Pressan - 15.07.1993, Síða 8

Pressan - 15.07.1993, Síða 8
8 PRESSAN FRÉTTI R Fimmtudagurinn 15. júlí 1993 Umdeild starfslok Sigurðar Haraldssonar, fyrrum framkvæmdastjóra SÍF Dagbjartur sakar fyrrum fram- kvæmdastjóra um afglöp í starfi Fullyrðingar stjórnarformanns ganga þvert gegn yfirlýsingu endurskoðanda SÍF, sem segir ekki neinn fót fyrir áburðinum. Sigurður Haraldsson var látinn hætta sem framkvæmdastjóri SÍF síðastliðið haust vegna meintra afglapa í starfi. Dagbjartur Ein- arsson stjórnarformaður segir höfiiðástæðumar hafa verið tvær. Sigurður hafi látið SÍF gangast í ábyrgð fyrir láni til starfsmanns í heimildarleysi og einnig hafi við- skipti við verktakafyrirtækið Stoð verið vafasöm. SIF greiddi 14 milljón króna reikning frá Stoð en eftir endurskoðun var reikn- ingurinn lækkaður um 8 milljón- ir. Verktakafyrirtækið vann einn- ig fyrir Sigurð persónulega og vakti það grunsemdir, en var látið niður falla. Sigurður vinnur nú fyrir samkeppnisaðila og kannast ekki við þessar ásakanir. Endur- skoðandi SÍF fúllyrðir að ekki sé flugufótur fyrir þessum áburði. „Hugsanlegur fjárdráttur" „Aðalástæður fyrir því að beðið var um starfslok hjá Sigurði Har- aldssyni voru þessi tvö mál,“ sagði Dagbjartur í samtali við PRESS- UNA. „Annað varðar vinnu sem átti að hafa verið unnin á skrifstofú StF og birgðageymslu á Keilugranda sem Verktakafyrirtækið Stoð vann.“ Áttu við að hugsanlega hafi verið um fiárdrátt að rœða þar setn fyrir- tcekið vann fyrir Sigurð á sama tíma? „Ja, menn sem fara að leggja saman tvo og tvo láta sér detta það í hug, en Sigurður þrætir auðvitað fyrir það. Það er auðvitað ekkert sannað í því. Það var eitthvað hár- ugt við þetta því verktakinn var til- búinn að lækka sína reikninga um miklu meira en helming. Verktakinn greiddi til baka 11,2 milljónir, en þrjár milljónir af því var eldri skuld sem tengdist ekki þessu máli. Verktakinn skrifaði upp á bréf um að það skyldi end- urgreiðast. Þar með var þetta mál úr sögunni hvað okkur varðar. Ég hef aldrei sagt að það væru tengsl þarna en það eru náttúrlega ein- hverjir sem vilja tengja þetta sam- an en það er engin vissa fyrir því. Eftir þetta lét stjórnin málið niður falla. En auðvitað fannst manni merkilegt hvað mikið kom til baka.“ Fyrst grunsemdirnar voru fyrir hendi, hvers vegna var málið látið falla niður? „Niðurstaða stjórnar- innar var að láta málið falla niður. Stór meiri- hluti vildi hafa þetta svona, en ekki allir. Það kom upp í umræðunni að tala við Rannsóknar- lögregluna en hér um bil allir töldu að búið væri að ná sínu fram í sambandi við verktak- ann og því værum við ekkert að eltast meira við það.“ Lánamálið annað reiðarslag SIGURÐUR HARALDSSON flsakanirnar eru út í hött og gætu tengst því að ég vinn nú hjá samkeppnisaðila. DAGBJARTUR EINARSSON Segir grunsemdir hafa vaknað um fjárdrátt en stjórnin hafi viljað láta málið niðurfalla. „Hitt málið sem gerð- ist þarna úti var náttúr- lega eitt reiðarslagið líka. Hann tók sér bessaleyfi til að skrifa upp á ábyrgð fyrir hönd SÍF fyrir láni til starfsmanns hjá okkur. Hann skrifaði bara upp á það fyrir hönd SíF án þess að tala við mig eða aðra. Það var náttúrlega helvít- is kjaftshögg og engan veginn við hæfi.“ Dagbjartur segir bæði málin hafa komið fram við endurskoð- un. Hann segir að ekki hafi verið farið fram á skýringar Sigurðar, stjórnin hafi ekki viljað tengja það saman, en Sigurður hafi vitað að þetta var önnur aðalástæðan. Þeir hafi viljað gera þetta upp í góðu og láta málið falla niður. Verktakinn hafi verið beðinn um skýringar en átt erfitt með það. Starfslok Sig- urðar hafi verið kynnt félags- mönnum út um allt land á fúnd- um og þar hafi þetta í aðalatriðum verið kynnt. Varðandi það að Sigurður vinn- ur nú hjá fiskútflutningsfyrirtæk- inu Seifi, sem er í samkeppni við tengdist uppsögninni. „Það er hinsvegar al- varlegt mál að verk- takafyrirtækið geti látið þessa reikninga fara í gegn og fengið þá greidda vegna einhvers gats í effirlitskerfi fyrir- tækisins. Það er auðvit- að stóralvarlegt mál og aðeins um tvennt að ræða, að senda þetta til opinberra aðila og láta dómkvadda aðila fara yfir reikningana eða reyna samningaleiðina og semja um lækkun á reikningum. Eftirlitið var ekki í lagi og þarna munaði það miklu að það var ekki ásættanlegt að láta það fara í gegn. Ábyrgðaraðilinn kemur náttúrlega að því máli, hvers vegna hann hafi ekki staðið rétt að hlut- unum.“ Sigurður kannast ekki við ásakanir SÍF, segir Dagbjartur að það hafi verið mat manna að samningar um að hann ynni ekki hjá sam- keppnisaðila eftir brottreksturinn myndu ekki halda. „Menn vonuð- ust náttúílega eftir að hann færi ekki að vasast í þessu sem hann er í núna en uppáskriftir töldu menn ekki hafa neitt upp á sig.“ Engar endurgreiðslur, segir Stoð Hafsteinn Hjartarsson hjá verktakafyrirtækinu Stoð varð fyrir svörum og sagði að þeir hefðu unnið fyrir Sigurð á sama tíma og SlF að stækkun húss. Hann neitar að nokkuð samhengi sé á milli við- skipta þeirra við SIF og viðskipt- anna við Sigurð. Hann varð aftur fyrir svörum daginn eftir fyrra samtalið: „Við töluðum við þá í SÍF um þetta og það varð uppi fótur og fit og þeir könnuðust ekkert við þetta. Ég talaði við Jón Friðjónsson sem er næstráðandi á eftir Magnúsi Gunnarssyni og þetta kom honum í opna skjöldu. Hann hélt bara að þetta væri eitthvað rugl í okkur.“ Var eitthvað endurgreitt vegna of hárra reikninga? „Það var ekkert slíkt á ferðinni. Ég hef heyrt ýmislegt slúður tengt þessari uppsögn en ég lagði aldrei eyrun við því.“ Bjami Sívertsen framkvæmda- stjóri markaðsdeildar SÍF og Brynjar Þórsson framkvæmda- stjóri fjármáladeildar vísuðu alfarið á stjórn SlF. Magnús Gunnarsson ífamkvæmdastjóri er erlendis. Tryggvi Finnsson, varaformað- ur stjórnar SÍF, segir að þær tvær ástæður, sem Dagbjartur nefnir, hafi verið meginástæður fyrir brottrekstri Sigurðar, en þótt fyrir- tækið hafi einnig unnið fyrir Sig- urð persónulega sé það annað mál og hann kannaðist eldd við að það „Það eru 9 mánuðir síðan ég hætti hjá SÍF. Við mig hefur verið gerður starfslokasamningur og ég kannast ekki við neinar ásakanir af þessu tagi,“ segir Sigurður Haraldsson. Hann segir ekkert hafa verið unnið heima hjá sér meðan hann gegndi ffamkvæmdastjórastöðu hjá SlF, heldur árið áður, en þá var hann aðstoðarffamkvæmdastjóri og annaðist markaðsmál SÍF. „Ég borgaði alla mína reikninga sjálfur, þótt annað sé sagt í kjafta- sögum sem hafa verið í gangi í vet- ur. Það er ekkert samhengi þar á milli. Ástæðan fyrir að upp úr slitnaði í samstarfinu var að stjóm- in taldi að ég hefði í þessu Spánar- máli tekið ákvörðun í heimildar- leysi, þ. e. að ég hefði þurft að leita samþykkis stjórnar SÍF. Ég var ekld sömu skoðunar. Það leiddi til ágreinings og meira varþað eldd.“ Stjórnarmaður í SIF segir að verktakafyrirtœkið hafi fengið 14,2 milljón króna reikning greiddan en vísSSr - /eS/s%s/ö cf TAIffll MED BSR Þú hringir í síma 611720 kvöldið fyrir brottför og pantar bílinn. Símaþjónusta BSR sér um að vekja þig á réttum tíma. Bíllinn kemur stundvíslega, hlýr og notalegur. Og þú ferð í loftið afslappaðri en ella. Við bjóðum nú þessa þjónustu á tilboðsverði, kr. 3900,- eða aðeins 975.- á mann miöaö við fjóra. hafi satnþykkt að endurgreiða 8 milljónir. „Nei, það er bara kjaftæði. Svona tölur em úr öllum takti við raunveruleikann, alveg gjörsam- lega út í hött. Það er ekki flugufót- ur fyrir þessu. Ef þetta væra svona tölur þá væri ég náttúrlega ekki að tala við þig í síma. Það gefur auga leið og þá hefði SlF ekki gengið ffá starfslokasamningum við mig á þann hátt sem gert var.“ Stjórnarmaður SÍF heldur þessu fram. „Ef einhver stjórnarmaður er að halda þessu ffam þá er hann annað hvort illa upplýstur um málið eða beinlínis vísvitandi að segja ósatt. Það skyldi þó ekki vera að þetta mál sé komið upp núna af þvi að ég er kominn í samkeppni við þá? Það eru rúmir 9 mánuðir síðan ég hætti og manni dettur ýmislegt í hug. I starfslokasamningi segir orð- rétt: Aðilar samnings þessa lýsa yfir að hvoragur þeirra á, að öðra leiti en því sem leiðir af samningi þess- um, neinar kröfur á hendur hin- um. Þetta er undirritað ,f for- manni SÍF.“ Engin auðgunarbrot, seg- ir endurskoðandinn Gunnar Öm Kristjánsson, end- urskoðandi SÍF, sagðist ekki vilja ræða mál viðskiptavina sinna við fjölmiðla. Hann segir málið ekki tengjast Sigurði að öðru leyti en því að hann hafi verið fram- kæmdastjóri á þessum tíma, reikn- ingar hafi verið of háir og þeir end- urgreiddir. Hann segist hafa skoð- að vinnu verktakafyrirtækisins fyr- ir Sigurð en ekkert samband sé þama á milli. I yfirlýsingu ffá hon- um sem PRESSUNNI barst segir að ekki sé neinn fótur fyrir sögu- burði um að orsakir uppsagnar Sigurðar megi rekja til þárdráttar eða annarra auðgunarbrota. Því til áréttingar sé starfslokasamningur SÍF við Sigurð ffá 11. desember. PálmiJónasson 'J/sm' 6t\17\20\ X/óf)a /cjuj s/tefl --- BSR —

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.