Tíminn Sunnudagsblað - 08.04.1962, Qupperneq 18
sem kurnu frá Búlandsnesi í Háls-
þinghá. Þeirra er að vísu aldrei getið
í kirkjubókum Háls í Hamarsfirði,
sjálfsagt haft stutta dvöl á Búlands-
nesi, komin um langan veg til Aust-
urlands.
Maðurinn hét Jón Grímsson, titl-
aður snikkari, sennilega si'gldur mað-
ur og forffamaður Hann var Ey-
firðingur, fæddu.r á Skógum í Vaðla-
þin.gi Foreldrar hans voru hjónin
Grímur Ólafsson og Þóra Magnús-
dóttir, Hann sleit barnsskónum í
Efstalandskoti, ólst þar upp í hópi
systkina. upofræddur í sínum kristin-
dó'tni af skáldinu á Bægisá.
Kona Jóns snikkara Grímssonar
var — Anna Matthildur ísfeld
Þeim fvlgdi suður í Lón lítil stúlka.
sjö ára gömu.l Hún hét Anna María
og var Guðmundsdóttir
— Anna Matthildur tók við hús-
stjórn á Stafafelli. Horfði svo fram
um hríð og fara engar .sögur af heim-
ilisháttum á prestssetrinu. Þau hjón-
in fá bezta vitnisburð hjá sáhtsorg
aranum. sögð vel að sér. hann siðað
ur maður, hún ráðvönd.
Eftir árið lauk ráðskonuhlutverki
Önnu Matthildar Þau hjón fengu
einhverjar grasnytjar til afnota og
búa á II býli á Stafafelli. Enda verið
nægilegt olnbogarými á jörðinni. Bú
rekstur séra Sveins mun hafa verið
smáfelld.ari heldur en gjörðist hjá
fyrirrennara hans á staðnum, sem
rak þar stórbú og hafði fjölda vinnm
hjúa.
Þau Jón snikkari og Anna Matthild
ur flytjast búferlum á næsta ári út
í Byggðarholt, hjáleigu frá Stafa-
felli, taka sig upp þaðan, fara í Stafa-
fell á ný. Jón reisir þeiim bæ þar í
túninu, kallar Garðakot.
En hér er til fárra nátta tjaldað.
Anna Matthildur mun hafa átt við
vamheilsu að stríða. Þegar yfir lýkur,
er hún í blóma aldurs, tæplega hálf-
fertug.
Hún andaðist í Garðaikoti á annan
dag jóla 1828.
Þeim hjónum varð eigi barna
auðið.
Skörnmu seinna var uppskrift og
virðing gerð í dánarbúinu. Bústofn-
inn er lítill, kemur engan veginn á
óvart, þó að hjáleigubóndi ætti að-
eins eina kú og nauðafáar hjölur —
og híbýli og búslóð væri um flest
fruimbýlingsle’g.
Lifandi peningur samkvæmt reg-
istrasíóninni:
1 kýr 9 vetra 14 rd.
1 kvíga kelfd 8 —
4 ær hver á 2 rd.
1 mark 8 — 4 mörk
10 lömb hvert á 2 mk 3 — 2 —
1 hestur 9 vetra 13 —
1 do. 20 v. tannlaus 3 —
1 trippi tvævett 3 —
Baðstofan í Garðakoti var í 3ur
stafngólfuim, á henni var einn gler-
gluggi með 4 rúðum; hurð fyrir bað-
stofunni með dyrastöfum.
Þetta mannvirki var virt á 7 rd.
eða hálft kýrverð.
Búr, hurð fyrir þvi, með skrá og
dyrastöfum virt á 1 rd. og 2 mörk.
Eldhúsið var með hurð og bæjardyr
með tveim hurðum; þil fyrir framan.
Snikkarinn á nokkuð af smíðatól-
um ýmiss konar; lágu þar veruleg verð
mæti. Alls nema eignir búsins 140 rd.
Þar frá dragast skuldir, svo sem
morgungjöf á giftingardegi, henni
heldur ekkjumaðurinn ,en það er
kýr og hestur, samtals 27 rd. Fjórir
rd. ganga til tveggja stúlkna, sem
hafa annazt húsmóðurina í banaleg-
unni.
Hrein eign var 80 rd. 48 skiid-
ingar, skiptist jafnt milli ekkju-
mannsins og lífserfingjans Önnu
Maríu Guðmundsdóttur.
Hún var þá á 12. ári, þegar móðir
hennar lézt.
★
Jón snikkari Grímsson kvænti.st í
annað sinn. Seinni kona hans hét
Una og var Eiríksdóttir. Hún hafði al-
izt upp hjá foreldrum sínum í Hólmi
í Einholtssókn, bar nafn formæðra
sinna úr föðurætt, komin frá Unu
Aradóttur á Hlíð í Lóni.
Þau Jón og Una bjuggu um skeið
162
í IM I N N
SUNNUDAGSBLAÐ