Pressan - 22.07.1993, Blaðsíða 27

Pressan - 22.07.1993, Blaðsíða 27
Fimmtudagurinn 22. júlí 1993 íl/lenningarlegt hóruhverfi við höfnina Nú eru þeir búnir að fjarlægja rónana og Ingólf Arnarsson, leyfa akstur um göngugötuna og eru að byggja rándýrt torg sem er ekki einu sinni yfirbyggt. Betlarar, götu- spilarar og gleðikonur mega ekki stunda iðju sína og verðlagið á áfengi er slíkt að fjöldi vínbúlla er ótrúlegur. 1 útlöndum er yfirleitt sérstök stemmning við gamla mið- bæinn sem ósjaldan myndast við gamla hafnarsvæðið þar má sjá út- igangsmenn, listamenn, söguleg hús en umfram allt blómlegt mannlíf. Reykjavík hefur alla burði til að mynda menningarlegt hóru- hverfum hverfis gömlu höfnina. | Áður lá meginás miðbæjarins frá Lækjatorgi og upp á Hlemm. Nú liggur meginásinn ffá nýuppgerðri Tjörninni, fram hjá Álþingi og Dómkirkjunni, yfir Austurvöll og Borgartorg og niður á höfn. Þar I hafa skotið rótum kaffihús, veit- ingahús, pöbbar, gallerí, ferða- mannaþjónusta, tívolí og Borgar- bókasafnið er í leiðinni. En betur má ef duga skal. Líkamsiðnaður- inn hefur ekki hafið innreið sína. Götulistamenn eru á bannlista lögreglunnar eins og útigangsmenn og gleðikonur. Mannlífið yrði óneitanlega blómlegra ef þessara þjóðfélagshópa nyti við. Kynlífs- búðimar eru ókomnar í Kvosina og leita þarf upp á Túngötu vilji maður fá eitthvað fyrir sinn snúð. Enn eru leiðindaverslanir í Kvos- inni. Eigendur þeirra eru sínöldr- andi og hóta alvarlegir í bragði að fara úr Kvosinni ef bílar fá ekki sinn heiðursess. Vonandi verða hótanir þeirra að veruleika. Fyrst Jóhanna stóð loks við sínar hótanir hlýtur að enda með því að verslanirnar fari. Verst er þó að endurbygging Borg- artorgsins gerir ekki ráð fyrir ís- lenskum aðstæðum og óblíðum veðurguðum. Ekki er gert ráð fyrir yfirbyggingu eða öðru skjóli fyrir veðri og vindum og því varla hægt að búast við rismiklu mannlífi. Það verður að segja veðurguðunum stríð á hendur og opna Kvosina fyr- ir litríkum þjóðfélagshópum. BÓKMENNTIR PRESSAN 27 Hvað sækir fólk til bókasafna? Svar: Ast, spennu, slúður — og Vigdísi Grímsdóttur Hrafn Haröarson bókavöröur Bókasafns Kópavogs hefur undanfarin ár haldiö lista yfir þær bækur sem mest eftir- spurn er eftir á því safni. Listar Hrafns koma hér á eftir. Þeir miðaö viö útlán ársins 1992. Rétt er þó aö taka fram aö jólabækur þess árs eru ekki á þeim iista, enda eru þær rétt aö komast í gagniö um það bil sem árinu er að Ijúka. Þann fyrirvara verður að setja að mismunandi er hversu mörg eintök eru til af einstökum verkum. Það ætti þó ekki að gera þessa lista marklausa. Venja er að kaupa tvö eintök af hverju verki (og eitt eintak af ljóðabókum). Ef stefnir í miklar vinsældir ákveðinna bóka eru keypt fleiri eintök til að anna effirspurn. Listamir ættu að gefa nokkra mynd af vinsældum bóka og höfunda. Ást og spenna og meiri ást og spenna Á lista yfir þær fimm hundruð skáldsögur sem mest eftirspurn er eftir er Fríða Á. Sigurðardóttir efst á blaði með hina margverðlaunuðu Meðan nóttin líður. Sá íslenski höf- Fríða Á Sigurðardóttir Á vinsælustu íslensku skáldsöguna. undur sem næst henni kemur er Ólafur Jóhann Ólafsson sem er í tuttugasta sæti. Fjörtíu íslenskar skáldsögur (og bamabækur) finnast á lista þeirra fimm hundruð bóka sem mestra vinsælda njóta. Hér er tekin sú stefna að skipta skáldsagnalistanum í tvennt. Fyrst birtist hér listi yfir vinsælustu er- lendu skáldsögurnar. Hrafn Harðarson sagði að síð- ustu árin hefði sú breyting orðið á listanum að Theresa Charles, Bar- bara Cartland og I.B. Cavling hefðu vikið fyrir spennusagnahöfundum á borð við Sidney Sheldon og Mary Higgins Clark. Mary Higgins Clark, Nora Ro- berts og Sidney Sheldon eiga hvert um sig fimm skáldsögur á lista yfir þær hundrað eftirsóttustu. Spennu- og ástarsagnarhöfundar einoka list- ann. Ef hafin er leit að rithöfundi sem telja má í heimsklassa (og þá sýnd sú hógværð að telja engan ís- lenskan höfund nema Nóbelsskáld- ið þar á meðal) þá finnst slíkur höf- undur fyrst í 141. sæti. Þar er suður- ameríski höfundurinn Mario Varg- as Llosa með hina bráðsnjöllu Pantaljón og sérþjónustan. Nadine Gordimer er með Sögu sonar míns í 296. sæti. Doris Lessing á Minning- ar einnar sem effir lifði í 298. sæti og Sumarið fýrir myrkur í 301. sæti. Ódauðleiki hins óviðjafnanlega Mílans Kundera situr í 328. sæti. Birgitta, Fríöa og Vigdís vinsælastar Hér á árum áður trónaði Ingi- björg Sigurðardóttir á toppnum, en vék síðan fyrir Snjólaugu Bragadótt- ur. Nú em gullár Snjólaugar að baki og tími Birgittu Halldórsdóttur runninn upp. Birgitta á fjórar af þrjátíu vinsælustu íslensku skáld- sögunum. Vigdís Grímsdóttir er greinilega höfundur sem tekið er effir. Bókin sem allir hafa skoðun á Ég heiti fs- björg er í þriðja sæti yfir vinsælustu íslensku skáldsögurnar og Kalda- Ijósin ljúfu í sjötta sæti. Báðar eru nokkurra ára gamlar. Fríða Sigurðardóttir er með bók sína Meðan nóttin líður í fyrsta sæti. Allt það lof og prís sem Fríða Á. Sigurðardóttir hlaut fyrir bókina hefur vakið athygli á eldri verkum hennar. Skáldsaga hennar Eins og hafið er í 21. sæti á íslenska listan- um og smásagnasafnið Sólin og skugginn í því 27. Guðmundur Andri Thorsson hefur einnig slegið í gegn með skáldsögum sínum. fs- lenski draumurinn er í 11. sæti yfir effirsóttustu íslensku skáldsögumar og þrátt fyrir að nokkuð sé um liðið síðar Mín káta angist kom út þá er hún í 28. sæti. Hér á eftir koma íslensku skáld- sögurnar í vinsældaröð. f sviga er sett það sæti sem bókin er í á sam- eiginlegum lista yfir erlendar og ís- lenskar skáldsögur. Pétur Gunnarsson og Steinunn Sigurðardóttir eru í 24.-25. sæti með Hversdagshöllina og Tíma- þjófinn (382.-383. á heildarlistan- 1-2) Susan Gayle: Heitt í koiunum Mary Higgins Ciark: Hvar eru börnin? 3) Penny Jordan: Ást sem endurgjald 4) Catherine Spencer: Tvísýn ást 5) Mary Higgins Clark: í skugga skelfingar 6-7) Jenny Ashe: Töfrar karabíska hafsins Sarah Temple: Rókin Qölskyidubönd 8-10) Sidney Sheldon: Vindmyilur guðanna Nora Roberts: Næturvaktin Nora Roberts: Togstreíta 1) Fríöa Á. Siguröardóttír: Meðan nóttln líöur (1) 2) Ólafur Jóhann Ólafsson: Fyrirgefning syndanna (20) 3) Vigdís Grímsdóttir: Ég heiti ísbjörg, ég er Ijón (29) 4) Ingibjörg Siguröardóttir: Glettni örlaganna (46) 5) Guöbergur Bergsson: Svanurinn (78) 6) Vigdís Grímsdóttir: Kaldaljós (122) 7-8) Birgitta H. Halldórsdóttir: Klækir kamelljónsins (165-166) Einar Kárason: Fyrirheitna landiö (165-166) 9) Birgitta H. Halldórsdóttir: Sekur flýr, þó enginn elti (178) 10) Leó E. Löve: Ofurefli (215) 11) Einar Már Guömundsson: Rauöir dagar (219) 12) Guömundur Andri Thorsson: íslenski draumurinn (231) 13) Egill Egilsson: Spellvirkjar (237) 14) Birgitta Halldórsdóttir: Myrkraverk í miöbænum (247) 15) Páll Pálsson: Á hjólum (281) 16-17) lllugl Jökulsson: Fógetavald (292-293) Leó E. Löve: Fómarpeð (292-293) 18) Súsanna Svavarsdóttir: í miöjum draumi (340) 19-21) Jón Óttar Ragnarsson: Rmmtánda flölskyldan (244-246) Margrét Sölvadóttir: Vinviður ástarinnar (244-246) Þorvaröur Helgason: Rýtur brúöa í flæðarmáli (244-246) Ljóðabækur: 1) Vigdís Grímsdóttir: Minningabók 2) Steinn Steinarr: Kvæöasafn og greinar 3) Gegnum Ijóðmúrinn 4) Ragnar Böövarsson: Grátt gaman 5-6) Halldór Laxness: Kvæöakver Sveinbjörn I. Baldvinsson: Felustaður tímans 7-8) Sveinbjöm Beinteínsson: Borgflröingaljóö Vísnabók Káins 9-11) Sigurgeir Gunnarsson: Á bylgjum ástarinnar Sjón: Ég man ekki eitthvað um skýin Þórarinn Eldjárn: Ydd VlGDÍS GRÍMSDÓTTIR Rífin út á bókasöfnum eins og Mary Higgins Clark og vinsælli en Steinn Steinarr. um). Síðasta orðið, skáldsaga Stein- unnar sem kom út árið 1990 er ekki í hópi þeirra fimm hundruð skáld- sagna sem vinsælastar eru. Nóbelsskáldið Halldór Laxness er í 36 sæti (493. á heilarlistanum) með Sjálfstætt fólk og Brekkukots- annáll er í því 40.- 42. ásamt Ridd- urum Hringstigans og Gulleyju Ein- ars Kárasonar. Engin bók effir Thor Vilhjálmsson, Svövu Jakobsdóttur eða Jakobínu Sigurðardótfur er á lista yfir fimm hundruð eftirsótt- ustu bækurnar. Og þeir gömlu og góðu (Gunnar Gunnarsson, Bene- dikt Gröndal, Jón Trausti o.s.frv.) eru ekki í gangi svo merkjanlegt sé. Vigdís vinsælli en Steinn Vigdís Grímsdóttir hefur gefið út tvær ljóðabækur. Minningabók hennar er vinsælust ljóðabóka og Lendar elskhugans er í þrettánda sæti. Þórarinn Eldjárn á fimm ljóða- bækur á lista yfir þær sextíu sem mest eftirspurn er effir: Ydd, Ort, Disneyrímur, Hin háfleyga mold- varpa og Litarím. Slúðrið blífur Ólína Þorvarðardóttir trónar á toppnum með bók sína um Bryn- dísi Schram, sú bók kom út árið 1988 og ekkert lát virðist vera á vin- sældum hennar. Hin krassandi ævi- saga sendiherrafrúarinnar nýtur einnig mikilla vinsælda Kolbrún Bergþórsdóttir Ólína Þorvarðardóttir Bókin hennar um Bryndísi kitlar enn, fimm árum eftir að hún kom út. 1) Ólina Þorvaröardóttir: Brynís 2) Heba Jónsdóttír: Sendiherrafrúin segir frá 3) Inga Huld Hákonar dóttir: Ég og lífiö (Guörún Ásmundsdóttlr) 4) Silja Aðalsteinsdóttir: Bubbl 5) Hoffer, William: Aldrei aldrei án dóttur minnar 6) Jón Óttar Ragnarsson: Á bak víö ævintýrið 7) Þórunn Valdimars dóttir: Sól í Noröurmýri 8) Garöar Sverrisson: Kristján Jóhannsson 9) Ragnheiður Davíös dóttir: Lífsbók Laufeyjar 10) Georlj Pryakhin: Ég vona (Raisa Gorbatsjov)

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.