Tíminn Sunnudagsblað - 08.04.1962, Síða 8

Tíminn Sunnudagsblað - 08.04.1962, Síða 8
Teigarhorn vlð Berufjörð. Þetta er að stofni til húsið, sem Weyvadt lét reisa. Fljótt rak þó að því, að Weyvadt yrði ekki einn um hituna á Djúpavogi. Danskur sjóliðsforingi, 0. C. Hammer, er hafði verið á herskipum hér við iand, stofnaði útgerðarfélag, sem bæði skyldi hafa með höndum fiskveiðar og hvalveiðar austan lands. Þegar fram liðu stundir, hvaif hann þó að mestu leyti að hákarlaveiðum, og lét hann gera út nokkrar hákarlaskútur frá Djúpavogi. Þar kom hann einnig á fót dálítilli verzlun við hlið hinnar gömlu dönsku selstöðuverzlunar Ör- ums & Wulffs, sem Weyvadt stýrði. Að sjálfsögðu hefur myndazt sam- keppni á milli verzlananna um hylli viðskiptavinanna, en þó verður ekki annað séð en sú samkeppni hafi verið háð án verulegrar beiskju, sem þó var ekki fátíð, þegar ný verzlun reis á legg, þar sem gamalgróinn kaup- maður hafði áður verið einráður. Starfsfólk verzlunar Hammers var í góðum metum á heimili Weyvadts og naut þar gestrisni og góðvildar. Lausakaupmenn lögðu leið sína til Djúpavogs á stundum, og á efri árum Weyvadts hófst verzlun á Papaósi, er svipti hann að mestu eða öllu við- skiptum við bændur sunnan Lónsheið ar. En gamla selstöðuverzlunin á l’júpavogi stóð traustari fótum en svo, að þetta knésetti hana. Þegar Hammer sjóliðsforingi gafst upp á i ákarlaveiðunum, keypti verzlun Ör- ums & Wulffs skipin og hélt útgerð- inni áfram. IV. Nú skulum við staldra við í ársbyrj- un 1872. Weyvadt var þá kominn hátt á sextugsaldur og hafði setið í bezta gengi á Djúpavogi í ríf þrjátíu ár. Soffía, kona hans, var orðin hálf- fimmtug, og hafði alið bónda sínum að minnsta kosti fjórtán börn. Tíu voru á lífi. Tvær systur, báðar um tví- tugt, voru við nám í Danmörku, Nikó- lína, sem var að læra ljósmyndatöku, og Súsanna, er var að læra ostagerð. Átta börn þeirra hjóna voru heima, Friðrika, sem komin var á þrítugs- aldur, Konráðína og Jóhann Pétur milli. fermingar og tvítugs, Andrea, Lovisa, Henríetta Amalía og Henkel Karl Valdimar á milli sjö ára aldurs og fermingar, og Jón Kjartan, sem var langyngstur, aðeins á öðru ári. Sonurinn, sem Weyvadt eignaðist forðum með ráðskonu sinni, Níels Emil, hafði stundað háskólanám Nikólína Weyvadt í Kaupmannahöfn og lokið þar lög- fræðiprófi. Hafði hann stundum á þessu skeiði komið til íslands, og að minnsta kosti dvalizt einn vetur á Djúpavogi. Það mun hafa þótt sögu- legt í hinum litla kaupstað og byggð- arlögunum í grennd við hann, að Níels Emil hafði tekið þátt í stríði Dana við Þjóðverja 1864, og í kaupmannshús- inu á Djúpavogi var til mynd af hon- um i herklæðum. Loks kom hann al- kominn heim sumarið 1870, og hafði síðan dvalizt til skiptis á Djúpavogi og Eskifirði, þar sem hann var í við- lögum skrifari sýslumannsins, Valdi- mars Kristjáns Olivaríusar. Vafalaust hefur oft verið glatt á hjalla í kaupmannshúsinu í stórum systkinahópi. Þennan vetur bar þó skugga yfir heimilið. Kíghósti hafði borizt til Austurlands og gerði þar nokkurn usla. Hann kom á hið barnmarga heimili Weyvadtshjónanna, og varð yngsta barninu, Jóni litla Kjartani, að aldurtila. Nú fór í hönd eitt hið blíðasta og fegursta sumar aldarinnar. Hafís, sem komið hafði að Norðurlandi á útmán- uðum, varð aldrei landfastur, og hann lónaði frá aftur, þegar kom fram á vorið. Frá fardögum til hausts var ó- slitin öndvegistíð um allt land. Á slíku sumri hefur Weyvadt haft ánægju af búskapnum í Teigarhomi. Elzta dóttir hans, Friðrika, mikil efn- isstúlka, var þar til umsjónar þetta sumar, og sum yngri barnanna voiu þar einnig, að minnsta kosti annað Súsanna Weyvadt 152 TÍMINN SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.