Pressan - 22.07.1993, Blaðsíða 33

Pressan - 22.07.1993, Blaðsíða 33
PRESSAN 33 S K 1 LA BOÐ Átta núll fyrir þig Með þjónustunúmerum Pósts og síma býðst símnotendum enn meiri þjónusta auk sjálfvirkrar síma- og farsímaþjónustu. Þú getur fengið aðstoð við langlínusímtöl í 02 getur þú pantað símtöl innanlands og komið á símafundi á landsvísu þar sem allt að 12 manns geta verið með, hvar sem er á landinu. í 02 er líka vakningarþjónusta fyrir þá sem eru ekki tengdir stafrænum símstöðvum. í 02 er opið allan sólarhringinn. Hvaða símanúmer viltu vita? Þú færð upplýsingar um síma-, farsfma- og faxnúmer í 03 og einnig nöfn og heimilisföng þeirra sem eru með skráðan síma. í 03 er opið frá kl. 08-22 alla daga. Hvað er rétt klukka? Þú getur fengið að vita hvað klukkan er, nákvæmalega, f 04. Það er opið allan sólarhringinn. Er síminn bilaður? í 05 er tekið á móti bilanatilkynningum allan sólarhringinn fyrir 91-svæðið. Upplýsingar um bilanaþjónustu annarra svæða finnur þú á upphafssfðu viðkomandi svæða í símaskránni. Viltu senda skeyti? ( 06 er móttaka símskeyta og þar er hægt að senda almenn skeyti, hraðskeyti til þéttbýlissvæða innanlands, skeyti til skipa, heillaskeyti eða samúðarskeyti. Opið allan sólarhringinn. Síminn sér um telexþjónustu fyrir þig ( 07 er þjónusta fyrir þá símnotendur, einstaklinga eða fyrirtæki, sem þurfa að senda og taka á móti telexi. Til að þú getir nýtt þér þessa þjónustu þarftu að gerast áskrifandi að símatelexþjónustu Pósts og síma og þá færðu sérstakt telexnúmer og símnefni. Þú getur hringt allan sólarhringinn í 07 og lesið inn texta sem á að koma til viðtakanda. Upplýsingar um símskeyti, telex og telexnúmer færðu í síma 689011. \ \ Vantar þig upplýsingar um símanúmer í útlöndum? f 08 færðu upplýsingar um erlend sfma- og faxnúmer allan sólarhringinn. Starfsfólk 08 veit meira en þig grunar um símanúmer erlendis. Viltu panta símtal til útlanda? Þú getur hringt í 09 og pantað símtöl til útlanda allan sólarhringinn og einnig komið á símafundum við útlönd. PÖSTUR QG StMI GOTT FÓLK / SÍA

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.