Pressan - 22.07.1993, Blaðsíða 28
SKILABOÐ FYRIR FULLORÐNA
28 PRESSAN
Fimmtudagurinn 22. júlí 1993
BÓKMENNTIR
Enid Blyton fyrir fullorðna
A. J. Quinnell:
Blóðfjötrar
Almenna bókafélagið 1993
★★★
Blóðfjötrar er fjórða bók A.
J. Quinnell sem kemur út hér
á landi. Quinnell er höfund-
arnafn karls eða konu sem,
þrátt fyrir gífurlegar vinsældir
um heim allan, vill ekki
ljóstra upp réttu nafni sínu.
Líklegasta skýringin á þessari
nafnleynd virðist vera með-
fædd hlédrægni höfundarins,
víst er að hann þarf ekki að
skammast sín fyrir vöru sína
því hér er á ferð afar vönduð,
læsileg og skemmtileg
spennubók.
Söguþráðurinn er í stuttu
máli á þessa leið:
Kirsty Haywood er fertug
ekkja og býr og New York.
Dag einn berst henni tilkynn-
ing um að einkasonur hennar
hafi fallið út af skipi við Aff-
íkustrendur og drukknað.
Kirsty vill ekki trúa því að
sonur sinn sé látinn og heldur
á ókunnar slóðir í leit að hon-
um. Á ferð sinni kynnist hún
hinum ensk-indverska Ram-
ish, kanadamanninum Cady
og Lani, ungri stúlku sem er
kínversk í aðra ætt og Sú-
mötrubúi í hina. Þessir félagar
Kirsty fylgja henni í hættu-
legri leit að syninum.
Það sem gerir þessa bók
fyrst og fremst að afar aðlað-
andi og notalegri lesningu eru
hinar litríku og mjög svo geð-
felldu aðalpersónur. Það er
sérlega ánægja að lesa
spennubók þar sem svo mikil
alúð er lögð í persónusköpun.
Þann fyrirvara verður að hafa
á þesu lofi að illmenni bókar-
innar er heldur einlitur hópur
karlmanna með „illúðlegt,
grimmúðugt snjáldur“. Þeir
glotta við tönn og hvæsa setn-
ingar á borð við: „Nú er þessu
lokið hjá þér eftir fáeinar
mínútur. Síðan fleygi ég þér
fram af hömrunum og há-
karlarnir fá sinn skerf, seint
og um síðir.“
Það segir sig sjálft að les-
andin eyðir ekki óþarfa sym-
patíu í að harma örlög slíks
illþýðis.
Höfundur leggur mesta
rækt við að lýsa Kirsty, hinni
geðþekku aðalpersónu bókar-
innar, og lýsingar á samskipt-
um hennar við ástmann sinn
í New York eru svo trúverð-
ugar og vel gerðar að um tíma
var ég þess fullviss að einungis
kona gæti hafa skrifað þær. Ef
Quinnell er karlmaður þá tek
ég ofan fyrir lýsingu hans á
einleik elskhugans í samfára-
senu snemma í bókinni.
Quinnell skapar sérlega
skemmtilegt samspil í sam-
skiptum aðalpersónanna
fjögurra. Persónurnar eru fé-
lagar og vinir á ekki ósvipað-
an hátt og við lásum um í
bókum Enid Blyton hér á ár-
um áður, nema hvað nú eru
þær eldri og búnar að koma
sér upp kynhvöt sem þær
reyna þó að hafa kurteislegt
taumhald á.
Bókin er skemmtileg
blanda af gamaldags sóma-
kærri rómantík og hraðri
spennu. Það má lesa út úr
þessu verki ákveðna róman-
tíska hneigð höfundar, ævin-
týraþrá og staðfasta trú á mátt
hins góða. Þetta er spennu-
saga sem er ekki fúllkomlega
laus við móraliseringu, en það
er ekki galli á verkinu, ljær því
fremur viðkvæmnislegan en
um leið óvenjulegan blæ.
Sérlega ánægjuleg lesning,
ein fárra spennubóka sem
segja má að sé geðfelld og
notaleg. Bók sem fáir leggja
frá sér án þess að ljúka við
hana.
Björn Jónsson skólastjóri
þýddi bókina og þýðingin er
að mestu laus við hnökra.
ti btoxWna »v
SSíESS-
F/s Origi»a*
2K* OCH OaittOUA
ÍíitiOÍ4S í»f váá tíWAO’J' í*
ittvMilNWm Oöri ftfe '*£ 2*$** zl £;
riilð U Ubr. hentí* cfrt *•>-.
jrfim&ken íwwíf i'&rt 1
ck nb hán WW titiw > K
y-'J1
í?k ftö
trtfl vSffYWi U* SAatV,.
*oS#
egar þú grillar, steikir eða marinerar
skaltu nota Caj P.’s grill og steikarolíuna.
Caj P.’s inniheldur 39 ólíkar kryddtegund-
ir og þegar þú finnur kryddlyktina kemstu
að raun um, að Caj P.’s grill- og steikarol-
ían er allt sem þarf til að gera steikina
bragðbetri og bragðmeiri.
UUJ
Jarlínn
JARLINN notar
eingöngu Caj P.’s grill-
olíu á sínar landsffægu
steikur.
Það eru 39 kryddtegundir í
Caj P. s grill- og steikarolíunni
Drykkjumaður PRESS-
UNNAR er loksins stiginn
upp úr sumarfríi og ann-
ríkið hafið á ný. Því er þó
ekki að leyna að í því
felst ákveðinn léttir að
snúa aftur til starfa og
drekka á tímakaupi að
nýju. Vissulega er gaman
að njóta íslenskrar nátt-
úru með sínum nánustu,
sötra eðalvín og leika
krokkett, en þegar til
lengdar lætur fer glans-
inn af rauöbrennsanum,
að ekki sé minnst á krok-
kettið. Fyrsta verkefni
drykkjumannsins var að
stinga sér inn á sollinn í
Ingólfskaffi, þar sem að-
dáendaklúbbur Sveins
Andra Sveinssonar hittist
til þess að sulla í sig
spírabollu og sitthverju
fleira. Sá sem þetta ritar
kaus þó frekar að versla
við barinn en kynna sér
bolluna, enda barstúlk-
urnar á Ingólfskaffi
sennilegast þær glæsi-
legustu í bænum. Það
setti hins vegar óneitan-
lega strik í reikninginn að
í portinu að baki Alþýðu-
húsinu átti að vera garð-
stemmning, sem einhver
snillingurinn hafði ákveð-
ið að skyldi náö með því
að mála gólfið grænt. Því
miður hafði málningin
ekki náð að þorna og
hafði aukin heldur leyst
upp tjöruna í gólfinu,
þannig að skartklæddir
gestirnir voru eins og
malbikunarvinnuflokkur
til fótanna, þótt í lakk-
skóm væru.
Við svo búið afréð
drykkjumaðurinn að hann
þyldi hinn vonda félags-
skap í þessu pokursins
gaphúsi ekki öllu lengur
og tók þarnæstu flugvél
til Vestmannaeyja. Míní-
barinn á Hótel Bræðra-
borg reyndist í samræmi
við væntingar og var því
haldið að kanna aðra
bari Heimaeyjar. Drykkju-
manninum hafði skilist
að heitasti staðurinn í
bænum væri Skútinn og
þeysti því fyrst þangað.
Skútinn er huggulegasti
staður, en stemmningin
var frekar elliheimilisleg
framan af. Hins vegar var
baTinn ágætlega búinn
og þjónustan fín. Þrátt
fyrir að ein og ein drottn-
ing hefði slæðst inn á
staðinn þegar á leið
kvöldið var Ijóst að taka
yrði hús á fleiri vertum í
Eyjum og varð Muninn
næstur fyrir valinu. Þar
var kynjahlutfallið eitt hið
hagstæöasta, sem bar-
rýnir man eftir og gaman
að vera. Barinn þar var
hins vegar ekkert sér-
staklega vel búinn, en
með öllum nauðsynjum.
Skemmtanalífið í Eyjum
er ágætt (ef undan er
skilin Bubba-eftirherman
á Skútanum) en það olli
þó vonbrigðum að áflog
voru hvergi sjáanleg,
sem vissulega er í ósam-
ræmi við þá Imynd sem
Árni Johnsen og fleiri
hafa skapað þessari höf-
uðverstöð landsins. En
þá verður líka að hafa í
huga að Árni er stakur
bindindismaður, svo það
er ekkert að marka.
IÞER
GRÍSAKÓTILETTUR
Ostakryddaðar
Marineraðar
Léttreyktar.kryddaðar
GRILLPYLSUR
Sœlkerapylsa með ostl
Smellpylsa , Knackwurst.
AT UR ÞESSARI
AUGLÝSINGU,
DHÖFN
SELFOSSI