Pressan - 22.07.1993, Blaðsíða 26

Pressan - 22.07.1993, Blaðsíða 26
GALDRAR Fimmtudagurínn 22. júlí 1993 PRESSAN 26 Myndlist • Norræni textilþríær- ingurinn, sá sjötti í röð- inni, verður opnaður að Kjarvalsstöðum á laugar- dag. Sýnd eru 52 verk eftir 36 listamennn frá fimm Norðurlöndum. Full- trúi íslands á sýningunni er Guðrún Gunnarsdóttir. • Stefán frá Möðrudal sýnir verk sín á Sólon ís- landus. • Gunnar Magnús Andrésson hefur opnað sýningu á verkum sínum í neðri sölum Nýlista- safnsins. Opið daglega kl. 14-18. • Victor Guðmundur Cilia sýnir myndraðir í efri sölum Nýlistasafns- ins. Opið daglega kl. 14- 18. • Ríkey sýnir verk sín í Perlunni. • Sonia Renard & Vol- ker Schönwart sýna málverk og grafíkmyndir í Portinu; sýningin nefnist Flóð og fjara. • Werner Möller, mynd- listarmaðurinn þýski, sýn- ir málverk, skúlptúra, glerverk og textílverk í Hafnarborg. • Craig Stevens hefur opnað sýningu á máluð- um Ijósmyndum í kaffi- stofu Hafnarborgar. • Alvar Aalto. Afmælis- sýning Norræna hússins á verkum Alvars Aalto. • Elín Jakobsdóttir, skosk-íslensk listakona, sýnir málverk og teikn- ingar í húsakynnum Menningarstofnunar Bandaríkjanna. Opið alla virka daga kl. 8.30-17.45. • Steinunn Marteins- dóttir sýnir leirverk, lág- myndir og nytjalist á neðri hæð Hulduhóla, Mosfellsbæ. Opið dag- lega kl. 14-19. • Bragi Ásgeirsson sýnir ný málverk á efri hæð Hulduhóla, Mos- fellsbæ. Opið daglega kl. 14-19. • Sigríður Ásgeirsdótt- ir sýnir steint gler á efri hæð Hulduhóla, Mos- fellsbæ. Opið daglega kl. 14-19. • Olga Soffía Berg- mann sýnir eggtempera- málverk á efri hæð Hulduhóla, Mosfellsbæ. Opið daglega kl. 14-19. • Katrín Sigurðardóttir sýnir rýmisverk, saman- sett úr teikningum og þrykki, í Galleríi Sævars Karls. • Tryggvi Ólafsson, listmálari í Kaupmanna- höfn, sýnir nýjar og gaml- ar myndir á Mokka. • Markús ívarsson. Sýning á verkum ýmissa íslenskra listamanna, úr safni Markúsar ívarsson- ar, í Listasafni íslands. Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18. • Carlo Scarpa, lista- maðurinn og arkitektinn, er höfundur verkanna sem nú eru til sýnis í Ás- mundarsal. • Bragi Ólafsson heldur sýningu á Ijóðum sínum að Kjarvalsstöðum. Opið daglega kl. 10-18. „Mér finnst gaman þegar mér tekst að segja mildð í stuttu máli,“ segir Elísabet Jökulsdóttir um litlu sögurnar í nýútkominnibók sinni Galdrabók Ellu Stínu. Ör- sögur hefur þetta form verið kallað, en skáldkonunni fell- ur heitið illa: „Ég myndi ffekar vilja kalla þetta örlitl- arsögur eða mínútusögur." Elísabet hefur áður sent ffá sér ljóðabók og bók með smásögum. Hún segist ekki setjast niður með það í huga að skrifa í ákveðnu formi og neitar því alfarið að mínútusögurnar séu einhverj- ar tískusögur eins og blaða- maður ýjar að. „Kristín Ómarsdóttir gaf út svona sögur í fyrra, að öðru leyti hef ég ekki orðið vör við mikið af mínútu- sögum. Formið er eldgamalt því Kafka skrifaði mikið svona sögur.“ Elísabet las upp úr Galdrabók Ellu Stínu á Hressó í s í ð - ustu viku og vöktu sögurnar kátínu við- staddra. Sumar voru kaldhæðnislegar, en höfúndurinn segir það ekki vera meðvit- að og ennþá síður einkenna allar sögurn- ar. j,Nokkrar eru hugljúfar, en vonandi ekkert væmnar. Aðrar eru kvikyndislegar. Annars var stemmning þyngri þarna á Hressó en þegar ég las upp á Sólon um daginn. Þá varð ég að hætta að lesa því það var hlegið svo mikið og klappað.“ Hún neitar því alfarið að það sé erfitt að iesa eigin texta fyrir ffaman hóp af fólki. „Mér finnst gaman að lesa upp. Fæ eigin- lega kikk út úr því. Ætli ég sé ekki haldin einhverskonar sýniþörf,“ segir skáldkon- an sem selur og gefúr út bækurnar sínar sjálf. rólegum síðsumarkvöldum í bókabúö Máls og menn- ingar viö Laugaveginn. Mál og menning hefur opiö til klukkan tíu á kvöldin alla daga vikunnar í sumar og hyggst jafnvel halda því áfram í vetur. Þaö er hægt aö koma þama viö á leiðinni heim úr vinnunni og stelast í útlensk tlmarit svo makinn geti eldað kvöldmatinn óá- reittur. Eöa skreppa í erlendu deildina eftir fréttir og finna sér góöa vasabrotsbók, þegar Ijóst er aö dag- skrár sjónvarpsstöðvanna ætla aö veröa hrútleiöinleg- ar eitt kvöldiö enn. Okkur finnst líka miklu meira vit í því aö glugga í bók en glápa á kassann. Þaö er upp- lagt að lesa spennandi sakamálasögu á meðan veriö er aö melta grillsteikina í garöstól úti í gróöurhúsi. Við mælum með MYNDUST Heimsósómi Errós seti kemur hvergi fyrir í myndinni, enda myndi það spilla fyrir táknrænni merk- ingu myndarinnar, því það er ekki Bush og fjölþjóðaherinn sem eru að ráðast á Saddam, heldur vestræn siðmenning, síðkapítalísk neyslumenning, sem er að sýna menningarleg- um aðskilnaðarsinnum í tvo heimana. Til vinstri eru her- flugvélar að úða ilmvötnun- um Obsession og Passion yfir eyðimörkina, til hægri rignir sápustykkjum og svitalykta- reyði úr sprengiflugvélum yfir skelfingu lostinn landslýð. Bryndreki í líki gríðarstórs sjónvarpsskerms varpar mynd af æpandi hermanni. Saddam og írakar standa ffammi fýrir menningarlegu alræði Vestur- landa í skjóii takmarkalauss auðs, sem svífast einskis til að tryggja viðskiptahagsmuni undir yfirskini „mannúðar- sjónarmiða". í miðmynd er Saddam lagður á vogarskálar réttvís- innar. Þar stendur prakkarinn Saddam, otar berum rassin- um í átt að áhorfandanum, réttir upp ályktun Sameinuðu Þjóðanna og segir: „þrátt fyrir viðskiptabann hef ég nóg af klósettpappír." En í sekt sinni vegur hann ekki þyngra en kanínan sem situr á hinni vogarskálinni, varla meira en saklaust smápeð sem Vestur- lönd nota til að sannfæra al- heim um yfirburði sína og réttmæti valdbeitingar. 1 einu af fjölmörgum inn- skotum er amerískt þjóðfélag persónugert með trúði sem Erró á Listasafni íslands Þessa dagana efnir Listasafh íslands til nokkurs konar for- sýningar á verkum Errós, áður en mönnum gefst tækifæri til að virða þau fyrir sér í allri sinni dýrð í fyrirhugaðri lista- miðstöð að Korpúlfsstöðum. í stærsta sal safnsins er úrval sem spannar feril listamanns- ins, en aðalverkið er mikill op- us eftir Erró, „Gulf War“ frá 1991, sem Listasafnið keypti í fyrra. Það hvarflaði að mér þegar ég skoðaði þessa mynd að þrátt fyrir allt tal um hvernig og úr hverju Erró býr til myndir sínar, hvað hann er mikill vinnuþjarkur, frægur í París, vanmetinn hér og sjarmerandi perónuleiki, þá er sáralítið sagt um hvað hann er að fara með myndum sínum. En hér gefst upplagt tækifæri, Erró er í ham, viðfangsefnið sjáift Persaflóastríðið og hon- um er mikið niðri fýrir. Verkið hvolfist yfir mann eins og drekkhlaðin allegóría ffá barrokktímabilinu. Það er gífúrlega stórt, í þremur hlut- um, hver 260 x 200 cm á stærð og hver sentímetri er nýttur til hins ýtrasta. Tvö stikkorð lýsa yfirhragði mynd- arinnar, þótt þau séu yfirleitt ekki notuð um myndlist, hraði og hávaði. Hver einasti hlutur í myndinni virðist á fleygiferð. Sá vani Errós að sér, þökk sé þeirri kapítalísku menningu sem á upptök sín á Vesturlöndum. Ailt veruleika- skyn er orðið brenglað af gengdarlausri myndmiðlun í öllum formum. Það er óþarfi að spyrja að því hvort teikni- rnyndir afskræmi heiminn, ef heimurinn líkist æ meir fárán- legri hasarmyndasögu. „Gulf War“ hangir eins og þrískipt altaristafla á heilum vegg í Listasafninu. Sú heims- mynd sem hún varpar til okk- ar er ófögur, enda virðist Erró hafa sérstakt dálæti á því að snúa öllu á haus og kippa fót- unum undan því sem mönn- um er kært eða heilagt. Tónn- inn í myndum hans er stork- andi: „Eru þið búin að fá nóg eða viljið þið sjá meira?“ GUNNAR J. ÁRNASON Hluti myndarinnar „Gulf War“ á vinnustofu listamannsins. segir „kick ass“ og horfir heill- aður á sjálfan sig afbakaðan í spéspeglum ýmissa stofnana þjóðfélagsins. Sundrað Sovét- veldi er forneskjuleg norn í ioftbelgskörfu sem rússneska mafían heldur í gíslingu, en kemur hvergi við sögu í upp- gjörinu. Gósenland vestrænn- ar siðmenningar er staður þar sem maður er að kafna úr ilmvatnsstybbu, sefúr ekki fýr- ir hávaða og sér ekki meira samhengi í hiutunum en þeg- ar skipt er af einni kabalrás yf- ir á aðra. Teiknimyndir hasarblað- anna eru hýperbólískar í ýkj- um sínum, sterkasti maður- inn bjargar á síðustu stundu öllum heiminum undan þeim versta, og það leynir sér aidrei hver vondi maðurinn er. En í teiknimyndum Errós eru eng- in skil milli hins góða og illa. Ást og hatur eru hvergi að finna, aðeins kynlíf og ofbeldi, sem er ekki stillt upp sem andstæðum heldur ffamleng- ingu á hvort öðru. ímyndum kynlífs og ofbeldis er iðulega stillt hlið við hlið, eins og sjá má af öðrum myndum í saln- um. Ég er ekki frá því að Erró líti á myndir sem ákveðið form ofbeldis. „Gulf War“ er árásargjörn mynd. Jafnvel áhorfandinn er tekinn með áhlaupi. í vinstri hlutanum steypir öskrandi stríðsmaður sér út úr myndinni og grýtir handsprengju beint út í sal. En teiknimyndaformið er ekki bara stílbragð, heldur fellur algjörlega að anda myndarinnar. I teiknimynd- um Errós er heimurinn orð- inn að skrípamynd af sjálfúm „Amerískt þjóðfé- lag er persónugert með trúði sem segir „kick assu og horfir heillaður á sjálfar, sig afbakaðan spéspeglum ýmu stofnana þjóðfé- lagsins skeyta saman auðskiljanlegum myndum eða, myndbrotum án innra samhengis veldur því að augað flöktir um myndina án þess að staðnæmast á föst- um viðmiðunarpunkti. Skark- alinn sem myndast þegar alls óskyldu og ósamstæðu mynd- efni er hrúgað saman getur verið mjög fráhrindandi. Það er eins og að hlusta á klassík og þungarokk bæði í einu, þau ráðast hvort á annað og útiloka að hægt sé að hlusta, fylgjast með og njóta. Hins vegar bregður svo við í mynd- inni af Flóabardaga að hann færir allt í stíl teiknimynda og hnýtir efnið betur saman en algengt er í þeim myndum sem sést hafa hér á landi. Allsheijar skálmöid ríkir og hvergi ber á fastan punkt Það er eftirtektarvert að Bush for-

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.