Tíminn Sunnudagsblað - 07.04.1968, Blaðsíða 21
Enn btrtum vi8 fjórar myndir —
toikningar barna i Melaskóianum.
ÞaS er af nógu að taka, þvi að þar
er mikið teiknað og laglega farið
með blý og liti. Þó verður hér látið
staðar numið að sinni.
n |..
■ pp|gg|&\‘
Á myndinni hér að ofan sýnir Hanna Kristjánsdóttir okkur inn f kennslustofuna,
þar sem hún hefur vérið í vetur að leita að iykli vizkunnar. Efst í miðröðinni sit-
ur sjálfur kennarinn, ærið hnakkakerrtur, enda maður margvís. Því miður get-
um við ekki sagt, hvar Hanna situr.
Meðal manna og annarra jólasveina
Svo er hér loks mynd af húsi, sem næsta liklegt er, að prýða muni höfuðborg-
ina einhvern tíma í framtiðinni. Þetta er ekki neitt hversdagshús eins og menn
geta séð, og sannast hér, að fieiri eru hugmyndarikir en þeir, sem teiknuðu stór-
hýsin í hinni nýju höfuðborg Brasiliu. Teiknarinn heitir Þorgeir Jónsson.
Um leið og við látum lokið birtingu
þessara teikninga þökkum við kær-
lega öllum hinum ungu meyjum
og sveinum, sem lagt hafa blaðinu
lið með verkum sinum. Kannski
elga einhverjar þessara ungu teikn-
ara eftir að eiga við það meiri skipti
síðar. Að minnsta kosti fyndlst okk-
ur það skemmtileg tilhugsun. Og
hver veit, hvað auðnan kann að
verða okkur eftirlát?
T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
261