann hafði skrifað lögregluskýrsluna. Hann staðfesti allt sem í skýrslunni stóð. Lögffæðingur Ruotolos reyndi ekki að bera blak af skjólstæðingi sínum. Það var ekki fýrr en seinna sem í ljós kom hvers vegna Christine Palmer var svo mjög í nöp við Ruotolo. Hann hafði verið með í ráðabruggi um að stytta henni aldur. Palmer var ekki að auglýsa það neitt sér- staklega en aðspurð segir hún ffá því eins og hverjum öðr- um staðreyndum. Fyrir henni er þetta bara hluti af starfinu. Byggt á GQ.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.