Tíminn Sunnudagsblað - 28.01.1968, Page 19

Tíminn Sunnudagsblað - 28.01.1968, Page 19
hyggja fyrir henni. Þá datt henni ástin i hug. Gat það verið, að hon- um litist vel á hana? Önnur á- stæða gat ekki verið til þess, að hann hirti ekki um líðan Gunnu. En Una var viss um, að þau ættu eftir að tala mikið um Gunnu og ráðgast um, hvernig hægt væri að hjálpa henni. Allt í einu sagði hann, að nú væri matmálstími kominn, og hann ætlaði að sækja mat handa þeim báðum. „Ætan mat,“ bætti hann við hróðugur. Að svo mæltu spratt hann á fæt- ur og lagði af stað. En hann leit um öxl og sagði henni að reka rækilega frá túninu, svo að þau gætu borðað í friði. Hann beið undir klettunum, þeg ar hún kom aftur. Þau settust. Hann hafði meðferðis hangikjöt, brauð, smjör og mjólk, sem var næstum eins og rjómi. Hún spurði, hvort hún mætti ekki færa Gunnu eitthvað af þessu. Hann sagði, að þá kæmist upp um þau. Una sagð- ist treysta Gunnu, og Gunnu batn- aði áreiðanlega fyrr, ef hún fengi svona kræsingar. Þá leyfði hann henni að fara með það, sem eft- ir yrði af matnum, en sagði um leið: „Við skulum tala um eitthvað skemmtilegra en Gunnu greyið.“ Svo sagði hann henni skrítlu af niðursetningi, sem stal sláturkepp. Það kom kökkur í hálsinn á Unu. Hún reyndi ekki að hlæja. Þá breytti hann umtalsefni og fór að herma eftir Vigdísi í Hrafna- gjá. Þá hló Una, svo að hún varð að þurrka sér um augun. Hann hermdi líka eftir karlinum og sagði henni sögur af heimsku og nirfilshætti þeirra skötuhjúanna. Una var í sjöunda himni. Auð- vitað fyrirleit hann nirfla og kven- sköss. Þau voru lengi að borða. Una tímdi ekki að gleypa í sig annan eins mat. En hann — hann horfði svo mikið á hana, að hann gáði ekki matarins. Að lokum bjirggu þau um leifarnar. Það var afgang- ur af öllu. Meira en nóg handá Gunnu. „Minna hafði Krístur handa fimm þúsundum,“ sagði hann. „Veiztu hvað,“ sagði hún áköf. „Ég skil þessa sögu svo, að Jesú hafi bara gefið fólkinu mestallt nestið sitt. Svo hafa lærisveinarnir tekið það eftir honum. Og svo hef- ur hver tekið það eftir öðrum, að gefa allt, sem hann gat. Og þá hafa allir fengið nóg. Þetta væri vel hægt. Ef allir gæfu öllum, væri enginn hungraður. Ef allir - Hún var orðin kafrjóð af mælsk unni. „Þú roðnar svo fallega“, sagði hann. Hún skammaðist sin fyrir að vera feimin við að segja það, sem henni bjó í brjósti. Honum þótti það víst hlægilegt. Hún þakkaði honum fyrir matinn með handabandi. Hann sleppti ekki hendinni. „Og svo — og svo gerum við eins. Við gefum öðrum alltaf með okkur. Og þá gerum við líka krafta verk.“ sagði hún. „Ætlarðu ekki að kyssa mig fyr- ir matinn“, spurði hann og kyssti hana. Hún hfö til þess að leyna þvi, livað hún var feimin. Það var svo sem ekki óalgengt að kyssa fyrir góðgerðir. Og þetta var bara stutt- ur þakklætiskoss. Hún leit samt undan, svo að hann sæi ekki, að hún roðnaði af því að þakka fyrir sig. Svo hélt hún áfram að tala. Nú var hún farin að horfa á hann, og hún gat ekki annað en hlegið, meðan hún talaði, hló og hló, þó að öll veröldin væri svona sorgbitin og þjáð. En henni fannst einhvern veginn, að öll mæða væri bráðum úr sögunni, og að allir bágstaddir fengju góðar sending- ar, eins og Gunna átti að fá. „Og svo taka aðrir það eftir okkur að gera kraftaverk, fyrst það er svona lítill vandi“, sagði hún. Hann sagði, að hún væri falleg. Þá varð henni orðfall. Hrósyrði hans létu yndislega í eyrum. En hvers vegna hlustaði hann ekki á hana? Hún kom heim um fótaferðar- tíma, fagurrjóð og utan við sig af gleði. Gunna var vakandi. Gunna horfði á hana stórum augum og svaraði ekki því, sem hún sagði um trippastóðið og túnsæknu ærn- ar. Og þegar Una fékk hennj mat- inn, brosti hún raunalega. Hún borðaði brauðið og smjörið. Hangi kjötinu hafði hún ekki lyst á í bráðina. Þegar hún spurði ekki, hvaðan maturinn væri, datt Unu í hug, að hún héldi, að hann væri illa fenginn. „Mér var gefið þetta“, sagði hún. Gunna sagðist vita það, lét aft- ur augun og spurði einskis. Þá fór Una inn og drakk grasar seyðið sitt. Þegar hún kom inn aftur, hafði Gunna breitt yfir höf- uð. Una afklæddi sig. En þegar hún var að festa svefninn, heyrði hún, að Gunna grét. Þá hélt hún, að Gunna væri að hugsa um dauð- ann og fór líka að gráta, þrátt fyi'ir gleði sína. Gunna mátti ekki deyja. Þegar hún sjálf væri orðin húsmóðir, gat hún látið Gunnu líða vel. Verst var, að margir aðrir einstæðingar áttu bágt, og hversu góðu búi, sem þau tvö byggju á Breiðabóli, hlaut henni að verða um megn að hjálpa öllum. Sveitin var svo stór. ísland var svo stórt. Veröldin var svo stór. Og ef þeir nú önzuðu henni ekki, þegar hún færi að segja þeim að gera eins og Jesú, þegar hann gaf af nestinu sínu! Þetta vandamál var svo stórt og óviðráðanlegt í- myndunarafli hennar, að hún glað- vaknaði. Hún reyndi að hugsa ekki um það. — Vertu sæl þúsund sinn- um hafði hún heyrt þessa kveðju. Vertu sæl! Enginn mátti segja það framar. Vertu sæl! Svona falleg kveðja gat ekki verið til i allri veröldinni.--------- í LINDIGARÐI - Framhald af bls. 83. „En auðvitað eru það ýmsir, sem hverfa héðan og maður sér hvorki né heyrir aldrei siðar. En við von- um þó, að einnig þeir hafi hér fengið nokkurt veganesti, sem þeim hafi orðið og verð að nokkru gagpi á ferli þeirra, hvar svo sem leiðirnar liggja. Það þýtur í laufi linditrjánna, þegar við ökum úr hlaði á Lindi- garði að áliðnum degi. Kliður söng fugla fyllir loftið og síðdegissólin fer lækkandi, en skuggar trjánna lengjast. Sá hópur drengja, sem í dag er að höggva brenni til eldi- viðar á komandi vetri, skipar sér í röð við heimreiðina og hrópar húrra, þegar við ökum úr hlaði. Raddir þeirra yfirgnæfa fuglasöng inn, og nokkrar skógardúfur fljúga úr trjánum um leið og húrrahrópin duna. Fáninn á Lindi- garði blaktir við hún og áður hrjáð ar drengjasálir eru nú í sólskins- skapi. Það er vonandi, að þessi sólskinsblettur eigi lengi eftir að ylja þeim. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 91

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.