Tíminn Sunnudagsblað - 05.10.1969, Qupperneq 20
honitm árnaðarkveðjur. En hann
gekk ekki elnu sinni út á svalirnar
og veifaði til þeirra. Það var ekki
sjón að sjá bætta og staglaði fata-
garma hans. Það var ekki sjón að
sjá hann sjálfan. Hann sendi
Samúel Taylor út á svalirnar í
sinn stað. Þar tvísté hann vand-
ræðalega, því að þessi fagnaðarlæti
beindust ekiki að honum; Hann gat
ekiki komið I stað húsbónda síns.
Hann gat ekki einu sinni borið
fram neina afsökun við æpandi
fólkið niðri á götunni.
Húsið hrörnaði lika. Marmarinn
á útiþrepunum veðraðist, og hand-
riðin ryðguðu sundur. Ryðið tærði
járnið í svalagrindunum. Viðurinn
í hliðgrindinni og gluggapóstunum
fúnaði. Gólfteppi og renningar gat-
slitnuðu, og Anna varð að stagla
þetta, svo, að seinast voru þetta
ekki annað en samannjörvaðar tusk
ur. í staðinn fyrir blómin í glugg-
unurn voru komin gerviblóm úr
pappír.
New York hafði þanizt út, og sí-
fellt vantaði lóðir. Trén í garðinum,
sem kenndur var við postulann,
höfðu verið höggvin, og fugla-
söngurinn var þagnaður. Við
bakka Hudsonsárinnar höfðu þotið
upp bryggjur og hafnarbakkar og
Langar raðir vöruhúsa, sem löðuðu
að sér herskara af rottum. Eim-
vagnar og brautarlestir hvinu og
skröltu fram og aftur allan sólar-
hringinn, einsetumanninum, sem
fann bæði upp eimvagn og gufu-
vól. til mestu leiðinda. Auðmenn
irnir og tignarfólkið, sem búið
hafði við þessa götu, var farið burt
þaðan, og í staðinn voru komnir
þangað fátæklingar, sem brevttu
henni í öreigahverfi.
Betlarar sneru spiladósum sín-
urn i húsagörðum, og hanar gólu
á sorphaugum. Gamii maðurinn í
Strandstræti 36 gerði út menn lii
þess að kaupa hanana og höggva
þá. En nýir hanar fylltu skörðin
jafnóðum. Stelpur glömruðu dag
og nótt á hljóðfæri, þangað til
hann sendi þeim gullbjöllur, til
þess að þær hættu. En þær hengdu
bjöllurnar um hálsinn og spiluðu
af enn meiri ákefð en áður. Loks
var hið fornfræga hús Jóns kap-
teins Eiríkssonar orðið eitt eftir í
hverfinu. líkt og minnismerki horf-
innar dýrðar. Herbergin voru full
af líkönum, og í garðinum og á
þakínu voru undarleg virki, íhvolf-
ir skildir oflf trog. Þetta var sól-
véltn.
783
Það féklk vængi, að Jón Eiríksson
væri gripinn mikilmennsku
brjálæði. Finngálknið Grosswahn
hafði lengi setið um þennan ein-
búa. Nú hafði honum hugkvæmzt
að virkja sólarorkuna eins og hann
hafði áður fundið upp skipsskrúfu
og ótal margt annað. Hann sagði,
að sólarorkan væri eilíf og úr
henni blaut að vera kleift að ná
allri þeirri orku, sem mennirnir
þörfnuðust, þegar kolin i námun-
um og otían í jörðinni þyrri og
atíir fossar væru þagnaðir.
Stundum velti hann lengi vöng-
um yfir því, hvað uppgötvun var
í raun og veru. Hún var ekki neitt,
áður en hún var gerð. En þegar
hún hafði verið höndluð, birtist
hún í mynd vélar. En andi upp-
götvunarinnar var horfinn, og sjálf
var hún ekki lengur neitt merki-
legt. Hver, sem var, gat líkt eftir
vélinni og tekið hana í notkun.
En virkjun sólarorkunnar hélt
áfram að vera dularfuil. Sólvélin
stóð ofar öllum uppgötvunum.
Hún var eign hins mikla anda.
Hún var ekki til nema í hugboð-
inu, í heimi skáldskaparins.
Anna Kassidy ko>m inn. Póstur-
inn hafði komið, og hún var með
mörg bréf, þar sem utanáskriftin
var ekki annað en þetta: Jón Ei-
riksson, Ameríku.
— Höfuðsmaðurinn verður að
finna upp vól, sem getur
kálað rottuskömimunum, sagði
hún. Þær koma hingað í hópum
úr vöruskemmunum við bryggj-
urnar. Það er orðið fullt af þeim
hérna í húsinu.
Jón Eiríksson leit ekki einu sinni
upp .
— Ekki hef ég séð neinar rott-
ur.
En í sömu andrá skutust tvær
eða þrjár, sem villzt höfðu inn i
vinnuherbergið, út í eitt hornið.
Litlu, írsku ráðskonunni dauðbrá:
— Sjáið þarna!
— Ég má ekki vera aS því að
hugsa um þennan póst, sagði gamli
maðurinn, þar sem hann sat á
plankastúfnum og grúfði sig yfir
teikniborðið. Það bljóta allir að sjá,
að ég er önnum kafinn.
Hann var í talreifara lagi í belta
skipti og reyndi að gera ráðskonu
sinni skiljanlegt, hvernig á stóð.
Hann benti á teikningarnar að út-
búnaðinnm. sem átti að beizla sól-
arorkuna, er í raun og veru var
ekki annað en eilífðarvélin, sem
hann hafði haft í smíðum í
bernsku. Hana ætlaði hann að
kijást við framvegis. Hann hafði
þegar komizt svo langt með þessa
nýju uppgötvun sína, að hann gat
steikt kjúkling við hita frá sól
miðlara uppi á húsþakinu.
En Anna Kassidy lét sér fátt um
Slrkt finnast.
— Það væri annað, ef höfuðs-
maðurinn fyndi upp rottugildru.
Loks leit hálfníræður uppfinn-
ingamaðurinn á hana. Hún hafði
tóka elzt þessi litla, rauðhærða,
írska kona. Vélarhlutirnir í mann-
skepnunni slitnuðu, þó að allar
aðrar vélar entust .Þeir tærðust og
duttu í sundur, án þess að úr yrði
bætt..
— Er það tilætlunin, að ég hætti
við það, sem ég er að gera. og
fari að teikna rottugildru?
— Já, það finnst mér .Ég er bú
in að kaupa gil'drur í hundraða-
tali. Og þær eru ónýtar.
Uppfinningamaðurinn lét eins
og hann gæfi þessu engan gaum.
Um nóttina var hann andvaka og
hugsaði um virkjun sólarorkunn-
ar. En svo skaut orðuim ráðskon-
unnar írsku upp í huga hans. Þau
gerðu honum gramt í geði. Það
var eins og hún hefði verið að hæð
ast að uppgötvunum hans. Þó hafði
hún ekki gengið svo langt að
minna liann á, að hún var ráðs
kona hjá mifclum uppfinninga-
manni, sem allur heimur talaði urn,
snil'lingnum fræga. En samt sem
áður hafði 'hún tvístrað öllum á-
ætlunum hans um sólvélina með
því að heita á hann að búa til
rottugildru.
Hann brölti á fætur og kl'ædd-
ist, þótt útliimirnir vildu helzt
skerast úr leik, þegar hann tróð
sér í larfa sína. Siðan rambaði
hann að teikniborðinu. Hann sóp-
aði burt öllum uppdráttum og
teikningum, sem þar lágu, og lét
nýjan, hvítan pappír á brettið sitt.
Svo fór hann að blístra eins og
hans var vandi. Loks byrjaði hann
að teikna spánýja uppfinningu.
Enginn, sem séð hefði frumdrætt-
ina, hefði getað liátið sér detta í
hug, hvað þebta átti að verða. Enn
var þetta eikki nema hugmynd á
borði uppfinningamannsins.
Fyrst hafði honum fundizt þetta
allt of auðvelt viðfangsefni handa
sér. Svo kormst hann að raun um,
að það var of erfitt. En þessu var
hann vanur. Það voru torfærurn-
ar, sem alltaf höfðu eggjað hann.
Hann gerði hvert uppkastið af
T Í M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ