Pressan - 15.07.1993, Qupperneq 27
S KI L A B OÐ
Fimmtudagurinn 15. júlí 1993
Fullitægingu
daglega!
Julie Amiri fékk fyrstu fullnægingu sína inni í lögreglubíl
fullum af einkennisklæddum lögreglumönnum, blikkandi Ijós
og sírenuvæl. Frá þeim tíma hefur þessi 35 ára og 140
kílóa kona farið daglega í búðir til að stela. Hún fær fullnæg-
ingu í hvert skipti. Hreyfiafl sögunnar er kynhvötin og aum-
ingja Napóleon varð aö leggja undir sig alla Evrópu til þess
að sanna karlmennsku sína. Getnaðarlimur hans mældist
2 sentímetrar í réttstöðu. Þessi minnimáttarkennd brýst
fram í stórum farartækjum og herskáu atferli en rúmur þriðj-
ungur karla og þriðjungur kvenna telur limastærö skipta tals-
verðu máli í kynlífinu. Dóna-Jóna héfur margsagt okkur að
stunda sjálfsfróun og kynlíf utan dyra, einkum á sumrin. í
yfirgripsmikilli breskri könnun kemur fram áð fimmtungur
karla stundar sjálfsfróun daglega og tveir af hverjum þremur
vikulega eða oftar. Rmm prósent kvenna fróa sér daglega
og þriðjungur þeirra vikulega. Bæði kynin eru sérlega hrifin
af kynlífi utan dyra eða tveir af hveijum þremur. Kynfræðing-
!
urinn hefur rétt fyrir sér, enda er nú tími útilega og Heið-
merkurferöa. Þeim sem ekki hafa mótspilara er því bent á
að sjálf er höndin hollust, auk þess sem langt má komast á
hversdagslegri athöfnum. Þannig má ná allt að 50 prósent
fullnægingu við kröftugan hnerra og 20 prósent við góöar
hægðir. Ekki þýðir þó að hnerra vel í tvígang til þess að ööl-
ast alsælu. En aftur að könnuninni bresku. Aðeins 13 pró-
sent kvenna fá það í hvert skipti en ríflega helmingur fær
það nærri því alltaf. Tíunda hver kona fær það aldrei og
sami hópur fær það sjaldan. Enda kemur í Ijós að aöeins
helmingur kvenna nýtir sér aldrei leikhæfileika sina til þess
að gera sér upp fullnægingu og 10 prósent þeirra gera það
mjög oft. í Ijós kermur aö yfir helmingi þeirra er nokk sama
þótt fullnægingin hellist ekki yfir þær en aðeins fjórðungi
karla finnst karlmennsku þeirra ekki misboðið ef frúin fær
það ekki. Karlar keppast við að komast yfir konur þótt þriðj-
ungur þeirra hafi náö fimm eöa færri. Aðeins 13 prósent
þeirra fá yfir 30 konur á lífsleiðinni. Það sem bæði kynin
telja ósættanlegt við rekkjunaut eru illa lyktandi líkamar og
kynfæri, andfýla og offita. Áhugaverðast er kynlíf utan dyra
en því næst koma samræður um kynferðislegar fantasíur,
kynæsandi klæönaöur og áhorf á bláar myndir. Um og yfir
10 prósent vilja mikiö ofbeldi í kynlífinu. Kynlíf er hreyfiafl
sögunnar og eina leiöin út úr kreppunni er fullnæging —
sem oftast.
pressan 27
fynrlbf
(RiKiKojim
amglýsir eftir sLernumtilegiuim myiMlum. al lóJUlo og lyrirlöæmm,
imgum sem óJjelUktmmo Greicísla lyrir Werja lairta mymcl og au
Jiess verMaum fyrir fimrn Ikestiui mymcliriiaro
Semdií mymdir med mafmi, lieimilisfamgi og síma merkí
Ljósmymdir66 til PK.ESSUNNAR, Nýkýlavegi \4, 200 Kó
f