Pressan - 08.07.1993, Síða 3

Pressan - 08.07.1993, Síða 3
Flmmtudagurinn 8. Júlí 1993 SKILABOÐ PRESSAN A jLX. borgarráðsfundi þann 29. iúlí kom fram svar borcarstióra við fyrirspum Kristinar Á. Ólafsdóttur um greiðslur vegna úttekta á hinum ýmsu þáttum sem liggja til grund- vallar tillögum um að breyta SVR í hlutafélag. Það var fríður hópur sjálfstæðismanna sem hlaut þennan feita bita: Lögmenn Höfðabakka fengu 236.239 krónur en Hreinn Loftsson, fyrrverandi aðstoðarmað- ur forsætisráðherra, er einn af eig- endum þeirrar stofu. Stjórnun og eftirlit h.f. fékk 235.554 krónur en stjórnarformaður þess fyrirtækis, Helgi Jóhannesson, er mikill vinur Eyjólfs Sveinssonar, aðstoðar- manns forsætisráðherra og Bene- dikt Bogason, einkavinur Sveins Andra Sveinssonar situr í stjórn. Auk þessa fékk Eignamiðlunin verkefni uppá rúmar áttatíu þúsund krónur og Verkfræðistofa Stefáns Ólafssonar fékk 217.407 krónur. Vegna breytinga á rekstrarformi Pípugerðarinnar fékk Verkfræði- stofa Stefáns Ólafssonar 558.757 krónur og Landsbréf h.f. 224.100 krónur. Einnig fékk Inga Jóna Þórðardóttir viðskiptafræðingur og fyrrum formaður útvarpsráðs 2.758.885 krónur fyrir að vinna að tímabundnu verkefhi fyrir borgar- stjóra. Þess má svo geta í lokin að Eyjólfur Sveinsson vann að þessum verkefnum hjá Verkfræðistofu Stef- áns Ólafssonar áður en hann var kallaður til starfa upp í Stjórnar- ráð... u m síðustu helgi var marg- mennt mjög í Þórsmörkinni og voru Sjálfstæðismenn þar óvenju fjölmennur þjóðflokkur. Ástæðan er sú að Heimdallur fór í sína ár- legu Þórs- merkurferð, nú í sam- starfi við Sjálfstæðis- félög á Suð- u r 1 a n d i. Heimdallur er höfuðvígi Jónasar Fr. Jónssonar í formanns- slagnum í SUS og því hafa félagam- ir væntanlega ætlað að styrkja stöðu sína á Suðurlandi þar sem for- mannskosningamar fara ffam effir mánuð. Guðlaugur Þór Þórðarson og stuðningsmenn hans fréttu af ferðinni og lið þeirra fjölmennti einnig í Mörkina. Talsverður mun- ur var á aðferðum fylkinganna við að vinna sér hylli flokksbræðranna á Suðurlandi. Gallabuxnagengið með Gunnlaug í fararbroddi lék knatt- spyrnu af hjartans list og gekk á meðal sauðsvarts almúgans en virðuleikablærinn var meiri hjá Jón- asi og félögum sem spiluðu krokket og dreyptu á eðalvínum...

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.