Tíminn Sunnudagsblað - 20.01.1963, Side 14
Þannig láqu hin fornu skip í leirnum á botni Hróarskeldufia rðar. Grjó’tiS hefur aS mestu leyti veriS hreinsaS ofan af
þeim og sjónum dælt brott, áSur en myndataka fór fram. Hjarta. fornleifafræðinganna gladdist við þessa sýn — og
skyidi enginn lá þeim
með mjúku og smágerðu heyi, og
vafalaust hefur hann verið skartbú-
i'm. Sverð lá við hlið hans, o.g gyrtur
hefur hann verið belti með spennum,
doppum og málmleggingum. Á fót-
um hefur hann haft gegnskorna ilskó,
og við ristarbeinin, þar sem ólarnar
ihafa mætzt, voru þrjár silfurslegnar
bronskringlur. Við ökklana voru fal-
legir bronssporar, lítill bikar og hníf
ur við hlið hans, leirker við höfðalag
og fætur. Ofan á hann hafa verið
breiddir skinnkoddar með heyi. Yfir
þetta allt hafði svo verið hlaðin dys
mikil.
Það færðist mikill hugur í forn-
leifafræðingana við þennan fund. —
Þelr höfðu veður af: annarri gröf
skammt frá þessari. En sá, sem þar
hvíldi, hafði aðeins verið grafinn í
hálfum báti, og sverðið við hlið hans
var mun styttra en hitt. Við rann-
sókn kom í ljós, að þarna hafði ver-
ið grafinn ungur drengur, ekki eldri
en tólf ára. Var aldurinn ákvarðaður
af tönnum, sem fundust.
En það, sem þegar hafði fundizt,
var býsna merkilegt. Af haugfénu
varð tvennt ráðið: Þessar grafir voru
frá fyrstu öld tímatals okkar, og
þetta fólk hafði haft viðskipti við íbúa
meginlandsins. Leirkerin úr gröf höfð-
ingjans áttu uppruna sinn í héruð-
unum við Óder og Saxelfi. En það er
staðfest við marga aðra fornleifa-
fundi, að sæfarir hafa verið mikill
þáttur í lífi fólks á þessum slóðum
á fyrstu öldum tímatals okkar. Hér
hefur sjálfsagt sægarpur verið til
hvíldar lagður í farkosti sínum.
Þarna fundust meira en tuttugu
grafir, þar sem bátar höfðu verið not-
aðir sem líkkistur, en aðeing tvær
þar sem heilum bátum hafði verið
offrað. Vissulega voru þetta lítilfjör-
legar fleytur í samanburði við skip
víkingaaldar. Lengd þeirra hefur ver
ið fjórir, fimm eða sex metrar og
breiddin nálægt einum metra. Ná-
kvæm rannsókn leiddi í ljós, að
þessir bátar hafa verið gerðir úr allt
að tíu plönlcum. Járnnaglar fundust
engir, en för eftir þriþætt seymi,
sem sást í efnum, er samskeytin hafa
verið þétt með, tala ótvíræðu máli:
Þeir hafa verið bundnir eða seymdir
saman. Og þessar bátasmíðar hafa ver
ið undanfari hinnar miklu skipasmíða
víkingaaldar.
Það er enn óljóst, hvernig þessir
62
T I M I N N
SUNNUDAGSBLAÐ