Pressan - 08.07.1993, Síða 8
F R ETT I R
8 PRESSAN
Fimmtudagurinn 8. júlí 1993
Súsanna Svavarsdóttir, blaðamaður Morgunblaðsins
Fékk ódýrt húsnæði hjá Markúsi Erni
SÚSANNA SVAVARSDÓTHR Tekjuhá þekkt kona í þjóðlffinu býr í ódýrrí íbúð á vegum borgarinnar.
Það hefur vakið athygli að hátekju-
kona í sambúð skuli vera í leiguhús-
næði á vegum borgarinnar og borgi
aðeins 25 þúsund krónur í leigu fyr-
ir fjögurra herbergja íbúð sem er
140 fermetrar að flatarmáli. Sús-
anna Svavarsdóttir, blaðamaður á
Morgunblaðinu, fékk þessa íbúð í
lok síðasta árs, en þá var hún ein-
stæð móðir með þrjú börn og gat
ekki fúndið sér hentugt íbúðarhús-
næði. f vor giftist hún Ásgeiri
Bjarnasyni sem nú stundar rann-
sóknarstörf í Bandaríkjunum.
Stóð á götunni
„Ég var bara einstæð móðir með
þrjú börn sem stóð á götunni. Af
því að ég var of dugleg að vinna fyr-
ir mér féll ég ekki undir Félagsmála-
stofnun, en af því að ég var á göt-
unni reyndi ég allt,“ sagði Súsanna í
samtali við PRESSUNA. „Borgin á
þessa íbúð en ég borga fúlla leigu af
henni sem eru 25 þúsund krónur.
Ég er nýbúin að gifta mig og mað-
urinn er ekki einu sinni fluttur inn.
Og hvað há laun varðar, þá fyrirgef-
ið þið bara, en ég hef ekkert sérstak-
lega há laun. Ég vinn ofsalega mik-
ið, og ekki bara fyrir Morgunblaðið.
Á endanum næ ég að skrapa saman
þannig að ég get framfleytt mér og
börnunum mínum, en það er ekk-
ert óeðlilegt við þetta.
Hvað leigumarkaðurinn velur að
sprengja upp sitt verð er bara ekki
mitt mál. Ég er búin að vera í fimm
ár í rándýrri leigu. Ég er búin að
vera einstæð móðir með þrjú börn
og hef borgað 60 þúsund í leigu.
Mér finnst bara akkúrat ekkert
óeðlilegt við það að sækja þarna um
eftir að hafa verið húsnæðislaus í
fjóra mánuði. Ég talaði við menn
þarna hjá borginni til þess að at-
huga hvort þetta væri mögulegt. Ég
hringdi nokkuð oft og á endanum
var mér sagt að ég gæti fengið þessa
íbúð, alla vega til bráðabrigða á
meðan að ég fengi mér eitthvað
annað.“
Ákvörðun hjá borgarstjóra
„Það var tekin ákvörðun um
þetta af minni hálfu,“ sagði
Markús Öm Antonsson borgar-
stjóri. Hann segir íbúðirnar í
Tjarnargötu hafa verið keyptar
vegna ráðhússins og þær hafi
verið leigðar til bráðabirgða með
sérstökum samningum. Ákvörð-
un um leigu þessara íbúða hafi
verið hjá borgarstjóra, fyrst hjá
Davíð Óddssyni og síðar hjá sér.
„Þú verður að tala við borgar-
stjóra. Hann verður að svara fyr-
ir þær ákvarðanir sem hann tek-
ur sjálfur,“ sagði Hjörleifur
Kvaran, ffamkvæmdastjóri lög-
fræði- og stjórnsýsludeildar
borgarinnar þegar blaðið leitaði
upplýsinga um leigufýrirkomu-
lag. Eftir að PRESSAN hafði tal-
að við borgarstjóra fékkst þó
uppgefið að leigan væri 25 þús-
und krónur. Á almennum
markaði fengist varla tveggja
herbergja íbúð fyrir þá upphæð,
en algengt leiguverð slíkra íbúða
í miðbænum er um þrjátíu þús-
und krónur á mánuði.
Hjörleifur sagði borgina eiga 12
íbúðir í Tjarnargötunni og
Félagsmálastofnun hefði um
helming þeirra til umráða en
borgarstjóri afganginn.
Engin tengsl, segir Sús-
anna
Súsanna segir engin tengsl eða
hagsmunatengsl búa þarna að
baki. Hún hafi leitað til Markús-
ar í vor en síðan verið í sambandi
við aðra starfsmenn borgarinnar
eins og borgarstjóri hafi bent henni
á að gera. Nú hafi aðstæður hennar
breyst og hún muni reyna að finna
sér íbúð annars staðar.
MARKÚS ÖRN ANTONSSON Borgarstjóri
ákvað sjátfur að leigja íbúðina og segir að
það hafi tíðkast frá því í tíð Davíðs Odds-
sonar.
„Þetta er mjög snyrtileg og þægileg
íbúð, en það er langt ffá því að það
sé nokkur lúxus í henni, sem er líka
ástæða fyrir því að maður hugsaði
sér þetta aldrei til langdvala. Þótt
leigan sé lág miðað við markaðinn
hefúr hún marga agnúa, það er ekk-
ert þvottahús í íbúðinni og engar
geymslur sem fylgja henni.“
PálmiJónasson
m
mmmfí oqmm/sr
Við eram flatt
q Saðarströnd
hliðina ö Bónus
Kynningarafslóttur
20 - 50% til 3. júlí
af myndum
og plakötum.
Mjög mikið
rnmMMoq /wmfsr
Suðurströnd 2
við hliðina d Bónus
Seltjarnarnesi
4
TJARNARGATA16 Fjögurra herbergja og 140 fermetra íbúð sem borgin keypti vegna
byggingar ráðhússins. Hún er leigð út á 25 þúsund krónur.
Kristín Á. Ólafsdóttir, borgarfulltrúi
Mjög óeðlilegt
„Þegar um félagslega aðstoð er að
ræða í formi íbúða borgarinnar á
það auðvitað allt að fara í gegnum
Félagsmálastofhun. Ég veit ekki til
þess að það séu nokkurs staðar
samþykktir til í borgarkerfinu fyrir
þessu,“ segir Kristín Á. Ólafsdóttir,
borgarfúlltrúi.
„Mér finnst sjálfsagt að allar íbúðir
á vegum borgarinnar sem eiga að
þjóna félagslegu hlutverki fari í
gegnum Félagsmálastofnun og þar
vill maður treysta því að farið sé
eftir einhverri sanngjarnri röð um-
sækjenda. Það eru mjög margir
sem sækjast eftir félagslegum íbúð-
um borgarinnar og margir um
hverja íbúð þar. Það vantar mjög
mikið upp á að borgin geti full-
nægt þessari þörf og þess vegna
finnst mér mjög óeðlilegt að það sé
einhver annar aðgangur að þeim
íbúðum heldur en í gegnum Fé-
lagsmálastofnun. Mér finnst auð-
vitað að þetta eigi að vera á einni
og sömu hendi, hjá Félagsmála-
stofnun, og þar þurfi allir að lúta
sömu lögmálum. Þar er ákveðinn
biðlisti og þegar ég hef kannað
möguleika á aðstoð fýrir fólk sem
er á götunni fæ ég þau svör að það
eigi að skrá sig á biðlista og búast
megi við að minnsta kosti ársbið.
Þess vegna er mjög óeðlilegt að
einhverjir einstaklingar geti gengið
ffam hjá þessu kerfi,“ sagði Kristín
Á. Ólafsdóttir.
KRISTÍN fl.ÖLAFSDÓTTIR Mjög óeðlilegt að
einstaklingar geti gengið fram fyrir árslang-
an biðlista Félagsmálastofnunar ogfengið
úthlutað ibúð hjá borgarstjóra.
BESTU KAUPIN í LAMBAKJÖTI
1/2 skrokkur af fyrsta
flokks lambakj"
Ljúffengt og gott o
Fæst í næstu verslun.