Tíminn Sunnudagsblað - 09.06.1963, Side 12
Hallsteinn Hinriksson. (Liósm.: GE)
settur síðan og starfað sem leikfimi-
kennari við skólana. íþróttahús var
þá til fyrir í bænum, sama húsið og
enn er notað. Það er nú orðið fjöru-
tíu ára gamalt og fullnægir hvergi
þörfum skól'anna og íþróttafélaganna
í bænum. En það var mikið átak að
byggja þetta hús á sinni tíð, og það
hefur sagt mér glöggur maður, að í
rauninni hafi það verið miklu meira
stórvirki þá en það er nú aff byggja
þessa höll, sem hér á að fara að rísa.
En húsið er auðvitað alltof lítið núna.
Þó hefur það verið endurbætt mikið
síðan það var reist og meira að segja
flutt. Það var byggt upphaflega við
gamla barnaskólann niðri við Suður-
götu, skammt frá lögreglustöðinni, en
var flutt upp að læknum eftir að
búið var að byggja barnaskólann þar.
Fyrir nokkrum árum var það svo end-
urbætt aftur, og komið upp handa-
vinnustofum uppi á loftinu, en salur-
inn er sá sami og var og auðvitað
orðinn alltof lítill, ekki sízt fyrir
íþróttafélögin. Og það annar ekki
þörfum skólanna. Síðustu árin hefur
orðið að fækka talsvert leikfimitím-
um hjá öllum börnum, einkum
yngstu börnunum; t.d. fá sjö ára
börn enga leikfimi í vetur. Verði
engar breytingar á þessu í bráð, sé ég
ekki fram á annað, en að eftir örfá
ár verði ekkí hægt að hafa nema einn
leikfimitíma í viku fyrir hvern bekk.
— Fljótlega eftir að ég kom til
bæjarins byrjaði ég einnig að kenna
sund á sumrin og því hélt ég áfram
um margra ára skeið. Þá var engin
sundlaug komin enn í bænum og
kennslan fór því fram í sjónum, fyrst
við Óseyri, sunnan til í bænum, en
síðan vestur á Mölunum, þar sem
sundhöllin er núna. Áður en ég
byrjaði, höfðu þeir annazt sund-
JG KANN EKKI VID MIG
NEMAINNAN UM ÆRSLI"
SEGIR HALLSTEINN HINRIKSSON íþróttakennari
Fyrir nokkru brá ég mér suður í
Hafnarfjörð til að hitta þar að máli
Hallstein Hinriksson iþrótta- og leik-
fimikennara, en engar ýkjur munu
vera að segja, að íþróttalif þess bæjar
eigi engum manni eins mikið að
þakka og honum. Hallsteinn tekur
mér vel og talið berst brátt að íþrótt-
ucn og íþróttakennslu.
— Ég kom til Hafnarfjarðar árið
1929, segir Hallsteinn. — Áður hafði
ég verið einn vetur kennari í Vík í
Mýrdal og síðan stundaði ég nám á
íþróttakennaraskóla í Kaupmanna-
höfn í hálft annað ár. Við vorum
þrír íslendingar þar þá samtímis,
auk mín voru það þeir Aðalsteinn
Hallsson og Friðrik Jónasson. Eftir
að ég kom að utan flutti ég til Hafn-
arfjarðar, og hér hef ég verið bú-
kennslu í Firðinum, Jakob Sigurðsson
og Grímur heitinn Andrésson. En
þótt skilyrðin væru slæm, var alltaf
mikil þátttaka í þes'sum sundnám-
skeiðum, ótrúlega mikil þátttaka.
Þetta stafaði að einhverju leyti af
atvinnuháttunum. Þá rar saltfisk-
verkun mikil í bænum, og ungling-
arnir komu til sundsins um miðjan
daginn milli breiðslu og samantekn-
516
TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ