Pressan - 15.07.1993, Blaðsíða 23

Pressan - 15.07.1993, Blaðsíða 23
E R L E N T Fimmtudagurinn 15. júlí 1993 PRESSAN 23 Yannick Noah fær afleita plötudóma Fyrrum tennisstjarnan Yannick Noah, 3. frá vinstri, í hópi koiiega sinna í músíkbransanum. Þrátt íyrir mikið erfiði og enn meiri tilkostnað hefur íyrrum tennisstjömunni Yannick Noah enn ekki tekist að slá í gegn sem tónlistarmaður en nýja platan hans, Urban Tribu, hefur fengið hreint afleita dóma. Noah, sem er ættaður ffá Kamerún en búsettur í Frakklandi, lagði tennisspaðann endaniega á hilluna fyrir tveimur árum og hefúr síðan reynt með öllum ráðum að fóta sig í músíkbransanum, með litlum árangri þó. Fyrsta plata hans, Black and What, fékk ömurlega útreið hjá ffönskum gagnrýnendum fyrir tveimur ámm. Reyndar náði eitt laganna feikna vinsældum og kom Noah víða ffam í Frakklandi ásamt fleiri listamönnum í tilkomumiklu „Saga-Affica“ söng- og dansatriði. Lagið náði þó ekki að skjóta Noah upp á stjörnuhimininn. Þrátt fýrir mótbyr gafst hann ekki upp og í raun var hann sannfærður um að með nýju plötunni tækist honum að komast inn í himnaríki tónlistarbransans. En honum skjátl- aðist hrapallega. Frakkar bókstaflega hökkuðu plötuna í sig og gerðu dæmalaust grín að tennisstjörnunni fyrrver- andi. Þrátt fyrir slæma útreið er Noah hreint ekki á því að gefa tónlistina upp á bátinn. Hann sækir söngtíma af kappi og lætur sig enn dreyma um að slá í gegn sem söngvari. Reyndar á hann sér fleiri drauma og meðal þess sem hann gengur með i maganum er að reyna fyrir sér sem leikari. Hans vegna hljóta menn að vona að sú listgrein liggi betur fýrir honum en músíkin. Trúaræði tröllríður í Jerúsalem f Jerúsalem hafa menn auknar áhyggjur af erlendum mönnum, sem margir hveijir verða gripnir óskiljanlegu trúar- legu æði þegar þeir koma til borgarinnar. Öllum að óvörum taka ferðamenn upp á því á götum úti að sleppa fram af sér beyslinu, oft með afdrifaríkum afleiðingum. Sumir halda því ffam að þeir séu endurbornar hetjur úr biblíusögunum, aðrir eru sannfærðir um að þeir séu synir guðs. „Jerúsalem gerir fólk brjálað" segja heimamenn og þarlendir geðlæknar hafa lýst þeirri trúarlegu skynvillu sem hrjáir marga ferðamenn sem „Jerúsalem-syndróminu1. Á því er einhver skýring, því í 80 pró- sent tilvika reyndust ferðamennirnir áður hafa átt við geðtrufl- anir að stríða. Fólkið kemur til Jerúsalem haldið trúarlegri skyn- villu byggðri á ffóðleik úr Biblíunni og missir fullkomlega stjóm á sér í dulrænu andrúmsloffinu á söguslóð- um. Rík ástæða þykir til að hafa áhyggjur af undarlegu æði ferðamanna í Jerúsalem, enda hefur það kostað mannslíf. Meðal þeirra ferðamanna sem hafa fýrirfarið sér þar í annarlegu ástandi er maður sem kastaði sér niður af áheyrendapöllum í þinghúsi borgarinnar og annar sem dreymdi um að verða „konungur gyðinga" og skaut sig í því skyni. Mikill popp- og rokktónlistaráhugi hefur gripiö um sig meðal íbúa Hanoi í kjölfar viöamikillar tónlistar- myndbandahátíöar sem haldin var þar í vor og er sú fyrsta sinnar tegundar í Víetnam. Vest- ræn tónlist hefur átt erfitt uppdráttar í Vtet- nam vegna verslunarbannsins sem Banda- ríkin lögöu á þjóöina fyrir átján árum, en nú viröist vera aö veröa breyting þar á. Maöur- inn á bak viö tónlistarhátíöina í Hanoi er hinn 34 ára gamli Nguyen Quang Dung sem opnaöi hljómplötuverslun í borginni fýrirtveimur árum. Dung er mikill frumkvöðull á sviöi popp- og rokktónlistar í heimalandi sínu og sjálfur segist hann eiga stærsta safn geisladiska í Vlet- nam, eöa rúmlega tvö þúsund eintök. Dung tókst aö fá menn- ingarráöuneytiö til liös viö sig viö framkvæmd tónlistarhátíöarinn- ar sem stóö yfir í tólf daga og kunnu íbúar Hanoi greinilega vel aö meta framtakið því þeir fjölmenntu. Sátu áheyrendur frá sér numd- ir og orölausir í sætum sínum á meðan leikin voru myndbönd meö Guns N’Roses, Michael Jackson og Slnéad O'Connor, enda voru flestir aö berja slíkan unaö augum í fyrsta sinn. Rokkunnendum fer nú ört fjölgandi í Víetnam, en nýjasti listinn yfir tíu mest seldu hljómplöturnar í Hanoi gefur glögga mynd af tónlistarsmekk heima- manna: 1. Greatest Hits, Queen. 2. Dangerous, Michael Jackson. 3. Tourism, Roxette. 4. The One, Elton John. 5. Keep the Faith, Bon Jovi. 6. Metallica, Metallica. 7. Unplugged, Eric Clapton. 8. The Bodygunrd Soundtrack. 9. The Wall, Pink Floyd. 10. The Top 100 of1992, Ýmsir flytjendur. Enn hneykslar Benetton ftalska fýrirtækið Benetton hefur æ ofan í æ vakið á sér athygli fýrir óvenjulegar auglýsingar sínar, sem ýmsum hafa þótt djarfar og ósiðsamlegar í meira lagi. Nýjasta auglýsingin frá Benetton er engin undantekn- ing þar á, en hún sýnir í nærmynd kynfæri karla og kvenna, þar sem börn jafnt sem fullorðnir eiga í hlut. Ýmsum þykir sem Benetton hafi nú endanlega farið út fýrir öll velsæmismörk og hefur auglýsingin verið gagnrýnd harðlega víða um heim. Meðaf þeirra sem ekki er skemmt eru Bretar og hafa þeir bannað birt- ingu auglýsingarinnar í Bretlandi. Svipaða sögu er að segja af Frökkum því aðeins eitt ffanskt tímarit, L’Ev- enement du jeudi, hefur fengist til að birta hana. Hönnuður auglýsingarinnar er ítalski ljósmyndarinn Oliviero Toscani sem reyndar á heiðurinn af fyrri auglýsingum Benetton fýrirtækisins sem farið hafa svo mjög fýrir brjóstið á mönnum. Toscani lætur há- væra gagnrýni sem vind um eyru þjóta. Hann lítur á sig sem listamann og er stoltur af ljósmyndunum djörfu, sem nú eru til sýnis á Tvíæringnum í Feneyj- um. Að hans sögn var ekki hlaupið að því að finna réttu kynfærin í Benetton auglýsinguna og þurfti hann að taka myndir af um 120 manns áður en hann varð ánægður með útkomuna.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.